Morgunblaðið - 27.06.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 11
FRÉTTIR
TILLAGA Helga Hjörvars og Álf-
heiðar Ingadóttur, stjórnarmanna í
Landsvirkjun, þess efnis að Lands-
virkjun beini þeim tilmælum til Al-
coa að fallið verði frá trúnaði um
orkuverð í samningum um Kára-
hnjúkavirkjun, var felld á fundi
stjórnar Landsvirkjunar í dag. Tveir
greiddu atkvæði sitt með tillögunni
en þrír á móti.Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri var fjarver-
andi og Ágúst Einarsson sat hjá.
Full ástæða til að taka
málið upp á þingi
Að sögn Helga Hjörvars var til-
lagan lögð fram í beinu framhaldi af
yfirlýsingu stjórnarformanns Alcoa,
Alain Belda, í brasilískum fjölmiðl-
um þess efnis að fyrirtækinu byðist
mun lægra orkuverð á Íslandi en í
Brasilíu. Helgi telur að með þessum
orðum hafi Belda rofið þann trúnað
sem áskilinn er í
samningum fyrir-
tækisins um
Kárahnjúkavirkj-
un auk þess sem
hann hafi dregið
upp afar óheppi-
lega mynd af
Landsvirkjun.
Því sé mikið
hagsmunamál
fyrir Landsvirkj-
un að fá leyndinni aflétt auk þess
sem um ákveðið réttlætismál gagn-
vart þjóðinni sé að ræða, að mati
Helga. Hann telur óeðlilegt að Ís-
lendingar, sem eigendur Landsvirkj-
unar og náttúruauðlinda landsins, fái
ekki að vita á hvaða forsendum ráð-
ist er í stærstu framkvæmd Íslands-
sögunnar.
Helgi segist munu halda áfram að
berjast fyrir því að hulunni verði
svipt af orkuverði Landsvirkjunar
og telur fulla ástæðu til þess að taka
málið til gagngerrar endurskoðunar
á Alþingi í haust.
Helgi bendir á að
mikið kapphlaup
um mengunar-
heimildir og
virkjunarkosti
sem eftir eru sé
hafið á meðal ál-
framleiðslufyrir-
tækja og eftir-
spurnin meiri en
framboðið.
„Menn hljóta því að skoða hvort
þetta ástand kalli ekki á aukið
gagnsæi í samningnum, þannig að
öllum sé ljóst um hvað verið sé að
semja, hverjir séu að keppa og á
hvaða forsendum,“ segir Helgi.
Nauðsynlegt að ætla Lands-
virkjun ákveðið svigrúm
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, for-
maður stjórnar Landsvirkjunar,
segir að sjónarmið þeirra sem fellt
hafi tillöguna hafi byggst á því að
ekki væri ástæða til þess að taka
einn samning við ákveðið fyrirtæki
út og svipta af honum hulunni. Auk
þess sé enn í gildi stefnumótandi
ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar
frá 1995 þess efnis að gefa ekki upp
verð á einstökum samningum. Þyrfti
því fyrst að breyta þeirri ákvörðun,
áður en hægt væri að upplýsa orku-
verð í einstökum samningum, að
mati Jóhannesar. „Það er svo allt
annað mál hvort menn vilja hafa
þetta allt saman fyrir opnum tjöld-
um,“ segir Jóhannes. „Ef við gerum
það, þá er búið að ákveða eitt heild-
söluverð á raforku sem gildir fyrir
alla sölu til stóriðju. Vandinn er hins
vegar sá að við erum að semja við
mismunandi aðila á mismunandi tím-
um og eftir mismunandi forskrift,“
segir Jóhannes og ítrekar að til þess
að Landsvirkjun geti starfað á mark-
aði þar sem almennt hvílir leynd yfir
samningum verði fyrirtækið að fá
rúm til þess að starfa eins og einka-
fyrirtæki, þótt það sé vissulega í eigu
ríkis og sveitarfélaga.
Tillögu um að falla frá
leynd um orkuverð hafnað
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Helgi
Hjörvar
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
SÝSLUMAÐURINN í Vestmanna-
eyjum hefur gefið út tímabundið
skemmtanaleyfi fyrir Höllina í Vest-
mannaeyjum fyrir næstkomandi
laugardagskvöld, en þessi stærsti
skemmtistaður Vestmannaeyja hef-
ur ekki starfsleyfi frá heilbrigðis-
nefnd Suðurlands.
Deilur hafa staðið um skemmtana-
hald í húsinu undanfarin ár, en ná-
grannar hafa gagnrýnt harðlega há-
vaða sem frá starfseminni stafar,
sem starfsmenn heilbrigðiseftirlits-
ins o.fl. hafa mælt yfir leyfilegum
mörkum. Aðrir hafa bent á að þetta
sé svo til eina húsið sem hægt sé að
halda stórar skemmtanir í, en húsið
tekur alls 500 gesti.
Að athugasemdum við hávaða-
mengun undanskildum uppfyllir
Höllin öll skilyrði til skemmtana-
halds, og hefur fengið jákvæða um-
sögn frá öllum umsagnaraðilum öðr-
um en heilbrigðisnefnd, segir Páley
Borgþórsdóttir, fulltrúi hjá sýslu-
manninum í Vestmannaeyjum. Því
var ákveðið að veita svokallað tæki-
færisskemmtanaleyfi næstkomandi
laugardag, en það er skemmtanaleyfi
sem nær aðeins til eins kvölds.
Á laugardagskvöldið verður Sum-
arstúlka Vestmannaeyja valin í Höll-
inni, og gildir skemmtanaleyfið frá
kl. 19 til kl. 4 aðfaranótt sunnudags.
Páley segir leyfið gefið út með vísan
til bókunar Heilbrigðisnefndar Suð-
urlands frá því 24. maí sl., þar sem
tekið er fram að hægt sé að sækja um
tímabundið leyfi til skemmtanahalds
hjá sýslumanni varðandi einstaka
skemmtanir.
Þetta tímabundna skemmtanaleyfi
er háð ákveðnum takmörkunum, en í
þeim felst m.a. að aðstandendur
skemmtunarinnar þurfa að kynna
það vel fyrir nágrönnum að til standi
að halda skemmtun í húsinu, og halda
hljóðmengun í lágmarki. Ekki kemur
þó fram við hvað sé miðað sem lág-
marks hljóðmengun. Síðast var veitt
tímaundið leyfi á sjómannadaginn,
11. júní, og þar áður 7. júní, þegar
leiksýning var í húsinu.
Bíða úrbótaáætlunar
Hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
fengust þær upplýsingar að einu at-
hugasemdirnar sem heilbrigðisnefnd
geri við starfsemi í húsinu séu við há-
vaðann sem frá skemmtunum stafar,
en hann er yfir leyfilegum mörkum í
nágrenni við húsið. „Þetta hús er ekki
með starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd.
Nú er beðið eftir úrbótaáætlun, og að
það verði gerðar þær úrbætur sem
nágrannar hússins geta unað við,“
segir Birgir Þórðarson, heilbrigðis-
fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Suður-
lands. Hann segir mál tengd hávaða
frá Höllinni hafa verið í gangi und-
anfarin ár, en húsið er nú í eigu
Sparisjóðs Vestmannaeyja og Glitn-
is, eftir að félög sem voru með rekst-
ur í því enduðu í gjaldþroti.
„Þeir hafa staðið fyrir endurbótum
á húsinu, og hafa leigt það út til ein-
hverra dansleikja, en það er sýslu-
maðurinn sem hefur veitt leyfi til að
standa fyrir þessum dansleikjum,“
segir Birgir. „Það má örugglega
túlka það þannig að það sé ekki
heppilegt.“
Sýslumanni heimilt að
túlka lögin á þennan hátt
Birgir segir það þó trúlega stand-
ast lög að gefa út tímabundið
skemmtanaleyfi þrátt fyrir að starfs-
leyfi sé ekki til staðar, byggt á und-
anþágu sem umhverfisráðuneytið gaf
út í vor. „Okkur [heilbrigðiseftirlit-
inu] finnst þetta í sjálfu sér ekki eðli-
legt, en honum [sýslumanni] er alveg
heimilt að túlka lögin á þennan hátt,
og hægt að nota úrskurð.“
Haft var samband við Inga Sig-
urðsson, útibússtjóra Glitnis í
Vestmannaeyjum, en hann kaus að
tjá sig ekki um málefni Hallarinnar,
og vísaði í samkomulag milli Glitnis
og Sparisjóðsins um að eigendur
tjáðu sig ekki um málið í fjölmiðlum.
Skemmtistaðurinn Höllin með tímabundið leyfi vegna Sumarstúlku Vestmannaeyja
Hafa ekki starfsleyfi
frá heilbrigðisnefnd
UNDIRRITAÐUR var í gær fríverslunarsamn-
ingur milli EFTA og tollabandalags Suður-
Afríkuríkja en ráðherrafundur EFTA-ríkjanna
hófst á Höfn í Hornafiði í gær. Samningurinn er
sá fyrsti sem EFTA-ríkin gera við ríki Afríku
sunnan Sahara. Þetta eru Bótsvana, Lesótó,
Namibía, Suður-Afríka og Svasíland. Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra stýrir fundinum
á Höfn. Ísland hefur farið með formennsku í
EFTA undanfarið ár en Svisslendingar taka við
formennskunni í dag. Valgerður segir að á ráð-
herrafundinum hafi einkum verið rædd innri
mál EFTA, málefni EFTA og Evrópusambands-
ins og málefni EFTA gagnvart öðrum þjóðum.
Einnig var fundur með þingmannanefnd sam-
takanna þar sem ráðherrarnir hafa tækifæri til
að upplýsa og skiptast á skoðunum.
Mjög margt í undirbúningi
Valgerður efast ekki um mikilvægi EFTA.
„Ég fullyrði að það er okkur mjög mikilvægt að
vera í EFTA því í gegnum samtökin getum við
náð fríverslunarsamningum við þjóðir sem við
gætum ekki ella, að mínu mati, og það er mjög
mikilvægt fyrir Ísland, sem byggir svo mjög á
inn- og útflutningi. Mér finnst mikið hafa verið
að gerast innan EFTA upp á síðkastið, það er bú-
ið að undirrita fimmtán fríverslunarsamninga
og sá sextándi var undirritaður hér á fundinum.
Einnig er mjög margt í undirbúningi, ekki síst
hvað varðar Asíu og það er nú álitið að Asía eigi
eftir að vera mikið afl í viðskiptum framtíð-
arinnar og skiptir því miklu máli. Vissulega er
það þannig í Kína, að þar erum við í raun í for-
ystu en við reiknum með því að þegar þær við-
ræður þróast áfram verði það fríverslunarsamn-
ingur milli Kína og EFTA þótt ekki sé búið að
taka ákvörðun um það ennþá,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
Ráðherrafundinn á Höfn sitja 150 fulltrúar frá
EFTA-ríkjunum fjórum, Íslandi, Noregi, Sviss
og Liechtenstein.
Fríverslunarsamningur við Afríkuríki sunnan Sahara undirritaður á EFTA-fundinum
Mikilvægt
samstarf
fyrir Ísland
Valgerður Sverrisdóttir og Joseph Deiss, efnahagsráðherra Sviss, takast í hendur eftir undirritun
fríverslunarsamningsins. Odd Eriksen, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs, Rita Kieber-Beck, ut-
anríkisráðherra Liechtenstein, og William Rossier, framkvæmdastjóri EFTA, fylgjast með.
Eftir Sigurð Mar Halldórsson
♦♦♦
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
fellt niður lögreglurannsókn, sem haf-
in var að beiðni Valgerðar Sverris-
dóttur, þáverandi iðnaðarráðherra, á
því hvort slagorðið „Drekkjum Val-
gerði en ekki Íslandi“ á mótmæla-
spjaldi í göngu Íslandsvina í lok maí,
varðaði við lög.
Með þessu taldi Valgerður að mót-
mælendur hefðu orðið sér til skamm-
ar og gerst brotlegir við lög.
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, segir að fjórir ung-
ir piltar hafi kannast við að hafa borið
spjaldið. Rannsókninni hafi hins veg-
ar verið hætt á grundvelli 76. greinar
laga um meðferð opinberra mála. Þar
segir m.a. að lögregla geti hætt rann-
sókn ef ekki þykir grundvöllur til að
halda henni áfram eða ef í ljós kemur
að kæra var ekki á rökum reist.
Engin eftirmál af hálfu ráðherra
Valgerður Sverrisdóttir segir eng-
in eftirmál munu verða af sinni hálfu í
kjölfar ákvörðunar lögreglu. „Mér
finnst skipta máli að forsvarsmönnum
göngunnar fannst of langt gengið og
óskuðu þess að skiltið yrði fjarlægt.
Ég er enn þeirrar skoðunar að þarna
hafi verið gengið of langt en það getur
verið að þeir sem standa fyrir svona
skiltagerð og -burði að þeir velti fyrir
sér hvernig þetta kemur við þá sem
þetta snýr að. Mér finnst að umræðan
sem kom í kjölfarið hafi skipt máli og
orðið til þess að ýmsir velta fyrir sér
hversu langt megi ganga í þessum
efnum.“
Rannsókn
á mótmæla-
spjaldi hætt
HÁTT í sjö hundruð netverjar höfðu
í gærkvöldi ritað nafn sitt undir opna
ályktun ferðaþjónustuaðila og
áhugamanna um samgöngur í Vest-
mannaeyjum til forsætisráðherra og
ríkisstjórnar Íslands. Í ályktuninni
kemur fram að neyðarástand ríki í
samgöngumálum Vestmannaeyja.
Til þess að bregðast við vandanum
þurfi stjórnvöld þegar í stað að
skipta Herjólfi út fyrir nýtt og
stærra skip auk þess sem koma þurfi
á fót reglulegu flugi til Eyja með 30–
50 sæta flugvélum. Þeir sem standa
að baki ályktuninni óska eftir því að
litið verði á Vestmannaeyinga sem
meðborgara með sömu réttindi og
aðrir landsmenn hvað varðar sam-
göngumál og benda á að ef ekki verði
komið til móts við eyjaskeggja sé út-
lit fyrir hrun ferðamannaþjónustu
þar.
Nærri 700 hafa
skrifað undir
TENGLAR
..............................................
http://eyjafrelsi.net/