Morgunblaðið - 27.06.2006, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Húrra, Húrra, nú getum við dregið ykkur á asnaeyrunum 5 til 10 ár í viðbót.
Samtök háskólakenn-ara á Norðurlönd-unum (SHN), sem
funduðu hér á landi í byrj-
un mánaðarins, telja að
akademískt frelsi eigi
undir högg að sækja í há-
skólasamfélaginu. Skrif-
ræði sé vaxandi og aukin
miðstýring sé á rannsókn-
um og kennslu, lýðræði
fari minnkandi og mögu-
leikar starfsmanna til
hlutdeildar í þeim ákvörð-
unum er varða háskóla-
samfélagið séu þverrandi.
Þá sé hert pólitísk stýring
á rannsóknafé og úthlutun
þess. Einnig telja samtökin að
réttur til frjálsra birtinga á nið-
urstöðum rannsókna sé skertur,
aukin áhersla sé á að einkaleyfa sé
aflað og þess krafist í ríkara mæli
en áður að rannsóknarniðurstöð-
um sé haldið leyndum.
Að mati samtakanna er aka-
demískt frelsi nauðsynleg for-
senda þess að rannsóknir geti
blómstrað innan háskólanna. Í því
felist m.a. frjálst val rannsóknar-
efna og rannsóknaraðferða, frjáls
og óheft birting á rannsóknarnið-
urstöðum og frjálsræði í skoðana-
skiptum vísindamanna um rann-
sóknarverkefni og
rannsóknarniðurstöður. Þátttaka
í rökræðum á jafnræðisgrundvelli
er nauðsynleg að mati samtak-
anna og þar með aukin áhrif há-
skólakennara á ákvarðanir er
varða stjórnun háskólanna. Þau
benda á að rannsóknahlutverk há-
skólanna er víðtækara en rann-
sóknahlutverk atvinnulífsins.
Grunnrannsóknir háskólanna hafi
víðari skírskotun en hinar hag-
nýtu rannsóknir fyrirtækja sem
leggja gjarnan áherslu á að unnt
sé að nýta niðurstöður rannsókna
þegar í stað. Þetta kemur fram í
ályktun sem samþykkt var á fundi
samtakanna í byrjun mánaðarins.
Ekki minnst á
akademískt frelsi
Sigurður Erlingsson, formaður
Félags prófessora við Háskóla Ís-
lands (FP), segir orðið vart við
ákveðna tilhneigingu til pólitískr-
ar stýringar á rannsóknarfé hér á
landi sem annars staðar í hinum
vestræna heimi. Hann bendir í því
sambandi á lög um vísinda- og
tækniráð sem tóku gildi árið 2003,
sem m.a. hefur með fé til styrk-
veitinga að gera. Samkvæmt þeim
eiga nú fjórir ráðherrar fast sæti í
ráðinu en þar að auki er forsætis-
ráðherra heimilt að kveðja allt að
tvo ráðherra til setu í ráðinu í
senn. Í athugasemdum FP vegna
frumvarpsins var m.a. bent á mik-
ilvægi þess að aðilar sem þar ættu
sæti hefðu víðtæka reynslu og
þekkingu af rannsóknum. Þá
benti félagið á í athugasemdum
sínum við ný lög um háskóla, sem
samþykkt voru nú á sumarþingi,
að hvergi væri minnst á akadem-
ískt frelsi í lögunum, en það væri
hornsteinn alþjóðlegs mennta- og
vísindasamfélags.
Sigurður segir að það sem fram
komi í ályktun SHN eigi ekki al-
farið við á Íslandi í dag þótt vissu-
lega séu teikn á lofti sem þurfi að
varast. Á Íslandi séu t.d. einka-
skólar sem ekki sé að finna á hin-
um Norðurlöndunum. Þá geti
skapast samkeppni um fjármagn-
ið og hætta á að fjárveitingavaldið
noti fjárhagslega mælistiku á nám
í stað þess að meta það faglega.
Gagnrýnendur nýrrar löggjafar
um háskóla í Danmörku segja lög-
in fyrirtækjavæða háskólana og
að fjárhagslegir hagsmunir ráði
ferð á kostnað akademísks frelsis.
Stjórnendur séu ráðnir líkt og
skólarnir séu fyrirtæki og að há-
skólakennarar taki minni þátt í
ákvarðanatöku en áður. Hér á
landi er það hins vegar háskóla-
samfélagið, stúdentar og kennar-
ar, sem velja rektor HÍ, svo dæmi
sé tekið. En til stendur að setja
sérlög um hvern háskóla á næsta
þingi og hafa háskólakennarar
nokkrar áhyggjur af því að þau
verði í anda dönsku laganna.
Sjálfræði háskólanna
sé raunverulegt
Torfi Hjartarson, formaður
kennarafélags Kennaraháskóla
Íslands, segir að sú viðvörun sem
felst í ályktun Samtaka háskóla-
kennara á Norðurlöndum eigi við
á Íslandi. Ákveðin tilhneiging sé
hér á landi til að auka völd til-
nefndra stjórnenda frekar en kos-
inna. „Við þurfum að vera vel á
verði gagnvart þessum sjónarmið-
um, gæta þess að við glötum ekki
niður hinu akademíska frelsi, sem
m.a. felur í sér að birta rannsókn-
arniðurstöður og fá gagnrýni á
þær frá kollegunum. Þetta er lík-
an sem hefur gengið vel og skilað
miklum árangri. Við megum ekki
missa sjónar á því vegna hug-
mynda um rekstur og aðhald.“
Torfi segir ekki hægt að af-
greiða háskóla eins og hverja aðra
stofnun eða á sama hátt og fyr-
irtæki. Það þurfi að gæta þess vel
að sjálfræði háskóla sé raunveru-
legt og að áhrif háskólakennara á
stjórnun skólanna minnki ekki.
„Það er ákveðin hætta á því að
peningaöfl og pólitísk öfl fari að
ráða of miklu á kostnað faglegra
sjónarmiða. Við þurfum að vera
vel á verði, ekki vaða hugsunar-
laust í breytingar í nafni markaðs-
sjónarmiða heldur beita gagn-
rýnni hugsun.“
Fréttaskýring | Tilhneiging til pólitískrar
stýringar á rannsóknarfé hér á landi
Akademískt
frelsi í hættu?
Samtök háskólakennara á Norðurlöndum
segja miðstýringu rannsókna hafa aukist
Hvergi er minnst á akademískt frelsi
í nýsamþykktum lögum um háskóla.
Kostunaraðili vildi fela
niðurstöður rannsóknar
Í Svíþjóð kom nýlega upp mál
þar sem kostunaraðili rann-
sóknar vildi banna birtingu nið-
urstaðna hennar þar sem honum
hugnuðust þær ekki. Í kjölfarið
spannst umræða um akademískt
frelsi í Svíþjóð og víðar á Norð-
urlöndum. Formaður Félags pró-
fessora í Háskóla Íslands segir
tengsl atvinnulífsins við há-
skólana mjög nauðsynleg. Hins
vegar verði að tryggja sjálfstæði
rannsakenda.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
SPES-samtökunum, sem eru að
byggja heimili fyrir foreldralaus
börn í Tógó, barst gjöf í vikunni
þegar Anna Birgis Hannesson færði
samtökunum tíu þúsund dollara eða
um 750 þúsund krónur að gjöf fyrir
hönd UNDWC, sem er félag
kvenna sem tengjast fastanefndum
við Sameinuðu þjóðirnar í New
York.
Anna, sem er gjaldkeri félagsins,
afhenti stofnanda samtakanna og
formanni Íslandsdeildar Spes, Nirði
P. Njarðvík, upphæðina. Félagið,
sem í eru konur hvaðanæva úr
heiminum, velur árlega verðugt
verkefni til að styrkja. Við afhend-
inguna sagði Anna að Spes hefði
vakið eftirtekt sína og hún hefði
mælt fyrir því að félagið styrkti
byggingu þess fyrir foreldralaus
börn í Tógó að þessu sinni.
Allt starf unnið
í sjálfboðavinnu
„Við höfum skoðað þetta verkefni
Spes vandlega á netinu og hrifumst
af því hversu vel er að öllu staðið,
og töldum því sérlega vel til fundið
að styrkja það í ár,“ sagði Anna
þegar hún afhenti forsvarsmönnum
Spes gjöfina.
Verkefni Spes í Tógó miðar vel,
að sögn forsvarsmanna samtak-
anna, og nýlega tóku samtökin að
sér að leggja rafmagn í skólann í
hverfinu í Lóme, höfuðborg Tógó,
sem börnin í Spes sækja. „Við erum
þakklát fyrir rausn Íslendinga sem
hafa stutt við bakið á Spes af ein-
stöku örlæti og munum tryggja að
öllu því fé sem við öflum sé vel var-
ið,“ sagði Össur þegar þeir Njörður
P. Njarðvík veittu fénu viðtöku.
Allt fé sem aflast rennur til upp-
byggingar barnaþorps Spes í Tógó
og allt starf er unnið í sjálfboða-
vinnu þannig að ekkert af söfn-
unarfénu fer í yfirbyggingu eða
skrifstofukostnað, segir í frétt frá
samtökunum.
Afhentu
samtökun-
um 10 þús-
und dollara
Anna Birgis Hannesson færði Nirði P. Njarðvík, t.h., peningana. Össur
Skarphéðinsson, er ásamt Nirði í forystu fyrir Spes-samtökin.
Spes-samtökin fá veglegan styrk til uppbyggingar í Tógó