Tíminn - 27.07.1995, Blaðsíða 16
Vebrib (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland: Suövestan gola og smá skúrir. Hiti á bilinu 10 til 15 stig.
• Faxaflói til Vestfjarba: Suövestan aola oq smá skúrir. Hiti á bilinu 9 til
14 stig.
• Strandir og Noröurland vestra: Hæg breytileg eða suövestlæg átt.
Smá skúrir. Hiti á bilinu 10 til 17 stig.
• Norburfand eystra og Austurland ab Clettingl: Suövestan gola og
víöa léttskýjað. Hiti á bilinu 10 til 20 stig.
• Austfirbir: Subvestan gola og léttskýjab. Hiti á bilinu 10 til 20 stig.
• Suöausturland: Subvestan kaldi og smá skúrir. Hiti á bilinu 9 til 14 stig.
• Mibhálendib: Subvestan kaldi eða stinningskaldi. Skýjab og viba rign-
ing, einkum sunnan- og vestan til. Hiti á bilinu 3 til 9 stig.
Miklar framkvœmdir viö leikskóla í höfuöborginni. Formaöur Dagvistar barna:
Þörfin enn meiri
en reiknaö var með
Cylfi Þ. Gíslason meb rettustokkinn og auglýsingaspjald átaksins: „Aub-
vitab er þab svo ab best af öllu væri ab ailir drœpu í sígarettunni..."
„Best væri auðvitað
að allir dræpu í.."
Eftirspurn eftir heilsdagsvist-
un á leikskólum Reykjavíkur-
borgar fyrir börn þriggja ára
og eldri hefur reynst meiri en
reiknab var meö. Stefnt var ab
því aö öll börn á þessum aldri
ættu kost á heilsdagsvistun
frá og meö hausti 1995. Nú er
ljóst aö þessi áfangi næst ekki
fyrr en næsta vor í fyrsta lagi.
450 milljónum er variö til
uppbyggingar leikskóla á
þessu ári.
Útsvarsgreibendur í Reykja-
vík 1.125 fleiri en '94, en
840 fœrri greiba tekjuskatt:
8 milljóna
menn helm-
ingi færri
en 1994
„Breiöu bökunum" í höf-
uöborginni viröist hafa
fækkaö um allt aö helming
ef marka má skrá um hæstu
skattgreiöendurna í Reykja-
vík aö þessu sinni. Þorvald-
ur Guömundsson er þar aö
vísu efstur á lista eins og
venjulega og meö heldur
hærri skatta (41 mkr.) en í
fyrra. En mönnum sem gert
er aö greiöa 8 milljóna
heildargjöld eba meira hef-
ur fækkaö um helming síb-
an í fyrra, eöa úr 21 nibur í
aöeins 11 á þessu ári.
Heildargjöld lögð á ein-
staklinga í borginni hafa
samt hækkaö um hálfan ann-
an milljarð (7%) milli ára, í
22.550 milljónir króna. Öll
sú hækkun og meira til er á
útsvarinu, sem hækkar um
29% milli ára. Rúmlega 78
þúsund borgarbúum eldri en
16 ára (yfir þúsund fleiri en í
fyrra) er nú gert að greiða
rösklega 8 milljarða í útsvar.
Greiðendum tekjuskatts hef-
ur aftur á móti fækkað um á
9. hundrað (í 41.800 manns)
og 12.540 milljóna tekju-
skattur er um 2,4% lægri
upphæð en fyrir ári. Greiö-
endum eignaskatts hefur
einnig fækkað um rúmlega
900 milli ára og skattupp-
hæðin er samsvarandi.
Heildargjöld lögaðila
hækka á hinn bóginn um
hálfan annan milljarð (17%)
milli ára í 10.630 milljónir á
þessu ári. Álagður tekjuskatt-
ur lögaðila hækkar um meira
en þriðjung milli ára (í 3,4
milljaröa) og eignaskattar um
10% þrátt fyrir að greiöend-
um fækki frekar en fjölgi.
Greiðendum tryggingagjalds
hefur fjölgað um 10% milli
ára (um 3.500) og gjaldinu
sömuleiöis, í tæplega 6 millj-
arða.
Reykjavíkurlistinn setti það
markmið fram í kosningabar-
áttunni að foreldrar allra barna
eins árs og eldri, sem þess óska,
geti fengið heilsdagsvistun fyrir
börn sín í lok kjörtímabilsins.
Þessu markmiði átti að ná í
þremur áföngum og átti þeim
fyrsta að ljúka haustið 1995. Þá
áttu öll þriggja ára börn og eldri
að eiga kost á heilsdagsvistun.
Til að ná þessu markmiði er 450
milljónum króna varið til upp-
byggingar leikskóla á þessu ári
samkvæmt fjárhagsáætlun.
Tíminn hafði samband við
Árna Þór Sigurösson, formann
Dagvistar barna og spurði hann
hvort þessi áætlun standist
enn.
„Það er ljóst að fyrsta áfang-
anum lýkur ekki fyrr en þeim
framkvæmdum sem nú eru í
gangi við leikskóla borgarinnar
er lokið. Það eru tveir leikskólar
í byggingu, í Laufrima og í
Laugarnesi, og veriö að undir-
búa byggingu leikskóla í Bú-
staðahverfinu. Einnig er verið
að stækka þrettán leikskóla ým-
ist með viðbyggingum eða með
því að bæta viö þá aðliggjandi
Aðstandendum útitónleikanna
Uxa, sem til stendur að halda á
Kirkjubæjarklaustri um verslunar-
mannahelgina, og skattayfirvöld-
um greinir á um hvort greiða
skuli virðisaukaskatt af seldum
aðgöngumiðum á tónleikana.
Skattayfirvöld telja þetta vera úti-
hátíð en aðstandendur samkom-
unnar segja hana vera tónleika. Þeir
benda á að þar komi fram margir
popptónlistarmenn í fremstu röð og
Allt að tuttugu þingmenn fá skrif-
stofu í húsum Alþingis við Kirkju-
stræti þegar endurbyggingu
þeirra lýkur. Endurbyggingunni á
að ljúka á fyrri hluta næsta árs og
er heildarkostnaður við hana
áætlaður um 80 milljónir króna.
Húsin sem um ræðir eru númer 8
og 10 við Kirkjustræti. Húsin hafa
verið í nokkurri niðurníðslu undan-
farin ár og þótt til lítillar prýði.
Áætlað er að endurbygging þeirra
kosti um 80 milljónir þegar allt er
tínt til. Tíminn spurði Friðrik Ólafs-
son, skrifstofustjóra Alþingis, hvort
ekki hafi komið til greina að rífa
húsin og byggja nýtt hús í staðinn.
"Árið 1987 stóð til að byggja nýtt
skóladagheimilum sem við er-
um að taka við af grunnskólun-
um. Þessar viðbætur verða flest-
ar tilbúnar í haust. Eftirspumin
hefur reynst meiri en við áttum
von á og einnig taka fram-
kvæmdirnar lengri tíma en við
áætluðum. Við höfðum reikn-
að með að næstu áfangar yrðu
erfiöari en þessi fyrsti en það
hefur komið í ljós að hann er
býsna þungur," segir Árni Þór.
Hann segist vonast til að
hægt verði að bjóða út bygg-
ingu leikskóla í Bústaðahverfi í
næsta mánuði og hefja fram-
kvæmdir þar í haust. Komið
hafa fram mótmæli gegn fyrir-
hugaðri staðsetningu hans við
Hæðargarð sem hafa tafið mál-
ið og er ekki fundin endanleg
lausn í málinu. Hefjist fram-
kvæmdir í haust verður leik-
skólinn væntanlega tilbúinn
næsta vor.
Endurgreiðslur til foreldra
sem vista börn sín hjá dag-
mæðrum hefjast frá 1. septem-
ber. Endurgreiðslan verður níu
þúsund krónur fyrir börn
þriggja ára og eldri og sex þús-
und fyrir yngri börn. ■
skemmti fólki undir listrænum for-
merkjum á tónleikum, en ekki á úti-
hátíð þó samkoman sé undir berum
himni.
„Ef þeir ætla að halda sig við að
flokka þessa tónleika sem útihátíð
þá hrynja allar fyrirætlanir okkar. Þá
erum viö komnir í verulega vond
mál. En það er verið að vinna í þess-
um málum núna og ég vonast til aö
þettta geti skýrst endanlega í næstu
viku," sagði Kristinn Sæmundsson
hus a loðum þessara húsa en til þess
fékkst ekki fjármagn. Málið lenti
síðan í biðstöðu og á þeim tíma sem
liðinn er hafa viðhorf til gamalla
húsa breyst mikiö innan borgar-
skipulagsins. Þar þykir það nú vera
forgangsverkefni aö götulínan í
Kirkjustræti haldi sér. Við sáum því
að ekki fengist samþykkt að rífa
þessi hús og þess vegna var ekki um
annað að ræöa en aö láta gera þau
upp," segir Friðrik.
Friðrik segir aö skrifstofur veröi á
tveimur hæðum í ööru húsinu og á
þremur í hinu. Alls geti húsin rúm-
að allt að tuttugu skrifstofur fyrir
utan geymslur í kjallara og risi.
„Margir þingmenn hafa verið með
Sígarettustubbur eða tyggi-
gúmmí í fagurri náttúrunni
fer óneitanlega í taugarnar á
þeim sem slíkt sjá. Æskulýðs-
samband íslands hefur nú
hrundið af stað átaki sem á að
nýtast reykingafólki á þann
hátt að það getur komið
stubbunum fyrir í handhægu
hylki í stað þess að fleygja
ósómanum frá sér.
„Auövitað er það svo að best
af öllu væri að allir dræpu í síg-
framkvæmdastjóri Uxa í samtali við
Tímann í gær.
Verð aðgöngumiða á tónleikana á
Klaustri eru 7.600 kr. og þar af krefj-
ast skattayfirvöld aö fá tæplega
fjóröung, eða 24,5% í vsk. Kristinn
bendir á aö síðsumars á ári hverju
séu haldnir í féiagsheimilinu á
Kirkjubæjarklaustri tónleikar þar
sem margir þekktir listamenn flytji
sígilda tónlist. Af inngangseyri þar
sé ekki innheimtur vsk. Þó segir
afar þröngar og lélegar skrifstofur.
Endurbygging þessara húsa leysir
þann vanda um nokkurn tíma. Þeir
þingmenn sem flytja í þessi hús eru
aðallega þeir sem nú hafa skrifstof-
ur í Skjaldbreið. Einnig mun hluti
skrifstofu Alþingis flytja þangað."
Friðrik bendir á aö á móti kostn-
aði við endurbyggingu húsanna
muni leigukostnaður Alþingis
lækka þegar þau verða tekin í notk-
un.
Viögeröir standa nú yfir á ytra
byrði húsanna. Þeim á aö ljúka í
haust og hefjast þá framkvæmdir
innanhúss. Vonast er til að hægt
verði að flytja inn í húsin fljótlega
eftir áramótin. ■
arettunni og hættu," sagði Gylfi
Þ. Gíslason, formaður ÆSI í
samtali við Tímann í gær.
Átakið „Stubbastokkur náttúr-
unnar vegna" er styrkt af mörg-
um fyrirtækjum, meðal annars
ÁTVR sem lét hanna stokkinn,
sem er eilítiö stærri en Ópal-
pakki og margnota. Sigurplast
framleiðir stokkinn. Stokkun-
um er dreift í afgreiðslustöðum
íslandsbanka.
Kristinn að í raun sé enginn eðlis-
munur á þessu samkomuhaldi: á
báöum stööum komi fram lista-
menn í fremstu röð, nema hvað aðr-
ir tónleikarnir séu innanhúss en
hinir utan.
Sigurður Gunnarsson, sýslumað-
ur á Kirkjubæjarklaustri, sagði að úr-
skurður ríkisskattstjóra lægi nú fyrir
varðandi þessa samkomu. Vitnaði
Sigurður til bréfs frá embætti hans
þar sem segir að tónleikar, þar með
taldir rokktónleikar, beri reyndar
ekki vsk. En í bréfinu, sem Tíminn
hefur undir höndum, og er undirrit-
að af Völu Valtýsdóttur, starfsmanni
embættisins, segir jafnframt að allt
yfirbragð fyrirhugaðrar samkomu sé
með svipuðum hætti og útihátíða
einsog þær tíðkist hér á landi. „Er þá
m.a. litið til þess að samkoman mun
standa í þrjá daga um verslunar-
mannahelgi sem er hefðubundinn
tími íslenskra útihátíða. ... Sam-
kvæmt framansögðu fellur aðgangs-
eyrir að fyrirhugaðri samkomu að
Kirkjubæjarklaustri 4. til 6. ágúst
næstkomandi ekki undir undan-
þáguákvæði laga um virðisauka-
skatt." ■
ÞREFALDUR 1. VINNINGUR
Ríkisskattstjóri og aöstandendur vcentanlegrar útihátíöar á Kirkjubœjarklaustri eru ósam-
mála um hvort greiöa skuli vsk. af inngangseyri:
Tónleikarnir í vaskinn?
80 milljóna króna endurbygging á húsum Alþingis viö Kirkjustrœti:
Friöunarsjónarmið ráöa
ferðinni í viðgerðunum