Tíminn - 27.07.1995, Blaðsíða 11

Tíminn - 27.07.1995, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 27. júlí 1995 ör Í'toíww Gubrún Sigurbardóttir handavinnukennari Þegar mér barst andlátsfrétt Gub- rúnar mágkonu minnar ab morgni afmælisdags hennar, 15. júlí, en þann dag heföi hún orðið 90 ára, komu upp í huga minn orð frænda míns, Eiríks Einarssonar, er hann viðhafði við andlát annars nákom- ins vinar: „Sestur sólskinsdagur er." Já, æviferill Guðrúnar var svo bjart- ur og af henni stafaði slík hlýja, að hann minnti helst á sólskinsdag, og viö andlátsfréttina var eins og drægi ský fyrir sólu, þó aö æviferill- inn væri oröinn Iangur og þegar mikið á hana lagt í hennar lang- vinnu veikindum. Ég man er fundum okkar Gub- rúnar bar fyrst saman, en þá var hún ung stúlka, 23ja ára gömul, geislandi af lífsgleði og af henni stafaði svo mikilli hlýju og góð- leika, ab öllum leiö vel í návist hennar. Þetta var árið 1928 og hún var nýkomin til landsins frá Kaup- mannahöfn, þar sem hún hafði ver- ið við nám á annaö ár og kynnst þar Gísla bróður mínum, sem var þar einnig við nám, en í efnaverkfræði. Hann hafbi svo ráðið hana í kaupa- vinnu að Hæli um sumarið, og þar varð hún strax eins og ein af fjöl- skyldunni. Ég veit að ekkert okkar gleymir þessu sumri, þegar hún Gunna, eins og hún var jafnan nefnd, kom í fjölskylduna og sýndi okkur hvers hún var megnug í hlý- leika, fórnfýsi,' skyldurækni og dugnaði í að framfylgja sínum ströngu kröfum til sjálfrar sín. Nokkrum árum seinna giftu þau sig, eba í árslok 1931, en þá hafði Guðrún fengið stöðu sem handa- vinnukennari vib Miðbæjarbarna- skólann í Reykjavík og Gísli stöðu sem bankaritari vib Landsbankann í Reykjavík. Það var þrúgandi efna- hagskreppa hér á íslandi á þeim tímum, og það sama gilti í öllum hinum vestræna heimi. En á Njáls- götu 77, þar sem þau stofnuðu sitt fyrsta heimili, var ekki að sjá að þurrð væri á neinum veraldargæð- um, þegar ungu hjónin tóku á móti vinum og vandamönnum í litlu íbúðina með sínum einföldu hús- gögnum og sennilega af fremur litl- um efnum. Guðrún var af góðu fólki komin. Faðir hennar var Sigurður Jónsson, skólastjóri Miöbæjarbarnaskólans, og móbir hennar, Anna Magnús- dóttir, var einnig kennari þar. Hún dó frekar ung og börnin urðu aö- eins tvö, auk Guðrúnar Steinþór Sigurösson, síðar stjörnufræðingur, kennari og framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs, en hann fórst vib rannsóknir í Hekiugosinu 1947 og t MINNING var mikill mannskaði að honum. Hann var giftur Aubi Jónasdóttur og áttu þau tvö börn: Sigurð Stein- þórsson prófessor og Gerði Stein- þórsdóttur, fv. borgarfulltrúa í Reykjavík. Sigurður skólastjóri giftist aftur Rósu Tryggvadóttur og eignuðust þau þrjá syni: Hróar, sem dó ungur, Tryggva, sem var sjómaður, og Kon- ráð lækni, fyrst lengi í Laugarási í Biskupstungum, en síðan í Reykja- vík. Fjölskylda þeirra Gubrúnar og Gísla stækkaði smátt og smátt. Fyrst fæddist þeim dóttirin Anna árið 1933, en hún er íþróttakennari, gift Geir Kristjánssyni skrifstofumanni og eiga þau tvö börn og þrjú barna- böm. Árið 1935 fæddist þeim önn- ur dóttir, Margrét, sem var í mörg ár kennari við Húsmæðraskólann á Laugarvatni, en síðan nú í allmörg ár forvörður við Þjóðminjasafnib. Árið 1937 fæddist þeim dóttirin Sig- rún, lyfjafræðingur, gift Jóhanni Má Maríussyni, abstoðarforstjóra Landsvirkjunar, og eiga þau fjögur börn og þrjú barnabörn. Síban var það 1946, að þeim fæddist sonur- inn Gestur, jarðfræðingur, sem starfað hefur í Mið-Ameríku og Afr- íku um 10 ára skeið, en er nú starfs- maður Reykjavíkurborgar, giftur Erlu Halldórsdóttur mannfræðingi og eiga þau tvö börn. Þau Gunna og Gísli bjuggu ekki lengi á Njálsgötunni, en fluttu á Ei- ríksgötu 37, og þar voru þau til 1936 er þau fluttu á Barónsstíg 59, en það varö mjög gestkvæmt og eft- irminnilegt heimili. Þar bjuggu þau til ársins 1956, en keyptu þá íbúb í Stigahlíð 2. Þau höfðu fram að því búið í þriggja herbergja leiguíbúð- um, en í Stigahlíöinni var plássið meira og vel rúmt um f jölskylduna. En þó að íbúðirnar, sem þau bjuggu í, væru lengi vel litlar, varð enginn var vib það, því að það virtist alltaf nóg pláss til að taka á móti nætur- gestum, og vib skyldfólkið frá Hæli áttum lengi þar vísan næturstað, þegar vib þurftum að gista í bæn- um. Þau Gísli og Gunna voru einstak- lega vinmörg, og því fengu þau margar heimsóknir af samstarfs- fólki, vinum og vandamönnum, og gestrisni þeirra hjóna var næsta ein- stæð. Heimilið var mikið menning- arheimili, þar sem meðal gesta voru gjarnan merk skáld og listamenn og heimilisfaðirinn einnig ágætlega heima í listum og bókmenntum. Auk þess var hann duglegur ab spila á píanóið, bæði merk músíkverk og undirspil, þegar tekið var þar lagið, sem oft var gert, einkum þegar við hittumst þar f jölskyldan frá Hæli og að sjálfsögðu oftar. Þau áttu einnig mikiö af plötum og góð hljómflutn- ingstæki, og því gafst þar oft tæki- færi til ab hlýða á klassíska músík flutta af ágætum listamönnum. Þau hjónin stunduðu einnig alla tíð tónleika Sinfóníuhljómsveitarinn- ar, og þegar fram í sótti fylgdu börn- in með á þessa tónleika. Gísli skipti um vinnustað á miðri ævi og hóf störf vib Þjóðminjasafn- ið og vann m.a. við uppgröft á gömlum bæjarrústum. Þá var Gísli lengi í stjórn Ferðafélags íslands, og í sambandi við þessi störf feröuðust þau hjón mikið með almenning- svögnum, en einkabifreiö áttu þau hjónin aldrei. Gunna var einnig oft með Gísla, þegar hann var lengri tíma burtu frá heimilinu við upp- gröft, og hélt þá einskonar heimili fyrir hann og þá stundum við mjög frumstæðar aöstæbur. Þau fóru einnig nokkrum sinnum saman í langar utanlandsferðir til að heim- sækja Gest son þeirra og fjölskyldu, þar sem hann vann ab jarbhita- rannsóknum. Ég held ab ég hafi ekki veriö einn um það að finnast heimilisbragur- inn hjá þeim hjónum alveg einstak- ur, og svo fallegur að gott er ab láta hugann reika til þeirra tíma, þegar þau hjón liföu lífinu saman á Bar- ónsstíg 59 og Stigahlíö 2. Gunna átti stóran þátt í því yndislega heimili, sem þau áttu þar og gáfu vinum og vandamönnum svo ríku- legan aðgang að af örlæti og góð- vild. Þau höfðu lifað saman í yfir 50 ár frá því þau giftust, þegar Gísli fór að finna til heilsubilunar, sem við öll vonuðum að yrði ekki alvarleg. En svo reið af höggið, því að Gísli lést fyrirvaralítib að kvöldi þess 4. október 1984. Þetta var að sjálf- sögðu mikið áfall fyrir Gunnu, sem haföi á langri ævi bundið öll sín störf og tilveru vib líf og störf mannsins síns og fjölskyldu þeirra. En hér reyndist Gunna jafnsterk og alla tíð ábur. Hún kvartaði aldrei yf- ir því sem hún hafði misst, þó að við vissum að söknuður hennar væri sár, en einbeitti sér að því aö sinna í meira mæli en hingað til þörfum barna og barnabarna, af sinni umhyggju og gjöfulu hlýju. Fyrir átta árum varö svo Gunna fyrir miklu áfalli, þegar hún fékk heilablóðfall og lamaðist þaö mik- ið, ab hún varö ab nota hjólastól það sem eftir var ævinnar, og jafn- framt því skertist sjón hennar mik- ið. En hún hélt fullum sálarkröftum og kvartaði aldrei né vorkenndi sjálfri sér, en naut einnig sérstakrar umhyggju barna og barnabarna, sem þau veittu henni af miklum myndarskap og kærleika. Nú, þegar við kveðjum þessa sterku konu, sem lifði svo heil- steyptu og fallegu lífsformi, sem hér hefur verib lýst, þá er mér efst í huga innilegt þakklæti og ekki síst fyrir það, sem hún var konu minni, þegar hún kom hér til lands ókunn- ug öllum. Einnig vil ég þakka henni fyrir sjálfan mig, allt frá skólaárum mínum, og svo fyrir börnin mín, sem litu á heimili þeirra Gunnu og Gísla sem sitt annab heimili. Vib vorum mörg að hugsa um það, hvort við gætum heimsótt hana á afmælisdaginn hennar nú þegar hún yrbi níræð, til ab þakka henni fyrir svo margt frá liðnum ár- um. En hún var þá farin brott héð- an snemma þann morgun, og ég veit hvern hún hefur þá vonab að hitta, að sjálfsögðu fyrst og fremst manninn sinn, hann Gísla, sem var svo erfitt að kveðja, en hún haföi svo oft óskab sér að fá að hitta aftur. Það kveöur hana nú stór og öfl- ugur hópur barna og barnabarna, ásamt þeirra venslafólki, frændum og vinum, þakklátum huga, og við finnum það öll hve mikiis virði hún Gunna var okkur öllum og hve vandfyllt er skarbið eftir hana. Ég vil svo aö lokum þessara fá- tæklegu orða votta börnum hennar og öllu venslafólki innilega samúð við fráfall hennar, og sendi þessari heiðurskonu hinstu kvebju með innilegri þökk fyrir líf hennar og störf. Hjalti Gestsson DAGBÓK Fimmtudagur 2 Í júií 208. dagur ársins -157 dagar eftir. 30. vlka Sólris kl. 04.16 sólarlag kl. 22.50 Dagurinn styttist um 6 mínutur Utgáfutónieikar Exems Hljómsveitin Exem, sem nýlega gaf út geislaplötuna Kjöttromman, held- ur útgáfutónleika á veitingastaðnum Tveir Vinir vib Laugaveg í kvöld, fimmtudag, kl. 22. Exem skipa þeir Einar Melax og Þorri Jóhannsson, en þeim til aðstoðar em nú K. Máni á gít- ar, Kristrún Gunnarsdóttir á bassa og fleiri. Á undan Exem leikur hljóm- sveitin Seibur, en hana skipa Tryggvi Gunnar Hansen og fleiri. Geislaplatan Kjöttromman er gefin út af Smekkleysu sm/hf. Um Kjöt- trommuna stendur skrifað, að tónlist- in byggi á fomum gmnni með hæg- þungu hljómfalli og seiðandi síbylju. Þeir Exemistar telja sjálfir Kjöttromm- una vera einskonar ofnæmisviðbrögö viö heilakláða vegna áreiti dægur- og opinberrar menningar. Regnboginn: Forsýning á Forget Paris í dag, fimmtudag, forsýnir Regn- boginn gamanmyndina Forget Paris — Gleymdu París — sem fjallar á kostulegan hátt um hvaö tekur við í hjónabandinu þegar hveitibrauðsdög- unum sleppir. í aðalhlutverkum em þau Billy Crystal og Debra Winger, en Crystal er einnig leikstjóri myndar- innar og einn af höfundum handrits. Mickey Gordon er uppsperrtur orð- hákur og atvinnudómari í körfubolta- deildinni bandarísku. Hann er sáttur við stöðu sína sem piparsveinn þar sem allt er í föstum skorðum. En til- vera hans tekur stakkaskiptum þegar hann verður ástfanginn af eitilhörö- um landa sínum sem býr í París. Kvartett Stefáns Stef- ánssonar í Deiglunni Kvartett Stefáns S. Stefánssonar flytur blöndu af fmmsömdu efni og standördum í Deiglunni á Akureyri í kvöld. Þeir leika einnig verk af vænt- anlegum geisladiski Stefáns, sem ber nafniö „f þorpi drottningarengl- anna". Með Stefáni, sem leikur á sax- ófóna, leika þeir Hilmar Jensson á gít- ar, Gunnar Hrafnsson á bassa og Einar Valur Scheving á trommur. Tónleikamir hefjast kl. 22 og er að- gangur ókeypis. Gerbuberg lokab Menningarmiðstöðin Gerðuberg er lokuð til 14. ágúst. Viöskiptamönnum er bent á að skrifstofan er opin frá kl. 10-14 á því tímabili. Þann 14. ágúst verður opnaö aftur, en lokað veröur um helgar til 1. sept. Félagsstarf eldri borgara hefst á sama tíma. Óbreyttur opnunartími Borgar- bókasafns, þ.e. mánudaga-fimmtu- daga kl. 9-21 og föstudaga kl. 9-19. 1. ágúst breytast símanúmer Gerðu- bergs og er vakin athygli á nýju núm- erunum, en þau verða 567 4070 og 567 1060. Faxnúmerið verður áfram það sama, eða 557-9160. Orgeltónleikar í Oddakirkju Orgeltónleikar veröa í Oddakirkju á föstudagskvöld kl. 21. Þar koma fram þeir Bjami Þór Jónatansson, organisti í Grafarvogskirkju, og Guömundur Sigurðsson, organisti í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ. Aðgangur er ókeypis, allir velkomn- ir. Heitt á könnunni eftir tónleikana. Tónleikarnir em liöur í orgeltón- leikaröð Oddakirkju. APÓTEK Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I Reykjavík frá 21 tll 27. júll er I Ingólfs apótekl og Hraunbergs apótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi tll kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknls- og lyf Jaþjónustu eru getnar Islma 18888. Neyðar rakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátíóum. Símsvari 681041. Hafnarfjðrður: Hafnarijaröar apótek og Noröurbæjar apó- tek eru opin á virkum dðgum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600. Akureyrt: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartima búða. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu. til kl. 19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00-12.00 og 20.00- 21.00. Á öórum timum er lyfjafræóingur á bakvakt. Upplýs ingar eru gefnar I síma 22445. Apótek Keflavlkun Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokaó i hádeginu milli kl. 12.30-14.00. Seltoss: Selfoss apótek er opió Kl kl. 18.30. Opió er á laug- ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opió virka daga 51 kl. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00. Garðabær: Apótekió er opió rúmhelga daga kl. 0.00- 18.30, en laugardaga Id. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR 1. júlí 1995 MinabargrdMur Elli/örorkulífeyrir (grunnlifeyrir) 12.921 1 /2 hjónalífeyrir 11.629 Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 29.954 Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 30.793 Heimilisuppbot 10.182 Sérstök heimilisuppbót 7.004 Bamalífeyrir v/1 barns 10.794 Meðlag v/1 barns 10.794 Mæöralaun/feðralaun v/1 barns 1.048 Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 5.240 Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 11.318 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða 16.190 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða 12.139 Fullur ekkjulífeyrir 12.921 Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190 Fæðingarstyrkur 26.294 Vasapeningar vistmanna 10.658 Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658 Daggreiöslur Fullir fæðingardagpeningar 1.102,00 Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00 Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00 Slysadagpeningar einstaklings 698,00 Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri 150,00 í júlí er greidd 26% uppbót vegna launabóta á fjárhæðir tekjutryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbótar. Uppbótin skerðist vegna tekna í sama hlutfalli og þessir bótaflokkar skerðast. GENGISSKRÁNING 26. Júlf 1995 kl. 10,53 Opinb. vidm.oenal Genai Kaup Sala skr.func. • Bandarlkjadollar 63,04 63,22 63,13 Sterlingspund ...100,47 100,73 100,60 Kanadadollar 46,39 46,57 46,48 Dönsk króna ...11,627 11,665 11,646 Norsk króna .. 10,191 10,225 10,208 Sænsk króna 8,847 8,877 8,862 Finnsktmark ...14,939 14,989 14,964 Franskur franki ...13,045 13,089 13,067 Belglskur frankl ...2,2003 2,2079 2,2041 Svissneskur franki... 54,40 54,58 54,49 Hollenskt gyllini 40,38 40,52 40,45 Þýsktmark 45,25 45,37 45,31 ítðlsk llra 0,03936 0,03954 6,453 0,03945 6,441 Austurrlskur sch ,.!.6,429 Portúg. escudo ,.0,4327 0,4345 0,4336 Spánskur peseti ,.0,5272 0,5294 0,5283 Japanskt yen ..0,7157 0,7179 0,7168 Irskt pund ..103,49 103,91 98,24 103,70 98,05 Sérst dráttarr ....97Í88 ECU-Evrópumynt ....84,04 84,34 84,19 Grlsk drakma -.0,2791 0,2801 0,2796 BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í | KRINGUM LANDIÐ MUNIÐ ÓDÝRU HELG ARPAKK AN A OKKAR REYKJAVÍK 568-6915 AKUREYRI 461-3000 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.