Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 8
100. LANDSLEIKUR KVENNA 8 D FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ og hefur verið liðsstjóri með a- landsliðinu nokkur undanfarin ár. „Ég nýt þess að fá að vera með þessum stelpum. Það var frábært að vera með yngri liðunum og þar var maður í hlutverki mömmu þeirra. Þegar Hólmfríður, eldri dóttir mín, komst í 17 ára liðið færði ég mig upp í 19 ára liðið til þess að hún fengi að njóta sín og þegar hún komst síðan í 19 ára liðið varð ég liðsstjóri með a-liðinu. Yngri dóttir mín, Greta Mjöll, hef- ur síðan unnið sér sess þar og kannski á ég að hætta og leyfa henni að njóta sín. En ég nýt þess mjög að fá tækifæri til að vera þarna með stelpunum og þótt ég sé hætt að fá fiðring í tærnar fæ ég alltaf sting í hjartað og fyllist stolti þegar þjóðsöngurinn er leikinn.“ Það var alltaf draumur Ástu að leika alvöruleik með dætrum sín- um, þótt það hafi ekki ræst sér hún ekki eftir neinu á ferli sínum. Stærsta stundin á ferlinum var þegar hún var útnefnd knatt- spyrnumaður ársins árið 1994. „Þegar ég var útnefnd knatt- spyrnumaður ársins fann ég að ég sem buðu upp á kvennaknatt- spyrnu. Í dag er ég mjög stolt af því að hafa verið einn af frumkvöðl- um kvennaknattspyrnunnar á Ís- landi. Þegar maður fer á mót eins og Símamótið hjá Breiðabliki og sér þá gríðarlegu uppbyggingu sem orðið hefur fyllist ég stolti yfir því að hafa átt hlut að máli. Á mínum upphafsárum í boltanum var bara einn flokkur, meistaraflokkur. Þar byrjuðu allir.“ Æfingarnar betur nýttar eftir að börnin komu í heiminn Ásta lék undir stjórn nokkurra landsliðsþjálfara á ferli sínum. Hún vill ekki gera upp á milli þeirra en tekur fram að sér þykir vænt um það traust sem Sigurður Hannes- son sýndi henni er hann valdi hana í landsliðið í seinna skiptið sem hann tók að sér að stýra landsliðinu á árinu 1992. „Ég ætlaði ekki að gefa kost á mér í landsliðið, enda komin á 32. aldursár. En þegar ég heyrði þær sögur að ég hefði aðeins verið valin af gömlum vana kom upp í mér keppnisskapið og ég vildi sýna fram á að hann hefði valið mig vegna hæfileikanna en ekki vegna fornrar frægðar. Ég tel líka að ég hafi verið betri síðustu árin mín í boltanum en fyrr. Þar skiptir mestu að maður fer með allt öðru hugarfari á æfingar og í leiki eftir að maður hefur átt börn en áður. Þegar börnin eru komin fer maður á æfingar til að nýta þann tíma sem maður átti fyrir sjálfan sig sem best og það var hundleiðinlegt að koma heim eftir æfingu þar sem ekkert var tekið á. Það eru mörg dæmi um það að kon- ur sem hafa eignast börn verði meiri afreksmenn á eftir og ég vil meina að það sé vegna þess að þá nýtir maður tíma sinn betur,“ segir Ásta, sem á tvær dætur, þær Hólm- fríði Ósk og Gretu Mjöll, með eig- inmanni sínum, Samúel Erni Er- lingssyni. Ragna Lóa prinsessan Á ferli sínum með landsliðinu lék Ásta með mörgum minnisstæðum leikmönnum, hún nefnir sérstak- lega Rögnu Lóu Stefánsdóttur. „Ragna Lóa var alltaf prinsessan á meðan ég var drottningin, enda elsti leikmaður liðsins. Sem drottn- ing fékk ég að velja mér arftaka og þá kom engin önnur til greina en Ragna Lóa og tók hún við stöðu drottningar þegar ég hætti.“ Ásta segist eiga margar minn- Á sta tók þátt í öll- um landsleikj- um Íslands frá árinu 1981 til ársins 1994 að þremur leikjum undanskildum sem hún varð af vegna þess að hún var með barni. Fyrsti leikur hennar var gegn Skotum í Dumbarton í Skotlandi hinn 21. september 1981, en síðasti leikur hennar var gegn Englandi í Brighton 30. október 1994. Ásta lék 26 landsleiki á ferli sínum og skor- aði í þeim átta mörk, þar af í báðum þessum tímamótaleikjum, þeim fyrsta og þeim síðasta. Ásta var meira en tilbúin að rifja upp landsliðsferilinn þegar eftir því var leitað en hún kvaðst þó ekki muna mikið eftir fyrsta landsleikn- um. „Ég man eftir því hvað mér fannst við búa við mikinn lúxus þegar við fórum í þessa ferð. Við fengum allt sem við þurftum, æf- ingagalla og allan búnað, án þess að þurfa að hafa neitt fyrir því svo okkur leið eins og drottningum. Stelpurnar sem voru með hand- boltalandsliðinu á þessum tíma þurftu að leggja mikið á sig og hafa mikið fyrir hverjum leik en þarna mættum við bara. Okkur þótti mikil upphefð í því að formaður Knattspyrnusambands Íslands, Ellert B. Schram, fór með okkur í þessa ferð og þau Gunnar Sigurðsson og Svanfríður Guðjóns- dóttir úr kvennanefnd KSÍ. Leik- urinn hófst þó ekki vel því mig minnir að það hafi verið leikinn rangur þjóðsöngur í upphafi. Við stóðum þarna og biðum eftir að heyra íslenska þjóðsönginn, sem aldrei kom. Það rigndi líka mikið meðan á leiknum stóð, við vorum í hvítum landsliðsbúningum og þeg- ar þeir blotnuðu þá veittu þeir okk- ur ekki mikla vernd, það sást allt í gegn,“ segir Ásta og hlær við. Fyrsta markið ekki með skalla „Við vorum einu marki undir í hálfleik en Binna (Bryndís Einars- dóttir) skoraði fljótlega í seinni hálfleiknum og ég bætti öðru marki við skömmu síðar. Þessi leikur reyndi mikið á okkur. Hér heima var hver leikur hjá okkur aðeins 35 mínútur, við lékum með bolta nú- ner fjögur og tókum stutt horn. Þarna úti lékum við hins vegar í 45 mínútur með bolta númer fimm og tókum löng horn. Okkur skorti því úthald og við fengum á okkur tvö mörk undir lok leiksins og töpuðum 2:3.“ Aðspurð um fyrsta landsliðs- markið sitt segist Ásta ekki muna mikið eftir því. „Svo það hefur sennilega ekki verið með vinstri eða með skalla. Það var í fyrsta leikum, gegn Skotum. Við reyndum að beita þeim aðferðum sem við Blikarnir beittum helst á þessum tíma, þ.e. að senda stungusending- ar inn fyrir vörnina sem við Binna eltum og það skilaði ágætum ár- angri,“ segir Ásta en átta leikmenn Breiðabliks voru í þessum fyrsta landsliðshópi Íslands. Ásta segir að á þessum tíma hafi verið mikil sam- staða milli leikmanna úr hvaða liði sem þeir komu. „Við þekktumst mjög vel enda voru ekki mörg lið ingar frá þessum tíma en telur að markið sem hún skoraði gegn Hol- lendingum á 86. mínútu árið 1993 sé minnisstæðasta atvikið á ferl- inum. „Með þessu marki þá sama- sem tryggðum við okkur aukaleik um sæti í úrslitakeppni EM. Sá leikur var gegn Englandi og var það síðasti leikur minn með lands- liðinu og ég get ekki neitað því að mér þykir líka vænt um það að hafa skorað í þeim leik þó að það mark hafi ekki dugað til að koma okkur í úrslit EM.“ Vildi ekki enda ferilinn á bekknum Það hefur stundum viljað loða við sóknarmenn að þeir færist aftar á völlinn eftir því sem aldurinn færist yfir. Ásta segist ekki hafa verið tilbúin í það. „Ég vildi ekki ljúka mínum ferli á bekknum eða í vörn- inni, það kom ekki til greina. Frek- ar hætti ég. Það gekk þó ekki þrautalaust því ég hætti árið 1987, en þá féllu Blikarnir og þar sem ég hafði aldrei leikið í 2. deild sló ég til og var með árið 1988. Eftir það varð ekki aftur snúið og þótt ég hafi hætt formlega að spila árið 1995 þá hætti ég þó ekki alveg fyrr en árið 2000, þá orðin 39 ára gömul. Ég lék með Blikunum hluta af sumri árið 1995 og tók þátt í Norð- urlandamóti félagsliða með þeim árið 1996. Ég fékk alltaf fiðring í tærnar á vorin og þetta var eins og súkkulaði, það er erfitt að standast freistingarnar. Síðan kallaði Jör- undur Áki Sveinsson, núverandi landsliðsþjálfari sem þá þjálfaði Breiðablik, á mig fyrir innanhúss- mótið árið 2000. Ég hafði eitthvað verið að sparka með stelpunum inni og ætlaði svo sem ekki að vera mik- ið með á mótinu en það þróaðist þó þannig að vegna meiðsla og leik- banna tók ég þátt í úrslitaleiknum. Það var alveg æðislegt og mér fannst gaman að geta átt þess kost að miðla af reynslu minni til þeirra sem yngri voru. Það fór líka þannig að þegar ég fór inn á hækkaði með- alaldurinn í liðinu um tæp 20 ár.“ Fæ sting í hjartað að heyra þjóðsönginn Ásta segist hafa verið sátt þegar hún hætti loks, þótt hún viðurkenni ekki að hafa nokkru sinni hætt. Er það ekki furða því hún tók fljótlega að sér að sinna störfum fyrir Knatt- spyrnusambandið og sat m.a. í kvennanefnd þess. Þá var hún liðs- stjóri 17 ára og19 ára landsliðsins hafði náð eins langt og hægt var á Íslandi á þessum tíma. Ég fékk símtal í desember árið 1994 frá Eggerti Magnússyni og hann til- kynnti mér að ég hefði verið valin knattspyrnumaður ársins. Ég trúði honum ekki og hélt að það væri verið að gera grín að mér. En þeg- ar Logi Ólafsson landsliðsþjálfari hringdi í mig síðar um kvöldið og óskaði mér til hamingju þá fyrst trúði ég þessu. Þetta ár náði kvennalandsliðið frábærum ár- angri. Við vorum tvær knatt- spyrnukonurnar á lista yfir tíu bestu íþróttamenn Íslands þetta ár- ið, ég og Vanda Sigurgeirsdóttir, sem síðar varð landsliðsþjálfari. Þetta var því ekki aðeins góður ár- angur hjá okkur Vöndu heldur var þetta líka mikil viðurkenning fyrir kvennaboltann á Íslandi.“ Ásta segist ekki sakna neins úr boltanum nema e.t.v. þess að hafa verið valin besta knattspyrnukona landsins af leikmönnum deildarinn- ar. „En það er samt kannski ekkert skrýtið. Á þeim tíma sem ég var að spila áttum við Blikar oft marga góða leikmenn og atkvæðin dreifð- ust þ leikm hinu fleir mað íþrót varp mína best og e henn E Þe vilji segis viðta leiki 1983 og v einu mun um þ sigu væri fjöllu fyrst en R ur a spyr jafna og k eftir hvað þetta land land voru og S Svíu nein sýnd áttum bolta mön enda um f bar mun ástæ eitt- ég m hver Ásta og l land Við vorum eins og drottningar Ás Ástu B. Gunnlaugsdóttur þekkja allir sem fylgst hafa með kvennalandsliði Íslands í knattspyrnu síðustu 25–30 ár. Hún var einn mesti markaskorari landsins um tíma og eftir að hún lagði skóna sína á hilluna hélt hún áfram að vera samferða landsliðinu og er nú liðsstjóri þess. Að auki hefur hún lagt lið- inu til efnilegustu knattspyrnukonu landsins, dótt- ur sína Gretu Mjöll Samúelsdóttur, sem hefur nú unnið sér fastan sess í landsliðshópnum. Ingibjörg Hinriksdóttir ræddi við Ástu B. um litríkan knatt- spyrnuferil hennar og annað.                          ! "    #$  %   #$ &'            !(   ) $ * ! +   ,- ' "   ,- . / $0      1 '        2 3(     4#$   '       4#$  $ )   5   6  5   * "0  5 )!    5    .67!   5  

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.