Réttur - 01.11.1968, Síða 31
NEISTAR
Erlendir auðmenn
..Þessar vífilengjur, um að sór-
leyfislög eigi ekki að samþykkja
nú, eru því til þess eins framþorn-
ar, að fossafélögin geti grætt sem
mest á þralli því, sem þau hafa
haft hér i frammi, með því að
senda hingað leynilega sendimenn
til þess að ginna þessa hluti út úr
fáfróðum mönnum fyrir smámuni.
Það er þvi til góðs þjónum þessara
félaga, sem eiga hér bæði heil
blöð og venzlamenn, og nú er að
sjá, að eigi suma þingmenn lika.
Þetta er það, sem orsakar allt
hatrið og allar skammirnar, sem
dynja á okkur, meirihluta fossa-
nefndar í blöðum þessara þjóna
erlendra auðkýfinga".
Bjarni frá Vogi 18. sept. 1919,
i ræðu á Alþingi um fossamálið.
Hjáleiga
,,Þau bönd, er tengja skuldug
lönd við fjármálamiðstöðvar heims
eru svipuð hinu eilífa ósjálfstæði
hjáleigubóndans gagnvart stórjarð-
eigendanum eða okraranum".
Harry Magdoff.
Hræsni
„Það er ekki um tvær þjóðir að
ræða. Óháð þjóð Suður-Vietnani
er hugarfóstur bandaríska utan-
\
'\
rikisráðuneytisins . . . Það var ekki
samið um neitt slikt í Genf og
Bedell Smith hershöfðingi gerði
engin skilyrði um slíkt . . . þegar
hann talaði fyrir hönd Banda-
rikjanna. Það átti að verða vopna-
hlé. Kommúnistar höfðu samþykkt
það. Það áttu að vera frjálsar
kosningar 1956. Þær kosningar
fóru ekki fram, af því Bandarikin
bönnuðu að þær yrðu haldnar.
Það er talið að við Bandaríkja-
menn séum fylgjandi frjálsum
kosningum. Við vorum ekki með
þeim þá. Af hverju? Lesið endur-
minningar Eisenhowers. Hann seg-
ir að Ho Chi Minh hefði unnið,
fengið 80 af hverjum hundrað at-
kvæðum. Það var þessvegna sem
við vorum móti kosningunum.
David Schoenbrun.
Verzlun
Verzlun, nafnorð. Framkvæmd
fólgin i þvi að A rænir frá B vör-
um, sem C á, og til þess að bæta
sér það upp stelur B úr vösum D
peningum, sem E á.
Ambrose Bierce, Orðabók kölska
„Þekktu óvini þina“
Johns-Manville, New York, seldi
vörur fyrir 480 miljónir dollara (42
miljarða isl. kr.) árið 1965, eignir
þess voru 409 miljónir dollara (36
miljarðar isl. kr), hreinn gróði 34
miljónir dollara (3 miljarðar ísl.
kr.), starfsmenn þess 20900.
Gróðahlutfall miðað við það fjár-
magn, sem fjárfest er (það er 324
miljónir dollara), er 10,5%. —
Johns-Manville er 139. í röðinni af
500 stærstu iðnaðarfyrirtækjum
Bandarikjanna.
Alusuisse (Swiss Aluminium),
höfuðaðsetur Sviss, seldi vörur
fyrir 275 miljónir dollara 1965 (24
miljarða isl. kr.), eignir þess voru
93 miljónir dollara (8184 miljónir
isl. kr.), hreinn gróði 6 miljónir
dollara (528 miljónir isl. kr.),
starfsmenn 20.200. Þessar tölur
eiga einungis við ,,móður"-fyrir-
tækið i Sviss. Alusuisse er 165.
I röðinni af 200 stærstu iðnfyrir-
tækjum heims utan Bandarikjanna.
Fortune, þekktasta fjármála-
tímarit Bandaríkjanna,
okt. 1966.
1956
,,i kerfi persónudýrkunarinnar
gat flokkurinn sem heild aðeins
starfað sjálfstætt, ef hann beygði
sig fyrir þeim æðsta. Ef einhver
reyndi að fara út fyrir þennan
ramma, þá vofði yfir honum bann-
færing félaga sinna. Ef heill flokk-
ur ætlaði að gera slíkt, þá var
hann bannfærður og útlægur
gerr af hinum kommúnistaflokkun-
um. Var hugsanlegt við slikar
kringumstæður að láta gagnkvæmt
samband flokkanna og alþýðulýð-
veldanna við Kommúnistaflokk
Sovétríkjanna og við Sovétríkin
vera í samræmi við hugsjónir jafn-
réttis? Það var auðvitað ekki
hægt".
Gomulka, 20. okt. 1956.
1966
„Kommúnistaflokkarnlr búa yfir
mikilli reynslu i byltingarsinnuðu
starfi og enginn getur betur en
þeir fundið réttar lausnir við öll-
um vandamálum, er upp koma.
Kommúnistaflokkur Sovétrikjanna
er á móti öllum tilhneigingum til
forráða (hegemoni) í kommúnista-
hreyfingunni, með raunverulega al-
þjóðlegu, jafnréttis-sambandi allra
flokka".
L. Brésnef, — á 23. flokksþingi
Kommúnistaflokks Sovétrikj-
anna, i marz 1966.
195