Tíminn - 27.06.1995, Blaðsíða 13
Þri&judagur 27. júní 1995
13
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Viðtalstímar innritunardeildar Dagvistar barna falla niður
í júlí vegna sumarleyfa.
Áfram verður tekið við umsóknum um leikskólapláss í af-
greiðslu eins og verið hefur.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Feröastyrkur til
rithöfundar
Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns samstarfs í fjárlög-
um 1995 verði varið 90 þús. kr. til að styrkja rithöfund til
dvalar á Norburlöndum.
Umsókn um styrk þennan skal hafa borist menntamála-
rábuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí
nk.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig umsækj-
andi hyggst verja styrknum.
Menntamálarábuneytið, 26. júní 1995.
TÖKUM ÁFENGIÐ
jr
V
Venjum unga
hestamenn
strax á að
NOTA HJÁLM!
UMFERÐAR
RÁÐ
í
Innilegar þakkir viljum vib senda þeim sem sýndu okkur vináttu og sam-
úð vib andlát og útför eiginmanns míns, fö&ur okkar, tengdafö&ur, sonar
og afa,
Jóns R. Þorgrímssonar
Stillholti 7
Akranesi
Anna Jóna Císladóttir
Kristján O. Baldvinsson
Einar S. Sigurdórsson
Karen E. Jónsdóttir
Margrét Þ. Jónsdóttir
Ragnhildur E. Jónsdóttir
Helga Ki Jónsdóttir
Gísli S. Jónsson Sólveig M. Sigur&ardóttir
Margrét Kristófersdóttir Þorgrímur Jónsson
og barnabörn
Francois Mitterrand á lokaskeiöi œvi sinnar:
„Berst fyrir lífinu jafn
lengi og mér er unnt"
Francois Mitterrand hefur veriö
umdeildur í tímans rás fyrir
stjórnarstörf sín, en allir eru sam-
mála um að barátta hans og æðru-
leysi við þann sjúkdóm, sem nú er
að draga hann ti! dauða, krabba-
mein í blöðruhálskirtli, hafi enn
aukið veg hans og virðingu.
„Ég hef alltaf barist fyrir mann-
réttindum og bættum hag landa
minna. Aö sama skapi berst ég fyr-
ir eigin lífi jafn lengi og mér er
mögulega unnt," segir Mitterrand.
Danielle, eiginkona Mitterr-
ands, giftist forsetanum aðeins
tvítug að aldri árið 1944 og spann-
ar því hjónaband þeirra meir en
hálfa öld. „Ég er viss um að mann-
kynssagan mun minnast hans
sem mikilmennis og réttsýns
stjórnmálaskörungs. Hann er
óhræddur að tala um dauðann og
hefur allt að því ótakmarkað
æðruleysi." ■
„ Hann er mjög hugrakkur
mabur og óhrœddur ab tala
um daubann og þab sem vib
tekur," segir Danielle, sem á
51 árs hjónaband ab baki meb
Francois Mitterrand Frakklands-
forseta.
Mjög er af Mitterrand dregib, en hann reynir þó enn ab komast
ferba sinna meb abstob lífvarbanna.
Ótrúleg lífsraun ungra foreldra:
Sonurinn hættir a& anda
á hverri nóttu
David Higginbotham, þriggja ára
bandarískur drengur, hættir að
anda á hverri nóttu, stundum oft-
ar en einu sinni og mega foreldrar
hans aldrei líta af honum.
Þessi litli bláeygbi snáði þjáist af
mjög sjaldgæfum sjúkdómi, sem
truflar skilaboö til heilans og veld-
ur því að hann hættir að anda.
Foreldrar hans hafa ekki fengið
órofinn nætursvefn frá fæðingu
hans, barnið er tengt við þrjá sírita
sem setja af stað vibvörunarkerfi
þegar hjarta hans stoppar. Þau
skipti sem foreldrarnir vakna upp
viö neyðarbjölluna skipta þúsund-
um fram til þessa.
„Þegar við heyrum í bjöllunni
höfum við aðeins örfáar sekúndur
til að bjarga lífi Daves," segir Cat-
herina Higginbotham, þrítug
móðir drengsins. „Til að fá hann
til að anda aftur sláum við hann í
il jaranar og nuddum höfub hans."
Þetta hefur þó ekki alltaf dugað
og í nokkur skipti hafa Catherina
og eiginmaðurinn, Roger, þurft aö
tengja Dave við súrefnistæki.
Dave er aðeins um 10 kíló að
þyngd og getur lítið sem ekkert
hreyft sig. Hann eyðir 17 klukku-
stundum á sólarhring sofandi og
í SPEGLI
TÍMANS
þreytist við minnstu áreynslu. Þá
eru meltingarfæri hans það ófull-
komin að hann veröur að fá sér-
stakt fæði. Ónæmiskerfið er
skaddað, þannig að mikilvægt er
Þrír síritar eru tengdir vib litla
drenginn og eru dœmi þess ab
neybarbjallan hafi hringt 8 sinn-
um á einni nóttu.
Dave verbur ab
láta sér ncegja
ab skoba heim-
inn í gegnum
gluggann á
herberginu sínu,
vegna sýkingar-
hœttu.
að hann komist ekki í snertingu
vib hugsanlega smitbera og er
hann af þeim sökum hafður að
mestu leyti í einangrun í herbergi
sínu.
Uppáhaldsafþreyingin er að
horfa á Prúbuleikarana og stund-
um fer allur dagurinn í að horfa á
sama þáttinn.
Stephen Kahler, prófessor í
Iæknisfræði, segir aö sjúkdómur-
inn sé ólæknandi og þab sé ekkert
hægt að gera nema minnka mögu-
lega tíðni þess að Dave hættir að
anda meb sérstöku tilraunalyfi,
sem nú er hafin framleiösla á.
Læknar telja að sjúkdómurinn sé
afleiðing hjartaslags sem Dave
fékk rétt eftir fæðingu.
Foreldrar hans þakka fyrir
hvern dag sem líður án þess ab
Dave hverfi frá þeim fyrir fullt og
allt og sítruflabur nætursvefn
þeirra hefur ekki breytt væntum-
þykju þeirra.
„Á meðan Dave gefst ekki upp,
gefumst vib ekki upp. Viö fögnum
sérhverjum degi, sérhverri klukku-
stund, sérhverri mínútu og sér-
hverjum andardrætti." ■