Tíminn - 28.07.1995, Side 3
Föstudagur 28. júlí 1995
3
Áöur en ný reglugerö tekur gildi er hún farin aö virka og sparar
strax 50 milljónir af almannafé:
Sum lyf hafa þegar
lækkaö um fjórðung
Algengt geðlyf sem kosta&i
19.728 krónur í apríl kostar í
dag 15.509 krónur. Verb á sum-
um lyfjum hefur nú þegar lækk-
ab í ver&i um allt a& 24%, a&
sögn Svölu Jónsdóttur deildar-
stjóra hjáTryggingastofnun rík-
isins. Þetta hefur gerst á undan-
förnum vikum, og þa& á&ur en
ný reglugerð um greiðsluþátt-
töku Tryggingastofnunar ríkis-
ins tekur gildi á þriöjudaginn.
Sú lækkun sem orbin er þýðir
50 milljón króna sparnab á
lyfjareikningi landsmanna.
Reglugerðin gerir ráð fyrir aö
viömiöunarverð sé á lyfjum sem
eiga sér samsvarandi samheitalyf.
Sjúkratryggingar taka þátt í lyfja-
kostnaði eins og áður, en aðeins í
þeim samheitalyfjum sem eru á
eða undir viðmiðunarverbinu.
Velji sjúklingur dýrari lyf, þá
greiðir hann mismuninn sjálfur.
Erlendis hefur fengist reynsla af
þessu kerfi og hún er sögð sú að
verð dýrari samheitalyfjanna
lækkar fljótlega niður í viðmiðun-
arverð. Samkeppnin hefur hér sitt
að segja.
Munur á verði á einstökum
samheitalyfjum í apótekum hér á
landi hefur verið umtalsverður en
hefur farið ört minnkandi undan-
farið.
Kristján
Þórarinn
Gubmundur
Gunnar Þórbarson
Helgi Björnsson.
Tekjur tónlistarmanna:
Gunni Þórðar er
að gera það gott
Frægð og frami í tónlistarheimin-
um virðist ekki vera rétta lei&in
til að ver&a ríkur á íslandi sam-
kvæmt álögðu útsvari á nokkra
þekkta reykvíska tónlistarmenn.
Sá gamalreyndi poppari Gunnar
Þórðarson sker sig úr hópnum meb
um 561 þúsund króna tekjur á mán-
uði. Hjónaleysin Móeiður Júníus-
dóttir og Eyþór Arnalds hafa hins
vegar aðeins um 112 þúsund krónur
á mánuði samanlagt og söngvari
sjálfra Milljónamæringanna hefur
þénað um 78 þúsund krónur á mán-
uði.
Tölur þessar og þær sem á eftir
fara eru fengnar samkvæmt upp-
gefnum eða áætluöum skattskyld-
um tekjum ársins 1994 sem útsvar
reiknast af.
Mánaðartekjur rokkurra þekktra
tónlistarmanna árið 1994.
Helgi Björnsson kr. 130 þúsund.
Stefán Hilmarsson kr. 113 þús-
und.
Eyþór Arnalds kr. 57 þúsund.
Móeiður Júníusdóttir kr. 55 þús-
und.
Páll Óskar Hjálmtýsson kr. 78
þúsund.
Gunnar Þórðarson kr. 562 þús-
und. ■
Tekjur forkólfa atvinnulífsins:
Ekki á neinum
taxtalaunum
Tekjur þeirra sem semja um
kaup og kjör launþega í land-
inu, þ.e. verkalýðsleiðtoga og
forsvarsmanna atvinnurek-
enda, eru mjög misjöfn sam-
kvæmt álögðu útsvari á þá.
Það er þó ljóst að enginn
þeirra samningamanna sem
hér eru nefndir þurfa að lifa af
„strípuðum" taxtalaunum.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur útgerðarmanna, trónir á
BÆJARMAL
m
Olafsfjörbur
✓
Stjóm Atvinnuleysistryggingasjó&s
hefur samþykkt a& veita Ólafs-
fjar&arbæ styrk fyrir þremur störf-
um í þrjá mánu&i við golfvöll, einu
starfi í sex mánu&i vi& tilrauna-
verkefni á nýtingu lífræns sorps og
allt a& þrettán störfum í þrjá mán-
u&i vi& ýmis önnur störf.
Umhverfismálaráð Ólafsfjarðar
samþykkti fyrr í þessum mánuði að
fara í garða- og lóðaskoðun hjá fyrir-
tækjum og einstaklingum dagana
24.-29. júlí.
Hraöfrystihús Ólafsfjar&ar hefur
fengiö heimild til a& stækka ló& sína
um fimm metra til vesturs ásamt
byggingarleyfi fyrir húsi fyrir laus-
frysti.
Bæjarráð Ólafsfjarðar hefur sam-
þykkt aö taka tilboði Trésmiðju Ól-
afsfjarðar hf. í gerð vaðlaugar. Til-
boðiö hljóðar upp á 1.078.430 krón-
ur og var það lægsta tilboðið sem
barst. Tvö önnur tilboð bárust í verk-
iö, frá fyrirtækjunum Trésmíði sf. og
Tréveri hf. ■
toppinum með rúmlega 740
þúsund króna mánaðartekjur á
meban Björn Grétar Sveinsson,
formaður Verkamannasam-
bands íslands, hefur „aðeins"
179 kr. þúsund á mánuði.
Elna Katrín Jónsdóttir, for-
maður Hins íslenska Kennarafé-
lags, hafði á síðasta ári um 217
þúsund krónur á mánuði og
Ásta Möller, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, um
250 þúsund.
Þessar tölur em fengnar sam-
kvæmt útreiknuöu eða áætluðu
útsvari samkvæmt uppgefnum,
skattskyldum tekjum á árinu
1994.
Mánaöartekjur nokkurra
verkalýðsleiðtoga og atvinnu-
rekenda árið 1994.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur L.Í.U. kr. 742 þúsund.
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri V.S.Í. kr. 560
þúsund.
Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur kr. 594 þúsund.
Magnús L. Sveinsson, formað-
ur V.R.kr. 350 þúsund.
Elna Katrín Jónsdóttir, for-
maður H.Í.K. kr. 217 þúsund.
Páll Halldórsson, formaður
B.H.M.R.kr. 287 þúsund.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur B.S.R.B. kr. 204 þúsund.
Gubmundur J. Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar kr.
237 þúsund.
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður V.M.S.Í. kr. 179 þúsund.
Ásta Möller, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga kr.
250 þúsund. ■
Andrea
í markinu!
Andrea Gylfadóttir söng-
kona í hljómsveitinni Twe-
ety vár sem jarðfastur klettur
í markinu fyrir hönd sinnar
hljómsveitar í fyrradag, en
þá var haldin á Laugardal-
svelli knattspyrnukeppni
milli vinsælustu hljómsveita
landsins. Engum sögum fer
af lyktum leikja, enda var
keppnin meira í gamni en al-
vöru.
Tímamynd: Pjetur.
o'jMá-I,
Auglýsing um innlausnarverð
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00
1984-l.fl. 01.08.95-01.02.96 kr. 70.935,70
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 28. júlí 1995
SEÐLABANKIÍSLANDS