Tíminn - 13.07.1995, Qupperneq 5

Tíminn - 13.07.1995, Qupperneq 5
Fímmtudagur 13. júlí 1995 IMlW 5 Er vinabœjamótinu var slitib, tókust samkómugestir íhendur og sungu meb tilfinningu: Hin góbu kynni gleymast ei. Tímamyndir: TÞ, Borgarnesi Norrœnt vinabœjamót í Borgarfiröi: Gestir frá öllum Noröurlöndunum Eftir matarveislu og ræbuhöld stigu norrœnir gestir og gestgjafar fjörugan dans fram eftir nóttu. Fjöldi norrænna gesta heim- sótti Borgfirðinga á dögunum, er þar var haldib norrænt vina- bæjamót. Um 200 gestir frá Fær- eyjum, Noregi, Svíþjób, Finn- landi og Danmörku heimsóttu Borgfirbinga og dvöldust í heimahúsum yfir eina helgi. Eitt og annað var gert gestun- um til skemmtunar. Sveitar- stjórnarmenn af Norburlöndum komu tveimur dögum fyrr og héldu fund með þeim borgfirsku, þar sem rætt var um norrænt samstarf. Meðal þess, sem gert var á fundinum, var ab samþykkja yf- irlýsingu þar sem m.a. var lýst yf- ir nauðsyn þess ab styrkja nor- rænt samstarf nú þegar sum Norburlandanna ganga inn í Evr- ópusambandið, en önnur standa utan við. Síðan var farið með sveitarstjórnarmennina í skoðun- arferð um Stafholtstungur og Norðurárdal. Meginhópurinn kom síðan á föstudeginum. Vinabæjamótið var síðan sett á laugardagsmorg- uninn með hátíð í Skallagríms- garöi. Hluta af setningarathöfn- inni varb að flytja inn í íþrótta- miöstöðina, vegna veðurs. Skoð- unarferð var farin um Reykholtsdal og Hálsahrepp á laugardeginum og á laugardags- kvöldið var hátíðarsamkoma. Matarveisla í boði Borgarbyggðar, ræðuhöld og dans stiginn á eftir. Norrænu gestirnir sóttu messu á sunnudagsmorguninn og skoð- ubu Hvanneyri um miðjan dag- inn. Vinabæjamótinu var síöan slitið seinnipartinn. TÞ, Borgamesi Mæbgurnar Anna Sigríbur Þorvaldsdóttir og Birna Þorsteinsdóttir léku saman á selló og píanó fyrir Norburlandabúana. Hópur dansara úr Borgarfirbi sýndi þjóbdansa á hátíbarsamkomunni. 1.000.000.000,00 kr. tap á ári Að undanförnu hefur skýrsla borgarendurskoðunar verið til umfjöllunar í fjölmiölum. Ég minnist þess ekki að jafn opin umræða hafi verið um fjárreiður Reykjavíkur og lýsi ánægju meb enn eitt framtak R-Iistans til bættra stjórnar- hátta jafnframt því sem ég þakka borgarendurskoðun fyrir ágæta skýrslu. Það sem hæst hefur borið í umræðunni er útgáfustarfsemi þjóðhátíðarnefndar „gamla meirihlutans" og hefur óspart verið gert grín að lítilli sölu sér- stakrar þjóðhátíðarbókar, en aðeins 3 eintök seldust upp í milljónakostnað. Þab er eins og fólk líti á þetta grafalvarlega mál í gegnum pólitísk gleraugu og reyni að gera lítið úr einhverjum stjórn- málamönnum frekar en fjalla málefnalega um vandann. Minna hefur borib á umræöu um önnur atriði skýrslunnar. Mér finnst sú staöreynd al- varleg að 1 af hverjum 11 borg- arbúum skuli hafa þurft fjár- hagsaðstoð frá félagsmálastofn- un. Þar hef ég trú á að tvennt komi til: Annars vegar bágt efnahagsástand og hins vegar sá nýi siður ab verða sér úti um alla styrki sem kostur er á frá hinu opinbera. Öðru vísi hugsuðu fyrri kyn- slóöir sem leituðu ekki aðstoðar fyrr en fokið var í öll önnur skjól. Nú eru öfgarnar komnar í þveröfuga átt og mál að tekið verði í taumana. Alvarlegast fjárhagsmálanna er þó hið gífuriega tap, sem raf- magnsveitan ber vegna aðildar sinnar að Landsvirkjun. Frá mínum bæjar- dyrum LEÓ E. LÖVE Að undanfarin 3 ár hafi jafn- aðarlega meira en einn milljarð- ur tapast á ári er ótrúleg tala. Kannski er umræðan um þetta tap svo lítil vegna þess að menn átta sig ekki á hvað um er að ræða þegar svona tölur eru nefndar. Þetta er svona álíka og þegar sagt er að 8 ljós- mínútna vegalengd sé til sóiar- innar. Við sem mibum allt við metrakerfiö höfum ekki skiln- ing á vegalengdum af þeirri stærðargráðu. En hvab eru 3 milljarðar á mannamáli? Með nokkurri einföldun má segja að í Reykjavík séu 25 þús- und 4 manna fjölskyldur. Ef þessar fjölskyldur þurfa að deila á sig tapinu, verba 3 milljarðar hvorki meira né minna en tæp- ar 1.000 krónur á fjölskyldu hverja einustu viku. Þótt fjölskyldurnar þurfi ekki að greiða beint, má gera ráð fyr- ir að minni þjónusta verði veitt sem milljörðunum nemur. Til dæmis verði færri barnaheimili byggb, minna verði um vib- hald gatna og annarra mann- virkja eða til ab berjast gegn fé- lagslegum vandamálum eins og eiturlyfjaneyslu og ofbeldi. Það er undarlegt að menn skuli þegja þunnu hljóði yfir slíkum óhemju fjármunum sem þarna hafa tapast. Hefbi Landsvirkjun verið einkafyrirtæki væri örugglega annað uppi á teningnum. Þá væri leitað skýringa og ugglaust fengju einhverjir að taka pokann sinn. Varð tapið ef til vill vegna þess að stjórnmálamenn meb draumóra ætlubu að selja raf- orku úr Blönduvirkjun og emb- ættismenn þeirra voru ekki nógu ákveðnir til að afstýra hinni vitlausu fjárfestingu? Er það svo gamla spilita sam- tryggingin sem veldur því að þagað er þunnu hljóði? Það er kannski mannlegt að vilja þegja um mistök sín, en stórmannlegt væri ef einhver gengi nú fram fyrir skjöldu og upplýsti um ástæbur þessa hneykslanlega taps. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.