Morgunblaðið - 20.02.2006, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
VÍKINGUR hafði betur gegn
Fram, 1:0, í deildabikarnum í knatt-
spyrnu í gær. Hinn 18 ára gamli Þor-
valdur Sveinn Sveinsson skoraði
sigurmarkið á fjórðu mínútu leiks-
ins.
JÓHANNES Karl Guðjónsson lék
allan tímann fyrir Leicester þegar
liðið gerði 1:1 jafntefli við Leeds í
ensku 2. deildinni í knattspyrnu.
Leicester lék manni færri í 80 mín-
útur en Patrick McCarthy fékk að
líta rauða spjaldið eftir 10 mínútna
leik.
LEICESTER komst yfir á 5. mín-
útu en eftir skot Jóhannesar Karls
úr aukaspyrnu barst boltinn fyrir
fætur Ian Hume sem skoraði. Robb-
ie Blake jafnaði fyrir Leeds úr víta-
spyrnu fimm mínútum síðar og þar
við sat. Gylfi Einarsson sat á bekkn-
um hjá Leeds allan tímann.
GRÉTAR Rafn Steinsson sat á
varamannabekk AZ Alkmaar allan
tímann þegar liðið tapaði óvænt á
heimavelli fyrir Utrecht, 3:2, í hol-
lensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gær. Utrecht komst í 3:0 í fyrri
hálfleik en AZ Alkmaar náði að laga
stöðuna með tveimur mörkum í upp-
hafi síðari hálfleiks.
GARÐAR Gunnlaugsson var ekki
í leikmannahópi Dunfermline í
leiknum gegn Celtic í skosku úrvals-
deildinni í gær. Celtic vann stórsig-
ur, 8:1, og skoraði pólski framherjinn
Maciej Zurawski fjögur marka liðs-
ins.
GUÐFINNUR Kristmannsson
skoraði 3 mörk fyrir Heim þegar lið-
ið tapaði fyrir Lugi, 26:24, í sænsku
úrvalsdeildinni í handknattleik í
gær. Heim er í tólfta sæti af 14 liðum
með 15 stig en Sävehof er efst með
31 stig.
ÞÝSKI landsliðsmaðurinn Dirk
Nowitzki sem leikur með Dallas
Mavericks í NBA-deildinni sigraði í
árlegri 3 stiga skotkeppni sem fram
fór á laugardaginn samhliða
Stjörnuhelgi NBA-deildarinnar.
Nowitzki náði 18 stigum í úrslit-
unum en Gilbert Arenas fékk 16 stig
og Ray Allen var með 15 stig.
NÝLIÐINN Nate Robinson úr liði
New York Knicks sigraði í troðslu-
keppninni en hann fékk Spudd Webb
til þess að aðstoða sig enda eru tveir
áratugir frá því að Webb sigraði í
troðslukeppninni með eftirminnileg-
um hætti en Webb er rétt tæplega
170 cm á hæð en Robinson er ekki
nema 175 cm. Andre Iguodala frá
76’ers komst í úrslitin ásamt Rob-
inson.
ROBINSON gerði sér lítið fyrir og
stökk yfir Webb í sigurtroðslunni en
Webb kastaði boltanum til hans en
Spud Webb var að sjálfsögðu í Atl-
anta keppnistreyju nr. 4.
FÓLK
SNORRI Steinn Guðjónsson skoraði 6 mörk fyrir
Lemgo, þar af fjögur úr vítaköstum, þegar Minden
og Flensburg skildu jöfn, 27:27, í þýsku 1. deildinni
í handknattleik í gær. Það stefndi allt í sigur hjá
Flensburg. Þegar átta mínútur voru eftir hafði liðið
fjögurra marka forskot, 27:23, en heimamenn neit-
uðu að gefast upp og tókst að knýja fram jafntefli.
Arnór Atlason skoraði 1 mark fyrir Magdeburg
þegar liðið vann stórsigur á Düsseldorf, 36:20.
Staðan var jöfn í hálfleik, 14:14, en í síðari hálfleik
skellti Silvio Heinevetter, markvörður Magdeburg,
í lás og skoraði Düsseldorf einungis sex mörk í
seinni hálfleik á móti 22 hjá Magdeburg. Sigfús
Sigurðsson lék ekki með Magdeburg vegna meiðsla
og sömu sögu er að segja um Markús Mána Mich-
aelsson í liði Düsseldorf.
Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru í
leikmannahópi Lemgo sem sigraði Nordhorn á úti-
velli í gær, 31:28. Hvorugum tókst að skora mark.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk fyrir
Gummersbach þegar liðið sigraði Göppingen,
35:27, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Róbert
Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach
og Jaliesky Garcia skoraði 2 fyrir Göppingen.
Grosswallstadt vann öruggan sigur á N-
Lübbecke, 37:25. Einar Hólmgeirsson skoraði 3
mörk fyrir Grosswallstadt en Alexander Petersson
lék ekki með liðinu þar sem hann er kjálkabrotinn.
Þórir Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir N-Lübbecke.
Kiel heldur efsta sætinu eftir sigur á Wetzlar,
40:27, á heimavelli. Róbert Sighvatsson skoraði
ekki fyrir Wetzlar að þessu sinni. Kiel er með 34
stig en Gummersbach og Flensburg koma næst
með 32 stig. Öll hafa liðin leikið 19 leiki. Magde-
burg er í fjórða sæti með 30 stig en á að baki 20
leiki.
Snorri Steinn með sex í jafntefli
Minden gegn Flensburg
ROMA vann tíunda leik sinn í röð í
ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í gær
þegar liðið lagði Empoli, 1:0, á Ólympíu-
leikvanginum í Róm. Roma jafnaði þar
með met AC Milan, Juventus og Bologna.
Juventus vann tíu leiki í röð tímabilið
1931–32, AC Milan 1950–51 og Bologna
1963–64. Roma getur slegið metið um
næstu helgi en þá mætir liðið grönnum
sínum í Lazio í sannköllum Rómarslag.
Simone Perrotta tryggði Rómverjum
sigurinn með marki á 15. mínútu leiksins
og þar við sat.
Meistarar Juventus eru með 10 stiga
forskot á AC Milan. Juventus gerði 2:2
jafntefli við Messina. Zlatan Ibrahimovic
og Adrian Mutu skoruðu mörk Juventus
sem lék manni færri í 35 mínútur.
Metjöfnun
hjá Roma
Þjóðverjar fengu silfrið eftirharða baráttu við Svía en Tobi-
as Angerer hafði meira þrek á loka-
sprettinum í baráttu sinni við
Mathias Fredriksson. Norðmenn,
sem höfðu titil að verja í greininni,
enduðu í fimmta sæti.
Á laugardag fögnuðu Rússar
sigri í 4x5 km boðgöngu í kvenna-
flokki en Þjóðverjar fengu silfur-
verðlaun en sveit þeirra var 10 sek-
úndum á eftir Rússum. Heimamenn
frá Ítalíu fögnuðu bronsinu, Svíar
voru í fjórða sæti og Norðmenn í því
fimmta.
Forsvarsmenn tékkneska
skíðalandsliðsins hafa sent Kvet-
oslav Zalcik yfirþjálfara tékkneska
skíðagöngulandsliðsins heim eftir að
hann gerði mistök í uppröðun á liði
þeirra í 4x10 km boðgöngu. Tékkar
áttu góða möguleika á að ná í verð-
laun miðað við þá sem skipuðu
sveitina en Zalcik gerði þau mistök
að skrifa nöfn tveggja varamanna
er hann skráði lið sitt til leiks og
tveir af bestu keppnismönnum
sveitarinnar voru ekki skráðir til
leiks. Þegar mistökin komu í ljós
var það um seinan að breyta keppn-
isliðinu
Tékkar voru í þriðja sæti fyrir
síðustu skiptinguna og aðeins 18
sekúndum á eftir Ítölum sem sigr-
uðu. Dusan Kozisek sem gekk síð-
asta sprettinn fyrir Tékka endaði
síðan tveimur mínútum á eftir
ítölsku sveitinni og Tékkar enduðu í
níunda sæti keppninnar. Hinn
reyndi skíðamaður Milan Sperl átti
að ganga síðasta sprettinn fyrir
Tékka en Kozisek er ungur og lítt
reyndur og hafði átti við veikindi að
stríða fyrir keppnina.
Kati Wilhelm frá Þýskalandi
sigraði í 10 km skíðaskotfimi á laug-
ardaginn en hún vann til silfurverð-
launa í þessari grein fyrir fjórum
árum í Salt Lake City. Wilhelm hitti
19 skotmörk af alls 20 og kom hún í
mark á tímanum 36.43,6 mínútum.
Hún var langt á undan Martin Glag-
ow frá Þýskalandi sem var 1.13,6
mín á eftir Wilhelm en þriðja varð
Albina Akhatova frá Rússlandi en
hún var 1.21,4 mín. á eftir gullverð-
launahafanum frá Þýskalandi.
Akhatova varð einnig þriðja í 15.
km keppninni í skíðaskotfimi. Olga
Pyleva, sem hafði titil að verja í
þessari grein, var að sjálfsögðu ekki
með en hún var úrskurðuð í tveggja
ára keppnisbann eftir að hafa fallið
á lyfjaprófi að lokinni keppni í 15
km skíðaskotfimi en þar varð hún
önnur.
Norðmenn ná
sér ekki á strik
ÍTALSKA karlasveitin sigraði í 4 x 10 km skíðagöngu á Ólympíu-
leikunum í Tórínó en þetta eru þriðju gullverðlaun Ítala á ÓL. Crist-
ian Zorzi tók síðasta sprettinn fyrir ítölsku sveitina en aðstæður
voru ekki góðar á keppnissvæðinu en fjölmargir stuðningsmenn
Ítala létu vel í sér heyra við keppnisbrautina.
ALAN Smith, miðjumaður Man-
chester United, gekkst undir aðgerð
á sjúkrahúsi í gær en hann brotnaði
illa á ökkla í viðureign Liverpool og
Manchester United á Anfield á laug-
ardaginn. Smith kom illa niður á fót-
inn eftir að hafa stöðvað skot frá Jon
Arne Riise og var leikmönnum sem
að komu mjög brugðið enda fótur
Smiths illa farinn og leikmaðurinn
mjög kvalinn. Gera þurfti fimm mín-
útna hlé á leiknum á meðan læknar
og sjúkraþjálfarar beggja liða hlúðu
að Smith sem þurfti að fá súrefni.
,,Hugur okkar allra er hjá Smith
en okkur gafst ekki tækifæri til að
hitta hann eftir leikinn. Það var
nógu slæmt að tapa leiknum en að
Smith skildi meiðast svona illa gerði
það tíu sinnum verra,“ sagði Gary
Neville, fyrirliði Manchester United.
Líklegt er að Smith, sem er 24 ára
gamall, verði frá æfingum og keppni
næstu níu mánuði en vinstri ökklinn
brotnaði mjög illa auk þess sem lið-
bönd slitnuðu.
David O’Leary, knattspyrnustjóri
Aston Villa, var við stjórnvölinn hjá
Leeds þegar Smith lék með liðinu og
hann sagði við BBC fréttastofuna í
gær að Smith myndi örugglega snúa
inn á völlinn að nýju.
„Ég sá atvikið í sjónvarpinu og
það var átakanlegt að sjá þegar
Smith brotnaði. Ég veit úr hverju
Smith er gerður og hvernig persóna
hann og ég er sannfærður um að
hann verður kominn í baráttuna eft-
ir einhverja mánuði á nýjan leik.
Þetta er eitt því versta sem ég hef
séð og ég held að Smith verði lengi
frá. Þetta er enn eitt áfallið sem við
verðum fyrir og það lýsir best þessu
tímabili hjá okkur,“ sagði Sir Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri Man-
chester United.
Smith frá
keppni í
allt að níu
mánuði
NORÐMAÐURINN Kjetil Andre
Aamodt sigraði í þriðja sinn í risa-
svigi á Ólympíuleikunum á laug-
ardaginn en hann hefur fjórum
sinnum fagnað gullverðlaunum á
Ólympíuleikum í alpagreinum. Að-
eins Janica Kostelic frá Króatíu
getur státað af slíku en hún sigr-
aði í alpatvíkeppni á laugardaginn.
Kostelic sigraði í þremur greinum
árið 2002, í svigi, stórsvigi og
alpatvíkeppni.
Það eru fjórtán ár síðan Aamodt
sigraði í fyrsta sinn á Ólympíu-
leikum en hann hefur unnið til
átta verðlauna á ÓL og er hann
sigursælasti keppandinn frá upp-
hafi í alpagreinum á Ólympíu-
leikum. Hann er 34 ára gamall en
hann sigraði í risasvigi árið 2002
og einnig í alpatvíkeppni og árið
1992 sigraði hann í risasvigi.
Aamodt átti við meiðsli að stríða
í hné eftir að hafa meitt sig í brun-
keppninni en hann fótbrotnaði árið
2004 og var óvíst að hann gæti
haldið áfram að keppa. „Það er
ekki á hverjum degi sem einhver
getur varið Ólympíugull og það er
mjög sérstakt að vera efstur þegar
Hermann Maier er í öðru sæti,“
sagði Aamodt. Maier, sem er 33
ára gamall, hefur ekki unnið til
verðlauna á ÓL frá því að hann
vann til tvennra gullverðlauna í
Nagano árið 1998. „Hermann
Maier í dag er ekki sá sami og ár-
ið 1998. Ég hefði getað sigrað en
ég lét tækifærið ganga mér úr
greipum,“ sagði Maier.
Bode Miller frá Bandaríkjunum
féll úr keppni en hann hefur ekki
unnið til verðlauna það sem af er
ÓL.
Shani Davis frá Bandaríkj-
unum sigraði í 1.000 metra skauta-
hlaupi í karlaflokki en hann er
fyrsti blökkumaðurinn sem sigrar
í einstaklingskeppni á vetr-
arleikum en hinn 23 ára gamli
Davis kom í mark á unda landa
sínum Joey Cheek en Hollending-
urinn Erben Wennemars varð
þriðji. Vonetta Flowers frá Banda-
ríkjunum varð fyrsti blökkumaður-
inn sem vann til gullverðlauna á
Ólympíuleikum en hún sigraði í
kvennaflokki í keppni á tveggja
manna bobsleðum árið 2002 í Salt
Lake City.
Aamodt kom, sá og sigraði
Reuters
Kjetil Andre Aamodt, frá Noregi, fyrir miðju á myndinni er sig-
ursælasti karlmaður í alpagreinum á Vetrarólympíuleikum frá
upphafi eftir sigurinn í risasvigi á laugardag. Með Aamodt á
myndinni eru Austurríkismaðurinn Hermann Maier, t.h., og
bronsverðlaunahafinn Ambrosi Hoffman frá Sviss.