Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.2006, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.2006, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 3 björk í heild sinni Eftir Geir Svansson geirsv@internet.is And there’s no map to human behaviour and a comp- ass wouldn’t help at all B jörk er ekki tré. Björk er órætt eða óendanlega margrætt rí- sóm. Björk er ekki betula (björk/birki), hún er medulla (kjarninn, mergurinn). Björk er ekki rótföst, hún er rætlingar, rótaleiðarar sem fara í allar ætíð óvæntar áttir, kvíslast, hríslast, með ótal ókortlögðum flóttal- ínum, flæðilínum. Björk er flæði, ekki stífla, ekki Kárahnjúkastífla – hún er Kringilsá, Þjórsá, Sogið, Lagarfljót, Hvítá, Jökulsá á Dal – hún er Dettifoss, Slæðufoss, Glymur, Svarti- foss, Dynjandi, Töfrafoss – fyssandi fossafans. Röddin eða textinn? Það er augljóst að það sem gerir list Bjarkar sérstaka og einstaka er röddin, söngurinn, tján- ingin. Það er jafnaugljóst að söngvar hennar byggja ekki bara á tónlistinni einni saman held- ur líka textum sem þegar að er gáð eru að heil- miklu leyti samofnir eða í það minnsta tengdir rauðum þræði. Tónlistin myndar viðeigandi hljóðheim en textinn er ómissandi fyrir „merk- inguna“. Því er kannski hæpið er að taka texta- gerð Bjarkar til sérstakrar umfjöllunar, burt- séð frá tónlistinni, sjónrænum þáttum, goðsögninni Björk og persónuleik(a) hennar í fjölmiðlum og öðrum miðlum. Í stuttu máli: Björk er heildrænt hugtak, heildstætt listaverk (efni) sem gert er úr öllum þessum þáttum. Þannig hljóta sumir textanna að virðast lítilfjör- legir einir og sér, enda fáránlegt að nálgast þá þannig. Þeir þurfa samhengið – og rödd Bjark- ar – til að öðlast merkingu og líf en þannig verða þeir órjúfanlegur þáttur í verkinu. Listaverkið Björk er annars komið á þann goðsagnakennda stað að það er tilhæfulaust að tala um léleg lög/ söngva: Björk, höfundarverk Bjarkar, eins og það kemur fram á 7 (eða fleiri) hljómdiskum, er verkið allt, hvorki meira né minna, og hver þátt- ur, „slæmur“ eða „góður“, er á sínum stað. Eftirmennsk erótík Ef hægt væri að kjarna yrkisefni Bjarkar frá Debut, „fyrsta“ hljómdisknum, til þess nýjasta í einu orði, væri það ást. Þessi ást er rómantísk, persónuleg, munúðarfull, húmorísk og hættu- leg. Alla þessa þætti væri hægt að fella undir hugtakið „erótík“. En textar Bjarkar eru ekki „eintómir“ ástarsöngvar heldur takast þeir á við samtímann, ekki bara á samfélagslegu plani heldur líka hugmyndafræðilegu. Kynningar- eða byrjendaverk Bjarkar (á heimsferlinum), Debut, var auðvitað hvorugt. Björk var löngu byrjuð og frumraunin, uppruninn eins og færist undan… Í vissum skilningi á Björk sér ekkert upphaf og engin endalok, ekki héðan af. Ef De- but er valinn sem „upphafspunktur“ kemur þar fram eins konar yfirlýsing um það sem Björk gengur út frá í öllu höfundarverkinu. Strax í byrjunarlaginu magnaða „Human behaviour“ er (flæði)línan lögð – Björk ætlar að taka mið af „mennskri hegðun“ en hún er í samhenginu andstæða skynseminnar og markar innrás/ útrás tilfinninga, þrár og nautna. Yfirlýsingu Bjarkar er því (af innsæi?) stefnt gegn rök- og skynsemishyggju upplýsingarinnar og tjáir kannski endalok mennskunnar undir þeim for- merkjum. Þær lendur sem Björk kannar eru ókortlagðar og þar dugar enginn áttaviti – hvert sinn er það fyrsta og maður kortleggur sjálfur því annarra kort eru marklaus. Erótíkin er laus úr viðjum og Venus skiptir kyni í mögnuðum sjafnarsöng: „Venus as a boy“ – „His wicked/ sense of humour/ suggests/ exciting sex“. Hlutir og sjálf Post, annar hljómdiskur Bjarkar, er líka fram- lag til verundar að gengnum hinum skynsem- isþenkjandi post-human eftir-manni vís- indahyggjunnar. „Efnið“, hlutirnir og efnishyggja leika stórt hlutverk en þessa þætti og ástina er hægt að heimfæra upp á flest lög hljómdisksins. Hlutirnir í „The modern things“ hafa beðið færis og nú taka þeir völdin: „It’s their turn now“. Hlutirnir hafa vissulega öðlast aukið vægi í samtímanum, í póstmódernísku ástandi. Eftir því sem neyslu óx fiskur um hrygg á sjöunda áratug síðustu aldar og áhersl- an færðist yfir á hana frá framleiðslunni (líka í hugmyndafræði), komst hluturinn og/eða sölu- varan í hámæli. Sumir, eins og franski fræði- maðurinn Jean Baudrillard, vilja meina að hlut- irnir hafi núorðið öðlast visst sjálfræði og hefni sín nú á manninum. Hlutirnir myndi táknkerfi þar sem notagildi er úrelt en afstaða og tengsl byggjast á öðrum þáttum. Hlutirnir vísa til hins raunverulega heims en í ríki táknsins vísa þeir jafnframt til fjarveru hans og sérstaklega á fjarveru súbjektsins, sjálfsverunnar. Það eru kannski viðlíka hugmyndir sem Björk túlkar meðal annars í list sinni. Aðrir söngvar á Post fjalla til mótvægis um ástina, umhyggju, svik, söknuð, kynlíf, nautn- ina: „Your flirt/ finds me out/ teases the crack in me („Possibly maybe“); „I miss you: but I ha- ven’t met you yet“ („I miss you“); „While I crawl into the unknown/ cover me …“ („Cover me“); Since we broke up/ I’m using lipstick aga- in/ I’ll suck my tongue/ in remembrance of you“ („Possibly maybe“). Hámarki nær hljómdiskurinn í söngnum „Isobel“: „In a heart full of dust/ lives a creature called lust/ it surprises and scares/ like me: like me“. Það er reyndar Sjón sem semur en þau Björk eru eins konar fagurfræðilegir tvíburar. Sjálfsagt væri hægt að fjalla í löngu máli um súrrealisma í listaverkinu Björk og í því sam- hengi væri áreiðanlega frjótt að skoða líkingar úr dýra- og jurtaríkinu – náttúrunni. Sjón er annars dæmi um það hversu snjöll Björk er í því að velja sér samstarfsfólk en mannval virðist miðast við kröfur verksins hverju sinni. Frjótt neyðarástand Sjón leggur aftur til lykiltexta á Homogenic en þar er Björk í laginu „Jóga“ stödd í „tilfinninga- þrungnu landslagi“ (emotional landscape) á valdi tilviljana og eina leiðarljósið er ástin, óviss en gefandi. Það ríkir neyðarástand (State of emergency) sem jafnframt er háð sífelldri sköp- un og breytingum, þegar eitthvað nýtt kemur í ljós (emerges). En Björk velur áhættuna, sköp- unina: „State of emergency: is where I want to be“. Kyrrstaða er nefnilega versti óvinur til- urðar og fyrsti söngur hljómdisksins, „Hunter“, er andóf gegn henni: If travel is search And home what’s been found I’m not stopping. Björk heldur því á nýjan leik út í óvissuna, í ókortlögðu landslagi tilfinninga: .„I’m going hunting: I’m the hunter.“ Hún hristir af sér slenið eftir að hafa reynt að „skipuleggja frels- ið“, orðin alltof „skandínavísk“. Kannski hún varpi af sér böndum og kvöðum frægðarinnar og áhangenda sem hugsanlega voru farnar að hefta hana. Heiti hljómdisksins er í raun írónísk and- hverfa þess sem á sér stað á disknum. „Ho- mogenic“ sem er sjaldgæft orð og helst notað í sambandi við líffræðilegar rannsóknir (t.d. ígræðslu) gæti þýtt „samgena“ eða „að vera eins“, eða „falla að“. Merkingin orðsins er þar með algjör andstæða Bjarkar, sem er engum lík. Myndin af Björk á forsíðu styður heitið en þar birtist hún í gervi sem er í senn fullkomin andstæða hennar: Myndin er dauðhreinsað íkon, (fjöldaframleidd) dúkka, geisha, algerlega undirgefin kona. Við trúbrot er handhægt að fjarlægja hálshringina en þá heldur hún ekki höfði. Þótt fæturnir sjáist ekki er víst að þeir eru reyrðir og að hún kemst ekkert á eigin fót- um. Og með þessar neglur getur hún ekki gripið til sinna ráða. En á þverstæðukenndan hátt er íkonið einnig ólgandi og erótískt; það er að því komið að splundrast – og gerir það á disknum, í tónlistinni. Tælandi ógnin/nautnin ríkir einnig í „Bac- helorette“, öðru framlagi Sjóns, eins konar framhaldi af „Isobel“ af Post: I’m a fountain of blood in the shape of a girl […] Drink me – make me feel real Wet your beek in the stream The game we’re playing is life Love’s a two way dream. Næturblóm Munúð og nautn eru áberandi á fjórða diski Bjarkar, Vespertine, en heitið vísar til grósku að næturlagi; þess sem blómstrar í nóttunni. Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir rísómið og erótíkina. Kannski er Vespertine holdlegasti hljómdiskur Bjarkar. Ljóðið og orðasambandið „Pagan poetry“ er annað orð yfir nætur- gróskuna; erótíkina, dimma og djúpa, varðaða af bólgnum svörtum liljum: Swirling black lilies totally ripe On the surface simpli- city but the darkest pit in me is pagan poetry pagan poetry I love him Elskhuginn í öðru lagi disksins, „Cocoon“, hlýtur að vera skyldur þeim sem kenndur var við Venus á Debut: Who would have known: that a boy like him would have entered me lightly restoring my blisses […] He slides inside half awake/half asleep we faint back into sleephood when I wake up the second time in his arms: gorgeousness he’s still inside me. Venusardrengirnir koma víðar fyrir: Þeir eru bestu elskhugarnir, þeir svíkja ekki. Einum þeirra bregður til dæmis fyrir í upphafslaginu á Vespertine, „Hidden place“: He’s the beautifullest fragilest still strong dark and divine“. Sá veikari vinnur Medulla, fimmti hljómdiskur Bjarkar, er texta- lega enn á sömu slóðum og þeir fyrri. Ástin og erótíkin, með öllum sínum fylgifiskum, eru enn í miðdepli. Í fyrsta laginu, „Pleasure is all mine“, áréttar Björk það sem imprað hefur verið á fyrr í höfundarverkinu, að það er sælla að gefa en þiggja: The pleasure is all mine to get to be the generous one is the strongest stance Styrkleiki Venusardrengjanna felst í „veik- leika“ þeirra – „kvenleika“ þeirra. Þeir kunna að gefa, fá að gefa. „Where is the line with you“ fjallar kannski um samskipti við hefðbundnari karlmenni en sá fær aldrei nóg sama hversu eft- irgefanleg ljóðmælandi er, en nú er mælirinn fullur: „I’m elastic for you/ but enough is eno- ugh“. Aðrir textar á Medullu fjalla flestir um ástræn vandamál en síðasti textinn, „Triumph of the heart“, kallast á við þann fyrsta og árétt- ar sigur gjafarinnar sem ekki sér til gjalda: „The triumph of the heart – that gives all: that gives all“. Aðhald Á nýjasta hljómdiski Bjarkar er að finna tónlist úr kvikmynd Matthews Barneys, Drawing restraint 9. Textarnir eru samdir af Björk og Barney. „Drawing restraint“ vísar í verkefni sem Barney hefur unnið frá 1987 og er það ní- unda í röðinni. Í því samhengi merkir orða- sambandið mikilvægi mótstöðu sem forsendu sköpunar. Bókstaflega er merkingin „teikni- hömlur“ en fyrsta verkið í röðinni fólst í teikn- ingum þar sem Barney gerði sér erfitt fyrir. Önnur merking orðasambandsins er sú að eitt- hvað kalli á hömlur eða aðhald – og er það ekki einmitt það sem listaverk gera? Listamenn (og allir) þurfa mótlæti og þeir þurfa að beita sig að- haldi til að geta skapað. Það sama gildir um Björk en þrátt fyrir taumlausa orkuna beitir hún sig listrænu aðhaldi. En það aðhald verður að vera hennar ákvörðun! Á mótsagnakenndan hátt þarf því Björk á ögrun eða hömlum að halda svo að sköpunarflæðið megi viðhaldast. Hún setur sér jafnvel dogma-reglur, eins og á Medulla þar sem eina hljóðfærið er manns- röddin (og tölvan). En rísómískar flæði- og flóttalínur sjá til þess að hvorki hún né aðrir máli hana út í horn. Eins og Björk kemst sjálf að orði í „Alarm call“ á Homogenic: I’m no fucking Buddhist but this is enlightenment the less room you give me the more space I’ve got.“ Ljóð Bjarkar og Matthews Barneys úr Drawing restraint sem fjallar um hvaldýr (ceta- cea) gæti vel átt við höfundarverk Bjarkar og verður hér tekið að láni í þeim tilgangi að draga það saman – flæðið, formið, blóðið (erótíkina), alúðina, náttúruna (rísómið): Cetacea Into pattern flowing blood giving form in every part the whole you see into pattern flowing form giving form from the moment of commitment, nature conspires to help you from the moment of commit- ment, nature conspires to help you from the moment of commitment, nature conspires to help you nature conspires to help you. Flæðilínur og fossafans Björk Guðmundsdóttir hefur jafnan lagt áherslu á að tónlist hennar hljómi sem best og nýtt nýjustu og bestu fáanlega tækni í þeim tilgangi. Síðsumars komu út í einum kassa, Surrounded, allar plötur hennar, fimm hljóðversplötur og tvær með kvikmyndatónlist, Debut, Post, Homogenic, Vespertine og Medúlla og Selma- songs og Drawing Restraint 9. Diskarnir eru svonefndir Dual Disc, þ.e. á annarri hlið hvers disks er upprunaleg plata, en á hinni hliðinni, sem er DVD diskur, er viðkomandi plata endurhljóðblömduð í Dolby 5.1 og DTS Surround. Einnig eru á fimm platnanna myndbönd þau sem gerð voru í tilefni af hverri plötu, sex De- but myndbönd, sex Post myndbönd, fimm Homogenic myndbönd, fimm Vespertine myndbönd og fimm Medúlla myndbönd. Ekkert myndefni er með Selmasongs eða Drawing Restraint 9. Í tilefni af þessari útgfáfu gefst gott tækifæri til að líta yfir feril Bjarkar og skoða hann frá þrem, hliðum, tónlist, texta og myndefni. Höfundur er bókmenntafræðingur. Breytingar Björk Guðmundsdóttir breytir sífellt um útlit, en er þó alltaf samkvæm sjálfri sér, breytir um búning en syngur þó alltaf um það sama, ástina í hennar óteljandi birtingarmyndum. Textinn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.