Tíminn - 13.07.1995, Side 10

Tíminn - 13.07.1995, Side 10
10 Fimmtudagur 13. júlí 1995 fMENNINGARMÁLANEFND REYKJAVÍKURBORGAR Starfslaun listamanna Auglýst er eftir umsóknum um starfslaun listamanna hjá Reykjavíkurborg. Menningarmálanefnd borgarinnar velur þá listamenn er starfslaun hljóta. Þeir einir koma til greina viö úthlut- un starfslauna sem búsettir eru í Reykjavík. Starfslaun skulu veitt í allt ab 12 mánuði. Þeir lista- menn sem starfslaun hljóta skuldbinda sig til a& gegna ekki fastlaunuðu starfi á meðan þeir njóta starfslauna. Starfslaunin verða kunngerð á afmælisdegi Reykjavíkur hinn 18. ágúst n.k. og hefst greiðsla þeirra 1. október eftir tilnefningu. Umsóknum um starfslaunin skal skila til Menningar- málanefndar Reykjavíkurborgar, Kjarvalsstöðum v/Flókagötu, fyrir 1. ágúst n.k. Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar. TOKUM AFENGIÐ w A EFTIR BOLTA KEMUR BARN... "BORGIN OKKAR OG BÖRNIN í UMFERÐINNI" JC VÍK Ástkær faðir minn, sonur okkar og barnabarn Jón Kristinn Gunnarsson Bólstabarhlíb 50 verbur jarbsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 14. júlíkl. 13:30. Lísa Margrét jónsdóttir Áslaug F. Arndal Rúnar J. Hjartar Cunnar Jónsson Jón Kr. Gunnarsson Ragnhildur Cubmundsdóttir Finnbogi Kr. Arndal Cubný Halldórsdóttir Eiginmabur minn og fabir okkar Þorsteinn Jónsson Eystri-Sólheimum, Mýrdal verbur jarbsunginn frá Sólheimakapellu laugardaginn 15. júlí kl. 14:00. . Valgerbur Sigríbur Ólafsdóttir og börn 3QOO JSLArtl 1/ 'r j :;:c ^ .... 3 *!■ WV-V.V.N-.V.-.V.'.V-VAV. Stimplar sem eyöileggja frímerkin fyrir söfnurunum, sjá númerin í texta. Hvernig stimplum söfnum við? Undanfarib hafa mér borist margs- konar klippingar af íslenskum bréf- um frá kunningja mínum, sem ein- faldlega spyr: „Eigum við svo aö safna þessu og setja í safnbækur?" Mibaö við sýnishornin, sem ég læt hér fylgja í myndum, verð ég að svara: Nei. Vandamálib, sem um er að ræða, er þaö sem nefnt er vélstimplar og rúllustimplar. Þaö var fyrir um það bil 25 árum að allt í einu fóru að koma á markaðinn vélstimplar, sem voru meö bárunum (1) hægra megin við stimpilhöfuðið (2) (þá miöa ég við myndina af umslaginu, sem fylgir þættinum). Á hinni myndinni eru svo tveir slíkir stimplar, neðst á myndinni (3 og 4). Þetta var gamla geröin og var strax leitað til póstmálayfirvalda af LÍF og söfnurum yfirleitt. Var brugðist þar vel við og þær vélar iagaðar í takt vib það að skemma ekki frímerkin með bárustimplun- um, allténd þegar um bréf með einu frímerki var að ræða. Nú eru hinsvegar komnar á markaðinn nýjar vélar af að minnsta kosti tveim gerðum, þar sem stimplarnir eru þannig gerbir að þeir eyðileggja frímerkin, en staðarheitið kemur hinsvegar hreint og fallegt á bréfið (5 og 6). Þarna er raunar um fleiri gerðir véla að ræða en þá sem sýnd er hér. Loks er svo um að ræða handrúllustimpla (7 og 8). Dæmi 7 sýnir að hægt er að miða stimpil- höfðinu á frímerkiö, en í dæmi 8 lendir það alveg utanvið. Hvað skal svo gera til þess að bæta úr þessum málum, sem skipta íslenska frímerkjasafnara hreint ekki svo litlu? Ég leyfi mér hér með að fara þess á leit, ab Póstmálastofnunin reyni að fá þessar vélar lagaðar, svo að þær staðarstimpli frímerkin fyrst og fremst, en bárurnar lendi annars FRIMERKI SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON staðar. Ég hefi reynt að kynna mér samsetningu vélanna og eftir því sem mér virðist er ekkert í veginum til að leiðrétta stimpilhöfuð þeirra, svo að vel fari. Þá þarf einnig að kenna öllum, sem með póst fara, að stimpla frímerki, til dæmis í Póstskólanum. Þarna þarf að takast samvinna um mál, sem getur orðið báðum aðilum til góðs, söfnurun- um og Póstmálastofnuninni, sem þannig fær jákvæðari og glaðari viðskiptavini. Þá vil ég benda les- endum mínum á að ég vil gjarna heyra frá þeim um þessi efni og álit þeirra skiptir máli. Bréf til mín, sem send eru í Pósthólf 26, 222 Hafnar- firbi, berast alltaf ti! mín, hvar sem ég verð staðsettur á landinu. Látið nú frá ykkur heyra. Einhverjir kunna að hafa tekið eftir bréfinu og spurt sjálfa sig: „Hvaðan er nú þetta bréf?" Þegar ég spurði svona, vildi svo vel til að ég gat fundið svarið strax. Innihald bréfsins er frá sendanda í Garðabæ. Þegar það var kannað nánar, kom í ljós, ab mistök höfbu átt sér stab með stimpilinn, þegar hann var tekinn í notkun. Það var ekki búið ab festa á hann skífunni með hringjunum tveim, póstnúmerinu og stjömunum, samanber 5 og 6. Þetta gerði það að verkum, að eitt- hvað fór út af svona stimpluðum bréfum fyrsta daginn, ef til vill líka daginn eftir. Þá uppgötvaðist þetta og plötunni með staðarheitinu var smellt á, sem er jafn auðvelt og að smella saman Legokubbum. Þar með var vandinn leystur. Þó skal bent á, aö stimpill 6 er með tveim brúm inni í einum hring, en ekki tveim hringjum eins og 5. Garða- bæjarstimpillinn er hinsvegar með póstnúmerinu 210, neðst í stimpl- inum. Það er því mjög gaman fyrir þá, sem geymt hafa slík bréf, ab eiga þetta stimpilafbrigði. En snúum okkur næst að Hafnar- fjarðarstimplinum. Þar var notaður skamman tíma hliðartexti í stimpli tölusettum 9, með textanum „Póst- urinn sparar þér sporin". Þá var einnig notuð kynningin á HM í handbolta um nokkra hríð. Þessi kynning var ennfremur notub í Reykjavíkurstimplum á nr. 1, 3, 5 og 8. Auk þessa var þessi kynning sérprentub á umslög frá Póstgíró, Innheimtu símareikninga og launadeild Hafnarfjarbarbæjar. í dæminu, sem et tölusett 10, reyni ég svo að kenna söfnurum bragð til þess að fá frímerkin sín vel stimpluð. Það er að líma þau minnst 5 sentímetrum innar en hægri brún umslagsins nemur. Þá kemur stimpillinn nákvæmlega á frímerkið, en bárurnar verða eftir á umslaginu. Látið nú í ykkur heyra um þetta mál. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.