Tíminn - 29.09.1995, Side 10

Tíminn - 29.09.1995, Side 10
10 tSinsiim Föstudagur 29. september 1995 Athugasemd Breskurjeremía Þriöjud. 26. sept. sl. birtist í Tíman- um símaviötal við mig undir fyrir- sögninni: „Félagslega kerfið hrynur ef það verður ekki endurskoðað." Það er rétt eftir mér haft að ég fagni orðum félagsmálaráðherra um það sem kallað er félagslega húsnæðis- kerfið. Það er líka rétt að ég hef lengi bent á þetta og um leið að það er eignaþátturinn sem mestum vandræðum veldur. Félagslega kerf- ið svonefnda er ekki andstæða al- mennu húsnæðisstefnunnar, ef stefnu skal kalla, einsog margir halda, heldur hluti af henni. í framhaldi af þessu vil ég gera at- hugasemd við tvö atriði sem höfö eru eftir mér í viðtalinu. Það fyrra er: „Það endar með því aö félagslega kerfið hrynur ef stórtækar breyting- ar verða ekki gerðar á því. Það verð- ur að leggja niður mokstur ríkisins til hins svonefnda almenna hús- næðiskerfis." Hér var ég að tala um félagslega húsnæðiskerfið, en eign- arþáttur þess, sem er að mestu plat, hefur lengi byggst á stöðugum fjár- mokstri hins opinbera í þessa hít sem aldrei fær nóg, en skapar greiðsluerfiðleika, skuldasöfnun og uppgjörsklúður og hefur eybilagt fjölda heimila meb kröfum um fjár- nám og nauðungarsölu. íbúbirnar lenda svo á sveitarfélögunum vegna kaupskyldu eignaríbúba. Það verður ekki ráðin bót á þessu nema með breyttu rekstrarformi. Varðandi al- menna kerfið var tekiö á þessu máli með stofnun húsbréfakerfisins. Hitt atriðið: „Vægi leiguhúsnæðis hljóti að aukast á kostnað félagslega kerfisins." Þarna ætti að standa: Vægi leiguhúsnæbis hlýtur að auk- ast við endurskobun félagslega hús- næðisins og húsnæðisstefnunnar í heild. Það er rétt að ég benti á að vilji menn viðhalda „séreignastefn- unni", verbur að gera sölumarkað- inn frjálsan, þannig að hann lúti lögmálum frambobs og eftirspurn- ]ón frá Pálmholti. ar. Ég ítreka að þar var ég að tala um sölumarkaðinn. Á slíkum markaði er það kaupandi sem ræður verð- inu, en ekki seljandi einn. Og þar getur enginn gert kröfu til að fá kostnaðarverðið endurgreitt. Með þökk fyrir birtinguna. Jón frá Pálmholti, fonn. Leigjendasamtakanna Ruling Britannica, eftir Andrew Marr. Michael Joseph, 320 bls., £ 16,90. Andrew Marr er fyrrverandi pól- itískur ritstjóri Economist, er 9. segtember 1995 birti um þesSa bók hans ritdóm, sem í sagði: „Gamla stjórnskipan Bretlands, eins og hann nefnir hana, var einföld í grófum dráttum. Að henni var glögg valdakeðja á milli kjósenda og þingmanna og ráðherra og ríkisstjórnar at- hafna og aðgerða. Sú keðja hef- ur rofnað eða sundur ryðgað. ... Á grunnstigi hafa bæjar- og sveitarstjórnir verið sviptar völdum sínum. Þjónustu þeirra annast einkafyrirtæki og kjörnir umboðsmenn. Á toppnum hef- ur ríkisstjórn Bretlands, rúin heimsveldinu, misst tök á einu á eftir öbru, allt frá langtíma- vöxtum til máls og vogar, í fyrstu til gamaldags milliríkja- samtaka eins og Atlantshafs- bandalagsins, að undanförnu til fjármálamarkaða utan athafna- sviðs ríkisstjórna og yfirþjóð- legra samtaka, eins og Evrópu- sambandsins. Þá eru stjórn- málaflokkarnir, fyrrum megin- hlekkirnir í stjórnkeðjunni, orðnir sinnulitlir. Stórir hópar umhverfissinna hafa fleiri með- limi." „Jafnvel þótt stjórnskipunin sé farin forgöröum, hefur ekkert komið í hennar stað. Viðvar- andi tilhögun mála er klúðurs- leg, óskipuleg og ekki sjálfri sér samkvæm. ... Fleiri mál, sem varba stjórnun Bretlands, ætti að bera undir þjóðaratkvæði. Stjórnmálaflokkar ættu að ein- skorða átök sín við mál sem þeim ber á milli." ■ Dagarnir koma í halarófu Rit á þýsku um Egils sögu Út er komið á vegum Rannsókn- arstofnunar Kennaraháskóla ís- lands rit um Egils sögu eftir Bald- ur Hafstað dósent. Nefnist það Die Egils saga imd ihr Verhaltnis zu anderen Werken des nordischen Mittelalters. Um ér að ræða dokt- orsrit Baldurs, sem hann skrifaði við Múnchenarháskóla. í ritinu ræðir höfundur tengsl Egils sögu við önnur norræn miðaldaverk, ekki síst Heimskringlu og Snorra- Eddu, en einnig Ketils sögu hængs, Örvar-Odds sögu og fleiri fornaldarsögur. Baldur telur að Egils saga sé undir miklum áhrif- um allra þessara sagna. Af þessum ástæðum og ýmsum öðrum verði að gera ráð fyrir að sagan sé ekki skrifuð fyrr en um 1240. Baldur gerir tilraun til að rök- styðja þá kenningu að vísur og kvæði Egils sögu séu ekki eldri en sagan sjálf. Þetta gerir hann eink- um með því að benda á að svo Fréttir af bókum virðist sem fjölmargt sem fram kemur í kveðskapnum eigi rætur að rekja til kvæða og sagna sem til urðu löngu eftir daga Egils. Einn áhrifavaldurinn virðist t.d. vera Sighvatur skáld Þórðarson, hirð- skáld Ólafs helga Haraldssonar og sonar hans, Magnúsar góða. Um arfsagnir af Agli leyfir höf- undur sér ab efast, m.a. vegna þess að Heimskringla er þögul um mikilvæga atburði í Egils sögu sem tengjast Noregskonungum. Auk þess er höfuðlausnarfrásögn- in, sem öll sagan snýst um, ekkert annað en aukin og endurbætt út- gáfa af fyrri sögum um höfuð- lausn norrænna skálda. Verk Baldurs er annab ritið í ri- tröðinni Rannsóknarrit Rannsókn- arstofmmar Kennaraháskóla ís- lands. Fyrsta ritið birtist á síðast- libnu ári og er eftir Ingvar Sigur- geirsson dósent. Þar er fjallaö um notkun námsefnis í 10-12 ára deildum grunnskóla og viðhorf kennara og nemenda til þess. Rit- in eru fáanleg í Bóksölu kennara- nema, í stærri bókaverslunum og hjá Rannsóknarstofnun Kennara- háskóla íslands. ■ Ljóðaforlagið Goðorð hefur gefið út bókina Hjartarœtur í snjónum eftir Þór Stefánsson. Þór sendi frá sér fyrstu ljóðabókina, Haustregnið magnast, árið 1989 og ári síbar bókina / gróðurreit vorsins. Eins og fram kemur í titlum bókanna er höfundur náttúru- skáld. Ljóð hans eru myndir úr daglegu lífi þar sem „dagarnir koma í halarófu" og vekja nýjar spurningar, nýja tilhlökkun. Gagnrýnendur hafa bent á að í ljóðmáli höfundar kveði við jákvæðari tón en tíðkast hefur undanfarna áratugi, og er þá lík- lega átt við þá lífshamingju sem alls staðar leitar upp á yfirborö- ib, þrátt fyrir djúpa alvöru og gráleita glettni höfundar. Þó að veturinn leiki stórt hlut- verk í þessari nýju bók Þórs, er nú víðar leitað fanga. Hin eilífa leit mannsins að heimkynnum og tilgangi eru áleitin yrkisefni og eins og í fyrri bókum höf- ÞÓR STEFÁNSSON HJARTARÆTUR í SNJÓNUM undar er ástin óhagganlegur þáttur í hinu daglega lífi. Bók Þórs er myndskreytt af Helga Gíslasyni. Hún er 77 blab- síður og kostar kr. 1.920. ■ Dagur frímerkisins 1995 NORDIA 96 l %\ \aU Að þessu sinni verður gefin út blokk frímerkja á degi frímerkis- ins, þann 9. október, eða á degi Leifs Eiríkssonar, eins og hann hét áður. Innan svæðisins, er nefnist Girðingar í Borgarfirði, rennur Hvítá og í henni mikið vatn úr Langjökli. Samt er það nú orðið minha en oft var talið áður fyrr. Kann því ab valda aö alltaf smá- dýpkar rásin. Þarna liggja einnig greinileg hraunlög hvert ofaná öbm, en milli þeirra og neösta bergsins streymir stöbugt fram grunnvatn. Einmitt þarna, þar sem Hvítá hefir sagab sár í ald- anna rás gegnum hvert jarðlagið af öbru, kemur allt þetta í ljós. Þarna er því um þaö bil kíló- metra löng röð þessara hraunjað- arsfossa, sem streyma fram og hafa hlotið nafnið Hraunfossar. Að vísu er þeim stundum ruglað saman við Barnafossa, en þab gerist nú orðið æ sjaldnar, þar sem þeir liggja aðeins ofar í ánni. Þarna ýmist steypist eba sytrar vatnið fram í fossum, bunum, lækjum og sytmm, milli hraun- klettanna. Þessvegna «r þarna mikil gróðursæld, skógarteigar, hvannastóð og blómaskmb, sem gefur þessari fossaröb alveg ein- staka umgjörb. Öll þessi fegurð birtist hinsvegar ekki fyrr en komið er að fossunum. Minnist sá er þetta ritar þess, ab stundum var erfitt ab fá ferðamenn til ab FRIMERKI SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON yfirgefa svæöið á ný. Fegurb þess var svo hrífandi. Þessi blokk er útgáfa nr. 332 hjá Póstmálastofnun, í tilefni af degi frímerkisins 1995 og þess að sýningin „NORDIA 96" verbur haldin hér á næsta ári. Blokkin er gerð eftir mynd Hauks Snorra- sonar af Hraunfossum í Hvítá í Borgarfirði og hönnub af Skyggna-Myndverk. Tvö frímerki em í hverri blokk, annað þeirra er með verðgildinu 10,00 kr., en hitt með verbgildinu 150,00 kr. Sjálf blokkin er svo seld á 200,00 krónur og er því 40,00 kr. yfir- verð, sem rennur til Frímerkja- og póstsögusjóös, en hann veitir meðal annars fé til að halda frí- merkjasýningar. Áletmn á frí- merkjunum sjálfum er svo, auk verðgildisins, aðeins landsnafnib ÍSLAND. Jaðarprentun blokkar- innar samanstendur af merki frí- merkjasýningarinnar „NORDIA 96" að ofan, en að neðan er áletr- unin „Norræn frímerkjasýning. Reykjavík 25.-27. október 1996. Verð kr. 200". Þess er því hvergi getið í áletrun blokkarinnar að hún sé gefin út af tilefni dags frí- merkisins, þó svo að útgáfan heiti þab samkvæmt tilkynning- unni. Þab veröur svo gaman ab sjá hversu vel getur tekist með prentunina hjá fyrirtækinu Joh. Enschede en Zoonen, sem offset- prentar blokkina. Þess má líka geta hér að síöasta blokk á degi frímerkisins verbur ekki í sölu nema til 30. septem- ber þessa árs. Þá verður restupp- lag eyðilagt. Þá verða fjórar árs- möppur einnig teknar úr sölu þann 31. október í ár, en þab em Hraunfossar* Norræn frímerkjasýning Reykjavík 25. - 27. október 1996 Verð kr. 200 Frímerkjablokkin sem kemur út á degi frímerkisins. 7/r\ 1 //utiidi&mwBB1 09.l0.199b Gjafamappan sem gefin var út meb ársmöppurnar frá 1987, 1988, 1989 og 1990. Þá er einnig rétt að geta þess, að út var gefin sérstök gjafa- mappa í tilefni þess ab flugsam- göngur milli íslands og Lúxem- borgar em 50 ára á þessu ári. Löndin gáfu út sameiginlegt frí- merki þann 18. september, sem kunnugt er, og einnig sérstaka gjafamöppu með stimpluðum og óstimpluðum fjórblokkum í. samútgáfu íslands og Lúxemborgar. Mappan er eingöngu send þeim er panta hana sérstaklega, en ekki til allra almennra áskrif- enda. Nú mun vera langt komið að á- kvarða frímerkjaútgáfu næsta árs. Það er von okkar ab geta gert hana kunna að mestu leyti í ein- hverjum næstu þátta. Þar er því um stóra framför að ræða. Á næstunni mun svo verða haldin frímerkjasýningin „NOR- Sérstimpill sá er notabur verbur, meb teikningu af Hraunfossum. DEN 95" í Svíþjóð. Samkvæmt venju verður þar kirfileg kynning á næstu sýningu, sem er hjá okk- ur á Kjarvalsstöðum, eins og sagt er frá fyrr í þættinum. Mun fram- kvæmdastjórn þeirrar sýningar, þeir Sigurður R. Pétursson, Hálf- dán Helgason og Sverrir Einars- son, fara utan á þessa sýningu og sjá um kynninguna. Er þeim ósk- ab góðrar feröar og góbs árang- urs. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.