Tíminn - 04.04.1996, Side 13
Fimmtudagur 4. apríl 1996
13
¥
john Travolta sem orrustuflugmaburinn Vic Deakins sem stelur kjarn-
orkusprengju í Broken Arrow.
10. Eyes of an Angel (1991)
11. Shout (1991)
12. Look Who's Talking Too
(1990)
13. Experts, The (1989)
14. Look Who's Talking (1989)
15. Perfect (1985)
16. Staying Alive (1983)
17. Two ofa Kind (1983)
18. Blow Out (1981)
19. Urban Cowbcy (1980)
20. Grease (1978)
21. Moment by Moment (1978)
22. Saturday Night Fever (1977)
23. Carrie (1976)
24. Devil's Rain, The (1975) ■
Ab hætti
Bretanna
Vonir og væntingar
(Sense and Sensibility)***l/2
Handrit: Emma Thompson. Byggt á
samnefndri skáldsögu |ane Austen
Leikstjóri: Ang Lee
A&alhlutverk: Emma Thompson, Kate
Winslet, Hugh Crant, Alan Rickman og
Greg Wise
Stjörnubíó
Öllum leyfb
Breska leikkonan Emma
Thompson hlaut á dögunum
Óskarsverðlaun fyrir besta hand-
ritiö sem byggt er á áðurútgefnu
efni fyrir Vonir og væntingar.
Það verður að teljast veröskuldað
því hún nær að gera sígildri
skáldsögu Jane Austen hátt undir
höfði og jafnframt að draga fram
það besta úr henni þannig að frá-
sögnin samræmist frásagnarmáta
kvikmynda. Útkoman er vönd-
uð, vel leikin og umfram allt
skemmtileg mynd að hætti Bret-
anna.
Sagan gerist í Englandi á 19.
öld og segir af ástarmálum
tveggja systra, Elinor og Mari-
anne Dashwood, leiknum af
Emmu Thompson og Kate Wins-
let, sem yeröa ærið flókin. Ástæð-
an er ekki að þær geti ekki gert
upp á milli karlmanna heldur
ýmsar flækjur sem skapast aðal-
lega vegna vandræðagangs karl-
anna og stífra leikreglna í þessum
málum. Elinor, sú eldri, lætur-til-
finningar sínar sjaldan í ljós en
Marianne er hins vegar alltaf á
útopnu og um leið auðsærð. Ást-
arsorgin veröur þó hlutskipti
þeirra beggja og það er allt annað
en auðvelt fyrir þær að láta mál-
in þróast sér í hag.
Efnistök og umgjörð Vona og
væntinga minna oft á verk sam-
starfsmannanna Ismail Mer-
chant, James Ivory og Ruth Pra-
wer Jhabvala sem einnig hafa
gert sígildum bókmenntum Breta
skil á hvíta tjaldinu, m.a. Ho-
ward's End og Room with a
View, sem byggja á bókum E.M.
Forsters. Handrit Emmu Thomp-
son hefur það þó fram yfir um-
rædd verk að hún er óhrædd vib
að leyfa vænum skammti af gríni
að fljóta með. Öll verkin eiga það
sammerkt ab vera öðrum þræði
ádeila á siði, viðmið og hræsni
Viktoríutímans í Englandi. Þab er
fátt betra en dálítið af háði og
spaugi til að koma ádeilu til skila
og þetta gerir frásögnina líflegri
án þess að skuggi falli á alvarlegri
hliöar sögunnar.
Þaö er alveg ljóst aö myndin
væri hvorki fugl né fiskur ef leik-
ararnir næðu sér ekki á strik. Eins
og vib var ab búast er Emma
Thompson mjög góð í hlutverki
Elinor og ekki er hin unga Kate
Winslet síðri sem Marianne.
Hugh Grant leikur ástina í lífi Eli-
nors, klaufskan í tali og háttum,
hlutverk sem hann hefur oft leik-
ið áður og fer léttilega með. Að
lokum er rétt að minnast á Alan
Rickman>einn af vanmetnari
leikurum Breta, en hann stendur
sig með mikilli prýði að venju.
Vonir og væntingar er fyrst og
fremst stórsigur fyrir Emmu
Thompson en þáttur leikstjórans,
Ang Lee, er einnig stór. Vonandi
verður framhald á samstarfi
þeirra því byrjunin gerir meira en
að lofa góðu. ■
Þegar íslenski osturinn er kominn á ostabakkann,
þegar hann kórónar veislumatinn - bræddur eða
djúpsteiktur - eða er einfaldlega settur beint í munninn
m0
BÓNDABRIE :
Með kexinu, brauðinu "V'
og ávöxtunum. Mjög góður
djúp- eða smjörsteiktur.
... .DALABRIE
Á ostabakkann og með kexi
og ávöxtum.
DALA BRIE 30 g
Góður að grípa til!
HVITLAUKS-
OSTUR
Við öll tækifæri
og frábær
í sósur.
GRÁÐAOSTUR
Tilvalinn til matargerðar
- í súpur, sósur eða til
fyllingar í kjöt- og fiskrétti.
Góður einn og sér!
CAMEMBERT
Einn og sér, á ostabakkann
og í matargerð.
LÚXUSYRJA'Wi
Mest notuð eins og hún
kemur fyrir en er einkar góð
sem fylling í kjöt- og fiskrétti,
Bragðast mjög vel djúpsteikt.
(mjónMostiii*
DJUPSTEIKTUR
CAMEMBERT
Sem smáréttur eða
eftirréttur.
RJÓMAOSTUR
: Á kexið, brauðið, í s<
og ídýfur.
OSTAKAKA
Sem ábætisréttur,
með kaffinu og
á veisluborðið.
PEPPERONEOSTUR
Góður f ferðalagið. HVÍTUR KASTALI
Með ferskum ávöxtum
v, eða einn og sér.
SmjöbS^'