Tíminn - 27.07.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.07.1995, Blaðsíða 1
SIMI 563 1600 Brautarholti 1 79. árgangur STOFNAÐUR 1917 Fimmtudagur 27. júlí 1995 138. tölublað 1995 Eölilegur lögfrœöi- kostnaöur? Spjótin beinast mjög að firna háum lögfrœöikostnaöi á ís- landi. Þeir sem minna mega sín og lenda í klónum á lög- mönnum kvarta sáran. Þá fyrst fara málin aö veröa alvarleg, þegar reikningar eru komnir í lögfrœöiinnheim tu. Sturla Einarsson, bygginga- meistari, var sagöur skulda tveggja ára greiöslur til fagfé- lags síns. Hann borgaöi þá skuld — en var búinn aö fá lögmann á bakiö á sér. Sturla segir aö lögmaöurinn hafi œtl- aö aö ncela sér í tugir þúsunda króna fyrir sáralítiö ómak, en kostnaöur hans var dœmdur niöur um helming í héraös- dómi. Engu aö síÖur fór Sturla illa út úrþessum viöskiptum. SJá bls. 2 Hugmyndir um aö margar deildir á Kvennadeild Landsspítalans opni ekki aftur eftir sumarlokanir: Fæðingarheimilinu nú lokað enn einn ganginn? Sökum sparna&araðgeröa gæti svo fariö aö Fæðingar- heimilinu, sem nýlega var opnað meö pompi og prakt eftir rándýrar endurbætur, veröi nú lokað enn einn ganginn, þ.e. aö þaö veröi ekki opnað á ný eftir sumar- leyfi. Einnig hafa komið fram hugmyndir um aö svo- kölluð dagdeild (sem m.a. annast fóstureyðingar) veröi lokuö áfram til áramóta og jafnvel aö meðgöngudeildin veröi heldur ekki opnuö aft- „Stöövum unglingadrykkju" sendir frá sér viövörun: Flestir dópsalar fara á Klaustur „Þaö kæmi mér ekkert á óvart þó framleiöendur á landa hygöu á stóra hluti fyrir versl- unarmannahelgina. Þetta er þeirra besti markaöstími og eins í fíkniefnunum," sagöi Björn Halldórsson, fulltrúi hjá fíkniefnadeild Lögregl- unnar í Reykjavík, í samtali viö Tímann í gær. Átakiö Stöövum unglinga- drykkju sendi í gær frá sér til- kynningu þar sem varaö er viö aö börn fari án fylgdar á útisam- komur þær sem haldnar eru um verslunarmannahelgina, þaö er í Vestmannaeyjum og á Kirkju- bæjarklaustri. Segir í tilkynn- ingunni aö búist sé viö aö flest- ir fíkniefnasalar landsins sæki Klaustur heim. Þá segir aö búast megi viö almennri drykkju á Þjóöhátíö í Eyjum, einsog hefö sé komin á. ■ ur aö fullu þaö sem eftir er ársins. Spuröur hvort rétt væri aö þaö stæöi nú til aö loka Fæöing- arheimilinu á ný svaraöi Jón Þ. Hallgrímsson, yfirlæknir Kvennadeildar: „Þaö átti alltaf aö loka því vegna sumarleyfa og var gert í síöustu viku." En verður því þá lokað til frambúðar? „Það veit ég ekkert um, ég er ekki mikill spámaður. En það er rétt að það hefur veriö rætt um þaö innan sviðsins, og tillögur komiö fram um þaö að ein af hugsanlegum sparnaðarleiðum væri sú, aö þeim sumarlokun- um sem í gengi eru veröi haldið áfram til áramóta." Jón segir aö mjög klemmi nú að Kvenna- deildinni fjárhagslega, þannig að það viröist geta farið svo að Fæðingarheimilinu veröi lokað a.m.k. til áramóta ef ekki leng- ur. Endanlegar ákvarðanir um þaö hvort Fæðingarheimilið veröur lokað framvegis eöa rekstri þess haldið áfram veröa hins vegar teknar af fram- kvæmdastjórn Ríkisspítalanna, sem enn mun ekki hafa fundað um málið. En ef sú verður nú niöurstað- an að Fæðingarheimiliö veröur einungis opið í örfáa mánuði, má þá ekki líta svo á að rándýr- ar endurbætur á húsinu hafi verið hálfgerö sóun á fjármun- um? „Þaö var pólitísk ákvöröun sem tekin var, að opna heimil- iö, og þaö var gert," svaraði Jón. Aðrar sumarlokanir eru m.a. á dagdeild og meðgöngudeild sem áður segir. Dagdeild segir Jón fyrir sjúklinga sem fara í aö- gerðir þess eðlis aö þeir geta far- iö heim samdægurs. Spurður hvað um þá verði ef deildinnni yrði lokað það sem eftir er árs- ins sagði Jón: „Það yrði reynt að gera eitthvað af þessum aðgerð- um hérna, en það þýðir að það yrði ekki hægt að taka inn af biðlistunum eins og gert hefur verið, þannig að búast má við aö þeir lengdust, þ.e. ef fólk færi þá ekki eitthvað annað". Varðandi starfsemi með- göngudeildar segir Jón að þar hafi í nokkur ár verið 4 rúm fyr- ir konur sem þurfa að fara í skurðaðgerðir vegna kvensjúk- dóma. Að öðru leyti sé deildin fyrir konur sem fá sjúkdóma á meðgöngu og þar að auki séu á deildinni svokallaðar dagannir, þ.e. konur sem þurfi að fara í frekari skoðanir heldur en gerð- ar eru í mæðraskoðuninni, svo sem í sírita vegna hjartsláttar fósturs. En varla verður þeim vísað frá? Er þetta ekki þjónusta sem erfitt yrði að loka bara í hálft ár eða svo? „Það finnst nú fleir- um," svaraði Jón Þ. Hallgríms- son yfirlæknir og virtist ekki of bjartsýnn á áframhaldiö. ■ Afkoma ríkissjóös batnar um 2-300 milljónir: Þriðjungur greiðir tekjuskatt Or&sendingar um álögb opinber gjöld þessa árs eru nú að berast einstaklingum og fyrirtækjum. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra segir að álagningin sé í nokkuð góðu samræmi við það sem ráð var fyrir gert og sé út- koman jafnvel heldur skárri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þannig a& ætla megi að álagning ársins bæti afkomu ríkissjóð frá því sem fjárlög gerðu ráð fyrir um 200- 300 milljónir króna. Bamabætur og tekjutengdar bæt- ur úr ríkissjóði nema um 7,7 millj- örðum króna á árinu, en þær valda því, að sögn fjármálaráðherra, að þegar upp er staðið er það innan við þriðjungur framteljenda sem greiðir tekjuskatt, enda er nú svo komið ab hið opinbera greiðir liðlega fjórðu hverja krónu af vaxtagjöldum ein- staklinga vegna íbúðarhúsnæðis. Tekjuskattar nema 26,3 milljörð- um króna, en það er lækkun upp á 1,6 milljarð króna milli ára. Ástæð- an er m.a. sú ab framlög ríkisins til sveitarfélaga vegna ónýtts persónu- afsláttar hækka milli ára. Eignarskattar einstaklinga Iækka úr 1.704 milljónum króna í 1.522 milljónir og er lækkunin milli ára 11%. Lækkunin skýrist af afnámi stóreignaskatts um síðustu áramót og einnig af skuldasöfnun einstak- linga. Samkvæmt skattframtölum hafa skuldir einstaklinga aukist um 9%, eða 20 milljarða króna. Mest munar þar um skuldir vegna kaupa á íbúðarhúsnæði sem eru 13 millj- arðar, en námslán vega þar einnig þungt. Framteljendum með nei- Fribrik Supbusson fjármálarábherra á biaöamannatundinum ígœr. Tímamynd: Pjetur kvæða eignastöðu, þ.e. þeim sem eiga ekki fyrir skuldum, fjölgar um fimmtán hundruð á milli ára og eru þeir nú um 22 þúsund, en skuldir þeirra em að meðaltali 1,7 milljónir á mann. Samkvæmt framtölum hafa með- allaun hækkað um 2% milli ára. Upplýsingar um tekjur einstakra starfsgreina iiggja ekki fyrir, nema sjómanna, en meðallaun þeirra hækkuðu um 3%. Tekjuskattur á fyrirtæki hækkar um 900 milljónir eða tæp 22% milli ára og nemur 5,1 milljarði. Þetta endurspeglar batnandi afkomu fyr- irtækja, en hún birtist jafnframt í vænlegri eignastööu fyrirtækja og hækkun eignaskatts á fyrirtæki um 100 milljónir milli ára, úr 1,5 millj- öröum í 1,6 milljaröa. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.