Tíminn - 22.07.1995, Síða 1
Listasumar á
Akureyri
Sex vikna lista- og menningardagskrá fastur liöur í bœjarlífinu
Listasumar er orbinn árlegur við-
buröur á Akureyri. Þab saman-
stendur af fjölbreyttri dagskrá
listviöburöa, sem hefst síbari
hluta júnímánabar og stendur til
ágústloka. Ab þessu sinni lýkur
dagskrá Listasumars 2. september
meb tónleikum í Glerárkirkju þar
sem hljómsveit og kór undir
stjóm Gunnsteins Ólafssonar
flytja Kvöldmáltíb Maríu meyjar
eftir Claudio Monteverdi.
Myndlistin átti stærstan þátt í
upphafi þessarar menningardag-
skrár, en þá skapaði Illugi Eysteins-
son, myndlistarmaður og arkitekt,
umhverfislistaverk í göngugötunni
á Akureyri og myndlistarmenn
opnuðu sýningar í Deiglunni í
Grófargili og á Café Karólínu. Á
öðrum degi Listasumars var einnig
efnt til tónleika í Listasafninu á Ak-
ureyri, þar sem meðal annars voru
flutt verk eftir Áskel Másson, Lárus
Grímsson og Þorkel Sigurbjörnsson.
Segja má aö einhver viðburður
verði á hverjum degi meðan dag-
skrá Listasumars stendur yfir, og er
þeim ætlað að höfða jafnt til
heimamanna sem ferðamanna er
leiö eiga til Akureyrar.
Ólöf Sigurðardóttir, forstöðu-
maður Listasumars ‘95, sagði að
mikil áhersla væri lögð á að sem
flestar listgreinar komi við sögu.
Þannig séu í boði tónleikar, mynd-
listarsýningar, leiklist og ýmiskonar
efni sem tengt væri þjóðlegum fróð-
leik. Hugmyndin að baki Listasumri
væri að kynna þá menningarstarf-
semi er fram fari á Akureyri yfir
sumartímann og styrkja þannig
ímynd bæjarins sem menningar-
bæjar er hægt væri að sækja heim
og njóta fjölbreyttra listviðburða.
Með tilkomu Listasumars væri
menning oröin raunverulegur val-
kostur í ferðaþjónustu á Akureyri.
Þegar hafi komið í ljós mikill áhugi
á þessari starfsemi og taliö væri aö á
bilinu átta til tólf þúsund manns
hafi sótt viðburöi Listasumars á síð-
asta ári.
Ólöf Sigurðardóttir kvað hug-
myndina ab þessari menningar-
starfsemi hafa sprottið úr því and-
rúmslofti sem skapast hafi á Akur-
eyri í tengslum við uppbygginguna
í Grófargili. Flestar menningar-
stofnanir bæjarins komi ab þessari
starfsemi með einum eða öðrum
hætti, auk þess sem Gilfélagið og
fjöldi einstaklinga leggi þar hönd á
plóg. Aðsókn að menningarvið-
burðum fari greinilega vaxandi og
rekja megi mikið af aukinni aðsókn
að menningarviðburðum til starf-
semi Listasumars.
Af listviðburðum sumarsins má
meöal annars nefna sýningu á graf-
íkverkum Hafliða Hallgrímssonar í
Listasafninu á Akureyri, tónleika
Tríós Reykjavíkur þar sem verk Haf-
liða veröa flutt, og einnig einleiks-
tónleika Helgu Bryndísar Magnús-
dóttur píanóleikara þar sem hún
leikur verk eftir Hafliða í Listasafn-
inu. Hafliði Hallgrímsson er Akur-
eyringur að uppruna og kunnastur
fyrir sellóleik, en hefur einnig starf-
að sem tónskáld og myndlistarmað-
ur.
Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi verður einnig minnst með
dagskrá um skáldið sem flutt verður
í Davíðshúsi, en eitt hundrað ár
voru liðin frá fæðingu hans á síðast-
liönum vetri.
íslensk nútímatónlist skipar veru-
legan sess í dagskrá Listasumars '95
þar sem ýmsir tónlistarmenn koma
saman og flytja verk innlendra tón-
skálda í Minjasafnskirkjunni og
Deiglunni í Grófargili.
Á Listasumri '95 verður boðið
upp á um sex tugi listviðburða á Ak-
ureyri á tímabilinu frá 23. júní til 2.
ágúst, og segja má að engin listgrein
verbi útundan. ■
Stjórn Listasumars ‘95 á Akureyri stödd í Grófargilinu. Frá vinstri Gubmundur
Oddur Magnússon, myndlistarmaður, Guöný Geröur Gunnarsdóttir forstöbu-
maöur Minjasafnsins á Akureyri, og Olöf Siguröardóttir framkvæmdastjóri
Listasumars '95. TímamyndÞI
Um 700 ungmenni við
hverfisstörf á Akureyri
Mikib hefur verib unnib ab um-
hverfismálum á Akureyri á
undanförnum árum. Af þeim
ástæbum eru ræktabar um 80
þúsund plöntur á vegum um-
hverfisdeildar bæjarins á
hverju ári og af þeim fjölda eru
um 60 þúsund sumarplöntur.
Einnig hefur verib unnib ab
trjárækt víba í landi bæjarins
og má einkum sjá þess merki
mebfram umferbaræbum og á
útivistarsvæbum. Þá hefur ver-
ib unnib ab gróbursetningu og
fegrun mibbæjarins þar sem
trjágróbur setur nú vaxandi
svip á umhverfib. Alls hefur
verib plantab á bilinu 100 til
130 trjáplöntum í Eyrarlands-
háls ofan Akureyrar en í fram-
tíbinni er gert ráb fyrir sam-
stæbu útivistarsvæbi vestan
byggbar í bænum er nær frá
Krossanesborgum norban Ak-
ureyrar í Kjarnaskóg og ós-
hólma Eyjafjarbarár í subri.
Akureyrarbær ver um 16 millj-
ónum króna til nýrra fram-
kvæmda í umhverfismálum á
þessu ári og er þeirri fjárveitingu
að miklu leyti varið til lagfæringa
í yngstu íbúðarhverfum bæjarins:
Gilja- og Síðuhverfi norban Gler-
ár. Þá er einnig unnið nokkuð á
miðbæjarsvæðinu og á svæbi við
Réttarhvamm ofan íbúðabyggbar
en þar hefur Sorpsamlagi Eyja-
fjarðar verið úthlutað athafna-
svæði. Svæðið vib Réttarhvamm
er stundum nefnt „Græna svæð-
ið" á Akureyri því þar eru saman-
komin þrjú fyrirtæki: Endur-
vinnslan hf., Úrvinnslan hf. og
Gúmmívinnslan hf., sem öll
sinna endurvinnslustarfsemi.
Eitt stærsta verkefni á vegum
Akureyrarbæjar um þessar mund-
ir er frágangur frárennslismála en
markmibið meb því starfi er ab
allt frárennsli frá byggðu bóli fari
til sjávar fyrir norðan bæinn og
Pollurinn verði þannig losabur
við allan úrgang. Á síðastliðnum
vetri var lokið við byggingu
dælustöðvar í innbænum á Akur-
eyri er dæla á frárennsli í dælu-
stöð sem byggja á við Torfunef
fyrir framan miðbæinn á næsta
ári. Bygging þeirrar stöðvar er síö-
an mikilvægur liður í að dæla
öllu frárennsli norður fyrir byggð
á Akureyri.
Eitt af þeim verkefnum sem
heyrir til umhverfismála á Akur-
eyri er vibhald og umhirða Lysti-
garðsins sem talinn er einstakur í
sinni röb hér á landi. í Lystigarð-
inum er að finna alla flóru ís-
lenskra grasa auk fjölda erlendra
jurta. Lystigarðurinn liggur á
milli Menntaskólans á Akureyri
og Fjórðungssjúkrahússins og eru
uppi hugmyndir um ab skil-
greina lóðasvæði þessara stofn-
ana sem hluta lystigarðssvæðis-
ins þannig að í framtíðinni verði
þær „stofnanir í lystigarði".
Auk þess að sinna mörgum að-
kallandi verkefnum varðandi út-
Allt komiö
Lokið er vibgerb á kirkjuskipi
Glerárkirkju á Akureyri, en
kirkjan skemmdist nokkub af
eldi í lok maímánabar. Mestar
skemmdir urbu í kjallara und-
ir kirkjunni þar sem rekib er
barnahemili en nokkrar
skemmdir urbu einnig í
kirkjuskipinu sjálfu, einkum
af reyk sem komst um mest-
alla bygginguna.
í tilefni af því að viögerð er
lokið var efnt til sérstakrar guðs-
um-
lit og umhirðu Akureyrarbæjar
varðar þá veitir Umhverfisdeild
bæjarins mörgum unglingum
vinnu á hverju sumri. Starfsemi
hennar er því einnig liður í at-
vinnuskapandi verkefnum fyrir
æskufólk en meb breytingum á
atvinnulífi hefur orðið erfiðara
fyrir ungmenni ab fá tíma-
bundna vinnu að sumarlagi. Á
þessu sumri starfa um 700 ung-
menni að umhverfisverkefnum á
Akureyri og er meðal starfstími
þeirra um sex vikur.
í samt lag
þjónustu í kirkjunni sunnudag-
inn 16. júli sem sr. Bolli Gúst-
avsson vígslubiskup annaðist
ásamt sr. Gunnlaugi Garðars-
syni sóknarpresti. A meðfylgj-
andi mynd, sem tekin var ab at-
höfn lokinni, má sjá frá vinstri:
Gubmund Ómar Gubmunds-
son, Orra Torfason, Hermann
Jónsson, Gunnhildi, sr. Bolla
Gústavsson og sr. Gunnlaug
Garðarsson. Mynd SH.