Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Blaðsíða 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006 Þ að hefur gustað um Stefán Mána síðustu miss- eri. Skáldsaga hans Túristi kom út síðastliðið haust og vakti blendin viðbrögð, sennilega var Gauti Kristmannsson gagnrýnandi Víð- sjár sá eini sem sá einhverja glóru í sögunni en aðrir voru á svipuðum nótum og Jón Yngvi Jóhannsson sem skrifar í nýjasta hefti Tíma- rits Máls og menningar að sagan sé full af fremur ógeðfelldum og lítilsigldum persónum og ádeila hennar sé máttlítil og sömuleiðis umfjöllun hennar um bókmenntalíf og rit- höfundaraunir. Eins og Jón Yngvi bendir á var Túristi margboðuð bók, flestir sem voru í einhverri snertingu við íslenskt bókmenntalíf á síðasta ári vissu að von væri á honum. Höfundurinn sendi uppköst að köflum til fólks úti í bæ til lestrar, meðal annars undirritaðs. Hann segist sjálfur hafa gert það vegna þess að hann hafi þurft að vera í einhverri samræðu við umhverfið um það sem hann var að gera. Í kaflanum sem ég fékk sendan mátti þekkja nafnkunnan ungan rithöfund sem lenti í vafasömum ævintýrum. Ég varð talsvert hugsi yfir þessu en sendi Stefáni Mána engar at- hugasemdir. Það var hins vegar alveg ljóst að ætlunarverk hans með Túrista var að draga íslenskt bókmenntasamfélag sundur og saman í háði. Ekki verður betur séð en að umræddur kafli hafi verið felldur brott að stórum hluta í endanlegri gerð Túrista. Þrátt fyrir það er bókin full af alls konar hroða, eins og Jón Yngvi lýsir, um rit- höfunda og annað fólk sem í mörgum tilfellum er auðvelt að þekkja úr íslenskum bókmenntaheimi. En hvert var ætl- unarverkið? Og hvernig kviknaði hugmyndin að bókinni? Núningur við útgefandann „Einhver hefur bent á að það væri búið að segja allt sem stendur í þessari bók áður,“ segir Stefán Máni, „en það vantaði bara að einhver setti það á prent, ef ég hefði ekki gert það hefði einhver annar gert það. Mér þykir það trúleg kenning. Bakgrunnur sögunnar er að stórum hluta núningur minn við útgefandann, bæði fagurfræðilegur og hugmyndafræðilegur. Mér er mjög illa við markaðshyggjuna sem tröllríður útgáfunni minni. Eftir að hafa skrifað Svartur á leik í fyrra, sem var vel heppnuð söluvara, finn ég fyrir miklum þrýstingi á að ég haldi áfram á sömu braut og skrifi bækur sem auðvelt er að selja. En slík markaðshugsun fer illa saman við starf skapandi listamanns. Það er erfitt fyrir mann að hafa það í huga sérstaklega að skrifa verk sem selst. Markaðsþenkjandi útgefendur vilja hins vegar að bækur seljist í bílförmum og í þeirra huga skiptir ekki svo miklu um hvað þær eru. Mig langaði líka til þess að velta fyrir mér hvað skáldsagan er. Er hún tæki til að hugsa með? Hver eru ystu mörk hennar? Hvað má hún vera raunveruleg?“ Og hvert er svarið við þeirri spurningu? Það er raunverulegt fólk í bókinni. „Já, en niðurstaða mín er nú samt sem áður sú eftir allt saman að það borgi sig ekki að hafa neinn raunveruleika í skáldsögu.“ Af hverju? „Vegna þess að skáldsaga er í eðli sínu skáldskapur. Raun- veruleiki er þannig í raun ekki til í skáldsögu og alger óþarfi að reyna að koma honum þar fyrir. Sé það reynt verður raunveru- leikinn annaðhvort að skáldskap eða skáldsagan hættir að vera skáldskapur og breytist í skýrslu. Mig langaði til þess að trufla lesandann með þessum til- raunum. Og ég get ekki annað sagt en að bókin hafi fallið í góðan jarðveg þó að tilfinningarnar hafi hlaupið með suma í gönur. Gagnrýnendur tóku held ég mið af ímynduðum viðbrögðum ann- arra lesenda. Einn gagnrýnandi taldi til dæmis að ég hefði móðg- að Gyrði Elíasson mjög mikið í bókinni en Gyrðir hafði sjálfur samband við mig og var hæstánægður með það sem sneri að hon- um í bókinni. Mér þótti gaman að bókin skyldi trufla fólk.“ En hvernig voru viðbrögð útgefendanna þinna í Eddu? „Þau voru mjög neikvæð. Ég held að eina ástæðan fyrir því að þeir ákváðu að gefa bókina út sé sú að þeir hafi vonast til þess að ég skrifaði eitthvað sem væri meira vit í næst. En auðvitað eiga forleggjarar ekki að gefa út bækur sem þeir hafa ekki sannfær- ingu fyrir.“ Þú lætur rithöfunda fá það óþvegið og sumir þeirra eru á mála hjá Eddu. „Já, höfundar þykja fínir á Íslandi, þeir koma fram í auglýs- ingum og það er vitnað í þá, þeir eru góðborgarar. Mig langaði til að kroppa í þessa ímynd.“ Þeir eru eiginlega samnefnari fyrir lægstu hvatir mannsins í bókinni. „Rithöfundar eru eins og gargandi fuglar á tjörn sem berjast um bestu bitana. Ég sat á kaffivagninum ásamt Ólafi Gunnarssyni og Einari Kárasyni um daginn yfir kaffi og pönnukökum. Og þar sem við vorum að mæra hver annan áttuðum við okkur á því að við vorum í raun eins og höfundarnir þrír í Túrista sem mynda einmitt ein- hvers konar skjallbandalag. En fólk er ekki tilbúið til þess að ýta höfundinum af stallinum. Ég vildi líka benda á að skriftir eru vinna eins og hvað annað, nema hvað starfsöryggið er minna en gengur og gerist. Auðvitað er bókin öðrum þræði sjálfshæðin. Ég geri grín að baslinu sem maður hefur mátt standa í.“ En kunnir höfundar fá það nú samt sem áður óþvegið? „Jú, en ég passa mig á því að níðast ekki á einhverjum smæl- ingjum heldur höfundum sem eru fyrir ofan mig í goggunarröð- inni. Ég skammast mín því ekkert fyrir þetta. Mér skilst að Hall- grímur Helgason sé gríðarlega fúll og Andri Snær en þeir mega nú alveg við því að fá smágusu þessir egóistar.“ Einn gagnrýnendanna benti á að bók sem þessi myndi ekki hljóta náð fyrir augum lesenda fyrr en að nokkrum árum liðnum. „Já, ég er sammála því,“ segir Stefán Máni, „og ég er alveg ró- legur yfir þessari bók, ég hef fengið góð viðbrögð frá lesendum þótt ég hafi ekki hugmynd um hvað hún seldist mikið. En skáld- skapurinn í bókinni mun þekja veruleikann með tímanum og þá verður hún lesin sem skáldsaga. Og auðvitað er þetta skáldsaga, það hefði ekki átt að fara fram hjá neinum gagnrýnanda sem á annað borð las bókina. Skáldsagan á eftir að koma upp á yf- irborðið þegar menn hætta að velta sér upp úr þessum titt- lingaskít.“ Fékk bókin kannski annars konar viðtökur hjá lesendum sem standa utan við íslenskan bókmenntaheim? „Já, það eru einmitt þeir lesendur sem ég er að tala um, þeir virðast geta lesið bókina sem fyndna og skemmtilega skáldsögu. Þekkingin truflar viðtökurnar.“ Heimildavinnukarl Túristi og Svartur á leik, sem kom út árið 2004, eiga það sameig- inlegt að hafa ákveðna snertifleti við veruleikann. Og það má reyndar finna slíka snertifleti í sumum eldri verka þinna líka. Tengist þetta vinnuaðferðum þínum eða viðhorfi til skáldsög- unnar? „Ég fékk algert ógeð á umræðunni um heimildavinnuna sem lá að baki Svartur á leik. Maður var stimplaður sem einhver heim- ildavinnukarl sem hyrfi svo dögum skipti í einhverja blaða- mannaleiðangra ofan í undirheimana. Auðvitað var talsverð heimildavinna á bak við þá bók en Túristi gerist í nánast ímynd- uðum heimi, kannski vegna þess að maður hefur tilhneigingu til þess að snúast gegn stimplum af þessu tagi. Ég reyni að lenda ekki ofan í einhverju hjólfari. Eftir Túrista ætla ég að skrifa mód- erníska sögu um menn í skipi. Ég læt ekki stýra mér. Útgefand- inn stýrir mér ekki og markaðurinn ekki heldur. Kannski hætti ég bara ef ég fæ einhvern tímann verðlaun fyrir að vera frábær rithöfundur. Það yrði örugglega ákveðinn léttir.“ Illa við að vera á spena Þú nefndir áðan að starf rithöfundarins væri bara vinna eins og hvert annað starf. Hvernig er búið að rithöfundum á Íslandi í dag? „Það er mjög erfitt að vera rithöfundur á Íslandi. Maður er al- gerlega háður launasjóði rithöfunda. Í sjálfu sér er ég alveg sátt- ur við það hvernig hann er rekinn. Auðvitað velst misjafnt fólk í úthlutunarnefndina en í grunninn byggist sjóðurinn á góðu fyr- irkomulagi. Hann er samt aðeins of veikur. Það þyrfti hins vegar að efla til muna svokallaðan bókasafns- sjóð. Höfundar fá greitt úr honum eftir því hvað bækur þeirra fara oft í útlán á söfnunum. Það er réttlátur og góður sjóður en hann er hlægilega lítill, meðalhöfundur fær kannski fimm þúsund kall á ári úr honum en ef greiddar væru til dæmis um fjögur hundruð krónur fyrir hvert útlán þá gæti meðalmikið lesinn höf- undur og þaðan af meiri menn lifað á honum. Þessi sjóður er sterkur í Danmörku og hefur gefist vel. Manni er samt illa við að vera á spena hjá ríkinu þótt rithöf- undar hafi örugglega minna samviskubit yfir því en til dæmis málarar því að framleiðslan á bókinni skapar mörg störf og þar með virðisauka- og launaskatt. Ég held að það væri skynsamlegt að launasjóðurinn og bókasafnssjóðurinn yrðu utan fjárlaga. Ég sé það þá fyrir mér að fyrirtæki í landinu sem væru með ákveðna veltu myndu borga vissa prósentu í þessa sjóði en þær greiðslur mætti draga frá skatti. Fyrirtækin myndu finna lítið fyrir slíkum stuðningi en rithöfundar mikið. Auðvitað mega þessir sjóðir ekki verða of stórir heldur. En ég hef reyndar ekki miklar áhyggjur af því að peningunum verði varið í vitleysu á meðan úthlutunarnefndir eru faglegar.“ Þú átt tíu ára útgáfuafmæli í ár. „Já, ég hef gefið út sex bækur og hef fengið sex mánaða starfs- laun fjórum sinnum á þessum árum. Sumum þykir það lítið en ég er mjög þakklátur. Þessir styrkir breyta öllu. Án þeirra væri maður búinn að gefast upp.“ En hvernig dregurðu fram lífið? „Ég hef unnið með unglingum og geðsjúkum og í uppvaski og í prentsmiðju og öllum andskotanum. Síðastliðna mánuði hef ég verið í fæðingarorlofi og þar áður var ég á atvinnuleysisbótum í einhvern tíma. Þetta er oft ekki beysið en meðan maður getur skrifað og komið út bókum er maður sáttur.“ Glerlykillinn Stefán Máni var tilnefndur til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins síðastliðið haust fyrir bók sína Svartur á leik. Hann segir það talsverða upphefð en ekki sé enn ljóst hvort bókin verði lögð fram þar sem Edda hafi ekki látið þýða hana en það er skil- yrði fyrir því að dómnefndin geti lagt mat á verkið. „Þetta snýst auðvitað um peninga. Það kostar að láta þýða og ef útgefandinn er ekki viss um að hann fái þá peninga til baka er hann ekki tilkippilegur til að leggja út í slíkt ævintýri. Edda hefur þó gert það margoft áður. Ég held að bókin gæti átt góða möguleika vegna þess að hún er ekki hreinræktaður krimmi. Kvikmyndagerð af bókinni er líka í burðarliðnum.“ Rithöfundar eru eins og gargandi fuglar á tjörn Stefán Máni vakti töluverðar umræður með bók sinni Túrista sem kom út síðastliðið haust. Bókin dregur íslenskt bók- menntasamfélag sundur og saman í háði, nafnkunnir rithöf- undar fá á baukinn og líka útgefendur. Stefán Máni er hissa á viðtökunum og þykir umræðan hafa snúist um aukaatriði, skáldsagan í bókinni hafi farið fram hjá gagnrýnendum. „Skáldsagan á eftir að koma upp á yfirborðið þegar menn hætta að velta sér upp úr þessum tittlingaskít,“ segir hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stefán Máni „Jú, en ég passa mig á því að níðast ekki á einhverjum smælingjum heldur höfundum sem eru fyrir ofan mig í goggunarröð- inni.“ Stefán Máni stundar sjósund í Nauthólsvík á hverjum þriðjudegi. Á sumrin syndir hann úti á Gróttu. Hann segir þetta leið til að sameinast náttúrunni, of langt sé að hlaupa upp á fjöll í borginni. Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.