Tíminn - 29.09.1995, Page 4

Tíminn - 29.09.1995, Page 4
4 Föstudagur 29. september 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Cubmundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Jæknideild Tímans Mynda-, plötugerö/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Nöldrið sem ekki þagnar Forystumenn þings og þjóðar tóku því léttilega þegar upp kom kurr vegna heimatilbúinnar launahækkunar þingmanna og úrskuröar Kjaradóms um kauphækkun þeirra og þeirra embætismanna sem best eru haldnir í kjörum. Þeir hristu höfub sitt og töldu að fjölmiðlar væru að búa til fréttir í gúrkutíð og að um væri að ræða smámál, sem fjaraði út og hyrfi úr umræðunni eins og hvert annað nöldur. Forsætisráðherra var víðs fjarri þegar lýðum var ljóst að ekki sitja allir við sama borð þegar lífskjörum er út- hlutað. Þegar hann loks lét í sér heyra, lét hann sem málið væri auðvirðilegt og hafði uppi hótfyndni um að almenningur ætti að gæta hagsmuna sinna gagnvart Strætisvögnum Reykjavíkur, en ekki skipta sér af því sem honum kæmi ekki við, eins og batnandi kjörum allra kjörinna fulltrúa sinna og kauphækkunum æðstu embættismanna. Nöldrið hvarf ekki og várð æ háværara. Þá loks tóku umboösmenn kjósenda vib sér og er nú svo komið að forsætisráðherra lýsir yfir áhyggjum vegna þess óróa sem tiltektir forsætisnefndar Alþingis og úrskurður Kjaradóms hafa valdið. Ráðamenn þjóöarinnar eru loks að átta sig á því að mikill hluti umbjóðenda þeirra sættir sig illa við þau kjör sem honum er búin. Það er mergurinn málsins en ekki hitt, að fólki finnist að þingmenn séu ofsælir af sínum kjörum. Það er viðmiðunin og hvernig að kjaramálum þeirra verr settu og hinna sem betur mega er staðið. Forsætis- ráðherra er farinn að sjá áð sér og tekur nú undir kröfu launþegaforystu um að Kjaradómur birti forsendur úr- skurðar síns um þær ágætu kauphækkanir sem hann veitir útvöldum samkvæmt lögum. Til þessa hefur dómurinn þverskallast við svo sjálf- sagöri kröfu og virðast lögfræðingarnir sem þar sitja hafa lítið hugboð um að þeir lifa og starfa í þjóðfélagi sem kennir sig við lýðræði. Heimóttarlegt laumuspil meb forsendur dómsúrskurðar er stjórnskipuðum dóm- stóli ekki sæmandi, þótt ekki væri nema vegna þess ab niðurstaðan felur í sér útgjöld úr opinberum sjóðum, sem skattgreiðendur standa undir að fullu og öllu. Annað hvort ræður tilviljun því að þingfararkaup og fríðindi eru svipuð hér pg á öbrum Norðurlöndum eftir úrskurðinn, eða að þær eru forsendur dómsins. Sé svo, er fengin viðmiðun sem launþegar ættu að geta sætt sig við. Auölindir, þjóöartekjur og menntun eru meiri og betri á íslandi en í flestum öbrum löndum. Laun eru samt helmingi lægri en gerist meðal nágrannaþjóða, sem búa við svipuð skilyrði. Samkvæmt því er úrkurður Kjaradóms um kaup þingmanna og embættismanna hárréttur. Nú er sjálfsagt að almennir launamenn stefni að sama marki, að ná svipuðum lífskjörum og eru algeng meðal sambærilegra þjóða. Þingmenn munu áreiban- lega leggja sitt af mörkum til að svo megi verða. Þeir hafa yfir mörgum lausnum að ráða til að bæta og jafna kjörin, ef þeir hafa vit og vilja til. Takist það, er þeim ekki oflaunað að ráða og ráðskast með afkomu og velferö umbjóðenda sinna. Víst er að nöldrið mun ekki hvarfa að þessu sinni, og nú eiga þeir sem kjarabótanna njóta ekki annað eftir en að sýna með sannfærandi hætti að þeir vinni fyrir kaupinu sínu. Sameining jafnaðarkvenna Enn er veriö að sameina jafnaðar- menn á fundum. í fyrrakvöld voru það Sellurnar í Alþýðubandalaginu sem stóðu í sameiningunni á opn- um fundi í tilefni formannsfram- boðs Margrétar Frímannsdóttur. Eins og fram hefur komið var Stein- grími J. — hinum frambjóðandan- um til formanns í flokknum — ekki boðið að taka þátt í fundinum, en hins vegar var Jóhönnu Sigurðar- dóttur boöið, þó hún sé formaður í öðrum flokki og ætli ekki að taka þátt í formannsslagnum í Alþýðu- bandalaginu eftir því sem almennt var talið fyrir fundinn. Jóhanna tilkynnti á þessum framboðsfundi Margrétar að skýr- ingin á því hvers vegna ekki hafi tekist að sameina jafnaðarmenn væri einfaldlega sú, að það hafi ekki verib konur formenn í A-flokkun- um. Þess vegna ætti bara að kjósa konur til formennsku í Alþýbu- bandalaginu og Alþýðuflokknum, og fá þær til skrafs og ráðagerða með sér og Kvennalistanum og þá væri málib leyst. Sameining jafnaö- armanna yrði að veruleika. Ljóst er að Alþýöuflokkurinn og Alþýbu- bandalagið eru enn mældir í skoð- anakönnunum með eitthvert kjör- fylgi og geta því með réttu talist til afla sem skipta máli í stjórnmálum. Þjóðvaki hins vegar — flokkurinn hennar Jóhönnu sem átti einmitt að sameina jafnaðarmenn undir forustu konu, þ.e. Jóhönnu sjálfrar — hefur ekki náð neinni táfestu meðal kjósenda og mælist með nánast ekki neitt fylgi í könnunum þessa dagana. Framlag Þjóðvaka til sameiningar jafnaðarmanna yrði þá fyrst og fremst fólgið í því að leggja hinum nýja jafnaðarmannaflokki til forustukonu, en samkvæmt Margrét. Jóhanna. kenningunni er það einmitt afar mikilvægt að sem flestir kvenfor- menn komi að þessari sameiningu. Kvenleg sameining Þessi kvenlega sameining jafnað- armanna er athyglisverb í ljósi þess að Kvennalistinn virbist búa vib sömu fylgisþróun og Þjóðvaki, þ.e. GARRI hann virðist ekki lengur eiga hljóm- grunn meðal kjósenda. Ekki verður annað séð en að Jóhanna, og vænt- anlega Margrét Frímannsdóttir líka, telji ab sameining jafnaðarmanna muni þegar allt kemur til alls verða eins konar kvennalisti þar sem körl- um er leyft að vera með sem al- mennir flokksmenn, þó svo ab þeim verði útskúfað úr forustuhlut- verkum. Þetta yrði þá kannski frek- ar sameining jafnaðarkvenna en jafnaðarmanna. Jafnabarmenn meb formannsdrauma, eins og Steingrímur J. Sigfússon, verba þá einfaldlega að láta í minni pokann fyrir hinu nýja fjóreyki: Jóhönnu- Margréti-Rannveigu-Kvennalista Kristínar. Óvíst er ab Steingrímur og aðrir karlar, sem þannig yrðu settir til hliðar, myndu taka þessari þróun þegjandi og því verða jafnaðarkon- urnar að búast strax til varnar. í ljósi þess að þær Margrét og Jóhanna eru þegar farnar að vinna saman í kosn- ingabaráttu Margrétar innan Al- þýbubandalagsins, er ekki óeðlilegt að þær láti málið ganga alla leið til enda. Eins og kunnugt er hefur ekki komið fram neinn ákveðinn kand- ídat í varaformanninn hjá Allaböll- um, og það væri því eölilegt fram- hald af samvinnu Margrétar og Jó- hönnu að Jóhanna sýndi samein- ingarviljann í verki og gerðist varaformaður hjá Margréti, sam- hliða því sem hún væri formaöur í Þjóðvaka. Stund sameiningar- innar Þjóðvaki er hvort sem er í svo mikilli lægð um þessar mundir, aö kraftmikil og vön stjórnmálakona eins og Jóhanna gæti sem hægast haldið sjó sem formaöur í einum flokki og varaformaður í öbrum. Auk þess væri það tímabundið ástand, sem varaði aðeins þar til Rannnveig væri orðin formaður í Alþýðuflokknum og Kvennalistinn búinn að sætta sig við að hafa karla sem almenna flokksmenn, því það er þá sem stund sameiningarinnar rennur upp. Og þá upphefst líka öld sameinabra jafnabarkvenna og for- mannaklúbburinn með þeim Jó- hönnu, Margréti, Rannveigu og Kristínu Ástgeirsdóttur verður ekki lengur vettvangur heimskulegra átaka og valdabrölts ab hætti karla. Þetta verbur huggulegur sauma- klúbbur þar sem aldrei verður uppi nokkur ágreiningur eða átök, bara vegna þess að meðlimirnir eru kon- ur. Garri Kvöldstund meö Ómari Nú undanfarið og þessa dagana standa yfir göngur og réttir í sveit- um landsins og sláturtíð stendur sem hæst. Þessar haustannir í sveit- um hafa verið órjúfanlegur þáttur í þjóðlífinu um árabil og hluti af verkahring sveitalífsins. Þessi annatími er tengdur sauö- fjárræktinni í landinu, en einmitt nú standa yfir viðræður milli bænda og ríkisvaldsins um það við hvaða skilyröi þessi atvinnugrein á að búa næstu árin. Aöilar vinnu- markaðarins hafa nú blandast inn í þá umræðu. Þaö var ekki ætlunin að þessu sinni ab kafa djúpt í efnisatriði hennar. Samstaða er um það meðal allra aöila að hún er nauðsynleg og ekki verður svo vel sé búið lengur við þann búvörusamning sem í gildi er. „Ærnar þagna" Ég horfði nú í vikunni á þátt sem Ómar Ragnarsson sá um í sjónvarp- inu og bar heitið „Ærnar þagna". Heitið er sjálfsagt sótt til hryllings- myndarinnar „Lömbin þagna", þótt ég skilji ekki þau tengsl sem þar eru á milli í huga þáttargerðar- mannsins. I þessum þætti var eink- um fjallaö um erfibleika sauðfjár- ræktarinnar og var meb tónlist og töluðu orði höfbað til tilfinning- anna. Bændur lýstu erfiðleikum sínum og trúbador söng trega- blandna söngva um hvab hefbi far- ið úrskeiðis. Myndefnið sem fylgdi sýndi göngur og réttir og daglega önn í sveitum landsins. Umræður hafa ávallt verib miklar um landbúnabarmál í þjóbfélaginu og þab skortir ekki sérfræbinga í þeim málum. Ég man eftir því ab bændur á Fljótsdalshéraði tjábu mér í gamla daga að allra mestu sér- fræðingarnir væru þeir, sem væru nýhættir að búa og fluttir á mölina. Þeir vissu nákvæmlega hvernig hin- ir, sem eftir eru, ættu að haga sínum búskap. Hins vegar er komin upp heil kynslóð sem hefur lítil tengsl við sveitirnar og jafnvel engin við bú- skapinn og verkahringinn þar. Sá tími er liðinn þegar það var algild regla að börn úr þéttbýli væru í sveit sumarlangt. Marga þéttbýlis- búa hef ég hitt sem minnast sveita- dvalar sinnar í æsku með mikilli ánægju og telja sig hafa fengib meb henni ómetanlega lífsreynslu. Nú eru kynnin af sveitinni hjá mörgum borgarbúa bundin við útsýni frá þjóðveginum á hraðakstri um land- ið. Á víbavangi Mér var það dálítið umhugsunar- efni eftir þátt Ómars Ragnarssonar hvaba áhrif hann skilur eftir í huga þéttbýlisbúa sem horfa á. Verða þau á þann veg að allt sé vonlaust og sauðfjárrækt sé búin að vera, eða eykur þátturinn skilning á þeim vandamálum og erfiðleikum sem viö er að glíma? Vonandi verður það síðarnefnda. Gallinn fannst mér hins vegar vera ab þátturinn tæpti á ýmsu og skildi eftir fleiri spurningar heldur en hann svaraði. Viðtölin við bændurna gáfu vel til kynna þá erf- iðleika sem við er að glíma. Hins vegar var kallaður á vettvang ráðu- nautur sem sló fram róttækum til- lögum, meðal annars þeim ab slá allar hugmyndir um útflutning kjötvara af. Mér finnst vanta annan þátt til þess ab fjalla um þessa spurningu og fjalla um meðferö og sölu kjöts. Sjónvarpið ætti að hafa alla burði til þess að koma slíkum umræðum til skila í myndrænu formi. Hvernig væri að leiba þá fram sem hafa veriö ab vinna ab þessum sölumálum? Þar er um marga aðila að ræða og alltaf koma upp fréttir um að nú séu fundnir markaðir hér og þar. Vandinn er sá ab ekki fylgir þessum fréttum hvaða verð fáist fyrir afurðirnar, né aörar upplýsingar sem þurfa að fylgja. Það koma einnig oft fram upplýs- ingar um að sláturkostnaður sé 140 krónur á kíló kjöts. Hins vegar sést ekki sundurlibun á þessum kostn- aöi. Hvað er þarna um að ræða? Greinargóður þáttur um sölumeð- ferð á kjöti væri einnig nauðsynleg- ur til að auka skilning á þessum málum. Umræða sem vantar botn í Mér finnst vera galli á allri um- ræðu um sölu og markaðsmál dilka- kjöts ab menn setja sig alltaf í ein- hverjar áróburs- og umvöndunar- stellingar þegar þessi mál ber á góma, og allir bera af sér sakir. Smá- salinn kastar ábyrgðinni á afurða- stöövarnar og öfugt og bændurnir tala gjarnan um að þessir aðilar báðir hafi brugðist. Það þarf að fræða fólk um hið raunverulega ástand þessara mála. Hvert er ástandið í raun á kjötmörkuðum heimsins? Hvaða ástæður eru fyrir minnkandi neyslu á innanlands- markaði? Þessi mál þarf ab ræba öfga- og fordómalaust og leita leiða til þess að upplýsa neytendur, í stab þess að rugla þá í ríminu. Þáttur Ömars Ragnarssonar dró það fram hver'nig ástandið hefur leikið sauðfjárbændur, en hann svaraði engu um hvað væri til rába eða upplýsti neitt um það hvers vegna sala þessara ágætu afurða hefur brugðist. Ég bið sjónvarpið um framhaldsþátt um þau málefni, þar sem þeir eru kvaddir til sem annast slátrunina og söluna, auk bændanna sjálfra. J.K.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.