Tíminn - 27.07.1995, Qupperneq 6

Tíminn - 27.07.1995, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 27. júlí 1995 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM mrtlM Irittm- n mmglýihfmHséU * íuiurmtt/nm KEFLAVIK Valahnjúkur á Reykjanesi: Stórvarasöm náttúruperla Fjölmargir leggja leiö sína á Valahnjúk þegar þeir njóta náttúrunnar á Reykjanesi. Á Valahnjúki var reistur fyrsti vitinn á íslandi fyrir rúmri öld. Þegar vitinn var byggö- ur, voru tuttugu metrar frá honum og fram á bjargbrún- ina. Nú standa rústir vitans á bjargbrúninni. Pétur Kúld Ingólfsson, vitavöröur á Reykjanesi, hef- ur miklar áhyggjur af öllum þeim feröamönnum sem leggjá leiö sína upp á Vala- hnjúk. Hann er nefnilega ekki viss um aö feröamenn geri sér grein fyrir því aö sí- fellt er aö hrynja úr berginu og aö bjargbrúnin stendur nokkuð fram af berginu og grtur brotnað hvenær sem er. Aö sögn Péturs er klettur- inn lélegur, þetta er sand- steinn sem molnar auðveld- lega. Pétur veltir upp þeirri hugmynd hvort ekki sé hægt að setja upp viðvörunarskilti sem vari viö hættulegri bjargbrún og jafnframt aö girða bjargbrúnina af, svo fólk fari sér ekki að voða. 9 FnÉnnnLnn in SELFOSSI Veiöimenn: Alls staöar gób veiöi á Suöur- landi Það viröist vera sama hvar menn eru við veiðar á Suð- urlandi þessa stundina, hvort sem veiddur er lax eða bleikja, alls staðar viröist veiöast vel. Ölfusá hefur gefið af sér, þó aö hún hafi dalað nokk- uð eftir aflahrotuna í byrjun mánaöarins, en 243 laxar voru komnir á land þann 20. júlí. Flestir eru fiskarnir um 6 pund, en þeir stærstu rúm- lega 15 pund. I Eystri-Rangá hefur veibi tekið kipp og fyrir viku vom rúmlega 100 laxar komnir á land. Mikiö af fiski er í ánni og sést hefur til mjög stórra fiska. í Stóru-Laxá vom 118 lax- ar komnir á land fyrir skömmu. Flestir fiskar veidd- ust á fyrsta og ööru svæöi eöa 72. Á þriöja svæöi höfbu veiðst 27 laxar og 19 á því fjóröa. Laxarnir eru allt frá 3 pundum upp í 17. Uppselt er í ána á fyrsta og annaö svæöi og nú fer hver að veröa síð- astur að ná sér í leyfi á hin svæöin. Af silungsveibinni er þaö helst að frétta aö veiðin í Laugarvatni hefur verib óvenju góö. Lítiö hefur verið um stangaveiöi í Laugar- vatni þangað til núna. Síðan í vor hefur veiðin verið mjög góð og stærstu fiskarnir eru á bilinu 4-5 pund. Veiði í Tangavatni hefur Þetta er sjávarhliö Valahnjúks. Eins og sést greinilega á þessari Ijós- mynd Hilmars Braga, er bjargbrún- in mjög varasöm, þar sem hún skagar fram yfir bjargiö sjálft. verið nokkuð góð, en þó hafa komið dagar þar sem er mikil fluga og þá hefur lítið veiðst. Nær eingöngu veiðist bleikja og urriði, en þó hafa nokkrir laxar komið á land. Meðalþyngd er um 3 pund, en þó hafa fengist nokkrir fiskar á bilinu 6-8 pund. Framhaldsskólar á Suðurlandi: Svipabur nem- endafjöldi og undanfarin ár Aðsókn virbist vera svipub að framhaldsskólunum á Suðurlandi og undanfarin ár. Flestir skólarnir taka vib öllum umsækjendum nema íþróttakennaraskóli íslands á Laugarvatni, sem vísar meira en helmingi umsækjenda frá. í Fjölbrautaskóla Suöur- lands á Selfossi eru skráðir 700 nemendur næsta skólaár og er þab svipab og undan- farin ár. Að sögn Sigurðar Sigursveinssonar skólameist- ara er engum nemendum vísað frá námi vegna pláss- leysis. Biðlistar em þó í allar grunndeildir iðnskólans. Þeim er reynt að eyða með því að nemendum er vísað í bóknám til undirbúnings og komast þeir nemendur þá ab í grunndeild næsta skólaár. Mikil aösókn aö Laugarvatni Að Menntaskólanum á Laugarvatni hefur aðsókn verið mikil. 73 nemendur verba teknir inn á fyrsta ár skólans og þar af eru 31 af Suðurlandi. Samkvæmt upp- lýsingum frá Kristni Krist- mundssyni skólameistara, þá verður nokkrum umsækj- endurn vísað frá vegna slakr- ar útkomu í samræmdum prófum og þykja þeir ekki geta staðist námskröfur bekkjarkerfis. Að Laugar- vatni verða 25 nemendur í 9. og 10. bekk næsta vetur. íþróttakennaraskóli ís- lands á Laugarvatni hefur undanfarin ár þurft ab vísa frá stórum hluta þeirra sem sækjast eftir skólavist. Þetta skólaárið sóttu 80 manns um skólavist, en einungis 35 fá pláss. Árni Gubmundsson, skólastjóri íþróttakennara- skólans, segir ab þróunin hafi verið sú að einungis þeir sem lokið hafa stúdentsprófi komist að. Þá eru nemendur valdir í skólann eftir náms- brautum og einkunnum á stúdentsprófi. Einnig vega þátttaka í íþróttum og störf ab félagsmálum þungt, þegar nemendur sækja um skóla- vist í ÍKÍ. Nokkrir umsækj- endur hafa lokið kennara- prófi eða fóstrunámi eba hafa abra uppeldismenntun að baki. Pláss fyrir fleiri nemendur á Skógum Skógaskóli býöur upp á nám á 1. og 2. ári framhalds- skóla. Langflestir þeirra 60 nemenda, sem munu stunda nám þar næsta vetur, eru af Suðurlandi. Nokkrir nem- endur verða í 9. og 10. bekk næsta ár, en allir nemendur skólans búa á heimavist og er fæðis- og dvalarkostnaður 75.000 krónur á önn. Sjö kennarar starfa við Skógaskóla og eru þab allt réttindakennarar. Að sögn Sverris Magnússonar, skóla- stjóra á Skógum, hefur ekki verið vandamál seinustu ár að fá kennara til starfa vib skólann, en nokkur pláss eru laus fyrir nemendur. Aösókn er mikil í Málmiönaöardeild F.Su. á Selfossi. Fjármálaráöherra skipar nefnd: Lífeyrissjóðir teknir í skoöun Friörik Sophusson fjármála- rábherra hefur lagt fram til- lögu um ab skipuð verbi nefnd til að vinna ab endur- skoðun lífeyrismála í land- inu. Stjórnmálaflokkarnir, fjármála- og heilbrigðisráð- herra auk Seðlabanka íslands munu eiga fulltrúa í þessari nefnd og á hún að skila áfangaskýrslu fyrir lok nóv- ember á þessu árf. Meginmarkmið nefndarinnar verbur ab treysta grundvöll líf- eyrissjóbakerfisins þannig að allir landsmen njóti sambæri- legra réttinda í þeim efnum. Einnig að finna leibir til að auka valfrelsi í lífeyrissparnaði og innleiða samkeppni milli sjóba. Er nefndinni ætlað ab finna leiðir til auka áhrif sjóðs- félaga á hvernig ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna er varið, skil- greina stöðu þeirra á fjármagns- markaði, gera tillögur um fullt samræmi í skattalegri meðferð iðgjalda og kanna hvort sjóð- irnir geti leyst af hólmi ákveðna þætti almannatrygg- inga. Þá er markmiöið einnig að leita leiða sem hvetja lífeyr- issjóbi til að verja auknum hluta ráðstöfunarfjár síns til fjárfestinga í íslensku atvinnu- lífi. Tímamynd Pjetur Háskólinn inn- pakkaður Vegfarendur í Reykjavík hafa rekið augun í aö Háskóli íslands, æðsta menntastofnun þjóöarinnar, er að mestu orðin græn að lit, en búið er að pakka skólanum inn í grænan dúk. Þessi innpökkun er þó ekki af listrænum toga líkt og þegar þing- húsið í Berlín var klætt í dúk á dög- unum af listamanni, heldur er þetta gert vegna viðamikilla við- gerða sem fram fara á skólanum. Húsiö var orðið illa skemmt að ut- an og er nú unnið að því að hreinsa allar steypuskemmdir og síðan verður skólinn steindur að utan. Þegar framkvæmdum lýkur mun skólinn verða aftur kominn með sitt fyrra útlit. Um 20 manns BÆIARMAL Hafnar- Jl. fiört“r Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt aö veita allt að 2,4 milljónum króna til vinnu 14 ára unglinga í Vinnuskóla bæjarins í ágúst. Samkvæmt yfirliti Vinnumiðlunar Hafnarfjarðar voru alls skrábir 9.235 atvinnuleysisdagar í júní sl. Á skrá í lok mánabarins voru 443, 181 karl og 262 konur. • Bæjarráö hefur samþykkt 87 þús- und króna aukafjárveitingu sam- kvæmt beibni forstöbumanns Vitans vegna komu hóps frá Cuxhaven. vinna að verkinu, sem hefur nú staðið í þrjár vikur og mun að öll- um líkindum síanda í 1-2 mánuöi enn. ■ BÆIARMÁL A Kópavogur Bæjarráb Kópavogs hefur heimilab að bobnar verði út framkvæmdir vib lagningu gerviefnis á hlaupa- brautir á Kópavogsvelli. Bæjarráð hefur í þessu sambandi samþykkt, fyrir sitt leyti, tíu milljóna króna viðbótafjárveitingu en vfsað henni til samþykktar f stjórn íþrótta- mannvirkjasjóðs. Tennisfélag Kópavogs hefur fengib samþykkt í bæjarráði að það fái áfram til afnota allt árið eitt her- bergi f kjallara Vinnuskólans. Auk þess fær þab eitt herbergi til viö- bótar mánubina september til apr- íl, þar til fundin er framtíðarlausn á húsnæðismálum félagsins. Samkvæmt yfirliti atvinnumála- deildar Kópavogs voru 362 skráðir atvinnulausir í meðaltali í júní. Þab er fækkun um 32 frá maímánuði. • Atvinnumálanefnd Kópavogs legg- ur til ab sett verði á laggirnar sér- stök markaðs- og atvinnuskrifstofa um áramótin 1995-96 á vegum bæjarins. Skrifstofan heyri undir atvinnumálanefnd, bæjarstjórn og bæjarráb. Lagt er til ab aug- lýst verbi eftir starfsmanni í fullt stöbugildi á skrifstofuna eigi síð- ar en 15. október nk.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.