Morgunblaðið - 09.03.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 21
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Höfn | Blúshátíðin Norðurljósablús,
sem fram fór á Höfn um liðna helgi
tókst feiknavel að dómi aðstandenda
hennar og gesta.
Tuttugu og fimm tónlistarmenn í
sjö hljómsveitum komu fram á tíu
blústónleikum og var blúsað á fjór-
um stöðum í bænum.
Þeir sem komu fram um helgina
voru Blúskompaníið, KK, Mood,
Kentár, Vax og Síðasti sjens.
Einnig stjórnuðu Sæmi Harðar og
félagar blúsdjammi í Nýheimum á
föstudag og laugardag.
Aðalgestirnir á Norðurljósablús
2006 var sænska blúshljómsveitin
Emil & the Ecstatics. Sveitin lék á
tvennum tónleikum.
Emil Arvidsson, söngvari og gít-
arleikari sveitarinnar, var himinlif-
andi eftir hátíðina sem honum
fannst takast mjög vel. „Ég hef spil-
að á 10–20 blúshátíðum á Norð-
urlöndunum síðustu ár og nokkuð
margar af þessum hátíðum hafa ver-
ið haldnar ár eftir ár. Samt er alltaf
eitthvað sem ekki gengur upp.
Hér á Höfn var skipulagningin
frábær og mjög vel hugsað um að
allt væri sem best.
Það er ótrúlegt að verið sé að
halda þessa hátíð í fyrsta sinn,“ seg-
ir Emil Arvidsson.
Það má segja að blúsað hafi verið
fyrir alla aldurshópa á Höfn um
helgina, því KK heimsótti alla
grunnskóla staðarins á föstudaginn
og á laugardaginn fór hann ásamt
Magnúsi Eiríkssyni og Þorleifi Guð-
jónssyni á dvalarheimilið og tók lag-
ið fyrir gamla fólkið.
Hornfirska skemmtifélagið stend-
ur fyrir Norðurljósablús og er þetta
fimmta verkefni félagsins. Stefnt er
að því að hátíðin verði árlegur stór-
viðburður.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Djammað á sviðinu Mats Hammarlöf, Emil Arvidson, Tom Steffensson og Johan Bendrik.
Blúsliðið á Höfn
harðánægt
Egilsstaðir | Kynning á náms-
framboði íslenskra háskóla fer
fram á Egilsstöðum fimmtu-
daginn 9. mars frá kl. 12–17 í
Menntaskólanum á Egilsstöð-
um. Segir í fréttatilkynningu að
gestir og gangandi geti komið
og kynnt sér fjölbreytt náms-
framboð háskólanna, t.d.
viðskiptalögfræði, listnám,
hrossarækt, fjölmiðlafræði,
landslagsarkitektúr, sálfræði,
kennaranám, hagfræði, iðju-
þjálfun og svo mætti lengi telja.
Þeir skólar sem taka þátt eru
Háskólinn á Akureyri – www.-
unak.is, Háskólinn í Reykjavík
– www.ru.is, Hólaskóli – Há-
skólinn á Hólum – www.holar-
.is, Kennaraháskóli Íslands –
www.khi.is, Landbúnaðarhá-
skóli Íslands – www.lbhi.is,
Listaháskóli Íslands – www.lhi-
.is, Viðskiptaháskólinn Bifröst
– www.bifrost.is og Háskóli Ís-
lands – hi.is.
Eru allir hvattir til að mæta
og nýta sér tækifærið til að
kynna sér háskólanám á einum
stað, á einum degi, og taka ekki
eina af stærstu ákvörðunum
ævinnar án þessa að kynna sér
málin vel.
Kynning á
námsframboði
háskólanna í ME
Stóri
háskóla-
dagurinn
Fréttasíminn
904 1100