Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 14

Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 14
100. LANDSLEIKUR KVENNA 14 D FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ OLGA Færseth er mikill grín- isti að sögn Ásthildar og hefur brallað ýmislegt í gegnum tíð- ina. „Við vorum að bíða eftir farangrinum á flugvellinum í Vín og stóðum við færibandið ásamt fullt af fólki. Allt í einu kippti Olga niður um mig bux- unum þannig að þær fóru al- veg niður á hæla. Síðan var ég frekar lengi að bregðast við þessu þannig að ég stóð þarna á G-streng einum saman fyrir framan allt þetta ágæta fólk. Olgu brá svolítið, því henni sýndist ég ekki vera í neinum nærbuxum. En Olga er mjög skemmtileg og það er alltaf hægt að hlæja að henni, hún er ótrúlega lúmskt fyndin og við höfum alltaf skemmt okkur konunglega. Við höfum brall- að ýmislegt og gert nokkur góð prakkarastrik sem er kannski ekki beint hægt að birta í blöðunum,“ segir Ást- hildur. Stóð þarna á nær- buxunum Þegar ég byrjaði í landsliðinu þávoru þessar eldri, Guðrún Sæ- mundsdóttir, Vanda Sigurgeirsdótt- ir, Ragna Lóa Stefánsdóttir og Ásta B. Gunnlaugsdóttir, allar kynslóð á undan mér. Það var mjög gaman fyrir okkur sem vorum að koma inn þá því við gátum lært helling af þeim. Það var talsverður munur á því hvernig þær æfðu og höfðu alist upp í fótboltanum en við. Minn ár- gangur og næsti á eftir voru sterkir árgangar. Við vorum búnar að fara í gegnum yngri landsliðin og því með allt annan grunn og allt aðra þjálfun á bakinu en þær. Við höfðum fengið mun meiri tækniþjálfun og því var blandan í landsliðinu mjög skemmti- leg,“ segir Ásthildur. Síðan þá hefur Ásthildur tekið að sér hlutverk miðlarans í landsliðinu. „Það er nú svolítið langt síðan ég komst svo í þeirra stöðu sjálf. Nú er aftur komið að kynslóðaskiptum því það eru komnir sterkir leikmenn inn eins og Margrét Lára Viðarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Hólm- fríður Magnúsdóttir.“ Byrjaði að æfa 10 ára Að mati Ásthildar hefur heil- margt breyst í fótboltanum þau ár sem hún hefur stundað hann. „Lík- amlegt ástand er fyrst og fremst betra. Í dag er æft miklu meira og það er augljósasti munurinn. Tækni- legi þátturinn hefur einnig batnað mikið og þessir ungu leikmenn eins og Dóra María og Margrét Lára eru mjög góðar tæknilega séð. Stelpur byrja miklu fyrr að æfa fótbolta. Ég byrjaði 10 ára að æfa en stelpurnar í dag byrjuðu sex ára. Kynslóðin á undan mér byrjaði kannski um ung- lingsaldurinn,“ segir Ásthildur. Þegar Ásthildur hóf sinn lands- liðsferil var framundan spennandi ár þar sem Ísland var aðeins hárs- breidd frá því að komast í loka- keppni EM. „Besti árangurinn sem landsliðið hefur náð að mínu mati er umspilið 1994 við Englendinga. Fót- boltinn hefur þróast það mikið al- þjóðlega að það verður æ erfiðara að komast á stórmót. Það er mikilvægt að við gefum ekki eftir í þessari þró- un. Það er mjög mikilvægt að við fáum næga æfingaleiki með lands- liðinu og að fleiri stelpur fari út og spili í betri deildum ásamt því að þjálfunin verði betri. Ísland lék einnig umspilsleiki við England árið 2002 en hefði liðið komist áfram úr þeim hefði þurft umspilsleiki við Frakka einnig.“ Ísland númer 18 í heiminum Ísland er númer 18 á styrkleika- lista FIFA um bestu landslið í heim- inum en á listanum eru alls 129 landslið. Í Evrópu telst Ísland það 11. sterkasta. Það hefur lengi verið draumur leikmanna landsliðsins að komast í úrslitakeppni EM eða HM. „Við höfum oft verið nálægt því. Það er mikilvægt að enda þennan riðil vel upp á næstu keppni, sem er EM. Þar er búið að fjölga liðum í úrslita- keppninni svo ég held að það muni gerast fljótlega að við komumst á stórmót.“ Fæstir gera sér grein fyrir þeim árangri sem landsliðið hefur náð, en líkt og karlalandsliðið náði jafntefli á Laugardalsvelli við heimsmeistara Frakka náði kvennaliðið sömu úr- slitum gegn bandarísku heimsmeist- urunum á útivelli. „Bandaríkin eru með bestu þjóð- um sem við höfum leikið gegn en okkur hefur yfirleitt gengið ágæt- lega á móti þeim og þær eru í svip- uðum styrkleikaflokki og Þýska- land. Við höfum alltaf átt erfitt með að mæta Þjóðverjum. Það hefur ekki hentað okkur vel að leika gegn þeim og okkur hefur alltaf gengið illa á móti þeim.“ Toppurinn að spila fyrir þjóðina Ásthildur hefur verið fyrirliði í 28 af þeim 63 leikjum sem hún hefur leikið. Hún hefur auk þess skorað 21 mark og leikið 30 landsleiki með yngri landsliðum Íslands. „Það er mjög góð tilfinning að klæðast landsliðstreyjunni. Það er toppurinn að spila fyrir þjóðina og hefur alltaf verið það fyrir mig. Þetta eru orðnir margir landsleikir hjá mér en það er alltaf mjög sérstakt að spila lands- leiki. Þau ár sem ég hef verið í lands- liðinu hefur alltaf verið góður andi í liðinu og gaman þegar hópurinn kemur saman. Góður liðsandi og samstaða þarf að vera fyrir hendi svo að við náum árangri. Stökkið í dag er ekki eins mikið fyrir mig að koma í landsleiki því ég er vön hrað- anum, hugsunarhættinum og gæð- unum þar sem ég leik með svo sterku félagsliði.“ Ásthildur hefur leikið með öllum bestu leikmönnum Íslands. „Ég hef leikið með mörgum góðum leik- mönnum, Vanda Sigurgeirsdóttir var mjög góður leikmaður. Hún spil- aði í Svíþjóð og kom með margt gott þaðan inn í fótboltann hér sem nýtt- ist henni bæði sem leikmaður og þjálfari. Guðrún Sæmundsdóttir var frábær leikmaður sem hafði einstak- an leikskilning. Svo á ég mjög erfitt með að sjá markmann verða jafn- góðan og Þóra á næstunni. Margrét Ólafsdóttir var líka mjög góður leik- maður og Olga Færseth er náttúru- lega frábær markaskorari en skapar líka mörg marktækifæri fyrir liðið. Svo er Guðrún Sóley Gunnarsdóttir leikmaður í heimsklassa og hefur verið okkar besti varnarmaður í mörg ár.“ Skoraði fjögur gegn Grikkjum Þegar Ásthildur lítur yfir farinn veg með landsliðinu er margt sem stendur upp úr. „Minn besti leikur með landsliðinu er líklega leikurinn gegn Grikkjum 1994 en þá skoraði ég fjögur mörk. Svo var leikurinn við Svía í fyrra þegar við gerðum 2:2-jafntefli líka mjög góður,“ segir Ásthildur en hún skoraði einmitt annað markanna. „Það er líka mjög eftirminnilegur leikur þegar við unnum Ítali hér á heimavelli 2:0 árið 2001 og Olga skoraði tvö glæsileg mörk og ég man rosalega vel eftir þessum mörkum. Þá byrjaði skemmtilegt tímabil í landsliðinu því fyrir þann leik bjuggum við til okkar fyrstu auglýsingu þar sem við vor- um í bikiníi og fengum fullt af fólki á völlinn,“ segir Ásthildur, en 1.250 manns mættu til að styðja Ísland sem vann Ítalíu nokkuð óvænt. „Þessi keppni varð öll mjög skemmtileg því svo unnum við Spán- verjana í næsta leik á eftir 3:0. Það var frábær stemning í hópnum, sem myndaðist mikið til í kringum aug- lýsinguna. Við fengum fólkið með okkur og fleiri á leikina en áður hafði þekkst. Það skapaðist mikill meðbyr með okkur sem smitaðist út í hópinn og hópurinn var mjög skemmtilegur á þeim tíma. Á Spán- arleikinn mættu 2.240 manns, sem var met á þeim tíma.“ Allt morandi í skordýrum Skemmtilegasta ferðin sem Ást- hildur hefur farið með landsliðinu var árið 1994 þegar farið var til Hol- lands og Grikklands í sömu ferð. „Við vorum í Grikklandi í fjóra, fimm daga og það var mjög skemmtilegt að skoða Aþenu og mikil upplifun.“ Á hinn bóginn voru aðstæður slæmar í Úkraínu þegar liðið fór þangað 1997. „Við lentum í ýmsum ævintýrum. Hótelið var hrikalegt þar sem allt var morandi í skordýrum og við neituðum að vera þar.“ Ásthildur segir að umgjörðin í kringum landsliðið hafi breyst mikið til batnaðar. Búnaður hefur batnað og aukið fjármagn verið sett í liðið. „Mér finnst þetta samt breytast full- hægt miðað við möguleikana sem við höfum að komast á stórmót. Það vantar herslumuninn og það þurfa margir þættir að smella saman til þess að við náum þeim áfanga og all- ir þurfa að leggjast á eitt.“ Ásthildur hefur leikið undir stjórn margra góðra þjálfara og segir þá skipta miklu máli þegar landsliðið er annars vegar. „Það skiptir máli þeg- ar liðið kemur saman að það sé ákveðinn agi en samt gaman, þannig að þjálfarinn skiptir mjög miklu upp á að ná réttu stemningunni.“ Hún segir húmorinn alltaf stutt undan og mikið hlegið þegar liðið kemur sam- Ásthildur Helgadóttir hefur leikið 63% landsleikja kvennaliðsins frá upphafi Í fremstu röð í 13 ár ÁSTHILDUR Helgadóttir landsliðsfyrirliði hefur leikið meira en helming allra leikja íslenska landsliðsins frá upphafi. Hún lék sinn fyrsta landsleik árið 1993 og er orðin leikjahæsta landsliðskonan með 63 leiki. Ásthildur hefur því verið í landsliði Íslands í 13 ár en hún var einungis 17 ára þegar hún lék sinn fyrsta leik. Hún þekkir því liðið út og inn og veit hvað þarf til að ná árangri meðal þeirra bestu í heiminum enda haldið sér sjálfri í fremstu röð öll þessi ár, sem er einstakt afrek hjá íþróttamanni. Ásthildur leikur nú með Malmö í Svíþjóð, sem er eitt sterkasta félagslið í heimi. Margrét Lára Viðarsdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Olga Færseth og Dóra María Lárusdóttir fagna einu af tíu mörkum íslenska liðsins í leik gegn Póllandi á Laugardalsvellinum, 10:0. Eftir Írisi Björk Eysteinsdóttur ÁSTHILDUR leikur í einu sterk- asta félagsliði heims um þessar mundir, Malmö í Svíþjóð. Hún stundaði einnig nám við Vander- biltháskóla í Bandaríkjunum og lék þar með mörgum góðum leik- mönnum. Hún hefur einnig leikið með bestu leikmönnum Íslands í áraraðir þar sem hún hefur leik- ið með Breiðabliki, KR og ÍBV. „Besti leikmaðurinn sem ég hef leikið með er Þóra systir. Hún er markvörður á heimsmælikvarða og það að hafa góðan markmann skiptir svo gríðarlega miklu máli, sérstaklega þegar við erum oftast litla liðið í landsleikjunum. Oft á tíðum hefur legið á okkur þung sókn og þá hefur hún varið kannski fimm til tíu dauðafæri maður gegn manni. Þegar við höfum náð góðum úrslitum hefur verið algjört lykilatriði að hafa öryggi í markmanninum. Hún stjórnar vörninni, er örugg, sparkar langt út og er frábær ein á móti einni. Af útileikmönnum má nefna Olgu Færseth en við höfum alltaf náð ótrúlega vel saman ásamt Guðlaugu Jónsdóttur. Við spil- uðum saman í KR og höfum skapað mörg mörk saman.“ Þóra besti samherjinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.