Tíminn - 18.10.1995, Blaðsíða 7
Mi&vikudagur 18. október 1995
nSíftllíftl&íK&t&t
wFWfFfffr
7
Útgjöld bæjar-
ins ekki nmfram
75% af tekjum
I þriggja ára áætlun um
rekstur, fjármál og fram-
kvæmdir Akureyrarbæjar,
sem samþykkt var á bæjar-
stjórnarfundi á þribjudag, er
lagt til aö útgjöld verbi ekki
hærri en 75% af tekjum
næstu þrjú árin. Gert er ráb
fyrir ab skuldir bæjarins
aukist ekki, en langtíma-
skuldir Iækki nokkub. Eign-
færb fjárfesting er áætlub
um 980 milljónir á næstu
þremur árum, en gjaldfærb
fjárfesting 468 milljónir. Þá
er áætlab ab fara yfir öll
rekstrargjöld, endurskoba
nefndakerfi og skipuleggja
Tveir íslending-
ar hljóta Genfar-
Evrópustarfs-
launin
Tveir íslendingar, Dagur Kári
Pétursson og Oddný Sen, voru
í hópi fimm höfunda er hlutu
starfslaun fyrir handritsdrög í
handritakeppni sjónvarps-
stöbva sem kennd er vib Genf.
Dagur hlaut starfslaun fyrir
„Hernabaráætlun Silju Woo"
og Oddný Sen fyrir „Kín-
verska skugga".
Keppnin er í tveimur hlutum
og er í þeim fyrri keppt um
fimm starfslaun til handrits-
gerðar ab upphæð 840.000 ísl.
króna. í síðari hluta er valið
milli þeirra fimm fullbúnu
handrita sem þá liggja fyrir. Til-
gangur keppninnar er ab hvetja
nýja höfunda til að skrifa fyrir
sjónvarp. íslendingar hafa áður
gert það gott í þessari keppni.
Þannig hlutu Vilborg Einars-
dóttir og Kristján Friðriksson
starfslaun og sérstaka viður-
kenningu fyrir „Steinbarn" árið
1987. Kristlaug María Sigurðar-
dóttir hlaut starfslaun 1991 fyr-
ir „Fríöu frænku" og Fribrik Er-
lingsson hlaut starfslaun og sér-
staka viöurkenningu 1993 fyrir
„Hreinan svein". -BÞ
innkaup meb tilliti til hag-
kvæmni og er fyrirhugab ab
bjóba út einstaka þætti í
rekstri bæjarfús hvab inn-
kaup varbar.
Heildartekjur bæjarsjóbs Ak-
ureyrar eru á þessu ári áætlab-
ar um 1500 milljónir króna og
gert er ráb fyrir ab þær hækki í
um 1575 milljónir á næsta ári,
um 1580 milljónir á árinu
1997 og verbi um 1590 millj-
ónir á lokaári þriggja ára áætl-
unarinnar 1998. Kostnabur
við rekstur hinna ýmsu mála-
flokka er áætlaður um 1155
milljónir á þessu ári, en gert er
ráð fyrir ab hann verði um
1140 milljónir á ári næstu þrjú
árin. Á þessu ári er áætlað ab
verja um 350 milljónum
króna til framkvæmda á veg-
um bæjarins, en 330 milljón-
um á næsta ári. Stærsta fram-
kvæmdin á vegum Akureyrar-
bæjar á næstu þremur árum er
við Sundlaug Akureyrar, en
alls er áætlað að verja 137
milljónum króna til ab ljúka
þeim vibbyggingum og endur-
bótum á sundlauginni sem
hafnar eru. Af öbrum fram-
kvæmdum má nefna grunn-
skólana og þá aðallega skólana
í Glerárhverfi, en til þeirra á að
verja alls 171 milljónum á
þriggja ára tímabilinu. ÞI.
Vinningshafar Bónusferöa ATLAS-klúbbsins. Meö vinningshöfum á myndinni eru Arna Ormsdóttir fulltrúi Flug-
leiöa, Grétar Haraldsson, Bergsveinn Sampsted, Siguröur Jónsson og Helga Sigurgeirsdóttir fyrir hönd Eurocard á
íslandi. Bónusferöir eru aöeins hluti þeirra fríöinda sem fylgja aöild aö ATLAS-klúbbnum.
Atlas-klúbburinn dregur
út bónusferöir haustsins
Mánudaginn 2. október voru
dregnar út haustbónusferðir
ATLAS-klúbbs Eurocard. Fé-
lagar í ATLAS-klúbbnum eru
allir handhafar Atlas- og Gull-
korta Eurocard á íslandi. Þetta
er í níunda sinn sem Bónus-
vinningar ATLAS-klúbbsins
eru dregnir út, og nú var dreg-
ið um sjö borgarferðir fyrir
tvo á vegum Flugleiöa hf.
Meðfylgjandi mynd er tekin
þegar ánægðum klúbbfélögum
var afhentur þessi óvænti
glaðningur. Ab þessu sinni féllu
vinningar þannig:
Jón Abalsteinn Jónasson:
Ferb til Kaupmannahafnar.
Einar Guðmundsson: Ferb til
Amsterdam.
Kristín H. Gísladóttir: Ferö til
Hamborgar.
Jóhannes Viggósson: Ferð til
Glasgow.
Sean Bradley: Ferð til Lond-
on.
Finnur Sigurbsson: Ferð til
Lúxemborgar.
Sigurjón Pálsson: Ferð til
Baltimore.
Allir vinningar gilda fyrir tvo
og eru þetta þriggja nátta ferbir.
Lág laun eru meginorsök atvinnuleysis, segir í stjórnmálaályktun Landsfundar Alþýöubandalagsins:
Styður uppsögn kjarasamninga
„Mesta böl íslensks þjóbfélags
eru þau Iágu laun sem launa-
fólki eru skömmtub. Verka-
fólk í fullri vinnu á ekki
möguleika ab ná endum sam-
an. Færa má rök fyrir því ab
hin lágu laun séu ein aðal-
ástæða atvinnuleysisins. í
ljósi þessa og ákvæða í samn-
ingum um uppsagnir, mun
Alþýbubandalagib stybja þau
verkalýðsfélög og sambönd,
sem segja samningnum upp,
gegn árásum atvinnurekenda
og ríkisvalds."
Svo segir m.a. í stjórnmála-
ályktun Landsfundar Alþýöu-
bandalagsins. Fundurinn hvet-
ur vinstra fólk og samtök launa-
fólks til ab taka höndum saman
og koma með öllum tiltækum
ráðum í veg fyrir þær árásir sem
felast í fjármálafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar „og miða fyrst og
fremst aö því að brjóta niður
velferðarkerfið sem launafólk
hefur byggt upp á undangengn-
um áratugum", segir í ályktun-
inni.
Málefni atvinnulausra eru
Utflutningur á rauöamöl úr Seyöishólum til Svíþjóöar:
harðlega gagnrýnd, atvinnu-
lausir hafi að jafnaði verstu lífs-
kjörin, „þeir mæta fordómum
og niðurlægingu af hálfu samfé-
lagsins og eru undanskildir
flestum þeim réttindum sem
ætluð eru vinnandi fólki". Sem
dæmi um breytingar vill Al-
þýöubandalagið að atvinnuleys-
isbætur falli ekki niður að ári
liðnu, atvinnulausum verði
tryggðar óskertar bætur í veik-
indatilfellum og tryggt sumar-
leyfi eins og öðrum landsmönn-
um.
Niðurskurður í heilbrigðis-
kerfinu er jafnframt gagnrýndur
og misrétti sagt hafa aukist í ís-
lensku samfélagi.
Um utanríkismál ályktaði
fundurinn m.a. að fagna bæri
viðleitni til afvopnunar í heim-
inum og er hvatt til þess að á
næsta ári verbi lokiö við gerð
samnings sem banni allar til-
raunir með kjarnorkuvopn.
Grundvallarafstaða Alþýðu-
bandalagsins til friðarmála sé ab
fribur, öryggi og sjálfstæði ís-
lensku þjóbarinnar veröi best
tryggt með því að Bandaríkjaher
hverfi á brott, engar erlendar
herstöðvar verði leyfðar í land-
inu og íslendingar segi sig úr
NATO.
-BÞ
Milljón rúmmetra
af raubamöl á ári
Búiö er ab gera samning milli
Grímsneshrepps og Selfossbæj-
ar vib Léttstein hf. um útflutn-
ing á rauðamöl úr Seybishólum
í Grímsnesi. Áætlað er að mölin
veröi ab mestu flutt út til Sví-
þjóbar.
Að sögn Böðvars Pálssonar,
oddvita Grímsneshrepps, tekur
samningurinn þó ekki gildi fyrr
en umhverfismat frá umhverfis-
ráöuneytinu liggur fyrir. „Samn-
ingurinn er einn hluti af þeim
gögnum sem þurfa að berast um-
hverfisráðuneytinu vegna þessa
umhverfismats." Böðvar á von á
að umhverfismatið muni ekki
koma í veg fyrir malarnámiö í
Seyöishólum. „Þarna eru tvær
námur opnar og við megum taka
150.000 rúmmetra úr hvorri
námu á ári. En við erum að tala
um að taka milljón rúmmetra á
ári, sem er auðvitað miklu stærri
skammtur. Núna erum viö að
taka þetta 10.000 rúmmetra á ári í
vegi bara héma viö sumarbú-
staöi."
Tilraun var gerð til að nota
mölina í milli- og útveggjaplötur,
sem heppnaðist ekki, en Böðvar
telur að steypa með raubamöl geti
lukkast betur þar sem ekki sé
hætta á frostskemmdum. Því sé
hugsanlegt ab verksmibja til að
framleiða veggplötur veröi stofn-
uð í kjölfar samningsins.
Óskaö var eftir umhverfismati
síöastliðið haust, en Böðvar telur
aö máliö hafi tekiö eölilegan
tíma. Búiö sé aö leggja mikla
vinnu í undirbúning og hávaða-
mat, en öll nauösynleg gögn til
vinnslu umhverfismats munu
berast umhverfisráöuneytinu í
þessari viku og vonast Böðvar til
að umhverfismatiö liggi fyrir eftir
u.þ.b. mánub. LÓA
Landsþing Landssamtaka Þroskahjálpar:
Mótmæla niöurskurði
Hörb mótmæli koma fram í
ályktun sem Landssamtök
Þroskahjálpar samþykktu á
landsþinginu fyrir
skömmu. Mótmælt er að
133 milljónir af eyrna-
merktum tekjustofni fram-
kvæmdasjóbs fatlabra renni
í ríkissjób. Einnig er því
mótmælt ab upphæb bóta
almannatrygginga skuli nú
vera háb gebþóttaákvörb-
unum Alþingis, en ekki
tengd verblagi eba kaup-
gjaldi í landinu.
í fréttatilkynningu frá
landsþinginu er lokun vist-
heimilisins Sólborgar á Akur-
eyri fagnab og einnig að út-
skriftir af Kópavogshæli væru
hafnar.
Landsþingib samþykkti að
beina þeim tilmælum til
þeirra abila, sem reka stofn-
anir fyrir fatlaba, ab sjá til
þess ab þeir sem þar dvelji séu
slysatryggðir.
Ab síðustu var harmaö að
ekki var tekib tillit til óska
samtaka fatlaðra um að
tryggt væri í mannréttinda-
kafla stjórnarskrár íslands að
ekki mætti mismuna fólki
með fötlun á neinn hátt. Ástu
B. Þorsteinsdóttur var þakkaö
fyrir frábær störf í átta ára for-
mennskutíð sinni og var
Guömundur Ragnarsson kos-
inn nýr formaöur samtak-
anna. ■