Tíminn - 18.10.1995, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.10.1995, Blaðsíða 2
2 Miövikudagur 18. október 1995 Tíminn spyr... Eiga ráöherrar ab vera meb hærri laun en starfsmenn ráöuneyta? Hannes G. Sigurösson, hagfræðingur VSí: Ef maður hugsar um aðrar rík- isstofnanir, ef maöur ber ráðu- neytin saman við ríkisstofnanir, sjúkrahús, veitufyrirtæki, pen- ingastofnanir og Póst og síma í launalegu tilliti þá er það megin- regla aö æðsti stjórnandi hafi hæstu launin. Þó eru á þessu und- antekningar eins og þegar yfir- menn eru á föstum launum líkt og ráðherrar, en undirmenn fá mikið greitt fyrir yfirvinnu. Þetta þykir óeðlilegt. Ef við förum yfir á almennan markað held ég að það heyri til algjörra undantekn- inga að næstráðendur séu með hærri laun en topparnir. Þetta er óvenjulegt launaástand. Björn Arnórsson, hagfræbingur BSRB: Eg held að það sé engin einhlít regla um þetta. Þaö er náttúrlega Ijóst að ráðherra getur lent í því að kaupa menn á hærra veröi en honum fyndist sjálfum pólitískt stætt á að fara fram á. Ég er sam- mála Ögmundi Jónassyni í hans stefnu hvað þetta varöar, að stjórnmálamenn eigi að bera ábyrgð á sínum launum en síöan geta þeir neyðst til að kaupa menn fyrir miklu hærri laun en þeir hafa sjálfir. Gubmundur J. Gubmúndsson formabur Dagsbrúnar: Ég vil andskotann engan dóm leggja á þaö. Þetta er voöalega misjafnt, sumir vinna nú gífur- lega yfirvinnu en aðrir ekki og eru þó í mikilli nefndavinnu. Það er hins vegar mjög þröngur hóp- ur sem fer í þessar nefndir, þetta eru sömu mennirnir. Þá þýöir ekki að bjóða nefndarmönnum hjá ríki eða borg upp á nefndar- vinnu utan vinnutíma. Það þykir þeim fráleitt. Almennt finnst mér að reglan ætti að vera sú aö ráb- herrar væru hæstir í launum. Þó geta oröib undantekningar þar á. Rœtt um aö rýmka verksviö umboösmanns Alþingis í staö þess aö ráöa umboösmann Reykjavíkur: Umboðsmabur Alþingis og sveitarfélaganna? Er hægt ab tryggja réttaröryggi borgara Reykjavíkur (og ann- arra sveitaifélaga) meb því ab rýmka verksvib umbobsmanns Alþingis í stab þess ab rába sér- stakan umbobsmann Reykja- víkur? Borgarráb hefur falib borgarritara og skrifstofustjóra borgarstjórnar ab óska vib- ræbna vib forsætisnefnd Al- þingis og umbobsmann AI- þingis um þetta mál. Embætti umboösmanns Reykjavíkur, sem hefði eftirlit með stjórnsýslu borgarinnar og tryggði rétt borgaranna gagnvart borgaryfirvöldum, var eitt af kosningaloforðum Reykjavíkurl- istans. Embættið hefur ekki enn verið sett á laggirnar. í nýútkominni skýrslu um- boðsmanns Alþingis fyrir árið 1994 fjallar hann sérstaklega um tilhögun eftirlits með stjórnsýslu sveitarfélaga í ljósi flutnings verkefna frá ríki til sveitarfélaga. í henni segir umbobsmaður ab hann telji eðlilegt aö Alþingi taki afstööu til þess hvort breyta eigi lögum um umboðsmann Alþing- is á þann hátt ab hann geti fjall- aö um ákvarðanir sveitarstjórna á sama hátt og ákvarðanir stjórn- valds ríkisins. í ljósi þessarar skýrslu umboðs- manns hefur borgarráð sam- þykkt að fela borgarritara og skrifstofustjóra borgarstjórnar ab hafa samráb við Samband ís- lenskra sveitarfélaga og óska við- ræðna við forsætisnefnd Alþingis og umboðsmann Alþingis. Við- ræðurnar beinist að því hvort rýmkun á verksviði umboðs- manns Alþingis geti tryggt réttar- öryggi borgara Reykjavíkur og annarra með sambærilegum hætti og áformað hefur verið í hugmyndum um umboðsmann Reykjavíkur. -GBK Atvinnukönnun Þjóöhagsstofnunar: Aukin eftirspurn eftir vinnuafli Helsta niðurstaðan í at- vinnukönnun Þjóðhags- stofnunar í sl. mánubi var sú ab atvinnurekendur töldu æskilegt ab fjölga starfsfólki um 70 manns á landinu öllu í september, sem er 0,1% af áætluöum mannafla. Þjóö- hagsstofnun telur að þetta sé nokkru meiri eftirspurn eftir vinnuafli en á sama tíma í fyrra. Af einstökum atvinnugrein- um vildu atvinnurekendur í fiskiðnaöi fjölga starfsfólki um 120 manns og þá aðallega á landsbyggðinni. Þaö er um 2,1% af áætluðum mannafla í greininni úti á landi. Á sama tíma í fyrra vildu atvinnurek- endur fækka um 200 manns. í iðnaði vildu atvinnurekendur fjölga um 60 manns, eöa um 0,6% af áætluðum mannafla í greininni. Fjölgunin kemur mest fram í málm- og skipa- smíöaiðnaði. Á höfuðborgar- svæðinu vildu atvinnurekendur fækka um 10 manns en fjölga um 70 manns á landsbyggð- inni. Á sama tíma í fyrra vildu atvinnurekendur fjölga um 40 manns á landinu öllu, fækka um 30 manns á höfuðborgar- svæðinu en fjölga um 70 manns úti á landi. í byggingarstarfsemi vildu fyr- irtækin fækka um 65 manns, eba 0,7% af áætluðum mann- afla í greininni. Á höfuðbojgar- syæðinu vildu menn fjölga um 80 manns en fækka um 145 manns úti á landi. í fyrra var vilji til að fækka um 115 manns á höfuöborgarsvæðinu en fjölga um 5 manns úti á landi. í verslun- og veitingastarfsemi vildu atvinnurekendur fjölga um 10 manns, eba 0,1% af áætl- uðum mannafla. Á höfuðborg- arsvæðinu var vilji til ab fjölga um 70 manns í greininni en fækka um 60 manns úti á landi. í fyrra á sama tíma vildu at- vinnurekendur fækka um 125 manns á öllu landinu, 35 á höf- uðborgarsvæðinu og 90 á lands- byggðinni. I samgöngum vildu atvinnu- rekendur fækka lítillega við sig, bæði á höfuðborgarsvæbinu og úti á landi. Á sama tíma í fyrra vildu þeir hinsvegar fjölga mannskap lítilsháttar á höfuö- borgarsvæðinu en fækka úti á landi. Á sjúkrahúsum vildu stjórnendur fækka um 15 manns á höfuöborgarsvæðinu en fjölga um 10 manns úti á landi. A sama tíma í fyrra vildu sjúkrahúsin fjölga um 30 manns, eingöngu á landsbyggð- inni. í annarri þjónustu, peninga- stofnunum og þjónustu við at- vinnuvegina, vildu atvinnurek- endur fækka um 75 manns á höfuðborgarsvæðinu en fjölga um 35 manns á landsbyggð- inni. Á sama tíma í fyrra viidu atvinnurekendur fækka um 95 manns á höfuðborgarsvæöinu en fjölga um 55 manns á lands- byggðinni. -grh Sagt var... Ritstjóri og réttarmorb „Alþýöublabiö hefur alltaf veriö undir stjórn siöaöra manna. Ég tel Hrafn Jökulsson enn í þeirra hópi, þrátt fyrir réttarmorö hans á æru Gubna Ág- ústssonar. Honum geta orðið á mis- tök eins og öbrum sem ekki þola að búa viö þab mikla álag. Álagib er óvenju mikib núna. Fjárhagsleg framtíb Alþýöublabsins er í molum, eftir aö Ámundi Ámundason auglýs- ingastjóri kvaddi meb hurbarskell- . 44 um. Skrifar Sigurbur Tómas Björgvinsson í Alþýbubiabib vegna „fréttaskýringar" ritstjórans um Sigurb í libinni viku. Reibi almennings rábi „Þetta hlýtur ab byggjast á mjög huglægu mati, einhvers konar mæli- stiku á reibi almennings." Lára V. Júlíusdóttir um forsendur fyrir uppsögn kjarasamninga. Mogginn. Fjósamennska þjóbarsálarinnar „Þab er hins vegar dæmi um fjósa- mennsku þjóöarsálarinnar ab stýri- kerfi Windows'95 hafi ekki verið ís- lenskab...Þaö er fjósamennska þjób- arsálarinnar ab líta ekki þannig á að íslenskan sé alltaf í fyrsta sæti." Baldur Sigurbsson lektor um ástkæra, ylhýra í Mogganum. En hvernig er þab annars, er ekki búib ab þýba Windows '95? Rekstur Háskólans abdáuna- verbur og skammarlegur í senn „í rauninni er þab í senn abdáunar- vert og skammarlegt hvað þessi litli skóli er rekinn meb litlum tilkostnabi, hlutfallslega langt langt fyrir neban þau mörk sem þekkjast í þeim lönd- um sem okkur standa næst." V Skrifar Ástrábur Eysteinsson prófessor í Moggann um þröngan stakk HÍ. Nei, ekki í eyrab „Emma Thompson er búin að finna sér nýjan kærasta. Hún hringir í hann á hverjum einasta degi og hvíslar ást- aroröum í eyra hans." Tíminn hafnar þessu alfarib í Svibljósi DV, ab Emma geti hvíslab í eyra kærast- ans í gegnum símann. Hún getur hvísl- ab í símtólib en eyra kærastans hlýtur ab vera fjarri seilingar. Borgarastyrjöldin virðist enn í full- um gangi á Alþýbublaðinu og í gær skrifar Sigurbur Tómas Björg- vinsson langa grein sér til varnar þar sem hann spyr hvort Alþýöu- flokkurinn sé leynifélag? Á einum stað víkur Sigurbur ab samskiptum Alþýbublabsins og Gubna Ágústs- sonar alþingismanns og telur ab þar hafi Hrafn Jökulsson og blaðið beitt sómu lúalegu vinnubrögbun- um og hann hafi sjálfur verib beitt- ur. Þrátt fyrir þab segir Sigurbur að Alþýðublabið hafi jafnan verib und- ir stjórn siðabra manna og „ég tel Hrafn Jökulsson enn f þeirra hópi, þrátt fyrir réttarmorb hans á æru Gubna Ágústssonar." Nú mun væntanlega á þab reyna hversu sibabur Hrafn er því „réttamorb ærunnar" mun nú vera rétt ab segja komib til sibanefndar B.í. • í pottinum hefur frést af mis- heppnubu reykingabanni sem taka átti gildi á Stöb 2 í nóvember. Banninu hefur hins vegar verib frestab vegna andstöbu starfs- manna. Það vakti athygli ab þab voru abeins 48% sem reyktu en í könnun á vinnustabnum voru 80% starfsmanna á móti banni. Boðib var upp á námskeið á vegum Krabbameinsfélagsins fyrir starfs- menn en aflýsa þurfti því vegna þess ab enginn skrábi sig á það. Augljóslega eru þeir reykingasinn- aðir á Stöbinni, en heyrst hefur ab ef vinnustaburinn hefbi orbib reyk- laus hefbi fyrirtækib getab sparab milljón í tryggingariðgjöldum á ári.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.