Tíminn - 06.07.1996, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. júlí 1996
EYJAFJÖRÐUR
3
Séö yfir salinn í íþróttahúsi Dalvíkur. Sviöib minnir á síldarbáta fyrri tíma
streyma tii hafnar.
Sjávarhættir fyrr og nú
Miklar framkvæmdir
viö Akureyrarflugvöll
Máiin rœdd í nýju farþegaafgreiöslunni. Bergþór Erlingsson umdœmis-
stjóri lengst til vinstri.
Sjávarhættir fyrr og nú nefnist
merkileg sýning sem nú stend-
ur yfir í íþróttahúsinu á Dalvík.
Meginefni sýningarinnar eru
50 skipslíkön, sem öll utan eitt
eru unnin af Grími Karlssyni
skipstjóra í Njarðvík. Líkönin
eru flest af fiskiskipum sem
smíöub voru á fyrri hluta ald-
arinnar og um miðbik hennar.
Einnig eru á sýningunni ýmsir
gripir og tæki, sem tengjast
sjávarútvegi og sjósókn meb
ýmsum hætti, og má þar meðal
annars sjá hvalskutla og tog-
víraklippur.
Skipslíkönin eru haganlega
gerð og því góð heimild um
þann flota skipa og báta, sem
menn notuðu til þess að draga
sjávarafla að landi á undanförn-
um áratugum. Á sýningunni má
sjá ákveðna þróun í gerb skipa og
þó einkum hvernig þau stækk-
uðu frá einum tíma til annars.
Grímur hefur þó að miklu leyti
haldib sig við smíði líkana af
fiskibátum, en einnig gefur ab
líta stærri skip. Mörg skipslíkan-
anna tengjast útvegssögu Eyja-
fjarðar meb ýmsu móti og má
meðal annars nefna líkan af
gamla Drang, sem lengstaf var
póstskip, og aflaskipunum Snæ-
fell og Súlan.
Á sýningunni er einnig mikið
af myndum, bæði skipamyndum
og einnig myndum af sjósókn. Þá
er þar að finna ýmsa merkilega
muni, sem ekki hafa áður komið
fyrir almenningssjónir, og má
þar meðal annars nefna togvíra-
klippur, sem norskt varðskip not-
aði til þess að klippa trollib aftan
úr togaranum Breka 19. júní
1994. Þá er einnig til sýnis hval-
skutull með sprengju, auk ýmissa
smærri hluta til hval-, hákarla-
og hrefnuveiða.
Sýningin í íþróttahúsinu á Dal-
vík verður opin fram til 8. ágúst
n.k. -ÞI
Engu líkara er en að vera kominn
til útlanda, þegar bebib er eftir
flugi á Akureyrarflugvelli. Svo
mikil er breytingin meb tilkomu
nýju flugstöbvarinnar, sem var
tekin í notkun 11. maí síbastlib-
inn. Flugstöðin er í raun viðbót
við eldra húsnæbi, en meb til-
komu þessarar 410 fermetra vib-
byggingar hefur öll aðstaða feng-
ib á sig yfirbragö þess sem gerist
hjá fjölmennari þjóðum, þar sem
ætla mætti ab umferb farþega
væri mun meiri en er til og frá
Akureyri.
Miðab við íbúafjölda á Eyjafjarð-
arsvæðinu verður umferð um Akur-
eyrarflugvöll að teljast veruleg. Alls
fóru um 137 þúsund farþegar um
völlinn á árinu 1995 og stefnir í að
þeir verði nokkru fleiri á þessu ári.
Daglega hafa á annan tug áætlun-
arvéla viðkomu á vellinum, auk
leiguflugs og ferða einka- og
kennsluflugvéla. Flugleiðir fljúga
fimm til sjö feröir í viku til Akur-
eyrar í sumar og fyrirhugað er ab
fara fjórar til fimm ferðir daglega
næsta vetur. Flugfélag Norðurlands
flýgur áætlunarflug til ýmissa staba
á Norðurlandi, auk Keflavíkur yfir
sumartímann, og skapar áætlunar-
starfsemi þess einnig fjölda lend-
inga.
Bergþór Erlingsson, umdæmis-
stjóri Flugleiða á Akureyri, segir að
tilkoma nýju flugstöðvarbyggingar-
innar breyti allri abstöðu til af-
greiðslu farþega og einnig aðstöðu
starfsfólks, sem hafi verið bágborin
í eldri byggingunni. Nú gefist tæki-
færi til þess að aðskilja komu- og
brottfararfarþega og er þessa dag-
ana unnið ab því að breyta norður-
hluta gömlu flugstöðvarinnar í
komusal þar sem farþegar biða eftir
farangri sínum. Bergþór sagði það
vera til mikilla bóta, þótt einhverjir
kynnu að sakna þess að hitta ekki
vini og kunningja, sem leið ættu
um völlinn á sama tíma. Samgang-
ur yrði þó á milli salanna, þannig
að menn ættu að geta hist og átt
stefnumót þótt þeir væm að halda
hvorir til sinnar áttar. Bergþór
sagði einnig að þessi nýja aðstaða
auðveldi afgreiðslu farþega, sem
ferbast með beinu flugi frá Akur-
eyri til útlanda, en sökum þrengsla
í gömlu flu^stöðinni hafi verið
ákaflega erfitt að annast afgreiðslu
og tollskoðun vegna millilanda-
flugs.
Auk hinnar nýju flugstöðvar er
verib ab leggja nýtt bundið slitlag á
Akureyrarflugvöll, en opinberum
fjármunum var varið til þess verks í
flugmálaáætlun yfirstandandi árs.
Þá er einnig fyrirhugað að ráðast í
miklar endurbætur á abkomu að
flugvellinum og er það verk í
höndum Akureyrarbæjar. Ætlunin
er að skipuleggja og malbika á ann-
að hundrað bílastæði fyrir vestan
flugstöðvarbygginguna, auk að-
komu fyrir hópferða- og leigubíla.
Þá verður einnig unnib að gróbur-
verkefnum í sambandi við breyt-
ingu á abkomu að flugvellinum, en
hann stendur skammt frá óshólm-
um Eyjafjarðarár, sem era vinsælt
útivistarsvæði Akureyringa og
ferðamanna. -ÞI
Ferbamanna-
bœrínn
AKUREYRI
Akureyri er í þjóbbraut og þangab
kemur fjöldi ferbafólks á hverju sumri
Á Akureyri er ab finna margvíslega
möguleika til afþreyingar
^Fr§rr’IFWri|FTij
:r7ifTiirniriírTlirrii|
OÖKwHr
• Góð sundabstaba
• Golfvöllur
• Hótel og fjöldi gistiheimila
• Nútíma veitingastaðir og kaffihús
• Skemmtistabir vib allra hæfi
Menningarvibburbir á vegum Listasumars '96
flesta daga
Fjölskylduhátíb um verslunarmannahelgina
Frá Akureyri er skammt til margra markverbra
staba
Hópferbir í bobi
Upplýsingamibstöb ferbamála í mibbænum.
fAKUREYRAR-
BÆR