Tíminn - 13.07.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.07.1995, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 13. júlí 1995 RníllllSAlUlffiKttE 7 Allar tökur foru fram í Reykja- vík, enda er höfubborgin sögu- svið myndarinnar. Fjöldi þekktra leikara kemur fram í myndinni, og meðal þeirra sem hafa með höndum hlutverk ættingja og annarra aðalpersóna eru Sigurður Sigur- jónsson, Karl Ágúst Úlfsson, Eg- ill Ólafsson, Randver Þorláks- son, Kristbjörg Kjeld, Sigrún Edda Björnsdóttir, Hanna Mar- ía Karlsdóttir, Tinna Gunn- laugsdóttir, Steinn Ármann Magnússon, Laddi, Valdimar Flygenring og Jón Sigurbjörns- son. Handritshöfundur og leik- stjóri er Þráinn Bertelsson, en Einkalíf er sjöunda bíómynd hans. Margar af fyrri myndum Þráins hafa verið meðal aðsókn- armestu íslenskra kvikmynda. Sú síðasta, Magnús, varð vin- sælasta kvikmyndin á íslandi árið 1989 og skaut þar bæði James Bond og Indiana Jones aftur fyrir sig. Nýlega naut framhaldsþáttaröð Þráins fyrir sjónvarp, Sigla himinfley, mik- illar almenningshylli. Einkalíf er framleidd af Nýju lífi, íslensku kvikmyndasam- steypunni og Zentropa Enterta- inments í Danmörku með styrkjum frá Kvikmyndasjóbi íslands og Norræna kvik- mynda- og sjónvarpssjóönum. Framleiðendur eru Þráinn Bert- elsson og Friðrik Þór Friðriks- son. Hljóð annabist Þorbjörn Erlingsson, hljóbhönnun Kjart- an Kjartansson, búninga og förðun Guðrún Þorvaröardótt- ir, leikmynd Guðjón Sigmunds- son og klippingu Steingrímur Karlsson. Framkvæmdastjóri var Vilhjálmur RagnaTSSon. Tónlistin er samin af Margréti Örnólfsdóttur, fyrrum Sykur- mola, og er m.a. flutt af hljóm- sveitinni Unun. Tónlistin kem- ur út á geisladiski hjá Smekk- leysu hf. ■ Einkalíf Þráins Ást og afbrýðisemi, glæpir, hjónaskilnabir, lambasteik, eiturlyf, sólbekkir, kvik- myndagerb, kynlíf og abrir venjulegir þættir hversdags- lífsins eru vibfangsefni Einka- Iífs, nýrrar gamanmyndar Þráins Bertelssonar, sem frumsýnd verbur í Stjörnubíói 9. ágúst nk. samkvæmt frétta- tilkynningu sem abstandend- ur myndarinnar sendu frá sér á dögunum. Einkalíf segir frá tvítugum pilti, Alexander, sem haldinn er kvikmyndadellu og ákveðui í félagi við kærustu sína og besta vin að gera heimildarmynd með myndbandstökuvél um býsna skrautlegt fjölskyldulíf sitt. Þrenningin er leikin af Gottskálk Degi Sigurbarsyni (Hvíti víkingurinn), Dóru Takefusa (Veggfóbur) og Ólafi Egilssyni (Ólafssyni). Við framkvæmdina uppgötva félagarnir hversu vandasamt getur reynst að fanga raunveru- leikann og jafnframt þab, ab hversdagslíf sem á yfirborðinu sýnist ofur venjulegt og jafnvel leibinlegt er þegar betur er að gáð hlaðið dramatískri spennu, gamni og alvöru. Að sögn Jóns Karls Helgason- ar kvikmyndatökumanns, gengur eftirvinnslan vel. Byrjað var að hljóðblanda í upphafi vikunnar og er þá einungis eftir að búa til kópíu fyrir kvik- myndahús. í heild hafi vinnan gengið vel og menn haft þokka- lega góban tíma til að vinna myndina, en auðvitað sé nóg ab gera og á endanum verði tíminn yfirleitt naumur. Þab skal engan undra, því myndin var tekin upp á aðeins 24 dög- um og sagði Jón Karl fáar ís- lenskar myndir hafa verið tekn- ar upp á svo skömmum tíma. Sjöunda kvikmynd Þráins Bertelssonar senn frumsýnd: Sumartónleikar á Norðurlandi í níunda sinn Fyrstu tónleikarnir verba í Akureyrarkirkju á morgun. Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tímans á Akureyri: Sumartónleikar á Norbur- landi hefjast ab þessu sinni 14. júlí og standa til 6. ágúst. Þetta er níunda sumarib sem efnt er til slíkra sumartón- leika, en þeim var fyrst hrundib af stab sumarib 1987 fyrir tilstilli Bjöms Steinars Sólbergssonar, organista á Ak- ureyri, og Margrétar Bóas- dóttur söngkonu, sem þá bjó á Grenjabarstab í Subur-Þing- eyjarsýslu. I upphafi voru sumartónleik- arnir bundnir við brjár kirkjur, á Akureyri, Húsavík og Reykja- hlíðarkirkju í Mývatnssveit, en síðar hafa tónleikar verið fluttir í fleiri kirkjum. Að þessu sinni verður efnt til tónleika í Akur- eyrarkirkju, Húsavíkurkirkju, Reykjahlíðarkirkju við Mývatn, Dalvíkurkirkju og Raufarhafn- arkirkju og alls verður um 12 tónlistarviðburði að ræba. Hugmyndin að baki sumar- tónleikanna hefur frá upphafi verib að skapa heimamönnum á hverjum stað skilyrði til þess að njóta vandaðrar tónlistar á sumardögum auk þess að bjóða ferðamönnum, er leið eiga um norðlenskar slóðir, að njóta tónlistarflutnings. Þá hefur einnig skapast ákvebinn vett- vangur fyrir flytjendur tónlistar til ab koma störfum sínum á framfæri á meðal landsbyggðar- fólks og .ferðamanna. Fyrir- mynd Sumartónleika á Norður- landi er fengin frá Sumartón- leikum í Skálholtskirkju, þótt frá upphafi væri ljóst að tón- leikahaldið á Norðurlandi yrði ekki bundið einni kirkju eða einum stað. Á þeim átta árum, sem Sumartónleikar á Norður- landi hafa verið haldnir, hefur fjöldi listamanna komið fram og einnig stutt uppbyggingu þessa framtaks meb nafni sínu og kunnáttu. Sumartónleikarn- ir eiga sér orðið fastan áheyr- endahóp og skipa ákveðinn sess í hugum heimamanna auk þess ab auka þá fjölbreytni sem ferðafólki, er leib á um byggöir Norðurlands, býðst að njóta. Alls verbur efnt til 12 tónleika á vegum Sumartónleika á Norb- urlandi á þessu sumri. Fjórir tónleikar verða í Akureyrar- kirkju. Þeir fyrstu 16. júlí þar sem kór kirkjunnar flytur meðal annars verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson, Scarlatti, Hassler, Mendelssohn, Bruckner og Haf- liða Hallgrímsson, en íslensku höfundarnir eru báðir Akureyr- ingar. Martial Nardeau og Guð- rún Birgisdóttir flautuleikarar flytja verk eftir Haydn, Beetho- ven, Bach, Migot og Mozart í Akureyrarkirkju 23. júlí, Madri- galakórinn í Heidelberg flytur verk eftir Monteverdi, Schutz, Brahms, Mendelssohn, Silcher og Hjálmar H. Ragnarsson und- ir stjórn Geralds Legelmann í Akureyrarkirkju 30. júlí og Tjarnarkvartettinn flytur ísl. þjóðlög og sönglög 6. ágúst. I Reykjahlíðarkirkju verða einnig fjórir tónleikar: Kór Ak- ureyrarkirkju þann 15. júlí, Martial Nardeau og Guðrún Birgisdóttir 22. júlí, Madrigala- kórinn í Heidelberg 29. júlí og Tjarnarkvartettinn 5. ágúst. Tvennir tónleikar verða í Húsavíkurkirkju: Martial Nar- deau og Guðrún Birgisdóttir verða þar 21. júlí og Madrigala- kórinn 28. júlí. Kór Akureyrar- kirkju heldur tónleika í Dalvík- urkirkju 14. júlí og Tjarnarkvar- tettinn verður í Raufarhafnar- kirkju 4. ágúst. Efnisskrá hvers flytjanda verður hin sama á öll- um tónleikum. Þess má ab lokum geta að Jón Hlöðver Áskelsson, tónskáld og heiðurstónskáld Kórs Akureyr- arkirkju, átti 50 ára afmæli í byrjun júní og er fyrsta tón- leikaröð sumarsins tileinkuð þeim tímamótum með flutn- ingi á tónverki, sem hann hefur sérstaklega samið fyrir kórinn og kirkjustarfið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.