Morgunblaðið - 27.06.2006, Side 4

Morgunblaðið - 27.06.2006, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KRISTÓFER Hannesson varð nú um helgina fyrstur til að útskrifast með japönsku sem aðalgrein úr hugvísindadeild Háskóla Íslands, en kennsla í japönsku hófst við skólann árið 2003. Kristófer sagði í samtali við Morgunblaðið að það hefði verið tilviljun að hann valdi japönskunámið: „Ég ætlaði nú að fara að vinna í eitt ár en sá síðan grein í Morgunblaðinu um að það ætti að fara að kenna japönsku í Háskóla Íslands. Ég á frænda sem býr í Japan og hafði verið forvitinn um þetta land þar sem hann býr og ákvað að prófa þetta nám. Mér leist svo vel á þetta að ég ákvað að halda áfram, fara til Japans í eitt ár og klára þetta.“ Aðspurður hvernig hafi gengið að ná tökum á málinu sagði Krist- ófer það hafa verið erfitt í byrjun: „Ég hugsaði stundum um hvað ég væri búinn að koma mér í en eftir að maður hefur komist yfir fyrsta hjallann þá fer þetta að verða viðráðanlegra og skemmtilegt.“ Kristófer sagði að það að læra japönsku væri eins og að læra að tala upp á nýtt, þar sem ekkert væri líkt með íslenska tungumálinu og því japanska: „Það er ekkert sem maður getur tengt á milli. Það eina sem við Íslendingar höfum er að framburður á sér- hljóðum og samhljóðum er næstum nákvæmlega eins. En það er eng- inn grunnur sem maður hefur. Það eina er að þeir hafa mikið af töku- orðum úr ensku sem maður skil- ur.“ Lokaverkefni Kristófers, Ástæð- ur, afleiðingar og möguleg þróun pólitískra og alþjóðlegra deilna í kringum hið umdeilda Yasakuni- helgiskrín í Tókýó, fjallar um Yas- akuni-helgiskrínið sem er mik- ilvægur helgistaður í Shinto- trúnni, sem er fyrrum ríkistrú Jap- ana. Yasakuni heiðrar minningu allra þeirra sem hafa látist fyrir Japan og meðal þeirra eru nokkrir harðsvíraðir stríðsglæpamenn sem létust í síðari heimsstyrjöldinni. Forsætisráðherra Japans heim- sækir hofið á ári hverju og veldur það miklum usla í samskiptum við aðrar Asíuþjóðir sem einhvern tímann hafa orðið fyrir barðinu á umræddum stríðsglæpamönnum. Kristófer hyggur nú á nám í al- þjóðasamskiptum í Háskóla Ís- lands með áherslu á viðskipti. Hann sagði að þar sem íslensk fyr- irtæki væru í auknum mæli að þreifa fyrir sér í Austurlöndum væri sífellt meiri þörf fyrir fólk með sérþekkingu á Austurlöndum og starfsmöguleikar því þónokkrir. Fyrstur til að útskrifast með BA-próf í japönsku Kristófer Hannesson FLÆÐI verkamanna frá nýjum að- ildarríkjum ESB helst nokkurn veg- inn svipað og fyrir 1. maí sl. þegar fallið var frá þeirri kröfu að verka- fólk frá þessum ríkjum yrði að hafa atvinnuleyfi hér á landi, að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar. Erlent vinnuafl hefur sótt mikið hingað til lands undanfarin misseri og í fyrra sló fjöldi útgefinna at- vinnuleyfa öll met þegar á sjöunda þúsund leyfi voru gefin út. Þess má þó geta að frá og með september í fyrra var gerð sú breyting á starfs- háttum Vinnumálastofnunar að af- greiðslu leyfa til íbúa hinna nýju að- ildarríkja ESB var hraðað. Þrátt fyrir að leyfis sé ekki krafist í dag verða atvinnurekendur sem ráða starfsmann frá þessum ríkjum til vinnu að tilkynna ráðninguna til Vinnumálastofnunar. Í maí bárust skráningar frá 92 fyrirtækjum vegna 323 starfsmanna en þær tölur eru þó ekki alveg marktækar, þar sem nokkrar vikur tekur fyrir starfs- menn að fá kennitölu, sem er for- senda skráningar hér á landi. Má því búast við að skráningum fjölgi tals- vert á næstunni, að sögn Gissurar. Nú er hins vegar nánast öllum um- sóknum frá borgurum utan EES- svæðisins um atvinnuleyfi synjað hjá Vinnumálastofnun, að sögn Gissur- ar. „Það er helst að þetta sé leyft á grundvelli fjölskyldutengsla,“ segir hann. 573 synjanir frá september Alls hefur nú verið synjað 573 um- sóknum um tímabundin atvinnuleyfi hjá Vinnumálastofnun frá því í sept- ember á síðasta ári og þar af hefur rúmlega 200 umsóknum verið synjað frá því í mars. Töluvert af þessum synjunum hefur verið kært og bíður afgreiðslu í félagsmálaráðuneytinu. Eins og áður sagði voru gríðarlega mörg atvinnuleyfi gefin út í fyrra, eða 6.367, og hefur þar hraðari af- greiðsla á leyfum mikið að segja. Fjöldi útgefinna atvinnuleyfa nærri tvöfaldaðist milli áranna 2004 og 2005. Á tímabilinu frá janúar og fram í maí á þessu ári var hins vegar gefið út 3.791 atvinnuleyfi og virðist sem straumur verkafólks til landsins sé stöðugur. Til samanburðar má nefna að á sama tímabili í fyrra var búið að gefa út 1.782 atvinnuleyfi. Gissur segir að enn sé mikil spurn eftir erlendu vinnuafli og hann reikni með að svo verði áfram. Hins vegar sé ljóst að verkafólki hafi ekki fjölgað við breytinguna 1. maí, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Hins vegar sé nú nánast öllum um- sóknum frá þriðja ríkis borgurum synjað, að sögn Gissurar. Það sé að- eins í sérstökum tilfellum að slíkum umsóknum sé hleypt í gegn, t.d. ef viðkomandi hefur sérstaka hæfni, en Gissur segir að ekki skipti máli hvort viðkomandi sé kominn með vinnu hér á landi eða ekki, umsóknum sé ein- faldlega hafnað á þeim forsendum að jafnhæfan mann megi finna á EES- svæðinu. Undir þessi ríki falla í raun allir ut- an EES-svæðisins. Þannig myndi til að mynda umsækjandi frá Taílandi eða Víetnam, svo dæmi séu tekin, þurfa atvinnuleyfi til að mega vinna hér á landi og þeirri umsókn yrði trú- lega hafnað. Gissur segir að þessi stefna hafi í raun komist á í sept- ember sl. en verið áréttuð frekar þegar lagabreyting var gerð í tilefni þeirra breytinga sem urðu 1. maí sl. Erlendu verkafólki hefur enn ekki fjölgað Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Morgunblaðið/Golli Enn er spurn eftir erlendu vinnuafli og reiknað er með að svo verði áfram. Í GRUNNI Há- skólatorgs, sem nú er verið að byggja upp, hafa fundist ýmsar tegundir skelja sem lifað hafa góðu lífi í seti á hafsbotninum fyrir 12–13 þúsund árum eins og sjá má á þessari mynd af steini sem tekinn er úr grunninum. Skelj- arnar má rekja til þess að þegar jöklar síðasta jökulskeiðs tóku að hörfa af landgrunninu fyrir um 14–15 þúsund ár- um, hækkaði sjávarborð hraðar en landið reis og var núverandi Há- skólasvæði þá undir sjávarmáli, að sögn Áslaugar Geirsdóttur, pró- fessors í jarðfræði við Háskóla Ís- lands. Hún segir að þegar þessar skeljar lifðu í setinu, hafi skrið- jöklar brotnað út í sjó, og þannig myndast ísjakar sem sigldu um Suðurgötusvæðið. „Sérkennilegt dökkt fínkorna lag hefur síðan kaffært skeljarnar. Hvort hér er um að ræða eðjustraum sem varð til við nýja framrás jökuls, jök- ulhlaup eða sjávarstöðubreytingar er enn ekki ljóst en ætlunin er að skoða það betur áður en bygg- ingin rís.“ Morgunblaðið/ÞÖK Tólf þúsund ára skelj- ar í Háskólatorginu „FYRIR nokkrum árum héldu menn að rósir væru dekurplöntur sem menn þyrftu óskaplega mikið að vanda sig við en svo hefur áhugafólk verið að flytja inn nýjar rósir. Það hefur komið í ljós að það eru alveg ótrúlega margar rósir sem eru vel harðgerar hér á landi,“ segir Jóhann Pálsson, fyrrverandi garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar. Í dag mun Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra opna nýjan vef Rósa- klúbbs GÍ í Rósagarðinum í Höfða- skógi. Hann mun þá gróðursetja rósir sem Jóhann hefur skapað, en um er að ræða fyrstu rósirnar sem vitað er um að hafi verið gróð- ursettar hér á landi. Jóhann segist telja að hann hafi verið með þeim fyrstu sem fóru að flytja inn rósir sem þola íslenska veðráttu. „Ég hafði góða aðstöðu til þess. Svo fór ég að leika mér að því að víxla rósum hjá mér og frjóvga saman ólíkar tegundir og ólík af- brigði. Margt af því sem kom út úr því var einskis virði en nokkrar hafa sýnt sig að vera ansi skemmtilegar. Ég hef nú bara haft þær í garðinum hjá mér en svo var þremur þeirra fjölgað hjá Skógræktarfélagi Hafn- arfjarðar og þær á að gróðursetja á morgun [í dag] í skóginum,“ segir Jóhann. Hann segir að mikið af þeim rósum sem hann hafi verið að rækta sé ígulrósir (Rosa rugosa). Þá segist hann hafa sáð fræi af einni af þeim rósum sem hann hafði sjálfur alið upp. „Ein af rósunum sem komu upp í þeirri sáningu reyndist vera bast- arður af fjallarós, Rosa-pendulina, og ígulrós. Hún er dálítið spennandi rós fyrir framtíðina og ég gaf henni nafnið Hilda eftir dótturdóttur minni,“ segir Jóhann. Bók um rósaræktun í Kanada vakti áhugann Hann segir að Rósaklúbbur GÍ hafi unnið lista sem birtur verði á nýju vefsíðunni yfir harðgerar rósir. „Mig minnir að þar séu yfir 90 yrki,“ segir Jóhann. Rósunum sé skipt í þrjá flokka eftir því hversu harð- gerar þær eru. Spurður hvort hann hafi lengi ver- ið sérstakur áhugamaður um rósir segir Jóhann að sá áhugi hafi kvikn- að fyrir um 15 árum. „Það var nú eiginlega bara af tilviljun,“ segir Jó- hann. Hann hafi rekist á bók í Hol- landi um rósaræktun í Kanada en þar í landi hafi menn skoðað ræktun kanadískra rósa. „Ég fór að prófa þessar kanadísku rósir og eitt leiddi af öðru,“ segir Jóhann. Aðspurður segir hann félaga í Rósaklúbbnum nokkra tugi alls, en klúbburinn hafi starfað í nokkur ár. Netfang Rósa- klúbbsins er rosaklubbur.is Rósir engar dekurplöntur Morgunblaðið/ Jim Smart Jóhann Pálsson fv. garðyrkjustjóri. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.