Morgunblaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA aðallista hækk- aði um 0,04% í gær og er 5.566,49 stig. Mest hækkaði Alfesca eða um 6,5%, Atorka 3,3% og Mosaic Fas- hions um 3,2%. Össur lækkaði um 1,8%. Mest viðskipti voru með bréf Dagsbrúnar eða fyrir 2.542 milljónir króna en Straumur Burðarás jók hlut sinn verulega í félaginu í dag. Alfesca hækkar um 6,5% ● BRÉF skandinavíska flugfélags- ins SAS hafa lækkað í verði mest allra evrópskra flugfélaga það sem af er ári. Önnur stór flugfélög hafa hækkað í verði á árinu, eins og Lufthansa um 13% og British Air- ways um 4%, en gengi bréfa SAS hefur lækkað um 24% frá áramót- um. Það flugfélag sem bestum ár- angri hefur skilað í þessum efnum er FlyMe, sem er í eigu íslenska fjárfestingarfélagsins Fons. Hafa bréf FlyMe hækkað um ein 58% á árinu. Bréf Norwegian Airlines hafa hækkað um 33%. SAS stendur sig verst ● BRESKI athafnamaðurinn Richard Branson hefur opnað banka í Suður- Afríku. Nefnist bankinn Virgin Money og telur Branson ekki ólíklegt að hann muni hrista upp í fjármálalífi Suður-Afríku, en Branson segir að hingað til hafi engin alvöru sam- keppni ríkt á þessum markaði í Suð- ur-Afríku. Branson opnar s-afrískan banka ● IRENE Rosenfeld hefur verið skipuð forstjóri bandaríska mat- vælarisans Kraft Foods. Tekur hún við starfinu af Roger Deromedi en afkoma félagsins hefur verið léleg í langan tíma. Deromedi hafði set- ið í forstjórastólnum frá árinu 2003 en starfaði hjá félaginu í 28 ár. Rosenfeld starfaði um tuttugu ára skeið hjá Kraft og dótturfélagi þess, General Foods, áður en hún færði sig um set til Frito-Lay árið 2004. Kraft er annað stærsta mat- vælafyrirtæki heims, næst á eftir svissneska félaginu Nestle. Meðal vörumerkja Kraft eru Toblerone, Ritz, Maxwell House, Jacobs, Oreo, Maarud og svo mætti lengi telja. Fyrirtækið hefur lokað nítján verksmiðjum undanfarin ár og fækkað störfum verulega á síð- ustu tveimur árum. Nýr forstjóri Kraft Foods ● STÆRSTI lyfjaframleiðandi heims, Pfizer, hefur nú selt lausa- sölulyfjaarm sinn til Johnson & Johnson fyrir um 16,6 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar tæplega 1,3 billjónum íslenskra króna. Upphaflega var tilkynnt um fyrirhugaða sölu starfseminnar í febrúar og var breska lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline lengi talið sig- urstranglegast í kapphlaupinu en það varð þó Johnson & Johnson sem varð hlutskarpast. Meðal þeirra vörumerkja sem nú bætast við vopnabúr J&J eru Listerine munnskol, Nicorette níkótínvörur og verkjalyfið Treo. Hagnaður Pfizer af sölunni er um 13,5 milljarðar dala eftir skatt, sem samsvarar ríflega 1 billjón króna. Pfizer selur Nicorette ÍSLENSKA krónan sveiflast ekki í takt við svokallaðar nýmarkaðs- myntir og rennir það styrkari stoð- um undir þá skoðun að krónan sé ein nýmarkaðsmyntanna, öfugt við það sem oft hefur verið haldið fram. Kemur þetta fram í Vegvísi grein- ingardeildar Landsbankans. Frá því að gengi krónunnar féll seinni partinn í febrúar, eftir að láns- hæfisfyrirtækið Fitch Ratings breytti lánshæfishorfum fyrir ríkis- sjóð úr stöðugum í neikvæðar, hefur krónan lækkað gagnvart evru um rúmlega 20%. Segir í Vegvísinum að að vissu leyti megi segja að breytingar á gengi íslensku krónunnar hafi hrundið af stað lækkunum á gengi ýmissa mynta sérstaklega svokall- aðra nýmarkaðsmynta (e. emerging market) á borð við tyrknesku líruna, ungversku forintuna og suður-afr- íska randið, en allar þessar myntir hafa fallið umtalsvert á síðustu mán- uðum. Raunverulegt gengisfall ný- markaðsmynta átti sér aftur stað um 10. maí s.l. og tengdist vandræðum tyrkneskra stjórnvalda við að við- halda trúverðugleika gagnvart er- lendum fjárfestum. Hafði ekki áhrif á krónuna Fall tyrknesku lírunnar hafði víð- tæk áhrif í löndum eins og Suður- Afríku, Ungverjalandi, Póllandi, Brasilíu og Indónesíu svo nokkur lönd séu nefnd. Áhrifin á íslensku krónuna voru hins vegar því sem næst engin og sama má segja um nýsjálenska doll- arann, en þar hefur gengið farið lækkandi, m.a. vegna mikils við- skiptahalla. Segir í Vegvísinum að þetta sýni að krónan sveiflist þrátt fyrir allt ekki í takt við nýmarkaðs- myntirnar, öfugt við það sem haldið hefur verið fram af erlendum aðilum. Krónan ekki nýmarkaðsmynt =K L?   "#$ "# G G @C 7M $  %# %# G G DD N*M   %# # G G N*M1+&$ =    "#$ "# G G <DCM 7"OP"  $  # "# G G

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.