Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.2006, Side 17

Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 17 lesbók Síðustu æviár Beethovens eru við-fangsefni glænýrrar amerískrar bíómyndar sem frumsýnd var vestra í gær, föstudag. Myndin heitir Copy- ing Beethoven en leikstjóri hennar er Agnieszka Holland. Handritshöf- undar eru Chri- stopher Wilkinson og Stephen J. Ri- vele. Sagan hefst ár- ið 1824, þegar Beethoven er orð- inn heyrnarlaus. Anna Holtz, ung- ur og hæfi- leikaríkur tónlist- arnemi í Vínarborg, ræður sig í vinnu við að hreinskrifa og fjölfalda nótur að verk- um Beethovens, eins og gert var í þá daga. Í myndinni kemur fram að tón- skáldið hafi ekki verið yfir sig hrifið af því að fá kvenmann til þeirra starfa, en gefið eftir vegna brýns verkefnis; – níundu sinfóníunnar. Það eitt og sér, að hreinskrifa tónlist Beethovens, hlýtur að hafa verið ær- inn starfi því hann skrifaði ótal skiss- ur og uppköst og mátaði ýmsa mögu- leika, áður en hann raðaði endanlegri gerð verka sinna saman. Hápunktur myndarinnar er svo auðvitað frum- flutningur meist- araverksins, þar sem heyrnarlaust tónskáldið stjórn- ar. Það er á gagn- rýnendum að heyra, að margt sé athugavert við þessa mynd, og að hún sé langt frá því að vera sann- leikanum samkvæm, enda kannski ekki ætlunin. Fyrir það fyrsta voru skrifarar Beethovens á þessum tíma tveir karlmenn; en framleiðendum myndarinnar mun hafa þótt væn- legra til árangurs við að fjármagana hana að hafa unga fallega stúlku í því hlutverki, enda ástarsambönd Beethovens annáluð. Þá þykir leik- aravalið sérkennilegt, en þó ekki af- leitt. Í hlutverki Beethovens er eng- inn annar en Ed Harris, sem mér fannst reyndar sýna snilldartakta sem Jackson Pollock í samnefndri mynd hans sjálfs um málarann amer- íska. En skrifara New York Times, Manohla Dargis, finnst hann of sterkt nútímatákn til að passa í þetta sögu- lega hlutverk. Jú, Ed Harris er alls staðar, bæði í sjónvarpinu og í bíó- myndum, en hann er góður leikari hversu ofnotaður sem hann kann að vera. Það er þýsk leikkona, Diane Kruger, sem leikur skrifarann, Önnu Holz, en Dargis segir að hún sé hrein- lega of fögur til að passa í nokkurt bitastætt hlutverk, hvað sem nú átt er við með því. En atriðin með leikaranum sem ekki getur klikkað segir hann þó full- komlega þess virði að sjá mynd- ina, og það er auð- vitað níunda sin- fónían sjálf. Það er Kecske- met-sinfón- íuhljómsveitin í Ungverjalandi sem leikur hljómsveit- ina en spilar þó ekki; þar er notast við upptöku frá Decca með Concertgebo- uw-hljómsveitinni og Bernard Hait- ink. Það verður fróðlegt að sjá hvern- ig það gengur upp, því fátt er hallærislegra í bíómyndum um tónlist en þegar leikurinn og hljóðið fara engan veginn saman. En kannski eru þetta óþarfa áhyggjur, því Dargis segir að Hol- land fari svo varfærnum höndum í kvikmyndatökum í tónlistaratrið- unum, að það verði einungis örlaga- þrasarar sem geti sett út á það. Reyndar er Dargis mjög hrifinn af kvikmyndatöku í myndinni yfirleitt, og segir tökufólk Agnieszku Holland skapa sjónræna effekta í áhrifamikl- um kontrapunkti við tónlistina er skapi flæði og rytma með henni. TÓNLIST Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Ed Harris Harris... sem Beethoven Diane Krüger Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Haustið 1973 barst hingað til lands sex-tánda breiðskífa Franks Zappa og fé-laga hans í Mothers, Over-Nite Sensa-tion. Sú plata var og er ákveðinn vendipunktur á hans mikla útgáfuferli, tónlist- arlega þéttri en þær plötur sem á undan höfðu komið, lögin venjulegri, ef svo má segja, og minna um flipp og fríkaðar hugmyndir. Platan seldist líka afskaplega vel, varð fyrsta gullplata hans vestan hafs, og næstu plötur á eftir drógu dám af henni, til að mynda þrjár þær næstu, Apostrophe (’), tónleikaskífan Roxy & Elsewhere og One Size Fits All. Í hrörlegu horfnu húsi á Vesturgötunni dvaldist ég löngum stundum, en þar var meðal annars hóp- ur Zappa-aðdáenda. Við tókum þessari plötu fagn- andi, svo fagnandi að líklega hef ég hlustað oftar á hana en flestar aðrar plötur – dögum saman var ekki önnur plata spiluð og jafnvel látin ganga all- an sólarhringinn. Eins og gefur að skilja lærði ég plötuna utanað og hef kunnað svo vel reyndar að eftir þessa törn fór hún ekki á fóninn aftur í ára- tugi. Síðustu plötur Zappa höfðu verið hálfgerðar djassspunaplötur og kom nokkuð á óvart að heyra hvernig rödd hann hafði lækkað, var dimmari en áður, en skýrist af líkamsárás í Lundúnum þegar Zappa var hrint niður af sviðinu í Rainbow- leikhúsinu og slasaðist talsvert. (Hann nefnir slys- ið reyndar óbeint í einu laginu, „My right foot’s bigger than my other one is / Like a reg’lar Zomby Hoof“ segir í Zomby Woof.) Spilamennska á plötunni er í hæsta gæðaflokki sem kemur kannski ekki á óvart, Frank Zappa gat valið úr fremstu hljóðfæraleikurum hvort sem var í framúrstefnulegu rokki eða rafmögnuðum djassi. Segir sitt að þeir Jean-Luc Ponty og George Duke koma mjög við sögu á skífunni og fara víða á kostum, til að mynda í laginu Fifty- Fifty, en Frank Zappa á líka ótrúlega magnað gít- arsóló í því lagi. Hann er reyndar í toppformi á plötunni og á eftirminnilega spretti í Zomby Wo- of, I’m the Slime og Montana, svo dæmi séu tekin. Þegar ég dró fram laskaða vínylútgáfu plöt- unnar um daginn, eftir að hafa ekki hlustað á hana af viti í rúma þrjá áratugi, var gaman að heyra að tónlistin hafði elst vel, spilamennskan fram- úrskarandi og útsetningar frábærar eins og jafn- an en þó þéttari og samfellan meiri. Textarnir höfðu þó elst misvel, sumir klassískir eins og í Montana, þar sem segir frá manni sem ákveður að flytja til Montana að rækta tannþráð, „with my trusty zircon encrusted tweezers in my hand“, og I’m the Slime, sem átti einkar vel við í nýlokinni kosningabaráttu vestan hafs. Aðrir textar, Cam- arillo Brillo og Dinah Moe Humm, hafa aftur á móti ekki elst eins vel og eru satt best að segja hálf hallærislega klámkenndir og gegnsýrðir kvenfyrirlitningu. Það er og einn helsti gallinn á tónlist Franks Zappa í gegnum árin og hugsanleg skýring á því hvers vegna hann hefur nánast gleymst á síðustu árum – þrátt fyrir gríðarlegt magn af magnaðri tónlist, tugi af framúrskarandi plötum, þá eldist fátt eins illa og neðanbeltiskímni – hún verður eig- inlega lágkúrulegri með hverjum deginum. Þrátt fyrir það er Over-Nite Sensation klassísk Zappap- lata og með bestu rokkskífum áttunda áratug- arins. Over-Nite Sensation kom út í september 1973. Hún var gefin út á geisladisk 1995 af Rykodisc og hljómur á þeirri útgáfu er mjög góður þótt ekki jafnist hann á við vínylinn frekar en aðrar rokk- plötur. Klúr klassík POPPKLASSÍK Eftir Jón Agnar Ólafsson jonagnar@mbl.is H ugsið ykkur hljómsveit. Upp- runnin á Bretlandseyjum kringum 1980, framan af talin til hóps jaðarsveita enda með- limir á skjön við pastelklædda og upppúðraða sykurpoppara níunda áratugarins, svartklæddir og frekar kuldalegir í fasi. Sveitin öðlaðist svo heimsfrægð þegar Duran Duran, Wham!, Kajagoogoo, Ultra- vox og allar hinar stórsveitir tímabilsins þraut örendi og varð í framhaldinu ein stærsta sveit heims á árunum rétt fyrir 1990. Nei, þetta snýst ekki um U2, þótt lýsingin gangi jafn vel upp með þá sveit í huga – heldur Depeche Mode. Rétt eins og U2 eru Depeche Mode enn í góðu stuði, senda frá sér nýja skífu á fjögurra ára fresti að jafnaði og halda í kjölfarið í heims- reisu til tónleikahalds. Síðasta platan, Playing The Angel sem kom út í október 2005, hlaut hvarvetna afbragðsdóma og tónleikatúrinn, To- uring The Angel, gekk að sama skapi feikilega vel; 124 tónleikar á tíu mánaða tímabili um víða veröld og jafnan húsfyllir með tugþúsundum æstra aðdáenda. Undirritaður varð þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá sveitina leika á Par- ken-leikvanginum í Kaupmannahöfn í febrúar á þessu ári og þótt oft hafi þeir Dave Gahan, Martin Gore og Andrew Fletcher sopið fjöruna helst til hressilega er það ekki að sjá á spila- mennskunni; bandið er í fantaformi. Það má líka glöggt sjá á upptöku þeirri sem nýverið var gef- in út á DVD frá tónleikum þeirra þremenninga í Mílanó. Það er greinilega gaman að vera í De- peche Mode um þessar mundir. DVD-útgáfa þessi er hin eigulegasta og sam- anstendur af þremur diskum. Sá fyrsti inniheld- ur sjálfan konsertinn í Mílanó, 23 lög alls. Þetta er fagmannlega afgreiddur pakki ofan í aðdá- endurna; megnið af nýju plötunni er hér flutt í bland við vel valda klassíska slagara. Sér- staklega er gaman að sjá og heyra hið frábæra Shake The Disease frá 1985 í flutningi Martins Gores en óralangt er síðan sá smellur rataði inn á tónleikadagskrá hjá sveitinni. Þá rataði sömu- leiðis annar ennþá eldri slagari og fáheyrðari í prógrammið, nefnilega Just Can’t Get Enough frá 1981 og gaman að heyra hann loks fluttan. Þá er vert að geta stórskemmtilegrar útgáfu á hinu gullfallega lagi Home af plötunni Ultra, en heiðurinn af henni eiga þeir AIR-félagar Nicolas Godin og Jean-Benoît Dunckel. Diskur nr. tvö er einnig DVD og gefur áhorf- endum færi á að glugga baksviðs hjá þeim Gah- an, Gore og Fletcher. Þar er að finna ríflega 20 mínútna heimildarmynd um tónleikaferðalagið, með viðtölum og allrahanda innslögum. Fínt efni og áhugavert en hefði að ósekju mátt vera ríf- legra. Menn sem eiga jafnlangan feril að baki hljóta að hafa frá heilum helling að segja. Þriðji diskurinn er svo hljómdiskur eingöngu og inniheldur átta lög af tónleikunum. Fínt í bíl- inn, annars blasir notagildi þessa viðbótardisks ekki við. Depeche Mode er ríflega aldarfjórðungsgömul hljómsveit en þó í fullu fjöri svo sem merkja má á tónleikum þessum. Sé mið tekið af nýjustu lögum Martins Gores á hann enn nóg inni, enda er Playing The Angel almennt talin þeirra besta skífa í langan tíma – sú besta síðan Violator kom út 1990 segja sumir. Ennfremur gætir Gore þess iðulega að klæðast einkennilegum múnderingum á sviði, svo eftir sé örugglega tek- ið. Sviðsgallinn hans á þessum túr minnir helst á bræðing úr hrafnsunga og rómverskum hundraðshöfðingja. Í því felst tilvísun í fígúruna sem skreytir umslag nýjustu plötunnar, Mr Feathers, en það er kyndug vera sett saman úr svörtum fjöðrum. Þá er söngvarinn Gahan í feiknaformi, hvort heldur er litið til stemning- arinnar – það beinlínis leiftrar af honum á sviði –, raddarinnar sem hljómar jafn vel og hún hef- ur best gert, eða líkamlegs ásigkomulags en Gahan, sem er kominn yfir fertugt, er í formi sem tvítugur íþróttamaður væri fullsæmdur af. Hann fer enda létt með að hlaupa eins og frið- laust þeytispjald um sviðið, konsertinn á enda, og heldur mannskapnum rækilega við efnið frá fyrsta lagi. Það er helst að Fletcher láti á sjá, heldur hlaupinn í spik, enda skyldur hans í bandinu fáar aðrar en að vera lagahöfundinum Gore sálfræðingur hvenær sem á þarf að halda – sem mun alloft. Þá er ógetið þáttar ljósmyndarans Antons Corbijns en hann hefur verið stílisti bandsins um margra ára skeið og á hann heiður af leik- tjöldum og sviðsmynd að þessu sinni sem fyrr. Stíll hans er aðdáendum að góðu kunnur og handbragð hans leynir sér ekki, þótt margt sé nýstárlegt að sjá. Þegar allt er sett upp á strik er ekki við öðru að búast en að Depeche Mode haldi áfram enn um sinn, enda leynir sér ekki að meðlimir hafa gaman af hlutunum, og það þótt lögin séu sem fyrr í nöturlegri kantinum hvað umfjöllunarefni varðar – sem dæmi um laganöfn á Playing The Angel má nefna Damaged People, A Pain That I’m Used To og The Sinner In Me. Ekki að furða að undirtitill plötunnar sé „Pain and suf- fering in various tempos“. Fyrir þá sem sáu De- peche Mode spila á þessum túr er þessi DVD- útgáfa kjörin til að rifja kvöldið góða upp. Fyrir þá sem ekki áttu heimangengt er pakkinn jafn- kjörinn til að bæta fyrir það sem þeir fóru á mis. Á ferð með engli Blaðamaður varð þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá sveitina leika á Parken-leikvanginum í Kaup- mannahöfn í febrúar á þessu ári og þótt oft hafi þeir Dave Gahan, Martin Gore og Andrew Fletc- her sopið fjöruna helst til hressilega er það ekki að sjá á spilamennskunni; bandið er í fantaformi. Þeim sem ekki hafa séð tónleika hljómsveit- arinnar er bent á DVD-útgáfu af þeim, Depeche Mode – Live In Milan Touring The Angel 2006. Nóg inni „Sé mið tekið af nýjustu lögum Martins Gore á hann enn nóg inni, enda er Playing The An- gel almennt talin þeirra besta skífa í langan tíma – sú besta síðan Violator kom út 1990 segja sumir.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.