Morgunblaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 B 3 BARCELONA og Real Madrid hrósuðu bæði sigri í spænsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Börsungar komust á sigurbrautina á ný þegar þeir burstuðu Real Betis, 5:1, á Nýv- angi. Juan Melli, varnarmaður Betis, varð fyrir því óláni að skora sjálfmark og það í tvígang en Henrik Larsson, Ronaldinho og Leo Messi gerðu sitt markið hver. Ronaldinho var svo sann- arlega í e-ssinu sínu en þessi magnaði Brasilíumaður fór fyrir liði Barcelona. Hans var sárt saknað af Börsungum í leikjun- um tveimur á undan en Barce- lona tapaði báðum þeim leikjum. Real Madrid er á mikilli sigl- ingu en liðið vann sjötta deild- arleik sinn í röð þegar það lagði Alave, 3:0. Guti, Robinho og Cic- inho gerðu mörk Madridarliðs- ins. Valencia er í öðru sæti, sex stigum á eftir Barcelona, eftir sigur á Real Sociedad í gær- kvöldi, 2:1. Mario Reguiero var hetja Valenciumanna en Úrú- gvæinn skoraði bæði mörk sinna manna eftir að Daninn Skoubo náði forystunni fyrir Soceidad eftir aðeins 12 sekúndna leik. ÍSLENDINGALIÐIÐ Stoke varð af miklum fjármunum í gær þegar lið- ið tapaði fyrir Birmingham, 1:0, á heimavelli í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Finnski fram- herjinn Mikael Forsell skoraði sig- urmarkið á 47. mínútu og tryggði þar með Birmingham sæti í 8 liða úrslitunum í fyrsta sinn í 22 ár. Stoke fékk mörg góð marktæki- færi í leiknum en tókst að finna leið framhjá Mike Taylor, markverði Birmingham, sem varði eins og berserkur. Hannes Þ. Sigurðsson lék síðustu 20 mínúturnar fyrir Stoke sem hefur gengið illa eftir áramótin en liðið er í 16. sæti í 1. deildinni. ,,Þessi leikur var alveg eins og við reiknuðum með. Við þurftum svo sannarlega að berjast til síð- asta manns enda veitti Stoke okkur mjög harða keppni. Þetta var ekki beint fögur knattspyrna sem við sýndum en mínir menn börðust hetjulega og uppskáru sigur sem er ég ánægður með,“ sagði Steve Bruce, knattspyrnustjóri Birm- ingham.  Preston, sem hafði spilað 25 leiki í röð án taps, varð loks að játa sig sigrað en liðið beið lægri hlut á heimavelli fyrir Middlesbrough, 2:0. Nígeríumaðurinn Yakubu skoraði bæði mörk „Boro“ sem er á góðu skriði þessa dagana. Taylor bjargvættur Birmingham gegn Stoke ÍSLENDINGALIÐIÐ Lokeren á erfitt uppdráttar þessa dag- ana. Þjálfari liðsins, Aine Antheunis, er í veikindafríi, og liðinu gengur illa. Lokeren tapaði á laugardagskvöldið fyrir Sint-Truiden, 2:1. Rúnar Kristinsson skoraði mark Lokeren á 18. mínútu. Sint- Truiden jafnaði úr vítaspyrnu tíu mínútum síðar og stund- arfjórðungi fyrir leikslok tryggðu gestirnir sér sigur. Rúnar var besti maður Lokeren í leiknum, Davíð Þór Viðarsson sat á bekknum allan tímann en Arnar Grétarsson er frá vegna meiðsla. Indriði Sigurðsson var með betri mönnum Genk sem mátti þola 1:0 tap fyrir Zulte. Rúnar skoraði Undir lok leiksins fótbotnaði AlanSmith, miðjumaður Manchest- er United, mjög illa og var hugur manna hjá Smith eftir leikinn. ,,Við áttum sigurinn skilinn. Við skoruðum markið sem réð úrslitum og sköpuðum okkur nokkur færi en það gerði Manchester United ekki. Við fengum ótrúlega mikinn stuðn- ing frá okkar stuðningsmönnum og það hjálpaði okkur mjög mikið í leiknum.Við erum allir mjög leiðir yfir því sem kom fyrir Smith og við finnum mikið til með honum,“ sagði Rafael Benitz, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir leikinn. ,,Þetta er mikilvægasta markið sem ég hef skorað á ferlinum og að gera það á heimavelli á móti Man- chester United í bikarkeppninni gerist ekki betra. Við vorum í sárum þegar við fengum á okkur mark undir lok leiksins á móti Manchester United á Old Trafford í deildinni og það kom ekki annað til greina en að bæta fyrir það,“ sagði Crouch eftir leikinn. ,,Það er mjög slæmt fyrir okkur að missa Smith og það var hræðilegt að sjá þessi meiðsli hans. Ég get ekki sagt að leikur Liverpool hafi heillað mig en við gerðum bara ein- faldlega ekki nóg til eð eiga mögu- leika á sigri. Eftir að Liverpool skoraði lagðist liðið enn aftar á völl- inn og við náðum því miður ekki að finna smugur á vörn þeirra. Það var áfall fyrir okkur að Rio Ferdinand gat ekki spilað og því miður féllu hlutirnir ekki fyrir okkur að þessu sinni. Við réðum algjörlega ferðinni í seinni hálfleik þó án þess að ná veru- lega að skapa hættu fyrir framan mark Liverpool,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri United.  Hermann Hreiðarsson var í liði Charlton gegn gömlu félögunum í Brentford. Charlton lagði 2. deild- arliðið sannfærandi, 3:1, með mörk- um frá Darren Bent, Jay Bothroyd og Bryan Hughes. ,,Ég var ánægður með leik minna manna. Við vissum að Brentford er gott lið og því var mikilvægt að mæta til leiks með rétt hugarfar. Það var gott að ná marki á þá í upp- hafi leiks og ég fann að markið létti mjög pressunni af mínum mönnum,“ sagði Alan Curbishley, knattspyrnu- stjóri Charlton.  Kieron Dyer tryggði Newcastle farseðilinn í 8 liða úrslit keppninnar þegar hann skoraði eina markið í viðureign Newcastle og Southamp- ton á St. James Park. Fyrstu deildar liðið veitti Newcastle harða keppni en Newcastle hefur nú unnið alla þrjá leiki sína frá því Glenn Roeder tók við stjórn liðsins af Graeme Souness. ,,Við þurftum að hafa mikið fyrir þessum sigri og verð að hrósa þessu unga liði Southampton. Við hefðum alveg getað lent undir og það var mjög ánægjulegt að ná að skora markið sem tryggði okkur áfram,“ sagði Dyer.  Bolton og West Ham gerðu markalaust jafntefli á Reebock vell- inum í Bolton og liðin mætast aftur á heimavelli West Ham, Upton Park. Bæði lið fengu fín færi en leik- menn liðanna voru ekki á skotskón- um. Reyndar skoraði Grikkinn Stel- ios mark fyrir Bolton sem dæmt var af vegna rangstöðu sem reyndist rangur dómur. ,,Okkur tókst ekki að vinna vegna þess að menn fóru illa með færin sín. Við gerðum okkur erfitt fyrir því við eigum fyrir hönd- um strembinn útileik á móti West Ham,“ sagði Sam Allardyce, stjóri Bolton. AP Peter Crouch fagnar marki sínu ásamt samherjum sínum hjá Liverpool en markið reyndist vera sigurmark leiksins og það sem fleytti Liverpool áfram í 8 liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Crouch var hetja Liverpool á Anfield LIVERPOOL vann langþráðan sigur á Manchester United í ensku bikarkeppninni í knatt- spyrnu á laugardaginn. Liver- pool hafði betur, 1:0, með skallamarki frá hinum hávaxna Peter Crouch. Þetta var fyrsti sigur Liverpool á United í bik- arkeppninni í 85 ár og ríkti mik- ill fögnuður á Anfield þegar Howard Webb dómari flautaði til leiksloka. Sigur Liverpool var sanngjarn en vörn liðsins gaf fá færi á sér og áttu liðsmenn United afar erfitt með að finna glufur á vörn heimamanna. Ronaldinho kom Börs- ungum á sigurbraut EIÐUR Smári Guðjohnsen fylgd- ist með félögum sínum í liði Chelsea úr áhorfendastúkunni á Stamford Bridge þegar Englands- meistararnir lögðu 2. deildarlið Colchester, 3:1, í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í gær. Eiður var hvíldur og fyrirliðinn John Terry tók út leikbann svo þeir ættu að verða ferskir þegar Chelsea tekur á móti Barcelona í Meistaradeildinni á miðvikudags- kvöldið. Fyrir leikinn var rætt um við- ureign Davíðs gegn Golíats og óhætt er að segja að smáliðið hafi komið stórliðinu til að skjálfa því það tók Chelsea 79 mínútur að ná forystunni í leiknum. Ricardo Carvalho varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 28. mínútu en rétt áður hafi boltinn smollið í markstöng Chelsea-marksins. Paulo Ferreira jafnaði metin níu mínútum síðar og á síðustu 10 mínútum leiksins bætti Joe Cole við tveimur mörkum. ,,Við vissum vel að það yrði á brattann að sækja en við vorum svo sannarlega í draumaheimi þegar við náðum forystunni. Það var svekkjandi að fá á sig jöfn- unarmarkið og það drap svolítið í okkur en við náðum verðskuldað forystunni í leiknum. Við bárum virðingu fyrir Chelsea sem hefur nokkra af bestu leikmönnum í heimi í sínu liði en við hræddumst þá ekki neitt,“ sagði Wayne Brown, hinn trausti varnarmaður Colchester, eftir leikinn. ,,Lið Colchester á hrós skilið fyrir frammistöðuna. Liðið spilaði fyrri hálfleikinn virkilega vel og við vorum kannski bara heppnir að vera ekki undir í hálfleik. Fólk reiknaði með því að við myndum vinna stórsigur en liðin í neðri deildunum eru sífellt að verða sterkari og sum þeirra myndu vel sóma sér í hvað deild í heimi sem er,“ sagði Joe Cole, bjargvættur Chelsea, en hann og Frank Lamp- ard voru sendir á vettvang í seinni hálfleik og tókst þeim að glæða lífi í leik sinna manna til muna. Chelsea lengi að brjóta Colchester niður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.