Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 11
100. LANDSLEIKUR KVENNA MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 D 11 Breytingarnar frá því ég byrjaðihafa allar verið til góðs. Í dag eigum við mun fleiri jafngóða leik- menn. Eins hefur hraðinn aukist og svo auðvitað bónusinn að landsliðið fær fleiri verkefni en hér áður fyrr. Það er nauðsynlegt fyrir framfarir að landsliðið fái næg verkefni. Það skiptir mestu máli fyrir framþróun kvennaboltans á Íslandi að í stjórn- um félaganna séu a.m.k. 2–3 mann- eskjur sem sinni þeim eingöngu. Ég held að það sé engin lausn að breyta fyrirkomulagi deildarkeppn- innar. Mér finnst það verði að vera átta lið í efstu deild. Félögin verða hins vegar að fara í naflaskoðun og virkja þessar stelpur sem þau hafa og efla hjá sér yngri flokkana. Það verður að gera, á þriggja ára fresti, einhverja áætlun sem miðar að markvissri uppbyggingu. Það er alltaf hægt að benda á KSÍ eða ein- hvern annan, sökin á fáum góðum liðum liggur fyrst og fremst hjá fé- lögunum sjálfum. Besta dæmið er ÍA. Það er líka allt í lagi að benda á það að við á Íslandi erum ekkert einsdæmi. Efsta deild kvenna víða á Norðurlöndum á við sama vandamál að stríða, þar er einnig mikill munur á liðunum,“ segir Guðlaug og talar af reynslu en hún lék um nokkurra ára skeið með danska liðinu Bröndby. Hugarfar leikmanna skiptir öllu Guðlaug telur að þótt leiðin á úr- slitakeppni stórmóts sé óneitanlega styttri fyrir kvennalandsliðið heldur en karlana þá vanti enn nokkuð upp á. „Það vantar kannski aðeins upp á getuna í dag en það þarf að breyta heilmiklu í hugarfari stelpnanna. Metnaður þeirra skiptir fyrst og fremst máli og auðvitað spilar KSÍ stórt hlutverk, hvað hafa þeir áhuga á að fara langt með þetta landslið? Því eins og staðan er og hefur verið lengi þá er mun styttri leið fyrir okkur að komast á stórmót en strák- ana,“ segir Guðlaug Jónsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Markahrókurinn Olga Færseth hleypur hér fagnandi til Guðlaugar Jónsdóttur (9) eftir að hafa komið Íslendingum yfir gegn Englendingum á Laugardalsvellinum. Landsliðskonan Guðlaug Jónsdóttir ræðir um fyrirkomulag og styrk liða á Íslandsmótinu Vandinn liggur hjá félögunum „ÞAÐ er betra að leyfa öðrum að rifja upp sögur úr landsliðsferð- unum,“ segir Guðlaug Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, í viðtali við Morgunblaðið. Guðlaug er elsti leikmaður landsliðsins um þessar mundir. Hún lék sinn fyrsta landsleik árið 1992 og verð- ur að öllum líkindum í eldlínunni á sunnudag þegar stúlkurnar mæta Portúgal í 100. kvennalandsleik Íslands í knattspyrnu. Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur Erla, sem er fædd árið 1977, ermeðal þeirra knattspyrnu- kvenna sem hófu æfingar tiltölu- lega snemma, 7–10 ára, og lék í gegnum öll yngri landslið Íslands áður en hún gerði atlögu að A- landsliðinu. Erla lék 55 A-lands- leiki, skoraði 4 mörk og var fyr- irliði í 9 leikjum. Aðspurð um minnisstæðasta leikinn segir hún að það sé erfitt að taka einhvern einn leik út. „Þegar maður er bú- inn að leika yfir 50 landsleiki er erfitt að velja einhvern einn leik sem er skemmtilegri og eftirminni- legri en aðrir. Auðvitað er fyrsti landsleikurinn alltaf eftirminnileg- ur þrátt fyrir að það hafi verið rok- leikur uppi á Skaga gegn Frakk- landi árið 1995 þar sem við gerðum jafntefli 3:3. Þarf meira fjármagn Aðrir leikir sem eru ofarlega í huganum eru leikirnir gegn Bandaríkjunum árið 2000 (0:0) og 2004 (4:3) og svo leikirnir í und- ankeppni HM árið 2001/2002 og þá sérstaklega sigrarnir og jafnteflin á móti Ítalíu, Spáni og Englandi,“ segir Erla og bætir við að það sé aðeins tímaspursmál hvenær Ís- land á lið í úrslitum stórmóts. „Ef lagt verður það fjármagn og sú vinna sem þarf til að koma liðinu á stórmót sé ég það alveg gerast í nánustu framtíð. Við höfum alla- vega leikmennina til þess.“ Eins og við er að búast þá hefur Erla leikið með og á móti mörgum sterkum leikmönnum. Nefnir hún sérstaklega þýsku drottninguna Birgit Prinz en erfiðara er um vik hjá henni að nefna besta samherj- ann. „Það er mjög erfitt að velja einn leikmann. Til þess hef ég spil- að of lengi og of marga leiki. En ef ég neyddist til þess að velja einn þá myndi ég nefna Margréti Ólafs- dóttur,“ segir Erla og er greinilega ekki sátt við spurninguna og neitar að segja lesendum skemmtilega sögu úr landsliðsferð. „Ég kann margar góðar sögur en þær allra skemmtilegustu eru ekki hæfar til birtingar í Morgunblaðinu.“ Fækka á liðum í Landsbankadeildinni Erla telur að Íslandsmótið í knattspyrnu kvenna yrði skemmti- legra og meira spennandi ef liðum í Landsbankadeildinni yrði fækkað og leiknar fleiri umferðir. „Þannig myndum við fá fleiri alvöru topp- leiki. Spennan gæti jafnvel haldist allt til enda móts. Það myndi líka auka áhuga almennings almennt á kvennaknattspyrnu á Íslandi. Leikmenn í dag eru í betra formi og teknískari en áður og aðstaðan hefur batnað til mikilla muna frá því sem var þegar ég var að byrja í boltanum. Það er mjög jákvæð þró- un,“ segir Erla Hendriksdóttir, sem lauk námi í iðjuþjálfun ásamt því að leika knattspyrnu í Dan- mörku. Hún býr þar enn og á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Braga Jónssyni. Ekki birt- ingarhæfar sögur ERLA Hendriksdóttir er nýlega búin að leggja skóna á hilluna. Það gerði hún að loknum leik Íslands og Svíþjóðar sem fram fór síðast- liðið haust og segja má að hún hafi sannarlega hætt á toppnum því það er mál manna að sá leikur hafi verið einn sá besti sem íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur leikið. Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur Morgunblaðið/Golli Erla Hendriksdóttir, fyrrverandi fyrirliði landsliðsins, spyrnir knettinum að marki Norðmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.