Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 1
Fimmtudagur
8. júní 2006
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Sagnfræðingur í
fjárfestatengslum
Sigurborg Arnarsdóttir hjá
Össuri sýnir á sér hina hliðina
í innlendri svipmynd | 16
Dýravinur í
Hvíta húsinu
Nýr fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, Hank Paulson,
á litríkan feril að baki | 6
Michael F. Hassing, forstjóri
Samskipa, telur félagið eiga
mörg vaxtartækifæri | 10
Hrífst af krafti
Íslendinga
EF vel gengur með útgáfu frí-
blaðsins Nyhedsavisen í Dan-
mörku stefnir Dagsbrún að því að
gefa út svipað blað í fleiri löndum.
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri
Dagsbrúnar, sagði við Morgun-
blaðið á kynningarfundi með fjár-
festum í Bretlandi í gær að félagið
myndi einbeita sér að löndum með
5–10 milljónir íbúa. Ekki væri ein-
göngu horft til Skandinavíu.
Gunnar Smári sagði að prentfyr-
irtækið Wyndeham Press Group,
sem Dagsbrún keypti nýverið,
myndi nýtast í þessari útrás, þó að
hún ætti sér ekki endilega stað í
sama landi og Wyndeham væri
með prentsmiðjur. Hann sagði það
ekki útilokað að ráðist yrði í útgáfu
á stærri mörkuðum eins og t.d. í
Bretlandi, en það væri hins vegar
gríðarlega stór ákvörðun. Ekki
stæði til að gefa út blað í London.
Dagsbrún ætlaði á næstunni að
einbeita sér að minni mörkuðum,
sem þó væru margfalt stærri en
Ísland.
Meðal viðstaddra á kynningar-
fundinum í gær, sem fór fram á
hóteli skammt frá London, voru
fulltrúar frá íslenskum bönkum,
lífeyrissjóðum og prentmiðlum auk
ýmissa fjárfesta. Innlend sem og
erlend starfsemi félagsins var
kynnt en framsögu höfðu þeir Paul
Utting, forstjóri Wyndeham Press
Group, Bjarni Birgisson frá Kög-
un, Svenn Dam, forstjóri 365
Media Scandinavia, sem um þessar
mundir vinnur að undirbúningi á
fríblaðinu Nyhedsavisen í Dan-
mörku, og Gunnar Smári.
Prentmarkaður að stækka
Eftir stutt ávarp Þórdísar Sigurð-
ardóttur, stjórnarformanns Dags-
brúnar, kynnti Paul Utting starf-
semi Wyndeham Press Group.
Samstæðan er eitt af stærstu
prentfyrirtækjum í Bretlandi og
býður upp á prentlausnir fyrir út-
gefendur, auglýsendur og mark-
póst um allt Bretland. Utting sagði
að það væri útbreiddur misskiln-
ingur að prentmarkaðurinn væri í
stöðugri niðursveiflu, meðal ann-
ars vegna netsins. Að hans sögn er
markaðurinn í Bretlandi enn að
stækka og tók hann sem dæmi að
tímaritaútgáfa hefði aldrei verið
jafnmikil og nú. Wyndeham prent-
ar um 600 titla í hverjum mánuði
og er leiðandi á sviði tímarita-
prentunar í Bretlandi. Fyrirtækið
prentar ekki dagblöð en í máli Ut-
ting kom fram að það hefði lagt
áherslu á að bjóða upp á heild-
arlausnir fyrir viðskiptavini sína
og tók hann sem dæmi hvernig
Wyndeham þjónustar stórar versl-
unarkeðjur á borð við Tesco. Með-
al annarra stórra viðskiptavina
Wyndeham eru ýmsar fjármála-
stofnanir, bílaframleiðendur og
ríkið. Alls starfa um 1.600 manns
hjá fyrirtækinu sem starfrækir 15
prentsmiðjur víðs vegar um Bret-
land, en gestir fóru að loknum
fundinum í skoðunarferð um
prentsmiðju þess sem er í Essex.
Stefna að 900.000 eintökum
Næstur í pontu var Svenn Dam,
forstjóri 365 Media Scandinavia. Í
máli hans kom fram að fríblaðið í
Danmörku væri einungis fyrsta
verkefni félagsins. Langtímaverk-
efnið væri að félagið yrði stór hluti
af fjölmiðlalandslaginu í Dan-
mörku, svipað og 365 á Íslandi.
Dam sagði að stefnan væri strax
sett á það að Nyhedsavisen yrði
stærsta dagblaðið í Danmörku og
myndi blaðið fyrst í stað koma út í
500.000 þúsund eintökum en stefnt
væri að því að árið 2008 yrðu ein-
tökin orðin 900.000 og myndi blað-
ið þá ná til um 1,6 milljón lesenda.
Dam sagðist ekki óttast sam-
keppni fríblaða keppinauta 365 og
sagði að aðrir væru ekki að taka
frumkvæði, heldur einfaldlega að
herma eftir. Það gengi ekki upp.
Stefnt er að því að útgáfan komi út
á sléttu eftir 3–5 ár.
Dagsbrún horfir til fleiri
landa með útgáfu fríblaða
Hyggst einbeita sér að löndum með fimm til tíu milljónir íbúa, ekki eingöngu á Norðurlöndunum
Eftir Jón Gunnar Ólafsson í London
jongunnar.olafsson@gmail.com
Fríblöð Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, Bjarni Birgisson,
framkvæmdastjóri Kögunar, og Svenn Dam, forstjóri 365 Media Scand-
inavia, á kynningarfundi með fjárfestum í Bretlandi í gær.