Morgunblaðið - 27.06.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 15
ERLENT
breskir þegnar gætu ekki skotið mál-
um til Mannréttindadómstólsins í
Haag.
„Þokukenndar“
og „hættulegar“
Peter Goldsmith, ríkissaksóknari í
Bretlandi, sagði um hugmyndir
Camerons, að þær væru „þokukennd-
ar“ og „hættulegar“.
„Ég tel þær vera hættulegar vegna
þess, að þær munu leiða til ruglings og óvissu um mörkin
á milli þess að gæta hagsmuna og öryggis þegnanna og
frelsis einstaklingsins,“ sagði Goldsmith í viðtali við
BBC. Bætti hann við, að settu Bretar sér sína sérbresku
réttindaskrá en væru áfram aðilar að mannréttindasátt-
mála Evrópu, myndi það þýða, að „við værum með tvenns
konar mannréttindalög“.
London. AFP, AP. | David Cameron, leiðtogi breska Íhalds-
flokksins, segir, að beri flokkur hans sigur úr býtum í
næstu kosningum, hyggist hann nema úr gildi bresku
mannréttindaskrána og setja aðra, sérstaka réttinda-
skrá, í hennar stað.
Þetta kom fram hjá Cameron í viðtali við BBC, breska
ríkisútvarpið, á sunnudag og í gær gerði hann frekari
grein fyrir hugmynd sinni í erindi sem hann flutti í Lond-
on. Sagði Cameron, að núverandi lög gerðu baráttuna við
glæpamenn og hryðjuverkamenn erfiðari en ella og
stæðu ekki vörð um borgaraleg réttindi þegnanna.
„Við ættum að losa okkur við mannréttindaskrána og í
stað þess að taka við erlendum hugmyndum eða sam-
þykktum um mannréttindi, ættum við að semja okkar
eigin bresku réttindaskrá. Það myndi tryggja skynsam-
lega mannréttindalöggjöf,“ sagði Cameron á sunnudag
en bætti við, að hann væri ekki að leggja til, að Bretar
segðu sig frá mannréttindasáttmála Evrópu eða að
Vill breska réttindaskrá
David Cameron
Róm. AP, AFP. | Ítalir höfnuðu tillögu
um breytingar á stjórnarskrá Ítalíu í
þjóðaratkvæðagreiðslu í gær og
fyrradag samkvæmt útgönguspám
ítalskra sjónvarpsstöðva. Gangi
spárnar eftir er þetta mikið áfall fyr-
ir Silvio Berlusconi, fyrrverandi for-
sætisráðherra, sem hafði beitt sér
fyrir breytingunum.
Stjórn Berlusconis lagði fram til-
lögu um breytingarnar áður en
hægriflokkarnir biðu ósigur fyrir
bandalagi vinstri- og miðjumanna
undir forystu Romanos Prodis for-
sætisráðherra í þingkosningum í
apríl. Stjórn Prodis var andvíg til-
lögunni, sagði að breytingarnar
myndu auka um of völd forsætisráð-
herrans á kostnað þingsins.
Stuðningsmenn tillögunnar sögðu
hins vegar að hún myndi tryggja
pólitískan stöðugleika og bentu á að
61 ríkisstjórn hefur verið mynduð á
Ítalíu frá lokum síðari heimsstyrj-
aldarinnar. Í tillögunni var meðal
annars gert ráð fyrir því að forsætis-
ráðherrann fengi vald til að leysa
þingið upp, en það vald hefur verið í
höndum forseta landsins. Forsætis-
ráðherrann átti einnig að fá vald til
að skipa og reka ráðherra án sam-
þykkis forsetans.
Ítalir hafna breytingum
á stjórnarskránni
MÍKHAÍL Kalashníkov, maðurinn
sem bjó til hinn alræmda AK-47
árásarriffill, hefur lýst sig fylgjandi
því að settar verði
strangari reglur
um útbreiðslu og
sölu skotvopna.
Ráðstefna um
varnir gegn út-
breiðslu skot-
vopna stendur nú
yfir í New York
en í skýrslu sem
birt var við upp-
haf hennar og
samin var af
fulltrúum Amnesty International,
Oxfam International og Internatio-
nal Action Network kemur fram að
nú séu um eitt hundrað milljónir
AK-47-riffla og svipaðra byssuteg-
unda í dreifingu. Fara skýrsluhöf-
undar fram á að gerður verði alþjóð-
legur sáttmáli þar sem skilgreindar
verði „alþjóðlegar grundvallarregl-
ur“ um vopnasölu.
Kalashníkov er fyrrverandi hers-
höfðingi í sovéska hernum og fann
hann AK-47-rifillinn upp árið 1945.
Hefur vopnið æ síðan verið kennt við
skapara sinn. Kalashníkov segist
hins vegar nú styðja viðleitni Sam-
einuðu þjóðanna til að stöðva ólög-
lega útbreiðslu skotvopna.
„Þegar ég horfi á sjónvarpið og sé
byssur sem tilheyra AK-fjölskyld-
unni í höndum bófa þá spyr ég mig
jafnan: Hvernig kom þetta fólk
höndum yfir þennan riffil?“ sagði
Kalashníkov samkvæmt frétt BBC.
Kenndi hann um skorti á alþjóðleg-
um reglum um sölu skotvopna.
Fram kemur í skýrslunni að
AK-47 riffla sé að finna í vopnabúri
82 ríkja og hann sé framleiddur í alls
fjórtán löndum. Um 1.000 manns
deyi dag hvern af völdum léttra skot-
vopna eins og AK-47 riffilsins.
Styður
strangari
reglur um
skotvopn
Míkhaíl
Kalashníkov
Stokkhólmi. AFP. | Karlmaður var í
gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi
í Svíþjóð fyrir að neyða þrettán ára
dóttur sína til umskurðar. Er þetta
fyrsti fangelsisdómurinn á grund-
velli sænskra laga sem sett voru ár-
ið 1982 og banna umskurð kvenna.
41 árs Sómali, sem er með sænsk-
an ríkisborgararétt, fór með dóttur
sína til Sómalíu í janúar 2005 og
hélt henni þegar snípurinn var
skorinn af, að því er fram kom í nið-
urstöðu héraðsdóms í Gautaborg.
Maðurinn neitaði sök og sagði að
einhver annar hlyti að hafa neytt
dóttur hans í aðgerðina.
Manninum var einnig gert að
greiða dóttur sinni um 346.000
sænskar krónur, sem svarar rúm-
um 3,5 milljónum króna, í skaða-
bætur.
Í fangelsi fyr-
ir umskurð
♦♦♦