Morgunblaðið - 20.02.2006, Síða 8
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir
varð í 28. sæti í alpatvíkeppni.
Hún var í 30. sæti eftir svigið í
tvíkeppninni, 11,38 sekúndum
á eftir Marlies Schild frá Aust-
urríki, en í brunkeppninni
varð hún í 16. sæti, 2,25 sek-
úndum á eftir Janicu Kostelic
frá Króatíu. 43 keppendur
hófu keppni í alpatvíkeppninni
og tókst 30 þeirra að ljúka
keppni.
Kostelic varð ólympíu-
meistari í tvíkeppninni og
vann þar með sín fernu gull-
verðlaun á Ólympíuleikum.
Marles Schild, Austurríki,
varð önnur og Anja Pärsson,
Svíþjóð, þriðja. Kostelic var í
öðru sæti eftir svigið en í
bruninu varð hún hálfri sek-
úndu á undan Schild og það
dugði henni til að ná efsta sæt-
inu.
Dagný Linda átti að keppa í
risasvigi í gær en keppninni
var frestað um einn dag vegna
veðurs.
Dagný
Linda
í 28. sæti
STURLA Ásgeirsson skoraði 1
mark fyrir Århus GF þegar liðið
gerði jafntefli, 30:30, við Bjerr-
ingbro/Silkeborg í dönsku úrvals-
deildinni í handknattleik í gær.
VIGNIR Svavarsson skoraði 3
mörk fyrir Íslendingaliðið Skjern
sem lagði Ringsted á útivelli, 28:24.
Vilhjálmur Halldórsson skoraði 1
mark fyrir Skjern en Jón Þorbjörn
Jóhannsson komst ekki á blað fyrir
liðið.
GÍSLi Kristjánsson skoraði 2
mörk fyrir Ajax í tapi liðsins gegn
Viborg, 28:24.
DANÍEL Ragnarsson skoraði 2
mörk fyrir Team Helsinge þegar lið-
ið tapaði fyrir AaB, 39:26.
ÓLAFUR Stefánsson kom ekkert
við sögu hjá Ciudad Real þegar liðið
sigraði Algeciras, 31:19, í spænsku
1. deildinni í handknattleik á laug-
ardag. Ciudad Real er í þriðja sæti
deildarinnar.
EINAR Örn Jónsson lék ekki með
Torrevieja vegna meiðsla en lið hans
sigraði Aragrón, 29:25. Torrevieja
er í áttunda sæti deildarinnar.
RAGNAR Óskarsson skoraði 4
mörk fyrir Ivry þegar liðið lagði
meistarana í Montpellier, 24:23, í
frönsku 1. deildinni í handknattleik
um helgina. Luc Abalo, hægri horna-
maður í Evrópumeistaraliði Frakka,
skoraði sigurmarki Ivry úr vonlausu
færi þegar 3 sekúndur voru til leiks-
loka.
BJARNI Fritzson skoraði 4 mörk,
fyrir Créteil, þar af eitt úr vítakasti,
þegar liðið sigraði Toulouse, 31:24.
LOGI Gunnarsson skoraði 15 stig
fyrir Bayreuth þegar liðið tapaði
fyrir Ehingen, 91:87, í þýsku 2.deild-
inni í körfuknattleik.
JAKOB Sigurðarson komst ekki á
blað fyrir Bayer Leverkusen sem
sigraði Köln, 74: 68, í þýsku úrvals-
deildinni. Jakob lék aðeins í fjórar
mínútur í leiknum.
HLYNUR Bæringsson, leikmaður
hollenska úrvalsdeildarliðsins Woon
Aris, skoraði 14 stig og tók 8 fráköst
er liðið tapaði á heimavelli um
helgina gegn Eiffel Towers 97:73.
Hlynur er næst frákastahæsti leik-
maður deildarinnar með tæp 12 frá-
köst að meðaltali í leik. Hann skorar
12 stig að meðaltali.
FÓLK
JOO Mi Kim frá S-Kóreu sigraði á
SBS-mótinu á bandarísku kvenna-
mótaröðinni í golfi sem fram fór á
Hawaii og lauk á sunnudaginn. Hún
hafði betur í bráðabana gegn Soo
Young Moon sem einnig er frá S-
Kóreu en Kim sigrað á 2. holu í
bráðabana og er þetta í fyrsta sinn
sem hún sigrar á LPGA-mótaröð-
inni. „Ég er ánægð, spennt og mér
líður eins og ég sé að upplifa
draum. Ég hafði ekki hugsað um
sigur á þessu móti og einbeitti mér
þess í stað að leika eina holu í einu
og halda stöðu minni á meðal þeirra
efstu,“ sagði Kim en hún fékk rúm-
lega 10 millj. kr. fyrir sigurinn.
Þrír keppendur voru efstir og
jafnir að loknum 54 holum, Kim,
Moon og Lorena Ochoa frá Mexíkó
en þær voru allar á 10 höggum und-
ir pari en Ochoa féll úr keppni á
fyrstu holu bráðabanans en Moon
og Kim fengu báðar fugl á þeirri
holu en Ochoa átti fína möguleika á
að gera slíkt hið sama. Sung Ah
Yim frá S-Kóreu og Becky Iverson
frá Bandaríkjunum voru í efsta sæti
mótsins ásamt Kim að loknum 36
holum en Yim og Iverson léku loka-
hringinn á 75 höggum.
Morgan Pressel frá Bandaríkj-
unum, sem er yngsti keppandinn á
LPGA-mótaröðinni sem er með full-
an keppnisrétt, lék á 209 höggum.
Hún tók þátt í fyrsta sinn sem at-
vinnumaður á þessu móti og endaði
í fimmta sæti á 7 höggum undir
pari en Pressel er aðeins 17 ára
gömul. Paula Creamer, nýliði árs-
ins 2005, endaði í 13. sæti á fimm
höggum undir pari.
Kim
fagnaði á
Hawaii
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni,bætti met Guðrúnar Ingólfs-
dóttir, Ármanni, í flokki 21–22 ára,
þegar hún varpaði kúlunni 13,70
metra, en gamla metið var 13,47
metrar frá árinu 1979.
Í öðru sæti varð Ragnheiður Anna
Þórsdóttir, FH, með 11,87 metra og
þriðja Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir,
USVH, varpaði 11,81m.
Þorsteinn Ingvarsson, HSÞ, bætti
metin í þremur aldursflokkum í þrí-
stökki, en hann sigraði með 14,66
metra stökki. Hann bætti eigið met í
drengjaflokki um 21 cm (var 14,45 m
frá sl. ári) og met Friðriks Þórs Ósk-
arssonar, ÍR, í flokkum 19–20 ára og
21–22 ára, sem var 14,46 m frá árinu
1972. Íslandsmet karla er 14,92 m í
eigu Friðriks Þórs, svo Þorsteinn
var 26 cm frá því að þessu sinni.
Annar varð Bjarki Gíslason, UFA,
með 12,77 metra og þriðji Bjarni
Malmquist, USÚ, með 12,62 m.
Sveinn bætti met Þorsteins Ingv-
arssonar, HSÞ, í 60 m hlaupi
drengja (17–18 ára), um 11/100 úr
sek., þegar hann sigraði í þeirri
grein á 6,97 sek. Hann bætti einnig
met Sigurkarls Gústavssonar, UM-
SB, í flokki 19–20 ára, en það var
7,06 frá árinu 2004 með rafmagns-
tímatöku, en einnig er skráð met á
handtíma, 6,7 sek., sem Einar Þór
Einarsson, Ármanni, á.
Annar í 60 m hlaupinu var Þor-
steinn á 7,06, sem einnig var undir
gamla metinu sínu og þriðji Guð-
mundur Daði Kristjánsson, UMFA,
á 7,10 sek.
Kári Steinn Karlsson, Breiðabliki,
bætti met Sveins Margeirssonar,
UMSS, í 3000 m hlaupi í tveimur
aldursflokkum unglinga (19–20 ára
og 21–22 ára) um rúmlega 3 sek.,
þegar hann sigraði á 8.31,67 mín.
Annar varð félagi Kára Steins úr
Breiðabliki, Stefán Guðmundsson á
8.37,31 mín., og þriðji Ingvar Hauk-
ur Guðmundsson, Fjölni, á 9:30,87
mín.
Þá bætti Íris Anna Skúladóttir,
Fjölni, metin í þremur aldursflokk-
um (17–18 ára, 19–20 ára og 21–22
ára) í 3.000 m hlaupi, þegar hún sigr-
aði í þeirri grein á 10.01,70 mín., eft-
ir hörkukeppni við Fríðu Rún Þórð-
ardóttir, ÍR, sem kom önnur í mark
á 10.01,92 mín. Þriðja varð Arndís
Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, á 10.34,06
mín.
Sveinn fór undir 50 sekúndur
Á seinni keppnisdegi í gær bætti
Sveinn Elías tvö met í 400 m hlaupi
þegar hann kom örugglega fyrstur í
mark á 49,74 sek. og bætti eigið
drengjamet, sem var 50,25 sek. og
um leið tveggja ára gamalt met Sig-
urkarls Gústavssonar, UMSB, í
flokki 19–20 ára, en það var 49,87
sek.
Þá setti Einar Daði Lárusson, ÍR,
nýtt met í 60 m grindahlaupi sveina
(karlhæð á grindum, 1,07 m) en hann
varð í öðru sæti í þeirri grein á 8,63
sek., sem er afar athyglisverður ár-
angur hjá 16 ára gömlum strák.
Ólafur Guðmundsson, HSÞ, sigraði
á 8,46 sek. í grindahlaupinu.
Ný met verða einnig skráð í 4 x
400 m boðhlaupi karla og fimm ald-
ursflokkum kvenna, en keppt var í
þeirri grein í fyrsta sinn að þessu
sinni.
Kvennasveit Fjölnis sigraði á
3.59,34 mín og fær skráð met í flokki
stúlkna, unglinga og kvenna. Meyja-
sveit ÍR, sem varð í 3. sæti á 4.29,17
mín., fær nýtt met skráð í meyja-
flokki.
Í 4 x 400 m boðhlaupi karla sigraði
sveit HSÞ á 3.29,88 mín., og fær
skráð Íslandsmet í karlaflokki í
þeirri grein.
Silja Úlfarsdóttir, FH, sigraði í
tveimur greinum í gær, í 60 m
grindahlaupi á 8,98 sek. og í 400 m
hlaupi á 55,83 sek.
Þorsteinn Ingvarsson, HSÞ, Sig-
urbjörn Árni Arngrímsson, HSÞ, og
Íris Anna Skúladóttir, Fjölni, unnu
öll tvær einstaklingsgreinar hvert á
mótinu, auk þess að vera í sigur-
sveitum í 4 x 400m boðhlaupum og
fengu þau því einnig þrenn gullverð-
laun um helgina, eins og Silja.
Sveinn Elías vann einnig tvær ein-
staklingsgreinar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Silja Úlfarsdóttir, hlaupakona úr FH, kom til landsins frá Bandaríkjunum til að keppa á mótinu.
Hún vann sigur í þremur greinum, fleiri en nokkur annar keppandi á mótinu.
Á annan tug
meta var sleginn
Á ANNAN tug meta féll á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum sem
haldið var í Laugardalshöll um helgina. Silja Úlfarsdóttir, hlaupa-
kona úr FH, kom heim frá Bandaríkjunum og tók þátt í mótinu og
vann örugglega í þremur greinum, 60 m hlaupi, 60 m grindahlaupi
og 400 m hlaupi. Hinn ungi og efnilegi frjálsíþróttumaður úr Fjölni,
Sveinn Elías Elíasson, bætti fjögur met og kemur vart svo inn í mót í
frjálsíþróttahluta Laugardalshallarinnar án þess að setja met. Þá er
Þorsteinn Ingvarsson, HSÞ, farinn að nálgast meira en aldarfjórð-
ungsgamalt Íslandsmet Friðriks Þórs Óskarssonar í þrístökki.
CHARLIE Wi, kylfingur frá S-
Kóreu, sigraði á Maybank mótinu í
golfi sem fram fór í Malasíu og
gerði út um vonir Thongchai Jaidee
frá Taílandi að sigra á þessu móti
þriðja árið í röð. Wi fékk fugl á
lokaholu mótsins og tryggði sér sig-
ur en hann var einu höggi betri en
Jaidee. Lokahringurinn hjá Wi var
magnaður en hann lék á 63 högg-
um, 9 höggum undir pari, og var
samtals á 19 höggum undir pari.
Keppnin átti að vera 72 holur en
síðasta umferðin var slegin af
vegna rigninga og þrumuveðurs og
voru aðeins leiknar 54 holur. Þetta
er í sjöunda sinn sem Wi sigrar á
Asíumótaröðinni en mótið var einn-
ig hluti af Evrópumótaröðinni og er
þetta í annað sinn sem kylfingur frá
S-Kóreu sigrar á Evrópumótaröð-
inni.
Thongchai ætlaði sér að verða
fyrsti kylfingurinn til þess að vinna
þetta mót þrjú ár í röð en hann lék
á 66 höggum á lokahringnum og
missti af sigrinum með því að mis-
nota pútt á lokaholunni fyrir fugli.
Hann varð að láta annað sætið
duga.
Wi gerði út
um vonir
Jaidee