Réttur - 01.11.1968, Side 36
stæðar aðgerðir þeirra til öryggis og þróunar
hins sósíalistíska þjóðfélags.
Sérstaklega er það okkar álit að þær stað-
hæfingar séu algerlega andstæðar kenning-
um marxisma og lenínisma, er komið hafa
fram í sambandi við atburðina í Tékkósló-
vakíu, að það hvort virða beri sem höfuð-
Luigi Longo, formaður Kommún-
istaflokks Italíu.
stefnu sjálfstæði hvers flokks og fullveldi
hvers ríkis sé komið undir mati á alþjóða-
ástandinu og viðhorfi í viðkomandi landi, —
mati, sem maður veit ekkert um, hver og
með hvaða rétti einhver sé þar dómari og
gerðardómari . . . ."
„Það er sannfæring okkar, að sósíalistískt
lýðræði sé forsenda sósíalismans í hinum ein-
stöku löndum og í heiminum, þáttur í ein-
ingu hinnar alþjóðlegu verklýðshreyfingar.
Þjóðnýting aðalframleiðslutækjanna er
nauðsynleg forsenda fullrar þróunar þess
réttlætis og frelsis, sem sósíalismanum eru
eiginleg, — en eitt út af fyrir sig ekki nægi-
leg forsenda.
Sú kreppa, sem olli þeirri breytingu, er
varð í janúar í Tékkóslóvakíu, hefur sýnt,
hve miklum skaða ófullnægjandi þróun sósí-
alistísks lýðræðis getur valdið. Menn sáu,
að samþjöppun hins pólitíska valds og
embættismennskun (biirokratisering) þess,
skortur á pólitískum umræðum í flokknum
og meðal fjöldans, hafði hættuleg áhrif í
efnahagslífinu og olli því að flokkurinn og
fólkið fjarlægðist hvert annað. Þróun sósí-
alistísks lýðræðis er jx-ssvegna höfuðvopn til
að beita á réttan hátt við þær mótsetningar
og þá erfiðleika, sem fram koma við upp-
byggingu sósíalismans.
Umræðurnar um þessi vandamál verða að
halda áfram í flokknum og alþjóðahreyfingu
kommúnista, til þess að yfirvinna allar hug-
myndir um að gervallur kraftur hins póli-
tíska valds verkalýðsins liggi í þvingunarkerfi
ríkisvaldsins, en slíkar hugmyndir vanmeta
hæfileika og hlutverk flokksins, til þess að
byggja forystu verkalýðsins í þjóðfélaginu*
fyrst og fremst á skapandi frumkvæði fjöld-
ans, á yfirburðum sósíalistískra lausna, á
pólitískri og hugsjónalegri baráttu."
* Erlenda orðið „hegemonie<‘ er hér þýtt með „forusta
í þjóðfélaginu", gæti líka verið „leiðsögn's en einmitt
aðalforystumaður ítalska kommúnistaflokksins í upp-
hafi, A. Gramsci, gerir í sínum merkilegu marxistísku
kenningum forystu-hlutverkið 1 þjóðfélaginu að grund-
vallaratriði.
200