Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLENSK erfðagreining (ÍE) kynnti
í gær helstu niðurstöður úr fyrstu
prófunum fyrirtækisins meðal 160 ís-
lenskra astmasjúklinga á tilraunalyf-
inu CEP-1347. Lyfið reyndist hafa
jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungna-
starfsemi og á bólguþátt sem tengist
astma, án þess að nokkrar alvarlegar
aukaverkanir kæmu fram, að því er
segir í frétt frá ÍE.
„Þetta er mjög mikill áfangi fyrir
okkur og mikilvægur því þarna erum
við að koma lyfi í gegnum fasa 2 til-
raun án marktækra aukaverkana og
með skilvirkni. Ég er býsna ánægður
með þetta,“ sagði Kári Stefánsson,
forstjóri ÍE, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Astmi er langvinnur bólgusjúk-
dómur í lungum og öndunarfærum.
Hann er algengasti langvinni sjúk-
dómurinn í börnum og ungu fólki.
Tíðni astma er á bilinu 10–30% í iðn-
væddum löndum. Virkasta meðferðin
gegn astma í dag felst í notkun stera-
lyfja. Þau geta valdið alvarlegum
aukaverkunum, einkum við langvar-
andi notkun.
Allt að þrjú ár þangað til
lyfið kemur á markað
Kári sagði ljóst að nýja lyfið mundi
ekki hafa sömu aukaverkanir og
steralyfin. Steralyf í úðaformi hafa
minni aukaverkanir en astmalyf sem
tekin eru um meltingarveg. „Það er
markmið í sjálfu sér að losna við ster-
ana vegna aukaverkananna,“ sagði
Kári. Tilraunir lyfjaframleiðandans
Cephalon, sem þróaði lyfið gegn
Parkinson-sjúkdómi, benda til þess
að það hafi mjög litlar aukaverkanir.
Tilraunalyfið er gefið um meltingar-
veg. ÍE kynnti Cephalon niðurstöður
sínar í síðustu viku. ÍE og Cephalon
hafa ekki enn samið um hvernig
markaðssetningu og dreifingu nýja
lyfsins verður háttað ef áframhald-
andi prófanir verða jákvæðar. Að-
spurður hvenær vænta mætti nýja
lyfsins á markað sagði Kári að
minnst tvö til þrjú ár mundu líða þar
til það yrði. Ekki væri hægt að leggja
mat á fjárhagslegan ávinning af þess-
ari uppgötvun fyrr en lyfið kæmi á
markað.
Kári sagði þetta vera í annað skipt-
ið sem erfðafræðileg upgötvun hjá
Íslenskri erfðagreiningu nýttist til að
finna lífefnafræðilega orsök sjúk-
dóms og sýnt væri fram á að lyf sem
leiðréttir þessa sameindalegu ástæðu
sjúkdómsins virkaði í sjúklingum.
„Það er mikilvægur áfangi í sjálfu sér
að koma astmalyfi í gegnum fasa 2 og
líka vitnisburður um ágæti þeirrar
leiðar að nota erfðafræðina til að búa
til lyf. Þetta er mjög stór áfangi fyrir
okkur,“ sagði Kári.
Rúmlega 800 manns tóku þátt í
prófunum lyfjafyrirtækisins Cepha-
lon á tilraunalyfinu CEP-1347 við
Parkinson-sjúkdómi. Prófanir á
CEP-1347 með þátttöku íslenskra
astmasjúklinga hófust í maí í fyrra.
Helstu niðurstöður voru að lyfið virð-
ist vera öruggt og þolast vel og hafði
það m.a. jákvæð áhrif á útkomu þátt-
takenda á svokölluðu auðreitniprófi
og í einföldu öndunarprófi.
Tilraunalyf við astma
Jákvæðar niðurstöður Íslenskrar erfðagreiningar við prófanir hér á landi
Kári Stefánsson sagði að nýja lyfið hefði ekki sömu aukaverkanir og steralyf.
„VIÐ reyndum að taka þátt í þessu
eins og við gátum og hvöttum fé-
lagsmenn til að leggja rannsókn-
inni lið,“ sagði Dagný Erna Lár-
usdóttir, formaður Astma- og
ofnæmisfélagsins, um lyfjatilraun
Íslenskrar erfðagreiningar.
„Ég hef mikla trú á þessu lyfi og
er afskaplega bjartsýn. Ég held að
þetta lyf breyti miklu fyrir astma-
sjúklinga og líðan þeirra. Fólk áttar
sig ekki á því hvað astmi er erfiður
sjúkdómur. Þetta er algengasti
langvinni bólgusjúkdómurinn í
börnum og ungu fólki.“ sagði
Dagný.
Steralyfin sem beitt er gegn
astma geta haft slæmar aukaverk-
anir, að sögn Dagnýjar. „Maður
getur orðið afskaplega ör í skapi af
sterunum og átt erfitt með svefn.
Sterarnir geta örvað matarlystina,
valdið vökvasöfnun og þyngd-
araukningu. Sumir sterar valda
líka beinþynningu. Sterarnir eru
afskaplega góðir í neyðartilvikum
en slæmir til langframa. Það er al-
veg stórkostlegt ef finnst annað lyf
en sterar sem minnkar bólgur í
öndunarveginum.“
Í Astma- og ofnæmisfélaginu eru
um 1.400 félagar. Það segir þó ekki
alla söguna því aðeins einn úr
hverri fjölskyldu er skráður fé-
lagsmaður. Talið er að um 7% þjóð-
arinnar líði af astma og ofnæmi.
Ég er
bjartsýn
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt konu sem er sjúkraliði að
mennt 1,5 milljónir kr. í skaðabætur
frá Reykhólahreppi fyrir það að fram
hjá henni var gengið við ráðningu í
starf sjúkraliða við hjúkrunar- og
dvalarheimilið Barmahlíð í Reykhóla-
sveit.
Sjúkraliðinn hafði starfað tíma-
bundið á stofnuninni og hugðist sækja
um starf þar árið 2004 eftir að hún
hætti við að fara í skóla, og var þeirri
fyrirætlun vel tekið af yfirmanni.
Þegar starfið var auglýst síðsumars
2004 sótti konan um en fékk ekkert
svar og leitaði því til lögmanns sem
sendi hjúkrunarforstjóra Barmahlíð-
ar bréf þar sem fram kom að konunni
hefði borist til eyrna að tveir starfs-
menn hefðu verið ráðnir og hvorugur
þeirra með sjúkraliðamenntun.
Í niðurstöðu dómsins kom fram að
réttur hefði verið brotinn á sjúkralið-
anum við það að fram hjá henni var
gengið við umrædda ráðningu og með
því bakaði Reykhólahreppur sér
bótaskyldu gagnvart henni.
Tjón hennar fólst einkum í því að
vegna hinnar ólögmætu ákvörðunar
stefnda ætti hún þess ekki kost í ótil-
tekinn tíma að sinna í heimabyggð
sinni starfi sem hún hefði hlotið
menntun til.
Fallist var á að sjúkraliðinn hefði
orðið fyrir miska við það að svo ber-
lega var fram hjá henni gengið og um-
sókn hennar að auki ekki virt svars
fyrr en að kröfu lögmanns.
Sigurður H. Stefánsson héraðs-
dómari dæmdi málið. Hörður Felix
Harðarson hrl. flutti málið fyrir
sjúkraliðann og Helgi Birgisson hrl.
fyrir stefnda.
Gengið
framhjá
menntuðum
sjúkraliða
NÝ BYGGING verður reist á lóðinni
Bankastræti 2 ef tillaga að breyttu
deiliskipulagi fyrir lóðina nær fram
að ganga. Fyrir á lóðinni er veitinga-
staðurinn Lækjarbrekka og svoköll-
uð Móhús en þau standa við Skóla-
stræti.
Yfirbragð verður í samræmi
við gömlu byggingarnar
Gert er ráð fyrir hinni nýju bygg-
ingu við norðurenda Móhúsa, á mót-
um Skólastrætis og Bankastrætis,
gegnt verslun Hans Petersen í
Bankastræti.
Samkvæmt skipulaginu verða
þakefni og ytri klæðningar hinnar
nýju byggingar þau sömu og á Mó-
húsum og yfirbragð að öðru leyti í
samræmi við þær byggingar. Sam-
gengt verður milli húsanna á 2. hæð
en mænisstefna nýju bygging-
arinnar verður þvert á stefnu Mó-
húsa. Hæð mænisins verður ekki
meira en 1,2 m meiri en mænishæð
Móhúsanna.
Frestur til að skila inn at-
hugasemdum og ábendingum til
skipulags- og byggingarsviðs vegna
framkvæmdanna rennur út 3. ágúst.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ný bygging verður reist við norðurenda Móhúsa á Bernhöftstorfunni.
Byggingin mun standa á horni Bankastrætis og Skólastrætis.
Ný bygging verður reist
á Bernhöftstorfunni
HELDUR fleiri karlar en konur eru
að leita að nýju starfi, eða 12% karla
og 8% kvenna, samkvæmt Gall-
upkönnun á tíðni og ástæðum vinnu-
skipta. Könnunin var unnin fyrir
Jafnréttisráð í apríl og maí sl.
Ekki var marktækur munur milli
kynja þegar athugað var hvort skipt
hefði verið um vinnuveitanda sl. tvö
ár. Þegar kemur að ástæðum fyrir því
að verið er að leita að nýju starfi sést
heldur ekki marktækur munur, en á
hinn bóginn er munur á milli kynja
þegar kemur að ástæðum fyrir skipt-
um á vinnuveitanda.
Rétt tæplega helmingi fleiri karlar
en konur hafa misst fyrri vinnu og um
helmingi fleiri karlar gefa „tilbreyt-
ingu“ upp sem ástæðu. Ríflega þrisv-
ar sinnum fleiri konur nefna fjöl-
skylduábyrgð sem ástæðu og tæplega
helmingi fleiri karlar en konur nefna
„hærri launl/launatengt“.
Fjölskylduábyrgð hefur
meiri áhrif á stöðu kvenna
Að mati Jafnréttisráðs virðist
könnunin staðfesta að fjölskyldu-
ábyrgð hafi meiri áhrif á vinnumark-
aðsstöðu kvenna en karla og að karlar
skipti frekar um vinnu vegna launa-
mála.
Úrtakið í könnuninni var 2.025
manns á aldrinum 16–75 ára, handa-
hófskennt úr þjóðskrá, og var svar-
hlutfall 61%
Fleiri karlar en konur
að leita að nýju starfi
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Alicante
29. júní eða 6. júlí
frá kr. 19.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.19.990
Netverð á mann.
Flug og skattar, m.v. 2 fyrir 1 tilboð.
Aðeins örfá sæti
Nú bjóðum við frábært tilboð til Alicante
á síðustu flugsætunum 29. júní og 6. júlí
í 1 eða 2 vikur. Þú bókar 2 flugsæti en
greiðir aðeins fyrir 1. Gríptu tækifærið
og njóttu sumarsins við Alicante.
HINN risavaxni auglýsingaskjár á
norðausturhorni Kringlunnar var
tekinn niður á sunnudag og fluttur
norður í Skagafjörð á Landsmót
hestamanna á Vindheimamelum en
hann verður settur aftur upp við
Kringluna 3. júlí.
Ástæðan fyrir þessu ferðalagi
hins 30 fermetra skjás er sú að
Kringlan var að endurnýja sam-
komulag sitt við fyrirtækið Exton
sem ráðstafar skjánum. Exton
hugðist upphaflega taka skjáinn
niður fyrir fullt og allt, en þegar
samið var upp á nýtt hafði Exton í
millitíðinni leigt skjáinn tímabund-
ið á Landsmót hestamanna og því
varð niðurstaðan sú að skjárinn fer
aftur í Kringluna að loknu hesta-
mannamótinu.
Skjárinn er háþróaður og var
fyrst settur upp við verslanamið-
stöðina í Kringlunni í nóvember
2005.
Kringluskjárinn
fór á landsmót
hestamanna
MIKILL áhugi er á jörðum í Sel-
árdal við Arnarfjörð sem landbún-
aðarráðuneytið auglýsti til leigu í
vor. Tólf umsækjendur hafa sóst
eftir jörðunum, þar af ellefu ein-
staklingar. Má búast við að jörð-
unum verði úthlutað um miðjan júlí
og er leigutími til 50 ára.
Um er að ræða jörðina Uppsali
þar sem einbúinn Gísli Gíslason bjó,
Brautarholt þar sem var fyrrum
íbúðarhús Samúels Jónssonar lista-
manns og bærinn Kolbeinsskeið í
Selárdal, ásamt fyrrverandi íbúðar-
húsi á Melstað og Selárdal. Tekið er
fram að íbúðarhúsin eru flest í
bágu eða mjög bágu ástandi og
þarfnast mikilla endurbóta.
Sótt var um allt sem auglýst var,
auk þess sem sótt var um lóðir til
vara. Flestir umsækjendurnir eiga
rætur sínar að rekja vestur á firði.
Mikill áhugi á
jörðum í Selárdal