Tíminn - 29.09.1995, Page 3
Föstudagur 29. september 1995
wfmfiwt
3
Jóhanna Siguröardóttir hvetur til sameiningar vinstri flokkanna undir forystu kvenna:
Hornsteinninn aö sameiningu vinstri
flokkanna er aö Margrét nái kjöri
Jóhanna Sigurbardóttir vibrabi
á Sellufundi í fyrradag þá
skobun sína ab ef Margrét Frí-
mannsdóttir næbi kjöri sem
formabur Alþýbubandalagsins
og Rannveig Gubmundsdóttir
kæmist í æbstu stöbu hjá Al-
þýbuflokknum myndi skapast
nýr og betri grundvöllur fyrir
sameiningu vinstriflokkana.
Hún segir persónulegar erjur
karla í valdastöbum A-flokk-
anna hafa spillt fyrir ab sam-
einingardraumurinn hafi náb
fram ab ganga.
Tíminn tók Jóhönnu tali í gær
og spurbi hana um rökin fyrir
því ab hún tæki upp sameining-
armál vinstri flokkanna undir
þessum formerkjum.
„Ég tel ab Alþýbubandalagib
Gengis- og verbþróun fískibnab-
inum hagstœb síbustu vikurnar:
Verö sjávaraf-
uröa 5% hærra
en í júní
Verð á sjávarafurðum í SDR hefur
farið hækkandi ab undanförnu eftir
nokkra dýfu í febrúar og mars. Með-
alverð er t.d. um 5,2% hærra um
þessar mundir en það var í júní s.l.
samkvæmt Hagvísum Þjóðhags-
stofnunar. Verð á saltfiski hefur
hækkað mest en verulegar verb-
hækkanir hafa líka orðið á mjöli og
lýsi.
Þessar verðbreytingar eru samspil
gengisþróunar og verðþróunar ein-
stakra afurða. Innbyrðis breytingar
á gengi erlendra gjaldmibla hafa ýkt
þessa þróun. Um 1,6% af hækkun-
inni skýrist af gengisþróuninni frá
því í júní. ■
undir forystu Margrétar Frí-
mannsdóttur geti gegnt lykil-
hlutverki í þessu sameiningar-
ferli. Rökin eru þau að söguleg
fortíb og erjur milli A-flokkanna
á síbustu áratugum hafa komib í
veg fyrr sameiningu jafnabar-
manna og muni tefja þau áfram.
Ég hef sagt ab málefnaágreining-
ur sé hvab mestur milli karla í A-
flokkunum, þegar horft er til
flokka á vinstri vængnum,
þ.e.a.s. þeirra sem nú eru í
stjórnarandstöbu."
-En homsteinninn íþessum hug-
myndum sem sagt að Margrét nái
kosningu?
„Já, vegna þess ab körlunum
hefur ekki tekist þetta. Tökum
„Á rauðu ljósi" hjá Ólafi Ragnari
og Jóni Baldvini sem dæmi. Þab
bar ekki árangur."
Jóhanna segir ab konur hafi
meiri hagsmuni af breytingum í
þjóbfélaginu, karlmenn vibhaldi
rikjandi ástandi enda sé þab
þeirra hagur. Hún segir tilvist
Reykjavíkurlistans byggba á því
ab þar voru engir karlar fyrir til
ab sitja á sínum stólum í borgar-
pólitíkinni. Vinnubrögb kvenna
séu líklegri til ab skila árangri til
sameiningar.
„Ef Margrét næbi kjöri yrði
það mjög sögulegt. Hún yrði
fyrst kvenna til ab ná kosningu
sem leibtogi gömlu fjórflokk-
anna. í Alþýbuflokknum fer
fram kjör á næsta ári og ef fram-
bærileg kona eins og Rannveig
Guðmundsdóttir næbi kjöri sem
formaður Alþýðuflokksins væri
komin upp ný staða í íslenskri
pólitík."
-Hefurðu rcett þessi mál sérstak-
lega við Margréti?
„Ég hugsa ab vib Margrét höf-
um svipabar skobanir á þessum
málum."
-En hafiði rœtt sérstaklega sam-
an?
„Nei, ekki sérstaklega."
Jóhanna segir almennan vilja
hjá vinstra fólki til sameiningar.
„Já, ég er viss um þaö. Þab er
krafa grasrótarinnar ab hin litlu
öfl nái saman í eitt stórt." Jó-
hanna segir Framsóknarflokkinn
ekki koma til greina í slíku sam-
starfi, hann hafi skilgreint sig
sem miðjuflokk en sitji í hægri-
stjórn ásamt Sjálfstæðisflokkn-
um. -BÞ
Könnun Gallup um baráttu Steingríms og Margrétar
í formannskjöri Alþýöubandalagsins:
Margrét með
smáforskot
Skv. könnun sem IM Gallup vann
fyrir Margréti Frímannsdóttur 31.
ágúst-12. sept. erekki marktækm
munur á hvort Margrét eða Steir-
grímur J. Sigfússon verði formab-
ur Alþýbubandalagsins. Þótt þrír
af hverjum fimm, sem ætla ab
kjósa Alþýbubandalagib og taka
afstöðu, styðji Margréti til for-
mennsku er munurinn ekki
marktækur skv. niburstöðu
könnunarinnar.
Þeir sem sögðust ætla að kjósa
einhvern annan flokk en Alþýðu-
bandalagið voru spuröir um líkurn-
ar á að þeir myndu kjósa G-listann
ef annars vegar Margrét væri for-
maður og hins vegar Steingrímur.
Tæplega 14% sögðust telja nokkrar
líkur á því ef Margrét væri formaður
en tæplega 9% ef Steingrímur væri í
formannstólnum. Munurinn er
marktækur í þessu tilfelli.
Heildarfjöldi var 1200 manns, til-
viljunarkennt úrtak úr þjóðskrá.
Alls náðist í 850 manns. ■
Margrét Frímannsdóttir.
Margrét Frímannsdóttir
um innlegg Jóhönnu í
kvennapólitíkina:
Hefur engin
áhrif á kosn-
ingabaráttuna
„Ég sé ekki ab þessi skobun Jó-
hönnu geti haft nein áhrif á
kosningabaráttu okkar Stein-
gríms. Hann hefur vibrab hitt
og þetta í fjölmiblum ab undan-
förnu sem á ab skemma fyrir
mér en ég verb ekki vör viö
þab."
Þetta sagði Margrét Frímanns-
dóttir í gær þegar Tíminn spurði
hana hvort yfrlýsing Jóhönnu Sig-
urðardóttur á Sellufundi í fyrra-
kvöld um sameiningu vinstri-
flokkanna undir forystu kvenna
hefði áhrif á formannskjörið í Al-
þýðubandalaginu.
-Mótftambjóðandi þinn, Stein-
grímur J. Sigfusson, segir þig stórtapa
á þessu máli.
„Já, það er ýmislegt þessa dag-
ana sem hefur aö mati Steingríms
farið illa með mína stööu, kvenna-
fundir og orö Jóhönnu núna."
-Jóhanna segir þig vera homstein
þess að sameining vinstri flokkanna
geti átt sér stað á nœstunni. Finn-
urðu fyrir mikilli ábyrgð?
„Ég tók þetta nú þannig aö
þetta væri fyrst og fremst tilraun,
hitt heföi verið reynt, þar sem for-
ystumenn vinstri flokkanna voru
karlar og þær tilraunir hafa allar
reynst ónothæfar. Jóhanna treyst-
ir einfaldlega konum betur til þess
að fara í þá málefnasamvinnu sem
til þarf fyrir sameiningu vinstri
flokkanna. Fyrst og fremst hvaö
varðar velferðarmálin," sagði
Margrét. -BÞ
MARKAÐSSETNING
ERLENDIS
Vibrœbur milli ráöuneyta um Leifsstöö á nœstunni:
Stöbin á aö fá
fulla sjálfstjóm
Allt útlit er fyrir ab Leifsstöb á al-
þjóbaflugvellinum á Mibnesheibi
og skammt utan lögsögu her-
stöðvar NATO muni senn skipta
um húsbændur. Rekstur stöbvar-
innar verbi settur undir sam-
göngurábuneyti og ab Flugmála-
stjórn fari meb málefni stöbvar-
innar af þess hálfu.
Jón Birgir Jónsson, ráöuneytis-
stjóri samgönguráðuneytis, sagði í
samtali við Tímann í gær að fram-
undan væru viðræður samgöngu-,
utanríkis-, og fjármálaráðuneytis
Merkjasala hefst í
dag hjá SÍBS
Samband íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga (SÍBS)
stendur fyrir merkjasölu í dag, á
morgun og sunnudag til þess ab
safna fyrir byggingu þjálfunar-
laugar á Reykjalundi.
Nú eru 50 ár liðin frá því að
Vinnuheimili SÍBS tók til starfa á
Reykjalundi en allar byggingar á
Reykjalundi hafa veriö reistar fyr-
ir tilstuðlan happdrættis SÍBS.
Mikill sigur vannst á sínum tíma
á berklum, eba Hvíta-dauða eins
og hann var kallaður, meðal ann-
ars fyrir tilstublan SÍBS. í fréttatil-
kynningu frá SÍBS segir ab þeir
tugir þúsunda íslendinga sem
notið hafa abstöðunnar á Reykja-
lundi í lengri eða skemmri tíma
séu til vitnis um öfluga starfsemi
Reykjalundar og SÍBS. ■
um þessi mál. Skýrsla Gunnars
Finnssonar hjá Alþjóðaflugmála-
stofnuninni í Kanada, sem Tíminn
greindi frá í gær, var lögð fram í
ríkisstjórninni í fyrradag.
Ekki er búist við öðru en að
þarna verði skipt um ráðuneyti og
reiknaö með að þau umskipti
gangi snurðulaust.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hafa peningar flætt á milli Leifs-
stöövar og ríkissjóðs, og aftur úr
ríkissjóði til Stöðvarinnar til að
borga „tapið".
Jón Birgir sagði að hugmynd
samgönguráðuneytis væri að
styðja við sjálfstæði Leifsstöðvar
og reyndar Flugmálastjórnar sem
mest. Að flugstöðin haldi sínu
sjálfaflafé og sé sem mest ábyrg
fyrir rekstrinum. Einmitt þetta
sjálfstæði er mikilvægt atriöi í út-
tekt Gunnars Finnssonar. Hann
sagöi ab stjóm flugmála ætti aö fá
sem mest sjálfstæði, éins og gerst
hefur um allan heim á undanförn-
um ámm og áratugum.
„Alltaf finnst manni þaö nú
hálfskrítið að ef einhver flugvöllur
úti á landi þarf traktor í snjóblást-
urinn að þá þurfi slíkt aö sam-
þykkja í flugáætlun. Það á að
treysta fólkinu sem er nær verk-
inu, heimamönnum sjálfum,"
sagði Jón Birgirjónsson. ■
Ríkisstjórnin veitir á þessu ári
styrki til útflytjenda til sértækra
markaðsaðgerða á eftirfarandi
sviðum:
ATAKSYERKtfNI OG
RAÐGJOF
MARKAÐSRANNS.OKNIR OG
ÞEKKINGAROFLUN
FRAMKYÆMD
MARKAÐSAÆTLUNAR
Um styrki geta sótt fyrirtæki og einstaklingar með skráð
lögheimili á Islandi. Umsækjendur skulu leggja ffam umsóknir
á þar til gerðum eyðublöðum sem fást hjá Útflutningsráði
íslands. Gert er ráð fyrir að styrkimir geti að jafnaði numið
um þriðjungi af skilgreindum kostnaði hvers verkefnis, þó
aldrei meira en helmingi. Umsækjendum ber að gera grein
fyrir því hvernig þeir hyggjast fjármagna mismuninn.
Nánarí upplýsingar um reglur vegna markaðsstyrkja fylgja
umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 25. október
n.k. og umsóknum skal skilað til Útflutningsráðs íslands,
Hallveigasttg 1, símil54000, bréfasfmi 511 4040.
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ
• &
///
UTFLUTNINGSRA<
ÍSLANDS