Tíminn - 19.09.1995, Page 13
Þri&judagur 19. september 1995
PlllÍH
13
Hetjustælar og
„Hrafnssyndróm"
Víkingasaga (The Viking Sagas) 1/2
Handrit: Dale Herd og Paul Curian.
Leikstjóri: Michael Chapman.
Abalhlutverk: Ralf Moeller, Ingibjörg
Stefánsdóttir, Hinrik Ólafsson, Rúrik Har-
aldsson, Egill Ólafsson og Þórir Waag-
fjörb.
Laugarásbfó.
Bönnub innan 16 ára.
Þaö er heldur dapurlegt aö sjá
menningararfinn, íslendinga-
sögurnar, afskræmdan á hvíta
tjaldinu. Til aö ekkert fari á milli
mála er hér um ákaflega lélega
mynd aö ræöa og því engin á-
stæöa til aö fjargviörast eitthvaö
út af meöferö þeirra. Sagan er
nokkurs konar blanda af þekkt-,
um minnum úr íslendingasög-
um og bandarískum hetjustæl-
um. I þessa blöndu er síðan
bætt vænum skammti af
„Hrafnssyndrómi" með tilheyr-
andi blóðslettum og aflimun-
um.
Aöalsöguhetjan er Kjartan
(Moeller), en í upphafi sögunn-
ar er faðir hans veginn af ill-
menninu Katli (Hinrik), sem
ætlar sér að ná völdum á ís-
landi. Hann kemst undan og
fær inni hjá Magnúsi lögsögu-
manni (Rúrik), sem á dóttur
væna, Guðrúnu (Ingibjörg), og
fella þau hugi saman. Ketill vill
drepa Kjartan og ná huliös-
sveröi nokkru af honum, sem er
nauðsynlegt til að ná völdum.
Til að gera stutta sögu ennþá
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
styttri þá bjargar Kjartan öllu
saman meö hjálp sinnar
heittelskuöu.
Myndin var tekin í nágrenni
Hjörleifshöföa og Víkur í Mýr-
dal og er landslagið það eina
góöa við hana. Ruglið í þessari
mynd er svo mikiö að erfitt er
aö koma orðum aö því. Þaö er
líklega best aö segja bara aö á-
horfendur í salnum sprungu oft
úr hlátri á snarvitlausum stöö-
um í myndinni. Það er e.t.v.
möguleiki aö hún veröi í fram-
tíðinni nokkurs konar „kúlt-
mynd" fyrir hvað hún er hlægi-
lega léleg.
I aöalhlutverkinu er Ralf
Moeller, vaxtarræktartröll mik-
iö, og þrátt fyrir aö hann sé
„hverjum manni betur á sig
kominn", þá er hann ótrúlega
vondur leikari. Það sama á viö
um Ingibjörgu Stefánsdóttur, að
undanskildu þetta meö vaxtar-
ræktina. Þaö er helst aö Hinrik
Ólafsson nái að sýna einhverja
takta af leikurum í myndinni.
Víkingasaga er hryllilega
vond mynd og sorglegt að hún
skuli yfirhöfuö tengjast íslandi.
UMFERÐAR
RAÐ
Aðsendar greinar
sem birtast eiga í blaðinu þurfa aö vera tölvusettar og
vistaöar á diskling sem texti, hvort sem er í DOS eöá
Macintosh umhverfi. Vélrit-
aöar eöa skrifaöar greinar
geta þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
mm
?|= Lóðaúthlutun í Reykjavík
Til úthlutunar eru nebangreindar lóðir við Vættaborgir í Borga-
hverfi:
• 33 lóðir fyrir einbýlishús,
• 5 raöhúsalóöir (samtals 29 íbúöir),
• 7 parhúsalóöir (samtals 14 íbúöir),
• 22 keðjuhúsalóöir (samtals 44 íbúbir).
Gert er ráð fyrir, ab flestar lóbirnar (a.m.k. 75 íbúbir) verbi
byggingarhæfar sumarib 1996, en abrar ekki fyrr en haustib
1996 eða vorib 1997.
Nánari upplýsingar verba veittar á skrifstofu borgarverkfræb-
ings, Skúlatúni 2, 3. hæb, sími 563 2310. Þarfást einnig afhent
umsóknareyðublöb, skipulagsskilmálar og uppdrættir.
Tekið verður vib umsóknum um lóbirnar frá og meb föstudeg-
inum 22. september nk. kl. 8:20 á skrifstofu borgarverkfræö-
ings.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Rebecca Broussard og fyrrum
sambýlismaöur hennar, Jack
Nicholson, eiga saman tvö
börn.
„Auðvitað er ég enn ást-
fanginn af henni," sagði Jack
skömmu eftir aö hún fór frá
honum á síöasta ári. „Kannski
treysti ég henni um of, en ég
myndi gera það aftur á morg-
un, því ég kann vel við hana.
Hún er frábær."
Rebecca leikur sem stendur
aöalhlutverkiö í leikriti um
Ameliu Earhart, sem var
fyrsta konan til aö fljúga yfir
Atlantshafiö. Hún segist þó
gera sér grein fyrir því aö
áhugi fjölmiðla á vinnu
hennar sé lítill miðaö viö
þann sem beinist aö hlutverk-
inu „konan sem vandi Jack
Nicholson á húsverk".
Jack hefur lýst henni sem
„villtri í alla staði". Rebecca
Fór
frá
Jack
sjálf-
um
Nich-
olson
fæddist í Kentucky, dóttir
verkfræðings á eftirlaunum
og franskrar móöur. Eftir eins
árs veru í háskóla í Kentucky
fór hún til New York, þar sem
hún lærði hárgreiöslu. Eins
og margar aörar leikkonur,
hóf hún feril sinn sem fyrir-
sæta og flutti svo til Holly-
wood til aö koma sér áfram í
leiklistinni.
Hún lenti í skammlífu
hjónabandi seint á 9. ára-
tugnum og á þeim tíma
kynntist hún Jack í gegnum
sameiginlegan vin þeirra.
„Þegar Jack snerti hönd
mína í fyrsta sinn, fékk ég
nánast aðsvif og sá ekkert
nema stjörnur. Um leið og viö
I
TÍIVIANS
Jack oð leik meö eldri dóttur
þeirra, Lorraine, sem er fimm
ára gömul.
vorum kynnt, fann ég ein-
hverjar bylgjur milli okkar."
Þau höföu þó vitað af tilvist
hvors annars lengi, þar sem
Rebecca er vinkona dóttur
Jacks, en þær eru jafnaldra.
Rebecca reyndi aö stööva
sig af meö því aö minna sig á
aö maðurinn væri kvik-
myndastjarna, en „aðdráttar-
aflið var of öflugt til aö viö
gætum staðist þaö".
Aðdráttaraflið var einnig of
sterkt fyrir Anjelicu Huston,
en þau Jack höfðu verið sam-
an í um 17 ár. Hún fór frá
honum þegar Rebecca varð
ófrísk. Jack hefur nú eignast
annaö barn með þjónustu-
stúlkunni Jenine Gourin og
svo virðist sem það muni
koma í veg fyrir aö Rebecca
og Jack nái saman aftur. ■
Rebecca skilur ekki alveg hví
þau Jack slitu samvistum —
hún bara varö aö fara, segir
hún.