Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Síða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006 | 3
er án undantekninga á mikilvægi góðrar
grunnvinnu til góðra verka (sem er ágætis
ábending í þjóðfélagi eins og okkar, sem
metur framkvæmd oft að meiru en und-
irbúning og umhugsun) og honum verður
tíðrætt um breytt hlutverk arkitekta í heim-
inum í dag frá því sem var þegar stórar
byggingarframkvæmdir voru nær eingöngu
á vegum hins opinbera, sem tryggði þá
ákveðin gæði og viðmið, en á þessi árin und-
ir högg að sækja vegna aðkomu stórra óop-
inberra byggingaraðila, og sem stjórnast þá
frekar af öðrum hagsmunum en almanna-
heill eða heildarmynd borgarinnar.
Bakgrunnur í blaðamennsku
Rem Koolhaas starfaði sem blaðamaður í
mörg ár áður en hann sneri sér að bygging-
arlist, og hann segir það lita aðkomu sína að
byggingarlist sem tungumáli eða samskipta-
miðli, frekar en ákveðnum stefnum í fag-
urfræði eða útliti. Hann einskorðar sig ekki
við að byggja, heldur skrifar hann bækur,
kennir við virta háskóla og heldur úti dótt-
urfyrirtækinu AMO í Bandaríkjunum, sem
speglar mynd OMA-teiknistofunnar hinum
megin hafsins í hugsun og tilurð bygginga
sem rýmis. Koolhaas er m.a. í forsvari fyrir
„Project on the City“, viðamikið rann-
sóknaverkefni með nemendum við Harvard-
háskóla sem lýtur að borgarskipulagi víðs-
vegar um heiminn, og bækur hans Delerius
New York (útg. 1978) og ekki síst doðrant-
urinn S, M, L, XL (útg. 1996 í slagtogi við
kanadíska hönnuðinn Bruce Mau) sem fást
við skynjun, stöðu og erindi byggingarlistar
í þjóðfélagi samtímans virðast höfða jafnt til
ungu sjónvarpskynslóðarinnar sem heim-
spekisinnaðra fræðimanna. Bækurnar eru,
eins og byggingar hans, við fyrstu sýn sjón-
rænt ögrandi og spennandi, en við nánari
lestur kemur í ljós vel úthugsuð uppsetning
og ferli um textann handan hins ytra forms
bókarinnar, rétt eins og innihaldsrík rými
handan veggja bygginganna, sem kemur á
óvart og firrist einfalda skilgreiningu verk-
anna.
Dálæti á óhefðbundnum lausnum
Á fyrirlestrinum í Hafnarhúsinu kom glögg-
lega í ljós hversu mikla ánægju Koolhaas
hefur af frumlegri nálgun viðfangsefna
sinna. Hann telur mjög mikilvægt að nálg-
ast hvert verk á ólíkum forsendum þeirra,
og það gildi jafnt um Vatnsmýrarverkefnið
sem önnur verkefni að vera alveg án for-
dóma þegar lagt er upp, til að loka ekki á
nein sjónarhorn og útiloka engar lausnir
fyrirfram, sama hversu undarlegar þær
virðast í fyrstu.
Verkin sem hann sýndi á fyrirlestrinum
sýndu þetta vel og voru afar ólík, allt frá
gráglettinni tillögu að nýjum fána fyrir Evr-
ópubandalagið til 56 hæða höfuðstöðva rík-
issjónvarpsins í Kína (2005) sem er formað
eins og undið O, almenningsbókasafns í
Seattle (2004) þar sem hæðirnar eru teygð-
ar til allra átta og almenningsrýmin spennt
þar á milli, og tónlistarhússins Casa da
Musica í Porto (2005) sem spratt reyndar
upp úr hugmyndavinnu fyrir þarfir nútíma-
fjölskyldu í einbýli. Þau einkennast öll af
eigin fagurfræði, óhefðbundnum lausnum og
tilraunum í ytra formi, en ólíkt því sem oft
tíðkast með sérkennilega formaðar bygg-
ingar er jafn mikil áhersla lögð á hið innra
rými, ferli um hverja hæð og á milli hæða
og ríkulegar upplifanir, sem fyrir mitt leyti
búa yfir grípandi fegurð á sinn eigin hátt –
sama hvað Koolhaas segir um að það sé
ekki aðalatriðið fyrir sér. Þessi nálgun
Koolhaas þykir vísa út úr þeirri stöðnun eða
úrræðaleysi sem byggingarlist á við að etja
í breyttri heimsmynd nútímans, enda hafa
honum að undanförnu hlotnast öll helstu al-
þjóðlegu verðlaun arkitekta, s.s. Pritzker
Prize (2000), Praemium Imperiale (2003) og
RIBA Royal Gold Medal (2004) fyrir ferska
og frumlega afstöðu sína sem hunsar fyr-
irfram gefnar lausnir og yfirborðskennda
stæla.
Dálæti Koolhaas á óhefðbundnum lausn-
um kristallast í einbýlishúsi fyrir fatlaðan
útgefanda og fjölskylduföður, Maison á
Bordeaux í Suður-Frakklandi (1998), þar
sem hluti af gólfinu í miðju hússins getur
hreyfst á milli hæða til að mæta þörfum
hans um hreyfanleika innan hússins, rétt
eins og lyfta, nema á hverri hæð verður
gólfhlutinn eðlilegur hluti af rými hverrar
hæðar, hvort heldur í (vín-)kjallaranum, á
jarðhæðinni eða ofar í húsinu, þar sem út-
sýnis nýtur yfir fallega náttúruna í kring,
og húsið tekur þannig sífelldum breytingum
í birtingarmynd sinni, allt eftir því hvar
miðjuhluti gólfsins er staðsettur hverju
sinni.
Á sama hátt er unnið með allsendis óhefð-
bundin rými í fyrirlestrabyggingunni
Educatorium við háskólann í Utrecht í Suð-
ur-Hollandi (1997), þar sem skáhallandi gólf
og óvenjuleg form veggja mynda lifandi um-
hverfi innandyra sem unun er að upplifa og
njóta, og þar sem snilldarlega er farið með
ódýr byggingarefni á fágaðan hátt. Á að-
komuhliðinni má sjá hvernig gólf hússins
lesa sig upp með hæðunum. Þau teikna nán-
ast form fyrirlestrasalanna innandyra og
renna í mjúkum boga sem verður að þaki
byggingarinnar, en gefur um leið sérstakt
rými að innan fyrir nemendur í hléi frá fyr-
irlestrum og á milli kennslustunda.
Í Rotterdam er öllu minni bygging lista-
skálans Kunsthal (1993), sem stendur á
mörkum gróins lystigarðs og hraðbrautar,
sem stendur á manngerðu síki nokkrum
metrum hærra en garðurinn. Þessir furðu-
legu staðhættir aftra þó ekki Koolhaas og
teiknistofu hans OMA frá að vinna verkið,
þannig að ferð í safnið getur hæglega tekið
marga tíma – jafnvel þótt sá tími fari ein-
göngu í að skynja og upplifa ferli hreyfing-
arinnar í gegnum bygginguna, sem skarast í
mörgum hlutum og á mörgum hæðum sem
fléttast saman, þannig að sífellt sér glitta í
rými á milli hæða, eins og úr kaffisölunni á
jarðhæðinni sem snýr stórum glugga að
garðinum en býður jafnframt upp á sjón-
vinkil í neðri helming bóksölunnar hálfri
hæð ofar. Skáhallandi súlur undirstrika
hreyfinguna og léttleikann sem er allsráð-
andi bæði í föstu efni og andrúmslofti stað-
arins.
Þarf yfirleitt nokkuð
að þétta byggð hér?
Aðspurður segist Rem Koolhaas ekki sann-
færður um að arkitektar séu aðalhöfundar
borga þegar upp er staðið. Með undantekn-
ingu nokkurra dæma í sögunni þar sem ein-
ræðisherrar eins og Napóleon reistu heil
hverfi eða jafnvel borgir út frá einni heild-
arsýn hafa borgir tekið á sig mynd út frá
efnahag og málamiðlunum, stórar áætlanir
hafa strandað á miðri leið og völd þeirra
sem með peningana fara, stjórnmálamanna
og framtakssamra verktaka, yfirleitt verið
sterkasta aflið í manngerðu umhverfi borga.
Ólíkt mörgum öðrum sem hafa þörf fyrir
að rétta hlutina af og halda skýrri yfirsýn
hefur Koolhaas miklu meiri áhuga á að ýta
undir fjölbreytileika og þá dýnamík eða
orku sem felst í ringulreið. Hann hefur
enga þörf fyrir að setja fastar leikreglur
eða predika „réttar“ skoðanir og er í raun
afar auðmjúkur þegar bornar eru undir
hann stórar spurningar. Af reynslu sinni við
rannsóknir á borgum víðsvegar um heiminn
segist hann undrast hæfileika fólks til að
koma sér fyrir, búa við og aðlagast ólíkustu
skilyrðum, og þegar það er borið undir
hann spyr hann glettnislega á móti hvort
hér þurfi yfirleitt nokkuð að þétta byggð?
Að öllu gamni slepptu virðist hann hlakka
til að kanna og kryfja möguleikana á þróun
þess dýrmæta svæðis sem Vatnsmýrin er.
Það er óneitanlega spennandi að horfa til
framtíðar af hugsjónum sem ná lengra en út
vikuna.
Höfundur er arkitekt.
Maison á Bordeaux Dálæti Koolhaas á óhefðbundnum lausnum kristallast í þessu einbýlishúsi. Undið O Höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í Kína (2005) sem eru formaðar eins og undið O.
BASIC REQUIREMENTS: Aged 18+ with
good English Language ability
APPLICATION AND INFORMATION
Email info@laban.org or
call +44 (0)20 8691 8600
CREEKSIDE
LONDON SE8 3DZ UK
WWW.LABAN.ORG
Programmes offered at Laban compliant with the national framework for higher education
qualifications are validated by City University, London. Laban is committed to equality of
opportunity. Laban is incorporated by Trinity Laban. Registered Charity 309998. Supported
by Arts Council England with National Lottery funds. Design Laban 2005 Photo Merlin
Hendy.
Launch yourself into the world of
professional dance, training in
Contemporary Dance with a
renowned teaching faculty, at
Laban’s unique award-winning
building in London, UK.
Offering undergraduate and
postgraduate programmes
WWW.LABAN.ORG
REYKJAVIK, ICELAND 11 -12 MARCH
CONTACT Thordis Schram
JSB Artschool of Dance
Lagmuli 9
105 Reykjavik
T 00 354 581 3730
E jsb@jsb.is
For more details on our overseas auditions visit www.laban.org
AUDITIONING FOR OUR 3 YEAR
BA (HONS) DANCE THEATRE
PROGRAMMME
Interested in discussing postgraduate
training opportunities at Laban?
Please contact the administrator at
your nearest venue, who can book you
onto an information session with our
programme leaders.