Tíminn - 04.04.1996, Qupperneq 19
Fimmtudagur 4. apríl 1996
Mmúnm
19
Framsóknarflokkurinn
Kópavogur
Bæjarmálafundur verbur haldinn ab Digranesvegi 12, þribjudaginn 9. apríl kl, 20.30. A
dagskrá verba umhverfismál. Framsóknarfélögin í Kópavogi
Atvinnumálanefnd Reykjavíkur
Þróun atvinnulífs í
Reykjavík
— Styrkveitingar —
Atvinnumálanefnd Reykjavíkurborgar veitir á hverju
ári styrki til þróunar atvinnulífs í Reykjavík. Hér með er
auglýst eftir umsóknum um slíka styrki, en að þessu
sinni eru til ráðstöfunar 5 milljónir króna sem verða
veittar til uppbyggingar í atvinnulífi Reykjavíkurborg-
ar.
Styrkurinn er ætlaöur einstaklingum, sem eru að und-
irbúa sig fyrir að hefja eigin rekstur, og litlum fyrirtækj-
um, sem eru að efla þann rekstur sem fyrir er. Verkefn-
in verða að stuðla að nýsköpun, þróun, hagræðingu,
markaðssetningu eða uppbyggingu í atvinnulífi
Reykjavíkurborgar.
Styrkir til einstakra verkefna geta numið allt að 50% af
áætluðum kostnaði við framkvæmd hvers verkefnis.
Hámarks styrkupphæð er kr. 500 þúsund og greiðist
styrkurinn út í samræmi við framgang verkefnis. At-
vinnu- og ferðamálastofa Reykjavíkur hefur eftirlit með
framvindu verkefnis og útborgun styrksins.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Atvinnu- og
ferðamálastofu Reykjavíkurborgar, Abalstræti 6,
sími 563 2250.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 1996.
Varnarli&iö —
Laust starf
Varnarli5i6 á Keflavíkurflugvelli óskar aö
ráöa sálfrœbing/félagsrábgjafa til starfa
hjá Félagsmálastofnun Flotastöövar
Varnárliösins.
Starfib felur f sér ráðgjöf/meöferð við einstaklinga og
fjölskyldur ásamt námskeibahaldi.
Kröfur til menntunar og starfsreynslu eru þær að um-
sækjendur uppfylli réttindakröfur bandarísku félagsráb-
gjafa- eða sálfræðingasamtakanna.
Krafist er mjög góðrar enskukunnáttu ásamt góbri fram-
komu og lipurö í samskiptum.
Umsóknum sé skilað á ensku.
Upplýsingar um námsferil og fyrri störf þurfa að fylgja
umsóknum ásamt réttindaskírteinum.
Umsóknir berist til Varnarmálaskrifstofu, ráðningar-
deildar, Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, sími 421-1973, eigi
síbar en 1 7. apríl 1996.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar fyrir umsækj-
endur og er þeim bent á að lesa hana áður en sótt er um.
Umsóknareyöublöb fást á sama stab.
Aðsendar greinar
sem birtast eiga í blaðinu þurfa aö vera tölvusettar og
vistaðar á diskling sem texti, hvort sem er í DOS eöa
Macintosh umhverfi. Vélrit-
aöar eöa skrifaöar greinar
geta þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
WM
Upphaf
flestra
ökuferða
er ámóta -
en endalok því miður
ólík.
Sýnum aðgát! ||$J£ERÐAR
The Mint var enduropnab af Demi og Bruce á síbasta ári. Námuverkamennirnir sem sóttu stabinn á sínum
tíma þyrbu líklega ekki ab sýna á sér smettib þar nú enda búib ab innrétta þetta vínveitingahús eftir smekk
Bruce sem er líklega ekki mjög almúgalegur.
Y firtaka bæinn
Bæjarbúar þamba kampavín og borba Hersheys súkkulabi sem var frítt
í tilefni kvöldsins.
I
TÍIVIANS
í bænum Hailey í Idaho er eitt
dagblað og ein bókabúð. Það
sem Hailey hefur þó fram yfir
margan annan smábæinn er að
þar búa tvær moldríkar stjörn-
ur sem með fjáraustri og fram-
kvæmdagleði þykja lífga veru-
lega upp á bæjarbraginn.
Það eru þau Bruce Willis og
Demi Moore sem hafa búið sér
heimili í þessum smábæ en þar
búa um 5000 manns. í desem-
ber síöastliönum var þó
óvenjuleg Hollívúddstemning
yfir bæjarbúum þegar nýir
hluthafar að Art-Deco Liberty
bíóinu ætluðu að opna það á
ný eftir breytingar. Hluthafarn-
ir voru aö sjálfsögðu fjármála-
risarnir í bænum þau Bruce og
Deini. Opnunarkvöldið
heppnaöist vel og var þar
frumsýnd kvikmyndin 12
Monkeys meö kampavíni og
látum fyrir bæjarbúa.
Sýningartæki bíósins sem
var opnað árið 1938 voru orðin
ansi bágborin og áttu þaö til aö
bila allt að fjórum sinnum á
sömu sýningunni. Framtíð
bíósins var því allt annað en
glæst eftir að fullkomið kvik-
myndahús opnabi fyrir nokkr-
um árum í þorpi í grenndinni.
Með ríflega 150.000 dollara
fjárfestingu Bruce í nýjum og
fullkomnum tækjum eru hins
vegar litlar líkur á að íbúar Ha-
iley skreppi út úr bænum þegar
ákveðið er að skella sér í bíó. Á
sama tíma var húsið gert upp í
sinni gömlu mynd og er nú
glæsilegur minnisvarði fornrar
frægðar og nýjar.
En þar meö létu þau hjón
ekki staöar numið. Bæði bera
þau mikla umhyggju fyrir aðal-
götum smábæja og þykja slíkar
götur nauösynlegar til ab halda
smábæjarstemningu eins og
hún gerist best í minningum
og bíómyndum. Því hafa þau
variö um 8 milljónum dollara
til að gera upp hús og bygging-
ar við aðalgötu Hailey síöan
opnunarkvöldi Liberty- biosins.
Hér er einkasalur Bruce á The
Mine.
þau fluttu þangað fyrir um ára-
tug.
Enn hafa þau ekki fengið
nóg og framundan er að setja
upp dúkkusafn fyrir dúkkurnar
sem Demi hefur sankaö að sér í
gegnum árin og byggja 65 her-
bergja hótel.
Enn eiga þau hús á Malibu
og íbúö á Manhattan en líður
best á heimili sínu rétt utan við
Hailey.
„Fólk lætur okkur í friði hér,"
segir Bruce. „Við getum verið
eins og venjulegt fólk, tekiö
þátt í skólastarfinu, ég borga
skatta hér. Hér á ég heima."
Óljóst er hví Bruce tiltekur ab
hann borgi skatta í bænum þar
sem eiginkonan er síst lægra
launuð enda tekjuhæsta leik-
kona í Hollívúdd. En líklega er
hann bara húsbóndinn á
heimilinu. ■