Tíminn - 27.06.1995, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. júní 1995
3
Sjötugur maöur féll út af vinnupalli vib sumarbústaö
í grennd viö Borgarnes:
Fluttur meö SIF á
Borgarspítalann
Maöur féll fram af vinnupalli
við sumarbústað í nágrenni
við Borgarnes á sunnudags-
kvöldib. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var kölluð í svo-
kallab Bravo-útkall um
kvöldið og sótti manninn í
Borgarnes, en sá útkallsflokk-
ur er ekki eins alvariegs eðlis
og þegar áhöfn er kölluð út
meb Alfa-útkalli. Var maöur-
inn fluttur að Borgarspítalan-
um og lent þar upp úr kl. 21 í
fyrrakvöld.
Maðurinn sem hér um ræðir
er um sjötugt. Meiðsl hans
reyndust minni en óttast hafði
verið. Var hann sendur frá
Slysadeild til Heila- og tauga-
deildar spítalans. Þar fékk Tím-
inn þær upplýsingar að líðan
mannsins væri góð. Hann
reyndist ekki brotinn en þarfn-
ast endurhæfingar á næstunni
að sögn læknis.
Þab var gæsluþyrlan TF-SIF
sem fór í sjúkraflugið og var
kallað út í Bravo-útkall eins og
það er flokkaö. Alfa-útkall er al-
varlegra eölis, en útkall Charlie
er þribja gerð útkalls og þýðir
að þyrlan og áhöfn verbi í bið-
stöðu að sögn Helga Hallvarðs-
sonar, yfirmanns gæslufram-
kvæmda.
TF-SIF, bjargvœttur tuga manna, vib Borgarspítalann í Reykjavík í fyrrakvöld, nýkomin úr Borgarnesi. Börn í Foss-
vogshverfi urbu ab hverfa frá þyrlupallinum þegar Sif birtist — en tóku síban til vib hjólaskautaibkun á pallinum
strax og þyrlan var horfin.
Erfitt að fá fjölskyldur hér
til ab taka við skiptinemum
33 erlendir skiptinemar koma
til landsins á vegum samtak-
anna American Field Service í
lok ágúst. Aðeins hefur tekist
ab útvega íslenskar fjölskyld-
ur til ab taka vib tólf úr hópn-
um enn sem komiö er og lýsa
samtökin AFS nú eftir fjöl-
skyldum sem hafa áhuga á að
opna heimili sitt fyrir erlend-
um nema í 5-10 mánuði, Ung-
mennin sem hingaö koma í ár
eru frá tíu löndum Suður- og
Norður-Ameríku, Norður-
löndum og öbrum Evrópuríkj-
um, svo og Asíu og Ástralíu.
Þessa dagana hafa eigendur
krókabáta verið að fá eybublöb
til útfyllingar frá Fiskistofu þar
sem þeim er gefinn kostur að
velja á milli viðbótarbann-
daga/sóknardaga eba þorskafla-
hámarks á næsta fiskveiðiári,
samkvæmt nýsettum lögum frá
Alþingi. Skilafrestur er til 25.
júlí nk. og er valib bindandi.
Árni Múli Jónasson, forstöðu-
maður fiskveiðistjórnarsviðs Fiski-
stofu, segir ab einnig sé veriö að
huga að því í samvinnu við sjávar-
útvegsráðuneytið, hvernig stabib
verbur að eftirliti með sóknar-
dagakerfinu eða róöradagakerfinu
eins og það hefur verið nefnt. En
eins og kunnugt er þá var það eft-
irlitsþátturinn sem stóð einna
helst í sjávarútvegsráöherra þegar
tillagan um róðraradagakerfið sá
fyrst dagsins ljós á nýafstöðnu
vorþingi.
Að mati Fiskistofu er ekki unnt
ab tilgreina meb vissu hversu
margir viðbótarbanndagar/sókn-
ardagar verða á næsta fiskveiðiári
fyrr en skiptingin á milli þess og
þeirra sem velja þorskaflahámark
íiggur fyrir. Sé hinsvegar gengib út
frá því aö allir velji nýja kerfib og
þorskafli krókabáta verði 40 þús-
und tonn á þessu fiskveiðiári er
viðbúið ab leyfilegir sóknardagar á
næsta fiskveiðiári, sem skiptist í
fjögur tímabil, verði alls 106.
Að sögn Elínar Rögnvalds-
dóttur hýsingarfulltrúa, eins
og það heitir, hjá AFS, eru sam-
tökin að senda 120 íslenska
unglinga sem skiptinema til
annarra landa um þessar
mundir. Ástæðu þess hve treg-
lega gengur að finna erlendu
skiptinemunum dvalarstað tel-
ur hún ekki vera þá að fjöl-
skyldur sem við þeim taka fái
ekki greiddan fæöis- og hús-
næðiskostnað þeirra, heldur að
það vaxi fólki í augum að taka
unglinga frá öbrum löndum
inn á heimilið.
Þá verður útgerðarmönnum
krókabáta heimilt, frá og meb
öbru veibitímabili fiskveibiársins
1996 - 1997, að flytja sóknardaga
frá fyrsta og öbru tímabili yfir á
þriðja og fjórða tímabil sama fisk-
veibiárs. Sé einn maður á bát í
nýja kerfinu er honum óheimilt
að róa með og eiga í sjó fleiri en 12
bala af línu, en 20 bala séu tveir
eða fleiri í áhöfn. Miðað er við aö
500 krókar séu á línu í hverjum
Leikfélagið Theater mun í
haust frumsýna nýja íslenska
rokkóperu. Rokkóperan er eft-
ir einn meðlim leikhópsins,
Ingimar Oddsson.
Rokkóperan ber nafnið Lind-
indin, en þaö er heitib á fornum
töfraspegli sem verður orsök
mikils æfintýris sem aðalsögu-
hetjan lendir í.
Leikstjóri sýningarinnar er
Guðjón Sigvaldason sem leik-
stýrði þeirri sýningu sem var
valin áhugaverðasta sýning
áhugaleikfélags leikárið 1993-
1994. Honum til aðstobar er
Dóra Takefusa. Höfundurinn
Ingimar Oddsson sér einnig um
tónlistarstjórn en danshöfund-
„Fólk virðist halda aö það
þurfi að gera einhverjar breyt-
ingar á daglegu lífi sínu, að það
þurfi að skemmta þessum
krökkum sérstaklega, sýna
þeim landið og dedúa eitthvað
við þau, en þab er ekki ætlast
til þess. Krakkarnir eiga að laga
sig að þeim aðstæðum sem þeir
komast í og fjölskyldan á ekki
að þurfa ab breyta sínu lífi
þeirra vegna," segir Elín.
Þeirri spurningu hvort ekki
komi til greina ab fjölskyldur
íslenskra skiptinema taki vib
unglingum að utan svarar hún
bala. Þær útgerbir sem velja þrosk-
aflahámark geta svo endurskoðað
val sitt í lok næsta fiskveibiárs. Vib
útreikning á þorskaflahámarki er
tekib mib af aflareynslu síðustu
ára auk þess sem þorskaflaáhmark-
ið er bundið við bát og er ófram-
seljanlegt. Þegar úthlutuöum
þorskkvóta báts hefur verið náð
eru allar krókaveiöar á honum
bannaðar það sem eftir er fisk-
veiðiársins. ■
ur er Bryndís Einarsdóttir sem
verbur stödd hér á landi í sumar
en hún er við nám í leik- og
dansstjórn erlendis. Fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar er
Guðmundur Kr. Oddsson.
Um 70 manns munu taka þátt
í ab setja verkið á svið en Theat-
er hefur fengið styrk frá Reykja-
víkurborg ab upphæð kr.
2.000.000,- gegn því að ráða
a.m.k. 28 skólanema eða fólk af
atvinnuleysisskrá í vinnu í
tengslum vib uppsetninguna.
Einnig kemur félagið til með
ab leita eftir stubningi frá einka-
aðilum en sýningin er viðamikil
í uppsetningu og því fjárfrek.
Rokkóperan er í fullri lengd
svo:
„Við höfum 'ekki viljað
skylda fólk til að gera það, en
reynslan er nú sú að 80% af
krökkum eru hýstir af fjöl-
skyldum krakka sem eru á för-
um og hinir eru gjarnan í
tengslum við einhverja sem
hafa hýst unglinga áður. En
með því að skylda þá sem
senda börn sín utan til að taka
á móti skiptinemum í staðinn
værum við farin að mismuna
þeim sem sækja um því ab að-
stæður fólks eru misjafnar."
Að sögn Elínar Rögnvalds-
dóttur kostar það íslenskan
ungling rúmar 400 þúsund
krónur að fara utan sem skipti-
nemi á vegum AFS.
„Það er mebaltalskostnaður
og innifalið í honum er ferða-
kostnaður fram og til baka,
ferðix innanlands þar sem
krakkarnir eru, námskeið hér-
lendis og erlendis, slysa- og
sjúkratryggingar, skólagjöld,
skólabækur og svo þau þjón-
usta sem þau fá. Samtökin
byggja starfsemi sína að miklu
leyti á sjálfboðaliðum. Allir
trúnaðarmenn eru sjálfboða-
liðar, en í hverju landi er rekin
skrifstofa og svo eru abalstöbv-
ar í New York," segir Elín
Rögnvaldsdóttir, en í skrifstofu
AFS hér á landi eru þrír starfs-
menn í fullu starfi og einn í
hálfu starfi. ■
en tónlistin er öll frumsamin af
Ingimari Oddssyni. Standa von-
ir til að hægt verði að gefa 17
lög úr verkinu út á hljómsdiski í
ágúst. Theater mun standa fyrir
áheyrnarprófi í byrjun júlí þar
sem valið verður í hlutverk.
Lindindin verður frumsýndur
í íslensku óperunni við Ingólfs-
stræti þann fyrsta september.
Leikfélagið Theater var stofn-
að síðla vetrar nú í ár af ungu
fólki sem hefur starfað á ýmsum
sviöum leiklistar hingað til. Fé-
lagar leikhópsins hafa meðala
annars sett upp fjölmörg leikrit,
framleitt kvikmyndir og sett
upp eigin söngleiki svo eitthvað
sé nefnt en þetta hafa þeir að
Mosfellsbcer:
Jónas forseti
bæjarstjórnar
í stað Þrastar
Jónas Sigurðsson, oddviti Al-
þýðubandalags í bæjarstjórn
Mosfellsbæjar, tók við sæti for-
seta bæjarstjórnar af Þresti
Karlssyni oddvita framsóknar-
manna á bæjarstjórnarfundi
21. júní. Þröstur hefur verið for-
seti bæjarstjórnar undanfarið
ár en framsóknarmenn mynda
meirihluta í Mosfellsbæ ásamt
fulltrúum Alþýðubandalagsins.
Á fundinum var ársreikningur
Mosfellsbæjar fyrir 1994 af-
greiddur. Heildarskatttekjur á því
ári voru 462 milljónir en heildar-
útgjöld 538 milljónir, eða 76
milljónir umfram skatttekjur, og
var það í samræmi við fjárhags-
áætlun. Gjaldfærð fjárfesting á
árinu nam 58 milljónum en eign-
færð fjárfesting 111 milljónum.
í frétt frá bæjarstjóra kemur
fram að umsvif bæjarsjóðsins á
árinu 1994 hafi aukist nokkuð frá
1993.
í ársreikningi er 52ja milljón
króna framlag lagt á afskrifta-
jeikning til að mæta töpuðum
kröfum og við það rýrnar pen-
ingaleg staða bæjarsjóðs sem því
nemur. Raunbreyting á peninga-
legri stöðu bæjarsjóðs varð lækk-
un um 126 milljónir á árinu og
var í árslok neikvæð um 313
milljónir, að því er fram kemur í
fréttinni.
Heildarskuldir Mosfellsbæjar í
árslok námu 474 milljónum og
höfðu þær hækkab um 67 millj-
ónir frá árinu á undan. ■
mestu gert hver í sínu horni en
sameina nú krafta sína í einu fé-
lagi.
Forsvarsmenn Theater áætla
að frumsýning Rokkóperunnar
Lindindin verði aðeins upphaf-
ið að fjölbreyttri starfsemi fé-
lagsins í framtíðinni og víst er
að félagsmenn munu láta mikiö
að sér kveða því í félaginu er
mikið um hugmyndaríkt og
skapandi fólk sem vert er að
fylgjast með í framtíðinni.
Eftir að uppsetningu Lindind-
in er lokið er ýmislegt á döfinni,
s.s. leikritasamkeppni, örleik-
ritadagskrá og uppsetning
barnaleikrits svo eittfivað sé
nefnt. ■
Eigendum krókabáta gert aö velja á milli viöbótarbanndaga/sóknar-
daga eöa þorskaflahámarks. Fiskistofa:
Eftirlitib í mótun
Islensk rokkópera frumsýnd í haust