Tíminn - 19.09.1995, Síða 11
Þri&judagur 19. september 1995
11
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
AljDjóbabankinn gerir tilraun til ab reikna út aublegb þjóbanna á nýjan hátt:
Astralir ríkasta þjóö heims
Washington — Reuter
Ástralía og Kanada eru ríkustu
þjó&ir heims samkvæmt nýjum
útreikningum Alþjó&abankans,
sem birtir voru um helgina. Er
þar byggt á nýrri abferb vib ab
reikna út aublegb þjóba, og hefur
Alþjóbabankinn verið ab þróa
þessar nýju abferbir um nokkurt
skeib en birtir nú í fyrsta sinn
niburstöður þeirra.
Með þessum nýju aðferðum er
reynt að meta verðgildi þeirra
náttúruauðlinda sem lönd hafa yf-
ir að ráða, ásamt fjárfestingu og
framleiöni þjóðanna, í stað þess að
byggja eingöngu á þjóðarfram-
leiðslu ár hvert eins og gert hefur
verið hingað til.
Starfsmenn Alþjóðabankans
sögðu að þessar nýju aðferðir væm
enn í mótun og báöu menn um að
taka niðurstöðurnar ekki of bók-
staflega. Allar líkur væru á því að
útkoman ætti eftir að breytast eitt-
hvað á meðan verið er að þróa
þetta kerfi og gera frekari rann-
sóknir á því.
Engu aö síður lýstu þeir yfir
ánægju sinni með þennan nýja
mælikvarða á efnahagslífið og
töldu hann geta komiö að veru-
legu gagni við að móta stefnu í
efnahagsmálum einstakra ríkja.
„Þetta nýja kerfi býður upp á það
að taka þurfi hefðbundnar hug-
myndir til endurskoðunar þegar
verið er að móta hagvaxtarstefnu
ríkja, með því að líta frekar á auð-
legð þjóðanna heldur en bara
tekjuhliðina," sgði Ismail Sera-
geldin, varaforseti Alþjóðabank-
ans. „Þar að auki felst í því útvíkk-
un á auðlegðarhugtakinu þannig
að ekki er eingöngu horft á fjár-
magn og fjárfestingar."
Þegar þessum aðferðum var beitt
kom í ljós að efnislegar afuröir
mannlegrar vinnu, svo sem vélar,
verksmiðjur og vegir, skipta ekki
eins miklu máli og þær auölindir
sem búa í mannfólkinu sjálfu, svo
sem menntun og heilsa. Ástæða
þess er að öllum líkindum sú að
byggingar og tæki missa gildi sitt
með tímanum, eftir því sem þau
eldast og úreldast, en mannfólkið
getur byggt á hæfileikum sínum
og bætt við sig menntun og getu.
ísland er í sjöunda sæti yfir rík-
ustu þjóðir heims samkvæmt þess-
um nýju útreikningum Alþjóða-
bankans. Á eftir Ástralíu og Kanada
eru eftirtalin ríki í tíu efstu sætun-
um: Lúxemborg, Sviss, Japan, Sví-
þjóð, ísland, Katar, Sameinuðu ar-
abísku furstadæmin og Danmörk.
Bandaríkin eru í tólfta sæti og
mörg evrópuríkjanna eru í hópi
þeirra tuttugu ríkustu, þ.á m.
Frakkland, Þýskaland, Austurríki,
Belgía, Holland og Ítalía.
Það eru öðru fremur gífurlegar
náttúruauölindir Ástralíu og Kan-
ada sem gera þaö að verkum að
þessi tvö ríki lenda í efstu sætun-
um, en bæði hafa þau yfir að ráða
miklum auðlindum í formi land-
svæöis, vatns, timburs og málma,
auk þess sem íbúar Ástralíu og
Kanada eru tiltölulega fáir.
Samkvæmt þessu nýja kerfi
kemur í ljós að hátekjuþjóðir hafa
yfir að ráða næstum því 80% af
auðlindum jarðarinnar, en hráefn-
isútflytjendur á borð við Saudi-Ar-
abíu ráða ekki yfir nema um 5%.
ísraelsk mannréttinda-
samtök:
Vilja gyb-
inga burt
úr Hebron
Jerúsalem — Reuter
ísraelsk mannréttindasam-
tök, sem í daglegu tali eru
kölluð B'Tselem en bera ann-
ars heitið „Upplýsingamið-
stöð fyrir mannréttindi á her-
námssvæðunum", hvöttu
ísraelsk stjórnvöld til þess í
gær að sjá til þess að ísraelskir
landnemar í bænum Hebron
á Vesturbakkanum yrðu flutt-
ir á brott, og yrði það Iiður í
samningnum um sjálfstjórn-
arsvæði Palestínumanna á
Vesturbakkanum.
Samningaviðræður Palest-
ínumanna og ísraelsmanna eru
nú á lokastigi, að því er fulltrú-
ar beggja fullyrða, en ekki er þó
talið að hægt verði að undirrita
samningana á fimmtudaginn
eins og stefnt hefur verið að.
Það eru einkum örlög bæjarins
Hebron sem viðræðurnar
stranda nú á.
B'Tselem samtökin sögðu
nauðsynlegt að flytja ísraelsku
landnemanna á brott vegna
þeirrar „fáránlegu stöðu sem
ríkir í Hebron, þar sem minni-
hluti 450 landnema ráða úrslit-
um um líf 120.000 Palestínu-
manna, ásamt því að landnám-
ið er ólöglegt samkvæmt al-
þjóðlegum mannréttindasátt-
málum," eins og segir í skýrslu
samtakanna.
í skýrslunni segir að ísraelsk-
um stjórnvöldum hafi ekki tek-
ist ab tryggja öryggi Palestínu-
manna í Hebron á þeim 30 ár-
um sem bærinn hefur verib
hernuminn.
ísraelar vilja halda herliði
sínu í Hebron til þess aö geta
verndað ísraelska minnihlut-
ann sem býr þar í miðbænum.
Palestínumenn vilja hins vegar
ab ísraelsmenn fjarlægi her-
menn sína úr bænum, en eru
þó tilbúnir til að fallast á tíma-
bundnar öryggisráðstafanir til
þess ab vernda landnemana. ■
I Taslandi hafa verib mikil flób undanfarna daga og hefur fólk þurft ab beita sundkunnáttu
sinni á götum og torgum, eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var á sunnudaginn fyrir framan kínverskt hof
ÍNakhon Sawan. Reuter
Þýsku Grœningjarnir rœba grundvallar stefnubreytingu:
Friöarstefnunni
varpað fyrir róöa?
Berlín — Reuter
Á flokksfundi Græningja, flokks
þýskra umhverfisvemdarsinna,
sem haldið var í Berlín um helg-
ina, fóru fram miklar umræður
um það hvort flokkurinn ætti að
falla frá friðarstefnu sinni, sem
hefur verið einn af hornsteinum
flokksstefnunnar frá upphafi.
Hingað til hefur þótt óhugsandi
að flokkur Græningja félli frá friðar-
stefnunni, enda er flokkurinn upp-
haflega að verulegu leyti sprottinn
upp úr friðarhreyfingunni í Þýska-
landi upp úr 1980 þegar andmæli
gegn kjarnorkuvígbúnaði voru í há-
marki. Nú er hins vegar svo komið
að Græningjar virðast vera farnir að
geta hugsað sér að varpa friðarstefn-
unni fyrir róða, og er það fyrst og
fremst stríðið í Bosníu sem hefur
valdið þeirri hugarfarsbreytingu.
Einn helsti leiðtogi flokksins nú
um stundir, Joschka Fischer, hvatti
flokksfélaga sína á fundinum til að
lýsa yfir stuðningi við aðgerðir Nató
í Bosníu. „Það er lítill tilgangur í því
að Græningjar séu að halda uppi
merki friðarstefnunnar," ef ofbeld-
ishneigð þjóðernishyggja og hem-
aðarstefna bera sigur úr býtum í Bo-
sníu, sagði Fischer. Hann sagði
einnig að þeir sem létu þaö við-
gangast að „griðasvæði" Samein-
uðu þjóðanna í Zepa og Zrebrenica
yrðu „staðir þar sem fómarlömbin
eru einfaldlega afhent morðingj-
um," hlytu að deila sektinni með
þessum morðingjum.
Fáir þeirra sem tóku til máls á
fundinum tóku harða afstöðu með
friðarstefnu flokksins, en endanleg
ákvörðun var ekki tekin heldur lát-
in bíða allsherjarþings flokksins
sem haldið verður í desember.
„Þetta em rökræður sem snerta
innsta kjarna þess sem Græningj-
arnir standa fyrir," sagði Ralf Fúcks,
landþingsmaður flokksins í Bre-
men. „í Bosníu sjáum við átök milli
þeirrar hefðar sem er fyrir friðar-
stefnu Græningja annars vegar og
samstööu með kúguöum þjóðum
hins vegar." ■
Múslimar og Króat-
ar óstöövandi
Hersveitir Bosnfustjórnar
hafa nú náð u.þ.b. helmingi
Bosníu og Hersegóvínu á sitt
vald, eftir ab árásir Króata og
Bosníu-múslima hafa staðib
yfir f viku. Sóknin stendur
enn yfir og er ekkert sem
bendir til annars en ab þeim
muni takast ab ná enn
stærra landsvæði á sitt vald.
Áður en sóknin hófst hafði
Bosníustjórn 30% landsins á
sínu valdi en Serbar 70%.
Sameinubu þjóðirnar vör-
uðu múslima og Króata við
því að ákafi þeirra gæti kom-
ið þeim í koll og spillt fyrir
fribarumleitunum.
Keyptu sér Nóbels-
verölaun?
Vísindamenn í sænsku Nób-
elsverðlaunanefndinni í
læknisfræði hafa verið sak-
aðir um ab hafa látib undan
þeirri freistingu að taka til-
bobi ítalskra lyfjafyrirtækja
um að „kaupa" Nóbelsverð-
launin árið 1986. Þessar
ásakanir hafa birst í sænska
dagblaðinu Dagens Nyhet-
er, og hefur blaðið m.a. birt
bréf frá David Ottoson, virt-
um sænskum vísindamanni
og fyrrverandi formanni
nefndarinnar, þar sem hann
segist ætla að greiða fyrir því
ab ítalskur vísindamaður
verði útnefndur til Nóbels-
verblaunanna í læknisfræbi.
Svíar kjósa til Evr-
ópuþingsins
Fyrstu kosningarnar til Evr-
ópuþingsins í Svíþjóð fóru
fram um helgina. Kosninga-
þátttakan var 41,3% og
voru úrslitin sem hér segir:
Sósíaldemókratar fengu
28,1% (7 menn), Hófsami
flokkurinn 23,1% (5), Græn-
ingjar 17,2% (4), Vinstri-
flokkurinn 12,9 (3), Mið-
flokkurinn 7,2% (2) og Þjóð-
arflokkurinn 4,8% (1). Abrir
flokkar nábu ekki þeim 4%
sem þarf til að ná manni á
þingið. Athygli vekur að
Græningjar og Viristriflokk-
urinn náðu samtals 7 mönn-
um á Evrópuþingið, en báð-
ir flokkarnir eru yfirlýstir and-
stæbingar þess ab Svíþjób sé
í ESB.
Bretland:
Samstarf Frjáls-
lyndra og Verka-
mannaflokksins?
Tony Blair, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, lagði
um helgina í blaðaviðtali til
að vibræður hæfust milli
Verkamannflokksins og
Frjálslynda demókrataflokks-
ins um stefnumótun fyrir
þingkosningarnar sem fram
eiga ab fara f maí á esta
ári. Þykja þar með ha uk-
ist líkur á því að þess æir
stjórnarandstöbuflokk lefji
með sér samstarf, en i egt-
er talið ab annar hvor Irra
geti náð meirihluta i í
kosningunum. Hing til
hefur verið talib ab áls-
lyndi flokkurinn sé líkl i til
að ganga til stjórn m-
starfs við íhaldsflokki en
Verkamannaflokkinn. :m-
kvæmt yfirlýsingum f( ,tu-
manna Frjálslyndra eru
áherslur þeirra þó ab ayt-
ast í þeim efnum.