Morgunblaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GRUNUR UM SVIK
Fyrrverandi starfsmaður Trygg-
ingastofnunar er grunaður um að
hafa svikið tugmilljónir króna út úr
stofnuninni, en grunsemdir um þetta
vöknuðu við eftirlit innan TR 21. júní
sl. Virðist starfsmaðurinn fyrrver-
andi hafa látið einstaklinga kerf-
isbundið og án tilefnis fá greiðslur
frá stofnuninni. Málið hefur verið
kært til Ríkislögreglustjóra og op-
inberrar rannsóknar verið krafist.
Pétur Gautur til London
Uppfærslu Þjóðleikhússins á leik-
verki Henriks Ibsens, Pétri Gaut,
hefur verið boðið í Barbican Centre í
London í febrúar og mars á næsta
ári. Leikstjóri sýningarinnar er
Baltasar Kormákur en með titilhlut-
verkið fer Björn Hlynur Haraldsson
og var sýningin frumsýnd í Kass-
anum nú í vor.
Vilja konur og börn laus
Herskáir hópar Palestínumanna
krefjast þess að ísraelsk yfirvöld láti
lausar allar palestínskar konur og
börn sem eru í fangelsum í Ísrael ef
þeir eigi að gefa upp upplýsingar um
ísraelska hermanninn sem þeir
rændu á sunnudag. Ísraelsstjórn
segir hins vegar útilokað að hún
semji við hópana og hótar víðtækum
hernaðaraðgerðum.
Erlent vinnuafl
Flæði erlends vinnuafls hingað til
lands virðist svipað og áður, skv.
fyrstu vísbendingum um þróun á
vinnumarkaði eftir breytingar 1. maí
sem fólu í sér að íbúar átta nýrra
ESB-ríkja þurfa ekki lengur at-
vinnuleyfi til að vinna hér á landi. Í
maí var tilkynnt um 323 starfsmenn
til Vinnumálastofnunar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Fréttaskýring 8 Minningar 25/29
Úr verinu 10 Dagbók 32/35
Viðskipti 12/13 Myndasögur 32
Erlent 14/15 Víkverji 32
Minn staður 16 Velvakandi 33
Akureyri 17/18 Staður og stund 34
Austurland 18 Menning 36/41
Landið 19 Bíó 38/41
Daglegt líf 20 Ljósvakamiðlar 42
Umræðan 21/24 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann
Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús
Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri,
sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
VERÐ Á lyfseðilsskyldum lyfjum hefur hækkað
um allt að 20% hjá markaðsráðandi lyfsölukeðjum
frá því í apríl í fyrra að því er fram kemur í sam-
anburði á nýlegri lyfjaverðskönnun verðlagseft-
irlits ASÍ sem gerð var nú í júní og sambærilegri
könnun frá því í apríl í fyrra.
Samhliða því sem leyfileg hámarkssmásölu-
álagning hefur lækkað hafa lyfjabúðir dregið úr
þeim afslætti sem þær veita af hluta sjúklings í
lyfjaverðinu og þannig minnkað verulega ávinning
neytenda af því samkomulagi sem gert var við
lyfjasmásala í fyrra um lækkun á lyfjaverði.
Í skýrslunni kemur fram að hvorug lyfsölukeðj-
an hafi boðið viðskiptavinum upp á ódýrara sam-
heitalyf sem hefði getað lækkað kostnað neytand-
ans vegna bólgueyðandi verkjalyfs um 20% þó svo
að apótekið hefði engan afslátt veitt af lyfinu.
Upplýsingaskylda lyfsala
Samkvæmt reglugerð um afgreiðslu lyfseðla,
áritun og afhendingu lyfja er lyfjafræðingi skylt
að upplýsa neytendur um val á milli samsvarandi
samheitalyfja sé verðmunur milli þeirra meiri en
5%. „Lyf eru mjög sérhæfð vara sem notandinn
hefur oft takmarkaða þekkingu á og því afar mik-
ilvægt að neytendur geti treyst því að fá upplýs-
ingar og ráðgjöf hjá fagfólki og að framboð á þeim
ódýrari samheitalyfjum sem eru á markaði sé fyr-
ir hendi í apótekum,“ segir í fréttatilkynningu.
Í könnuninni er borið saman verð á fjórum lyfj-
um hjá lyfsölukeðjunum tveimur, Lyfjum og
heilsu og Lyfju. Lyfin eru annars vegar tvö lyf fyr-
ir almennan sjúkling, mígrenilyfið Imigran og
verkjalyfið Voltaren rapid, og hins vegar tvö lyf
fyrir ellilífeyrisþega, blóðþrýstingslyfið Cozaar
comp og sýklalyfið Zitromax. Í öllum fjórum til-
fellum var verð Lyfju lægra en hjá Lyfjum og
heilsu, en þó hafði verðið hjá Lyfju hækkað meira
hlutfallslega en hjá Lyfjum og heilsu. Þýðir það að
verðmunurinn var enn meiri í fyrra. Þannig hækk-
aði Imigran um 9,5–12,6% á milli ára og Zitromax
um 17,2–20%.
Verð á lyfseðilsskyldum lyfjum hefur hækkað um allt að 20% skv. lyfjakönnun ASÍ
Neytendur ekki upplýstir
um ódýrari samheitalyf
KEPPST er við að byggja hús, stór og smá, hvarvetna á
höfuðborgarsvæðinu og sums staðar hafa heilu íbúðar-
og þjónustuhverfin risið á nokkrum mánuðum. Þessir
félagar unnu við að steypa húsgrunn í Hafnarfirði í
gær þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að.
Heldur hefur dregið úr eftirspurn á fasteignamark-
aði samhliða hækkun vaxta. Á sama tíma hefur fram-
boð á húsnæði aukist og búist er við að það aukist enn
frekar á næstu mánuðum þegar húsnæði sem nú er í
byggingu verður fullklárað. Það er því mat sérfræð-
inga á markaðinum að fasteignaverð eigi eftir að
lækka eitthvað. Verðlækkun á fasteignum er þó enn
ekki komin fram í tölum Fasteignamats ríkisins eða
Hagstofu Íslands.
Mikið framboð á nýju húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/ÞÖK
Nóg að gera í byggingarvinnunni
GEORGE H.W. Bush, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, hefur þekkst
boð forseta Íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, um að koma í heimsókn
til Íslands 4.–7. júlí næstkomandi, að
því er fram kemur í tilkynningu frá
skrifstofu forseta
Íslands.
Bush kemur til
landsins síðdegis
þriðjudaginn 4.
júlí og verður
gestur forseta Ís-
lands meðan á
dvölinni stendur.
Hann situr kvöld-
verðarboð forseta
Íslands á Bessa-
stöðum á þjóðhátíðardegi Banda-
ríkjamanna 4. júlí. Með forsetanum í
för verða nokkrir vinir hans, meðal
annars Sig Rogich sem var sendi-
herra Bandaríkjanna á Íslandi í for-
setatíð George H.W. Bush.
George H.W. Bush og föruneyti
munu halda til laxveiða í boði Orra
Vigfússonar, formanns Verndar-
sjóðs villtra laxastofna (NASF), en
forsetinn fyrrverandi hefur verið
eindreginn stuðningsmaður slíkrar
verndar, að því er segir í tilkynn-
ingu.
Bush eldri
í heimsókn
til Íslands
George H.W. Bush
Í DRÖGUM Póst- og fjarskiptastofn-
unar að reglum um fyrirkomulag
númerabirtingar kemur fram að sá er
fyrir ónæði eða óþægindum verður af
völdum símtals geti fengið aflétt
númeraleynd símtalsins tímabundið.
Þjónustuveitandi getur þó aðeins
veitt upplýsingar um þann er óþæg-
indum veldur í skjóli númeraleyndar
að undangengnum dómsúrskurði eða
í þágu rannsóknar opinbers máls. Í
reglunum kemur hvergi fram hvað
felist í ónæði eða óþægindum af völd-
um símtals og Hrafnkell Viðar Gísla-
son, forstjóri Póst- og fjarskipta-
stofnunar, viðurkennir að hugtökin
séu býsna persónubundin, en inntak
þeirra er háð mati dómara og hand-
hafa ákæruvalds hverju sinni.
Hrafnkell segir að með reglunum
sé verið að innleiða tilskipun Evrópu-
bandalagsins um vinnslu persónu-
upplýsinga og verndun einkalífs á
sviði rafrænna viðskipta. Hann tekur
fram að ekki sé um að ræða reglur
sem breyti framkvæmd fjarskipta-
mála, svipuðum vinnureglum hafi í
raun verið beitt áður. Nýjungin felst í
því að skýrar er kveðið á um fram-
kvæmdina og hún því gerð fyrirsjá-
anlegri.
Að mati Hrafnkels er ýmislegt
annað áhugavert að finna í reglunum.
Þar er til að mynda mælt fyrir um að
símnotanda verði gert kleift að synja
móttöku hringinga með númeraleynd
fyrir upphaf símtals. Með þessu móti
verði hægt að koma í veg fyrir óþæg-
indi og ónæði af völdum þeirra sem
notast við númeraleynd, s.s. aðila
sem stunda markaðssetningu í gegn-
um síma. Ætlunin er að reglurnar
öðlist gildi með haustinu en fyrst
verður þeim er hagsmuna hafa að
gæta leyft að gera athugasemdir við
drögin og skulu þær hafa borist
stofnuninni fyrir 20. júlí.
Heimilt að aflétta
númeraleynd
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is