Tíminn - 15.09.1995, Qupperneq 8
8
*y w
Föstudagur 15. september 1995
Meöal þess eftirtektarverbasta í
Skógasafni er safn gamalia sím-
tœkja sem Sigþór Sigurösson,
símaverkstjóri í Mýrdal, hefur
safnaö um langt skeiö. Hér er
hann viö einn gamla símann.
Sungiö af hjartans lyst og safn-
vöröurinn er viö harmóníumiö.
Söngmennirnir eru Pálmi Eyjólfs-
son á Hvolsvelli, Sigþór Sigurösson
í Litla-Hvammi og Oddgeir Cuö-
jónsson frá Tungu f Fljótshlíö, nú
búsettur á Hvolsvelli.
Nýbygging Skógasafns tekin í notkun:
sem byggir landsvæöið milli
Þjórsár og Skeiöarár.
Persónulegt sam-
band við safngesti
í tölu, sem Þórður Tómasson
flutti viö vígslu safnahússins,
sagöi hann aö það hefði verið fyr-
ir um fimmtíu árum sem hann,
þá rúmlega tvítugur maður, byrj-
aöi söfnun ýmissa gamalla muna.
Þá hefðu verið til þess góðar tím-
ar, en um þær mundir — á eftir-
stríðsárunum — hefðu miklar
þjóðfélagsbreytingar verið að
ganga yfir á Islandi og ný tækni
hefði þá verið að hasla sér völl.
Því hefði mikill fjöldi muna fallið
til, sem hefðu glatast ef þeim
hefði ekki verið bjargað af safn-
ara. Því væri Skógasafn það sem
það er í dag, en stofndagur þess er
1. desember 1949. Fyrst um sinn
var það í einu herbergi í Skóga-
skóla, en síðar fluttist það í safna-
hús sem nú hefur svo stórlega
verið stækkaö.
Um þann mikla fjölda gesta
sem sækir safnið heim á ári
hverju, þaö er 25 þúsund manns,
segir Þórður það koma til af
mörgu. Hann nefnir sérstaklega
að í söfnum þurfi lifandi leiðsögn
og ekki sé nóg að „safnvörðurinn
taki á móti peningum og passi að
engu sé stoliö", einsog hann
komst að oröi. Mynda þurfi per-
sónulegt samband við safngesti
og ekki síður að mynda samband
milli þeirra og þess sem í safninu
er að sjá, með öðrum orðum aö
tengja tvo tíma saman.
Myndir og frásögn: Sigurður
Bogi Sævarsson
Tímamir tveir em
tengdir saman
Fleiri söfn undir
einu þaki
Friðjón Guðröðarson, sýslu-
maður í Rangárvallasýslu og for-
maður byggingarnefndar Skóga-
safns, rakti í stuttu máli við
vígsluathöfnina framvindu bygg-
ingamála við safniö. Hana má
rekja allt til ársins 1988, þegar
ákveðið var að hefjast handa um
framkvæmdir og hófust þær
reyndar stuttu síðar. Síðan þá hef-
ur hver verkþátturinn tekið við af
öðrum og sýningar í húsinu hóf-
ust þar á síðasta ári. í kjallara
hússins er héraðsskjalasafn Rang-
árvalla- og Vestur-Skaftafells-
sýslna staðsett, en söfnin í Skóg-
um eru sameign íbúa þessara
tveggja sýslna.
Arkitektar að húsinu eru þeir
Stefán Örn Stefánsson og Grétar
Markússon.
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdir er um 60 milljónir
króna. Þar greiðir ríkissjóður um
75% og Vestur- Skaftafellssýsla
um fjórðung. Einnig hefur ríkis-
sjóður heitið stuðningi um rúmar
Viðbygging við safnahús Byggba-
safnsins í Skógum var formlega
tekin í notkun sl. laugardag, ab
vibstöddu fjölmenni. Bygging
þessi, sem reyndar komst í gagnib
fyrir nokkrum misserum, bætti
úr brýnni húsnæbisþörf Skóga-
safns, sem er stærsta og Iíkast til
fjölsóttasta byggbasafn landsins.
Uppbygging safnsins er ab mestu
leyti verk eins manns, Þórbar
Tómassonar, sem verib hefur
safnvörbur frá upphafi og göml-
um munum hefur hann safnab
um rösklega hálfrar aldar skeib.
Húsakynni sáfnahússins í Skóg-
um eru nú rúmlega 1.000 fer-
metrar, en gamla safnahúsið var
aðeins 270 fermetrar. Segir Þórð-
ur Tómasson að eftirtektarvert sé,
þegar horft er til baka, að starf-
semin hafi öll getað til skamms
tíma rúmast í þeim húsakynnum.
Þær byggingar, sem nú eru komn-
ar, bjóði uppá að munir, sem
tengjast einstökum atvinnugrein-
um, geti verið hver á sínum stað,
í stað þess að öllu ægi saman líkt
og var.
„Ég er ekki viss um að mennt-
aður safnvöröur hefði sett safnið
betur upp en hér er," sagði Þórður
Tómasson við vígsluathöfnina,
en þessi ómenntaði safnamaður
skýtur.öllum kollegum sínum ref
fyrir rass hvað varðar vinsældir
safna þeirra og hvaða athygli þau
fá.
Prúöbúnir veislugestir viö áraskipiö
Pétursey, sem gert var út frá sam-
nefndum bœ í Mýrdalnum.
13 milljónir.
í Skógum er nú kominn eins-
konar vísir að safnaþorpi. Þar eru
gamlar baðstofur og hús austan af
Síðu, og þar er nú í byggingu
safnakirkja. Ýmsir viöir úr göml-
um kirkjum eru í eigu safnsins og
því lítið verk að reisa lítið guðs-
hús úr þeim. En síðast en ekki síst
eru í eigu Skógasafns þúsundir
ýmiskonar safngripa af öllu tagi,
sem snerta líf og sögu fólksins
Nýja safnhúsiö erglcesileg
bygging.