Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 9

Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 9 FRÉTTIR Póstsendum Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Rýmingarsalan í fullum gangi Úrval af buxum upp í mitti Eddufelli 2 - sími 557 1730 Bæjarlind 6 - sími 554 7030 Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15. www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 38-56tr. - Vinsælu gallabuxurnar eru komnar i l ll SUMARÚTSALAN HAFIN 20%-70% afsláttur Laugavegur 63 • S: 551 4422 Stærsta töskuverslun landsins Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814 Rýmum til fyrir nýjum ferðatöskum 20% afsláttur af Cavalett Promotion ferðatöskum Ferðatöskur 76 cm (áður 6.900 kr.) nú 5.500 kr. Ferðatöskur 42 cm (áður 4.200 kr.) nú 3.300 kr. Handtaska (áður 2.200 kr.) nú 1.750 kr. Beautybox (áður 2.800 kr.) nú 2.250 kr. Tilboðið gildir þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag LAXVEIÐIN hófst í Selá í Vopna- firði í gærmorgun og að sögn Orra Vigfússonar, formanns veiðifélags- ins, var það besta opnun sem verið hefur í ánni, tíu laxar komu á land á vaktinni. „Laxarnir veiddust víða, á Fossbroti, Efri og Neðri Sundlaugarhyl, í Vaðhyl, á Brúar- breiðu og meira að segja í Kletta- hyl, fyrir ofan foss,“ sagði Orri kampakátur. „Hér við Langá er allt að kom- ast á fullt; veiðin var að detta í 50 laxa í hádeginu,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson staðarhaldari um miðjan dag í gær. „Eftir að flóðunum lauk á dögunum jókst veiðin í sama hlutfalli. Og nú koma hellings- göngur inn á hverju flóði. Þessi byrjun lofar enn einu stór- veiðisumrinu hjá okkur.“ Tíu með Maríulax Ingvi Hrafn sagði að í holli sem lauk veiðum á sunnudag hefðu 10 veiðimenn náð Maríulaxinum. „Þetta voru útlendingar og Íslend- ingar saman á veiðum og fóru heim afar hamingjusamir. Sumir höfðu ekki séð veiðistöng þegar þeir komu.“ Vestar á Snæfellsnesi, í Straum- fjarðará, fór veiðin heldur rólega af stað en að sögn Ástþórs Jó- hannssonar leigutaka hefur laxinn nú gengið í einhverjum mæli í kjölfar Jónsmessustraumsins. Sex laxar komu á land á sunnudag, veiddust víða í ánni, og sagði hann það vita á gott. Þá voru 10 laxar komnir á land. „Þessa dagana er stór hópur iðnaðarmanna að leggja síðustu hönd á nýtt glæsilegt veiðihús við ána. Það var sagt í gamni við iðn- aðarmennina að laxinn gengi ekki í ána fyrr en þeir kláruðu húsið þegar kom í ljós að opnunardag- urinn var laxlaus. Allt stefnir það í rétta átt, bæði með laxinn og hús- ið, og er gert ráð fyrir að fyrsta máltíðin í nýju veiðihúsi verði framreidd næstkomandi mið- vikudagskvöld,“ sagði Ástþór. Að sögn Einars Sigfússonar hafa yfir 60 laxar veiðst í Haffjarðará, þar af 19 á laugardag. „Fiskur er að koma inn þessa dagana og svo er talsvert af tveggja ára fiski í ánni, þótt smálaxinn sé farinn að sýna sig líka.“ 160 laxar úr Þverá-Kjarrá „Hér er fiskur töluvert að ganga, við fengum sjö í morgun, alla með halalús, og misstum þó nokkra,“ sagði Andrés Eyjólfsson leiðsögumaður við Þverá í gær. „Það var landað einum 97 cm hæng, sem samkvæmt kvarðanum er 9,2 kg, en honum var sleppt aft- ur. Hann veiddist í Snasa, sem er uppundir Kjarrá. Hér eru nú út- lendingar að veiða og sleppa nán- ast öllum fiski.“ Þess má geta að stærsti laxinn til þessa úr ánni var sjö kíló. Andrés sagði laxinn vera að taka frekar grannt. Þannig hefði einn veiðimaður sett í níu laxa í gær- morgun en bara haldið einum. „Hollin sem hafa verið á svæð- inu síðustu daga hafa fengið 23 laxa í Þverá og 18 eða 20 í Kjarrá, eða um 40 fiska. Samtals er veiðin komin í 160 laxa, sem er ekki langt að baki veiðinni á sama tíma í fyrra. Á laugardag voru laxarnir orðnir 120 en 150 sama dag í fyrra, en þá voru líka miklu betri skilyrði. Áin hefur farið í skít hér trekk í trekk í sumar.“ Þá höfðu þegar síðast fréttist veiðst fjórir laxar í Brennu, ármót- um Þverár og Hvítár, eftir rólega byrjun, en selur var að angra veiðimenn og fiska á svæðinu um helgina. Rólegt í Kjósinni Frekar rólegt hefur verið í Laxá í Kjós það sem af er veiðitímanum en 44 laxar höfðu veiðst um miðjan dag í gær, þar af einungis þrír á morgunvaktinni þrátt fyrir að van- ir menn væru við veiðar. Í Norðurá er veiðin komin yfir 200 laxa. Holl sem lauk veiðum á laugardag veiddi tæplega 70 fiska og að sögn Haraldar Eiríkssonar héldu menn þá að alvöruveiðitörn væri brostin á. „Að morgni laug- ardagsins var Gilið svo nánast lax- laust og fiskar hafa ekki gengið inn síðustu tvo morgna, nema einn og einn.“ Þá vekur það athygli manna að sumir fiskarnir eru mjög smáir, laxar sem vega 1,2 kg hafa verið að veiðast á Berghylsbrotinu. Þrettán laxar höfðu veiðst í gær í Laxá í Aðaldal og athygli vekur að flestir veiðast ofan Æðarfossa, á svæðum tvö og þrjú. Afar rólegt er yfir veiðinni í Soginu. Veiðimaður sem var þar þrjá daga og lauk veiðum um helgina setti ekki í neinn fisk, ekki einu sinni bleikju. Sá eina upp- ítöku, það var allt og sumt. Tíu laxar í opnun Selár Nítján punda hængur veiddist í Þverá Björn Kr. Rúnarsson með 85 cm hrygnu sem veiddist í Vatnsdalsá. veidar@mbl.is MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Baugs Group hf.: „Vegna viðtals við Jón Gerald Sullenberger í Morgunblaðinu í morgun þykir rétt að ítreka að ástæða þess að gengið var til sam- komulags við hann um niðurfell- ingu málaferla var að skapa félag- inu starfsfrið, einkum vegna viðskipta erlendis, en óttast var að Jón Gerald léti verða af hótunum um að dreifa ósannindum um fé- lagið og einstaklinga sem því tengjast til erlendra fjölmiðla. Þessi ákvörðun byggðist á hags- munamati af hálfu félagsins, en fól ekki í sér viðurkenningu á rétt- mæti kröfugerðar hans. Lögmenn félagsins og Jón Ás- geir Jóhannesson efuðust um rétt- mæti slíks samkomulags þar sem það hvíldi á orðheldni viðsemjand- ans. Samningaleiðin var valin þar sem kröftum félagsins var talið betur varið í uppbyggilegri verk- efni en að elta ólar við dylgjur og óhróður af því tagi, sem getur að líta í Morgunblaðinu í dag. Þetta hefur áður komið fram af hálfu fé- lagsins, m.a. í yfirlýsingu sem birt- ist í fjölmiðlum hinn 27. september 2005.“ Yfirlýsing frá Hreini Loftssyni LEIÐANGUR Rotem Ron á kajak í kringum landið gengur vel og er hún komin austur fyrir Raufarhöfn á leið sinni fyrir Langanesið. Þrátt fyrir nokkurn vind og um eins metra ölduhæð hefur ekkert borið út af síð- ustu daga. Hún lagði að baki gríð- arlega langa dagleið þann 23. júní er hún réri í einum rykk hátt í 60 km frá Húsavík að Leirhöfn, rétt norðan Kópaskers. Þaðan réri hún til Rauf- arhafnar og stefnir nú yfir Þist- ilfjörð og út fyrir Font. Eru því kaflaskil að verða á leiðangri hennar því hún hefur nú kvatt Norðurlandið og stefnir suður með Austfjörðunum þar sem önnur tveggja bakvarða- sveita hennar bíður á Neskaupstað, Kajakklúbburinn Kaj. Rotem á fljúgandi siglingu Norðurlandið að baki. Rotem Ron lestar leiðangurskajak sinn. TENGLAR .............................................. http://www.seakayak.co.il STANGVEIÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.