Tíminn - 10.10.1995, Blaðsíða 8
8
Wímínn
Þri&judagur 10. október 1995
Molar...
... Nú er nánast öruggt talið að
Lúkas Kostic verði ráðinn þjálfari
bikarmeistara KR næsta keppnis-
tímabil, en í gær var talið að
samningar væru nokkurn veginn
í höfn.
... Fimleikasamband ísiands
mun dagana 12.-15 október
halda þolfiminámskeið. Nám-
skeiðinu mun Ijúka með prófi og
útskrifast þátttakendur sem
landsdómarar í greininni. Búist
er við góðri þátttöku í námskeið-
inu.
... Pétur Ormslev hefur verib
endurrábinn þjálfari KA í knatt-
spyrnu, en liðib leikur í 2. deild.
Libið hafnaði í 3. sæti í deildinni,
eftir harba keppni vib Þór um
það sæti.
... íslenska landslibib skipað
leikmönnum U-18 ára tryggbi
sér fyrir helgina þátttöku í 16
liba úrslitum með sigri á Norður-
Irlandi á föstudag, 3-2 í hörku-
leik. Liðib hafbi áður sigrab
Hvíta-Rússland, en vegna úrslita
í leik Norður-íra og Hvít-Rússa
þá urbu íslendingar ab sigra á
föstudag. í 16 liba úrslitum
mæta íslendingar írum, en þeir
sigrubu í sínum ribli og verður
leikiö heima og heiman. Verður
þeim leikjum ab vera lokib í maí
á næsta ári.
... Sævar Gubjónsson, sem leik-
ið hefur með Þrótti Reykjavík síð-
ustu tvö keppnistímabil, hefur
skipt yfir í Fram, en Sævar er
reyndar uppalinn hjá félaginu.
Ekki er talið ólíklegt að Gub-
mundur Gíslason, sem einnig
hefur leikiö með Þrótti, skipti yfir
í Fram, en hann er einnig Fram-
ari að upplagi. Heyrst hefur ab
fleiri leikmenn uppaldir hjá Fram
hyggi á að koma til heimahag-
anna fyrir næsta tímabil og
freisti þess ab leika undir stjórn
núverandi landslibsþjálfara.
... Þorlákur Árnason hefur verib
rábinn þjálfari 3. deildar libs Æg-
is í knattspyrnu á næsta keppnis-
tímabili. Þorlákur hefur ekki leik-
ið sjálfur um nokkurt skeið,
vegna meiðsla sem hann varð
fyrir, en hefur sinnt þjálfun yngri
flokka síðan.
Bestu knattspyrnumenn á íslandi: Guölaug lónsdóttir, KR, og Ólafur Þóröarson, IA.
Lokahóf knattspyrnumanna / I. deild kvenna og karla:
Ólafur og Gublaug
leikmenn ársins
Tímamynd CS
Leikmenn í 1. deild karla og
kvenna kusu Ólaf Þór&arson,
ÍA, og Guölaugu Jónsdóttur,
KR, Ieikmenn ársins, en loka-
hóf knattspyrnumanna og -
kvenna fór fram fyrir fullu
húsi á Hótel íslandi um sí&-
ustu helgi. Þá var Tryggvi
Gu&mundsson, IBV, valinn
efnilegasti leikma&ur í 1.
deild kvenna og Ingibjörg Ól-
afsdóttir, ÍA, í 1. deild
kvenna.
Þá voru afhentir gull-, silfur-
og bronsskór í 1. deildinni, fyr-
ir markahæsti: leikmenn, ög
var Arnar Gunnlaugsson
markahæstur me& 15 mörk í 7
leikjum og fékk því gullskóinn.
Tryggvi Guðmundsson fékk
silfurskóinn og Mi.hajlo Biberc-
ic fékk bronsið.
íþróttafréttamenn völdu lið.
ársins hjá báöum kynjum, en
Þokkaleg aöstaöa fyrir knattspyrnumenn í borginni. 450 miljónir kr. i velli og íþróttahús.
Félögin ákveöa sjálf forgangsrööunina. Form. ITR:
Ekki endalaust hægt ab
leita til borgarinnar
kvennaliðið haföi verið kynnt í
sérstöku hófi áöur.
Karlaliðið: Birkir Kristinsson,
Fram, Ólafur Adolfsson, ÍA,
Hermann Hreiðarsson, ÍBV, Sig-
urður Örn Jónsson, KR, Ólafur
Þórðarson, ÍA, Sigurður Jónsson
ÍA, Marko Tanasic, ÍBK, Heimir
Guðjónsson, KR, Einar Þór
Daníelsson, KR, Arnar Gunn-
laugsson, ÍA, Tryggvi Guð-
mundsson ÍBV.
Gylfi Orrason, Fram, var val-
inn dómari ársins, en auk fram-
angreindra viðurkenninga voru
peningaverðlaun veitt frá Sjó-
vá-Almennum eftir samningi
fyrirtækisins við 1. deildarfélög-
in í knattspyrnu. ■
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur, telur
aö það sé mjög hæpiö af Guð-
jóni Þórðarsyni, nýráðnum
þjálfara Skagamanna í fót-
bolta, að bera saman aðstöðu
fótboltamanna á Akranesi ann-
arsvegar og í borginni hinsveg-
ar. Hún segir að þótt Akranes-
bær hafi staðið vel að baki ÍA,
þá hafi félagið einnig haft kost-
unaraðila ab framkvæmdum
uppá Skaga, öndvert vib félög-
in í borginni.
Hún segir að aðstaða knatt-
spyrnufélaga í borginni sé þokka-
leg og ekki sé endalaust hægt að
leita til borgarinnar í þeim efn-
um. Hún er einnig á því að að-
staöan batni aldrei fullkomlega
nema með yfirbyggðum knatt-
spyrnuvelli. Hún vonar að sá
draumur verði einhvern tíma að
veruleika, þótt hann sé ekki í
sjónmáli um þessar mundir.
En eins og kunnugt er, þá
gagnrýndi Guðjón borgaryfirvöld
harðlega á blaöamannafundi í
vikunni vegna aðstöðuleysis
knattspyrnufélaga í borginni.
Hann sakaði borgaryfirvöld einn-
ig um metnaðarleysi í mann-
virkjamálum og gagnrýndi for-
ystumenn íþróttafélaga fyrir að
setja handboltann ofar í for-
gangsröðinni en fótbolta, þrátt
fyrir að fótboltinn væri sú
íþróttagrein sem ætti mesta
möguleika að ná í peninga er-
lendis frá með þátttöku í alþjóða-
mótum.
Formaður ÍTR bendir m.a. á aö
framlög borgarinnar til fram-
kvæmda hjá íþróttafélögum á
þessu og næsta ári séu um 450
miljónir króna, sem er einhver
aukning frá fyrri árum. Þessir
fjármunir, sem formaður ÍTR tel-
ur að sé „dágott og. vel í lagt",
fara bæði til vallarframkvæmda
og til íþróttahúsa. Hún telur
hinsvegar að það sé kannski fé-
laganna sjálfra að fara að hugsa
sína pólitík uppá nýtt og feta t.d.
í fótspor Skagamanna með því að
fá til liös við sig svonefnda kost-
unaraðila til að fjármagna mann-
virkjagerð.
Steinunn segir að gagnrýni
Guöjóns um að handboltinn sé
tekinn framyfir fótbolta hjá fé-
lögunum, sé málefni félagana
sem hafa sjálf ákveðið þessa for-
gangsrööun í sinni uppbyggingu.
Engu að síöur telur hún að ár-
angur reykvískra fótboltaliða á
nýliönu sumri sé áhyggjuefni.
Hinsvegar sé ekki hægt að ásaka
borgina fyrir það að t.d. Fram
hafi fallið niður í aðra deild,
enda ræður sveitarfélagið engu
um það heldur fyrst og fremst
geta leikmannanna. Þar fyrir ut-
an væri það fullkomlega óeðlilegt
ef borgin færi að styrkja íþrótta-
félögin til leikmannakaupa, enda
sé það ekki í verkahring sveitarfé-
lags.
Aðspurö segir hún að það teng-
ist gerð fjárhagsáætlunar í þaust
og næsta haust hvort einhverra
breytinga sé að vænta á gervi-
grasvellinum í Laugardal. Hún
segir aö gervigrasiö s? mjög illa
fariö, enda telja boltamenn að
það sé úrelt auk þess að vera mik-
il slysagildra. ■
Steinunn Valdís Óskarsdóttir.