Tíminn - 13.09.1995, Qupperneq 9

Tíminn - 13.09.1995, Qupperneq 9
Miðvikudagur 13. september 1995 9 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Erik Ninn-Hansen kærir til Mannrétt- indadómstólsins Kaupmannahöfn — Reuter Erik Ninn-Hansen, fyrrver- andi dómsmálarábherra Dan- merkur sem var dæmdur fyrir aö brjóta innflytjendalög landsins meban hann gegndi embætti sínu, ætlar ab fara meb málib fyrir Mannrétt- indadómstól Evrópu, ab því er lögfræbingar hans sögbu í gær. Erik Ninn-Hansen, sem er 73 ára gamall og hefur verið einn virtasti stjórnmálamaður íhaldsflokksins, var dæmdur í fjögurra mánaba skilorbsbundið fangelsi í júní sl. eftir aö réttar- höld höföu staðið yfir í málinu frá því í apríl 1994, en þetta er í fyrsta sinn í 85 ár sem réttab er í máli vegna embættisafglapa í Danmörku. Telur Ninn-Hansen ab mála- ferlin hafi ekki verið réttlát og hefur skotið máli sínu til Mann- réttindadómstóls Evrópu. Búist er vib ab innan fárra mánaöa verði ákveðið hvort Mannrétt- indadómstóllinn taki málið að sér, og ef svo fer er endanlegrar niðurstöðu að vænta innan þriggja ára. Ninn-Hansen var dæmdur fyrir að brjóta innflytjendalög Danmerkur í svonefndu Tamíla- máli, sem olli því að ríkisstjóm Pauls Schlúters varð að láta af völdum í janúar 1993. í júní það ár ákvab danska þingiö síban að kæra Ninn-Hansen fyrir emb- ættisafglöp vegna málsins. ■ Neita oð taka krossinn nibur Skólabörn íþorpinu Fischbach í Bæjaraiandi í Þýskalandi mœttu í gær aftur í skólann vib upphaf nýs skólaárs, eins og meira en milljón önnur börn í Þýskalandi. Krossinn hangir enn á veggnum í skólastofunni eins og sjá má á myndinni, en nýlega komst Stjórnlagadómstáll Þýskalands ab þeirri niburstöbu ab lög í Bæjaralandi, sem kveba á um ab kross eigi ab vera uppi á vegg í öllum skólastofum landsins, brjóti íbága vib þýsku stjórnar- skrána. Úrskurbur stjórnlagadómstólsins hefur vakib upp^ mikla reibi og harbar deilur í Bæjaralandi og víbar í Þýskalandi. Ríkisstjórn Bæjaralands lítur á úrskurbinn sem reibarslag fyrir íbúa landsins, sem þekktir eru fyrir íhaldssemi og líta almennt á sig sem löghlýbna og gubhrœdda borgara. Þessi úrskurbur var þó meira en þeir gátu þolab og hafa nú í fyrsta sinn allir sem einn risib gegn Stjórnlagadómstóli Þýska sambandslýbveldisins. Reuter Fiskveiöideilur Marokkó og Evrópusambandsins: Snúast um fleira en fisk Carl I. Hagen, leibtogi Framfara- flokksins. Kosningar til bœjar- og fylkisstjórna í Noregi: Þjóöernis- sinnar bera sigur úr bytum Osló — Reuter Sigurvegari í norsku bæjar- og fylkisstjórnarkosningunum sem fram fóru á mánudag er Framfara- flokkurinn, hægri sinnaður flokk- ur sem undanfarið hefur einkum lagt áherslu á ab grípa þurfi til haröari aðgerða gegn innfíytjend- um. Flokkurinn fékk 12,1% at- kvæða (þegar þetta var skrifað voru endanlegar atkvæðatölur ókomnar í einu kjördæmi af 629) og hafði þá aukið fylgi sitt um 5,1% frá því í kosningunum árið 1991. Niöurstöður koSninganna voru að öðru leyti sem hér segir: Verka- mannaflokkurinn hlaut 31,3% at- kvæða, íhaldsflokkurinn 19,9%, Miöflokkurinn 11,8%, Kristilegi þjóðarflokkurinn 8,5%, Sósíalíski vinstriflokkurinn 6,1%, Vinstri- flokkurinn 4,7%, Rauða kosn- ingabandalagiö 1,7% og aðrir flokkar hlutu 3,9%. Kosningaþátttakan var 58,8%, en þaö þýðir ab um tvær millj- ónir Norðmanna hafi mætt á kjörstað til að kjósa. ■ The Economist Frá því í apríl sl. hafa staöið yfir harbvítugar deilur milli Marokkó og Evrópusam- bandsins um fiskveibimál. Víðast hvar í Evrópu hafa þessar deilur vakib litla at- hygli en í Marokkó hefur málib verib abalforsíbufrétt dagblaðanna á nánast hverj- um degi. „Besta niðurstaðan væri sú að það fengist engin niður- staða," sagöi Abd al-Latif Filali, forsætisráðherra Marokkó, skömmu áður en samningavið- ræður hófust um það hve mik- inn fisk ESB ætti að fá að veiða innan lögsögu Marokkó. Og honum varð að ósk sinni: við- ræðurnar sigldu í strand fyrir rúmlega hálfum mánuði. í fyrstu voru Marokkóbúar hæst- ánægðir með þessa niðurstöðu málsins og lofuðu óbilgirni for- sætisráðherrans í hástert. Nú hins vegar er farið að bera á ugg vegna þess að deilurnar gætu sett strik í reikninginn hvað varðar önnur tengsl ESB og Marokkó, en Marokkóbúar eiga mikið undir því að samkomu- lag náist við ESB um nánari tengsl. Enn hefur engin dag- setning veriÖ ákveðin fyrir framhald viðræðnanna, en báðir aðilar eru reiðubúnir til að reyna aftur. Deilurnar hófust sem fyrr segir í apríl þegar Marokkó krafðist þess að fjögurra ára samningur, sem undirritaður var 1992, yrði látinn ganga úr gildi einu ári fyrr en til stóð. Samningurinn fól það í sér að spænskir og portúgalskir veiöi- menn hefðu heimild til að veiða árlega 82.000 tonn af smokkfisk, rækju, sardínu, kol- krabba og lýsingi í fiskveiðilög- sögu Marokkó. í staðinn fengi Marokkó greiddar sem svarar um 8,8 milljörðum íslenskra króna á ári hverju. Ein helstu rök Marokkóbúa fyrir því að samningnum yrði rift voru þau að hann hafi verið undirritaður áður en fiskiðnaöur þróaðist að nokkru marki í landinu, en nú er svo komiö að 11% af vergri þjóðarframleiðslu Marokkó kemur úr fiskiðnaðinum. Enn- fremur sökuðu þeir Spánverja um að stunda ofveiði og ganga þannig meira en góðu hófi gegnir á fiskstofnana. 28.000 manns höfðu lifi- brauð sitt af þessum veiöum á Spáni, Kanaríeyjum og í Portú- gal. Þegar samningunum var rift voru 650 togarar, þar af 600 spænskir, reknir út úr fiskveiöi- lögsögu Marokkó; stór hluti þeirra liggur enn bundinn við bryggju í heimahöfn. Þaö er því eðlilegt að hér sé um hitamál að ræða. Spænskir sjómenn hafa reynt ab hindra innflutning frá Mar- okkó eftir að samningnum var rift. Með misjöfnum árangri þó. Annað og sterkara vopn eiga Spánverjar þó í fórum sín- um. „Án fiskveiðisamnings verður ómögulegt að komast að samkomulagi um tengsl ESB og Marokkó. Spánn mun standa í vegi fyrir samkomulag- inu og sambandið við Marokkó mun þá lenda í blindgötu," sagði landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðherra Spánar eftir að viðræðurnar sigldu í strand. Marokkóbúar geta hins vegar hótað því, aö náist ekki sam- komulag geti Evrópusam- bandslöndin átt von á innflytj- endastraumi frá Marokkó í enn meira mæli en hingab til. Nú þegar eru a.m.k. ein milljón Marokkómanna sem búa og starfa í Evrópu, en atvinnuleys- ib í Marokkó er um 25%. Raunar er ekkert sem bendir til þess í raun að fiskveiðideil- urnar muni hafa slæm áhrif á samband ESB og Marokkó ab öðru leyti, þrátt fyrir að því ít- rekað hafi verið hótað. Frá 1987 hefur Marokkó þegið um 32 milljarða íslenskra króna í lán og styrki frá ESB, og fyrir skömmu voru undirritaðir tveir samningar í viðbót sem eiga að tryggja Marokkó fimm og hálfan milljarð króna fyrir landbúnaðarafurðir. í nóvember nk. veröur hald- inn leibtogafundur í Barcelona á Spáni þar sem ætlunin er að ræba tengsl Evrópusambands- ins við granna sína í suðri. Marokkóbúar vita sem er að innan Evrópusambandsins er litið á Norður-Afríku sem upp- sprettu óstöðugleika og óvissu sem einhvern veginn þarf að ná tökum á. ESB getur því ekki annað en stutt vib bakið á ríkj- unum í Norður-Afríku og reynt að efla tengslin við þau sem mest, enda er þab jafnmikið í þágu ESB sjálfs að tryggja stöð- ugleika á þessu svæbi. Staða Marokkó gagnvart ESB er því nokkuð traust þegar á heildina er litið og ekkert sem bendir til annars en að þeim takist að standa uppi í hárinu á ESB enn um hríð. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.