Tíminn - 22.07.1995, Síða 3
Laugardagur 22. júlí 1995
9
Hef trú á að mestu erflð-
leikamir séu að baki
segir Ingi Björnsson, nýráöinn framkvœmdastjóri Slippstöövarinnar Odda hf.
bæta þessum möguleika við,
þegar þeir komast að því að
hann sé fyrir hendi. Þau telja
reynsluna af Grænlandsferð-
unum með þeim hætti að um
framtíðarþátt í ferðaþjónustu
á Akureyri geti orðið að ræða.
Akureyri mibstöö
fyrir vísindaleiö-
angra
Þótt nú hafi verið bryddað
upp á þeirri nýjung að bjóða
dagsferðir frá Akureyri til
austurstrandar Grænlands, þá
eru það ekki fyrstu samskipti
þessara svæða. Flugfélag
Norðurlands hefur um árabil
haslað sér völl á Grænlandi
og vélar þess flutt fólk og far-
angur til ýmissa staða.
Sigurður segir að samskiptin
við Grænland hafi þegar skil-
að ákveðnum árangri. Með
samstarfi Flugfélags Norður-
lands við Grænlendinga hafi
Akureyri með tímanum orðið
einskonar miðstöð fyrir vís-
indaleiðangra. Um sé að ræða
ýmsa vísindamenn og hópa
sem fari til Grænlands. Þeir
komi hingað og notfæri sér
þjónustu Flugfélags Norður-
lands til áframhaldandi ferð-
ar. Þarna sé um talsvert marga
aðila að ræða, sem kaupi gist-
ingu á Akureyri og notfæri sér
ýmsa þjónustu sem til boða
standi á svæðinu. í flestum
tilfellum sé þetta fólk á opin-
berum vegum, sem ekki sé að
leita eftir ódýrustu möguleik-
um á ferðum sínum.
Sigurður segir að þótt
Margrét Danadrottning og
Sonja Noregsdrottning séu
trúlega þekktustu farþegar
Flugfélags Norðurlands á
Grænlandsleiðinni, þá sé hér
um umtalsverða ferðaþjón-
ustu að ræða.
Ferðamenn not-
færa sér beint flug
frá Keflavík til Ak-
ureyrar í auknum
mæli
Fyrir nokkrum árum hóf
Flugfélag Norðurlands beint
flug frá Akureyri til Keflavík-
ur. Margir spáðu því að þarna
gæti vart orðið um varanlega
starfsemi að ræða. Hvað ættu
Akureyringar að gera beint til
Keflavíkur? En reyndin hefur
orðið önnur. Flugið hefur
haldib áfram, þótt Sigurður
segi að stundum hafi verið
spurning yfir háveturinn um
hvort halda ætti því uppi meb
reglubundnum hætti.
Hann segir ákveðna kosti
felast í þessum möguleika. Til
dæmis hvað ferðir til útlanda
varðar — að geta farið beint
til Keflavíkur og tekið milli-
landaflugið þaðan. Þá notfæri
ferðamenn sér þennan mögu-
leika í auknum mæli, að geta
komið beint hingað noröur.
Sigurður kveðst telja að
grundvöllur sé fyrir þessum
valkosti. Þróunin í flugsam-
göngum verði eflaust sú, að
með auknu frelsi í verðlagn-
ingu fjölgi ferðum og fargjöld
lækki til fjölförnustu staða, en
dýrara verði að ferðast til fá-
mennari byggöa. Þannig
muni færri flugvellir þjóna
samgöngunetinu, en land-
flutningar aukast innan
byggða. ■
Ingi Björnsson, tók viö fram-
kvæmdastjórastarfi hjá Slipp-
stö&inni Odda hf. um síbustu
mánaöamót en hann hafhi þá
um rúmlega eins árs skeið starfab
sem framkvæmdastjóri Mecklen-
burger Hochseefischerei, sem er
dótturfyrirtæki Útgerðarfélags
Akureyringa í Rostock í Þýska-
landi.
„Ég hef þá trú á að mestu erfið-
leikarnir séu að baki í þessari at-
vinnugrein og betri tíð sé í vænd-
um þrátt fyrir að skipaiðnaðurinn
búi við ákaflega erfið rekstrarskil-
yrði. Við erum að keppa við er-
lendar skipasmíðastöðvar og skipa-
iðnaðarfyrirtæki sem starfa við
ólíkar aðstæður þeim sem eru hér á
landi. Þar á ég annarsvegar við fyr-
irtæki í löndum þar sem laun eru
mikið lægri en hér á landi og má
nefna Pólland og fleiri ríki Austur
Evrópu sem dæmi um slíkt. Hins-
vegar þurfum við að keppa við
skipasmíöastöðvar sem njóta veru-
legra styrkja af almennafé í við-
komandi löndum. Þar ganga þróuð
ríki Vestur Evrópu á undan og nær-
tækast að minnast á Noreg í því
sambandi því norskar skipasmíð-
stöðvar hafa unnið mörg verkefni
fyrir íslenskan sjávarútveg á und-
anförnum árum." Ingi segir ljóst að
hið opinbera verði að koma með
einhverjum hætti að þessum mál-
um til þess að skapa rekstrarskilyrði
sem líkist þeim sem skipaiðnaðar-
fyrirtæki í öðrum löndum búi við.
Menn vilji fara varlega í beinum
opinberum styrkjum en finna verði
leiðir sem geri þessum atvinnufyr-
irtækjum hér á landi kleyft ab
stunda samkeppni við hina er-
lendu aðila.
Ingi kveðst telja Slippstöðina
Odda að mörgu leyti vel í stakk bú-
ið fyrirtæki til þess að vinna sig frá
vanda undangenginna ára. „Við
höfum á að skipa mjög hæfu starfs-
fólki og hér er mjög gróin verk-
þekking til stabar. Ég tel að tekist
hafi að varðveita þessa þekkingu að
miklu leyti þótt ekki fari hjá því að
fagmönnum í atvinnugreininni
hafi fækkað við erfiðleika undan-
farinna ára. Færri hafa aflab sér
menntunar á þessu sviði en áður
var og skipa- og járniðnaðarmenn
horfib til annarra starfa þar sem
ekki voru næg verkefni vib skipa-
iðnaðinn. Verkefnin hafa einnig
verið að breytast. Nýsmíðar eru
næstum engar í landinu og mín
skoðun er að skipaiðnaðurinn
muni fyrst og fremst byggjast á
viðhalds- og viðgerðarverkefnum á
næstu árum. Ef okkur tekst vel til
við að rífa þessa atvinnustarfsemi
upp með viðhaldsverkefnum og
stjórnvöld sýna viðleitni til að
styðja við bakið á henni er alls ekki
útilokað að við getum hafið ný-
smíði að nýju innan einhvers
tíma."
Ingi Björnsson benti á að Slipp-
stöðin hf. hafi annast nýsmíbi ým-
issa skipa fyrr á árum og blómatími
nýsmíðanna hafi verið á árunum
1968 til 1985. Þá hafi meðal annars
verið smíðuð tvö skip fyrir Skipaút-
gerð ríkisins og nokkrir af togurum
íslenska flotans auk minni skipa og
báta. Ingi segir aö með flotkvínni
aukist möguleikar stöðvarinnar til
muna hvað vibhaldsverkefni varð-
ar þar sem með henni verði unnt
að taka stærri togara og einnig
kaupskipaflotann til viðgerða.
Á liðnum vetri komu nýir eign-
araöilar að fyrirtækinu en Lands-
banki íslands hafði þá eignast veru-
legan hluta þess vegna erfiðleika
undangenginna ára. Hinir nýju
eigendur eru auk Landsbanka Is-
lands; Jöklar hf. Málning hf. og
DNG á Akureyri og sagði Ingi
Björnsson að með tilkomu hinna
nýju eigenda muni staba fyrirtæk-
isins styrkjast verulega."
Nú starfar um 100 manna fastur
kjarni hjá Slippstöðinni Odda hf. á
Akureyri. „Viö höfum að undan-
fömu farið þá leið að semja við
ýmsa undirverktaka um ákveðna
verkþætti. Þannig koma mun fleiri
til starfa við þau verkefni sem
Slippstöðin Oddi hf. tekur aö sér.
Ég get ímyndab mér að allt ab 150
manns komi þar við sögu þótt
undirverktakarnir hafi ekki fulla
vinnu vegna starfa fyrir okkur. Sem
dæmi get ég nefnt ab hér á svæð-
inu starfa átta rafvirkjar í sjálfstæðu
fyrirtæki og eru verkefni hjá okkur
um 60% af þeirra vinnu. Ég hygg
að svo sé háttað um fleiri verktaka
þótt ég hafi ekki kannaö það til
hlítar enn sem komið er." ■
Ferbamanna-
bœrínn
AKUREYRI
Á Akureyri búa um
15 þúsund manns
Akureyri er í þjóöbraut og þar er að finna
margvíslega möguleika til afþreyingar.
Góð sundaðstaöa
Golfvöllur
Hótel, gistiheimili og gott tjaldsvæöi
Veitingastaöir, kaffihús og skemmtistaöir
Listasumar '95 meö fjölda listviðburða
frá júní til september
Skammt til margra markverðra staða
Upplýsingamiðstöö ferðamála í
miðbænum.
AKUREYRAR-
BÆR