Morgunblaðið - 20.02.2006, Síða 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
4 B MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SIGURÐUR Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkur, leyndi ekki
vonbrigðum sínum eftir tapleik-
inn gegn Grindavík enda ekki á
hverjum degi sem Keflavík tapar
í úrslitum bikarkeppninnar.
Þjálfarinn hrósaði Grindavík og
óskaði þeim til hamingju með tit-
ilinn en að sama skapi sagði hann
sitt lið hafa leikið langt undir
getu. „Það er ömurlegt að leika
svona illa í úrslitaleik sem þess-
um. Það var eins og enginn okk-
ar vildi taka af skarið og þegar
við byrjuðum leikinn illa þá var
eins og allt væri erfitt í fram-
kvæmd. Kannski var spennustig-
ið of hátt. Við hittum illa, lékum
lélega vörn og vorum einfaldlega
slakir. Það er ekki meira um
þetta að segja,“ sagði Sigurður.
Hann var oftar en ekki ósam-
mála dómarapari leiksins á með-
an leikurinn stóð yfir en eftir
leikinn var Sigurður rólegur yfir
þeirra aðkomu. „Ég held að þeir
hafi bara verið að gera sitt besta.
Það vorum við sem vorum að
leika illa og menn bjuggu ekki til
nein færi fyrir aðra leikmenn.
Það varð okkur að falli og einnig
slök vörn.“
„Enginn tók
af skarið“
Bandaríski bakvörðurinn Jerem-iah Johnson hélt Grindvíking-
um á floti í fyrsta leikhluta og skor-
aði 13 stig af alls 26 stigum liðsins
en í liði Keflavíkur bar mest á
Gunnari Einarssyni fyrirliða og
Bandaríkjamanninum AJ Moye.
Níu stig skildu liðin að eftir fyrsta
leikhluta og þann mun náðu leik-
menn Keflavíkur aldrei að brúa.
Helgi Jónas Guðfinnsson tók við
keflinu af Johnson í öðrum leikhluta
og skoraði grimmt fyrir utan
þriggja stiga línuna og var gaman
að sjá Helga Jónas finna fjölina sína
að nýju en hann hefur lítið verið
með undanfarin ár vegna meiðsla og
anna í vinnu.
Grindavík lagði allt kapp á að
stöðva AJ Moye, aðalstigaskorara
Keflavíkur, og sáu nafnarnir Páll
Kristinsson og Páll Axel Vilbergs-
son um að halda honum við efnið.
Páll Axel hefur oft skorað meira en
hann skoraði 7 stig en tók 12 fráköst
og var sá leikmaður sem batt vörn
Grindavíkur saman. Varnarleikur
Grindavíkur hefur alls ekki verið
þeirra aðalsmerki en á laugardaginn
sýndi liðið hvers það er megnugt
þegar allt gengur upp.
Það var þannig andrúmsloft og
stemmning í herbúðum Grindavíkur
að það var nánast sama hver kom
inn á – öll skot fóru ofan í. Gott
dæmi er þegar Ármann Örn Vil-
bergsson, yngri bróðir Páls Axels,
kom inn á undir lok fyrri hálfleiks
og skaut þriggja stiga skoti langt
utan af velli og fór boltinn beint of-
an í körfuna. Þorleifur Ólafsson átti
einnig fína spretti og er athygliverð-
ur leikmaður. Ekki má gleyma
framlagi Péturs Guðmundssonar en
sjálfstraustið var gríðarlegt hjá
Pétri í leiknum en hann skoraði
mikilvæg stig og gaf að auki flottar
sendingar á samherja sína sem gáfu
stig. Pétur er langt frá því að vera í
góðu líkamlegu ásigkomulagi enda
hefur hann verið tvístígandi um
framhaldið hjá sér en í leiknum á
laugardaginn sannaðist að hugurinn
ber mann hálfa leið. Pétur gaf allt
sem hann átti og aðeins meira en
það. Nedsad Biberovic, miðherji
Grindavíkur, lék aðeins í 11 mínútur
í leiknum en hann var drjúgur á
lokakaflanum eftir að Páll Kristins-
son og Pétur Guðmundsson voru
farnir af velli með 5 villur.
Keflavíkingar vilja sjálfsagt
gleyma þessum leik sem fyrst. Leik-
ur þeirra var ómarkviss og lítið um
að menn sköpuðu færi fyrir aðra,
boltinn gekk illa í sóknarleiknum og
skyttur liðsins fengu ekkert rými til
þess að athafna sig. Gunnar Ein-
arsson lék ágætlega og AJ Moey
einnig – Magnús Gunnarsson reyndi
hvað hann gat en skoraði megnið af
stigum sínum undir lok leiksins þeg-
ar úrslitin voru nánast ráðinn. Skap
Keflavíkinga var mikið og fór mikil
orka í að argast og skammast í dóm-
araparinu en það dugði ekki til þess
að breyta gangi mála – ekki frekar
en áður.
Grindavík átti sigurinn sannar-
lega skilið enda var liðið betra á öll-
um sviðum íþróttarinnar en það sem
stendur kannski uppúr er „endur-
koma“ Helga Jónasar sem lék
hreint út sagt frábærlega og ætlar
sér greinilega að mæta sterkur til
leiks á lokaspretti keppnistímabils-
ins – sem gæti verið hans síðasta.
Guðlaugur Eyjólfsson, Páll Kristinsson og Jeremiah Johnson voru í lykilhlutverkum í bikarúrslitu
Grindavík
skaut Kefla-
vík á kaf
GRINDVÍKINGAR voru með hugann við efnið í bikarúrslitaleik karla í
körfuknattleik gegn Keflavík á laugardaginn í Laugardalshöll. Í
stuttu máli sagt var Grindavíkurliðið mun betra á öllum sviðum
íþróttarinnar og áttu Keflvíkingar ekki möguleika gegn sterkri vörn
Grindavíkur en Grindavík skoraði 93 stig gegn 78. Og á sama tíma
geigaði varla skot í sóknarleik Grindvíkinga en það virtist sem búið
væri að setja loka á körfuna hjá Grindavík þar sem stórskyttur
Keflavíkur áttu afleitan dag og margir þeirra hefðu ekki hitt sjóinn
þótt þeir hefðu staðið á bryggjunni – það fór ekkert ofan í. Grindavík
hefur aldrei tapað í bikarúrslitaleik en þetta var fjórði bikarmeist-
aratitill félagsins.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Ég hef hægt og bítandi verið að komainn í þetta aftur eftir að hafa tekið
mér frí í nóvember. Í svona leik gefur
maður allt sem maður á og kannski að-
eins meira en það,“ segir Helgi og er
sammála því að hann líti út fyrir að hafa
meira gaman af því að leika en áður.
„Jú, maður sér hlutina aðeins í öðru
ljósi þegar það er að líða að lokum ferils-
ins. Maður á ekki mikið eftir, þetta gæti
hafa verið síðasti bikarúrslitaleikurinn
sem ég leik. En það bendir allt til þess að
þetta verði síðasta tímabilið hjá mér. En
ég hef aldrei upplifað að tapa í bikarúr-
slitum og mun líklega ekki gera það úr
þessu,“ segir Helgi en hann rekur lík-
amsræktarstöð í Grindavík og á von á
sínu fyrsta barni með eiginkonu sinni.
Græni dúkurinn illræmdi
„Ég get ekki æft eins og ég vildi gera.
Stundum næ ég bara tveimur æfingum á
viku þar sem ég er frá upphafi til enda og
stundum næ ég bara hálftíma í lok æf-
Helgi segir að hann hafi mætt til leiks
úrslitaleikinn gegn Keflavík með það a
markmiði að njóta þess að leika og þa
var auðvelt að „gíra“ sig upp með þa
markmið í huga.
Síðasti leikurinn í „Höllinni“
Kannski er þetta síðasti leikurinn sem
ég leik í Laugardalshöllinni og það va
næg gulrót fyrir mig.“
Helgi hrósaði félaga sínum Pétri Guð
mundssyni fyrir hans framlag en han
telur að Pétur muni eflaust bæta sig en
frekar á næstu vikum. „Ef Pétur væri
ingar. Þetta er sá raunveruleiki sem ég
hef búið við undanfarin ár. Þetta er hlut-
skipti sem ég valdi mér og ég kvarta
ekki. Það er kannski helsta ástæðan fyrir
því að ég tel að þetta verði mitt síðasta
tímabil. Ég get ekki æft eins og ég vildi
gera og á meðan ég er með þetta fyr-
irtæki í rekstri sé ég ekki að það breytist
á næstu árum. Ég er ekki nema þrítugur
og ætti að eiga mörg ár eftir og þrátt fyr-
ir að það sé komið parketgólf í Grindavík
er það ekki næg gulrót. Maður fór illa
með skrokkinn á sér á „græna“ dúknum
og eftir að hafa hlaupið um á því gólfi í
rúm 25 ár er margt í ólagi hjá manni.“
Helgi segir að hugarfarið í herbúðum
Grindvíkinga hafi verið rétt í úrslita-
leiknum. „Það var eitthvað andrúmsloft
sem myndaðist í hópnum fyrir leikinn
sem gaf af sér þann kraft sem einkenndi
okkur. Þegar við leikum með þessum
hætti og hittum úr langskotunum er ekk-
ert sem stöðvar okkur. Vörnin er að
batna og hvað sjálfan mig varðar hef ég
sett mér það markmið að leika vörnina af
meiri krafti og leyfa öðrum leikmönnum
að njóta sín í sóknarleiknum.“
„Hef á ný gaman af því sem ég er að gera,“ segir Helgi Jónas Gu
bikarmeistaraliðs Grindavíkur, en hann ætlar að hætta
„Minn síðas
bikarúrslitalei
HELGI Jónas Guðfinnsson, leikmaður Grindavíkur, er ekki gamall í hett-
unni sem íþróttamaður enda rétt að verða þrítugur en hann hefur samt
sem áður verið í fremstu röð íslenskra körfuknattleiksmanna í um 15 ár.
Á undanförnum misserum hefur Helgi Jónas látið fara lítið fyrir sér
vegna meiðsla og anna í vinnu en hann sýndi hvað í honum býr í úrslita-
leiknum gegn Keflavík – þar sem hann kom vel stemmdur til leiks og
lagði grunninn að fjórða bikarmeistaratitli liðsins.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Helgi Jónas Guðfinnsson, leik-
maður Grindavíkur, fagnaði
bikarmeistaratitlinum í þriðja
sinn á laugardaginn.