Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 18

Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Styrkur | Bæjarráð samþykkti á fundi í gær að veita hjónunum Sig- mundi Rafni Einarssyni og Guð- björgu Ingu Jósefsdóttur tveggja milljóna króna styrk vegna endur- byggingar Hafnarstrætis 94, Ham- borgar, og sem viðurkenningarvott vegna þess frumkvæðis og dugnaðar sem þau hafa sýnt við endurgerð gamalla húsa í bæjarfélaginu. Kostnaði var vísað til endurskoð- unar fjárhagsáætlunar.    AKUREYRI Tilboði hafnað | Bæjarráð Akur- eyrar hafnaði á fundi sínum í gær til- boði frá framkvæmdastjóra Estia hf. þar sem gert var formlegt tilboð í eignarhlut Akureyrarbæjar í Tæki- færi hf. Alls var um að ræða 20% hlut í félaginu að nafnverði 108 millj- ónir króna.    Sveitarstjóri | Guðmundur Sig- valdason, verkefnisstjóri hjá Sorp- eyðingu Eyjafjarðar, hefur verið ráðinn sveitarstjóri Hörgárbyggðar. Guðmundur tekur við starfinu af Helgu Arnheiði Erlingsdóttur. RAÐAÐ var í nefndir og ráð á veg- um Akureyrarbæjar á fundi bæjar- stjórnar í vikunni. Margrét Kristín Helgadóttir er formaður í áfengis- og vímuvarnar- nefnd, sem og í jafnréttis- og fjöl- skyldunefnd. Formaður félags- málaráðs er Sigrún Stefánsdóttir, Hermann Jón Tómasson formaður framkvæmdaráðs og Ólafur Jóns- son fer fyrir íþrótta- og tómstunda- ráði. Sigrún Björk Jakobsdóttir er formaður menningarmálanefndar, Hjalti Jón Sveinsson er fomaður náttúrverndarnefndar, Elín Mar- grét Hallgrímsdóttir formaður skólanefndar, Kristján Þór Júlíus- son formaður stjórnsýslunefndar og Jón Ingi Cæsarsson er formaður umhverfisráðs.    Kosið í ráð og nefndir bæjarins STARFSEMI Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eykst á flestum sviðum og það gerir rekstrarkostn- aður einnig, en í uppgjöri fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins kemur fram að tekjuhalli nemur tæpum 16 milljónum króna. Launakostnaður í lok apríl hefur hækkað um 5,5%, nam um 822 milljónum króna. Hækkanir samkvæmt miðlægum kjarasamning- um hafa komið til framkvæmda en nýir stofnana- samningar tóku almennt gildi 1. maí. Hlutfall launakostnaðar af heildarútgjöldum spítalans er um 72% á tímabilinu. Yfirvinna hefur hækkað nokkru meira en meðaltal launa, eða um tæp 8%. Launakostnaður vegna veikinda hefur lækkað um 15,5%. Almenn rekstrargjöld nema samtals 307 millj- ónum króna á tímabilinu og hafa þau hækkað um tæp 11% miðað við fyrra ár. Helstu frávik eru í vörum til lækninga og hjúkrunar sem hafa hækkað um 10% að meðaltali og aðkeyptri þjónustu sér- fræðinga, sem hefur hækkað um 26%. Einnig hefur orðið töluverð hækkun á matvörum og ferðakostn- aði. Á móti kemur lítilsháttar lækkun á lyfjakostn- aði og vörum til myndgreininga og rannsókna. Sértekjur nema 93 milljónum króna í lok tíma- bilsins og hafa hækkað um 12,5% miðað við fyrra ár. Fyrst og fremst er um að ræða hækkun á komugjöldum sjúklinga vegna aukinnar starfsemi. Endurskoðunar þörf ef endar eiga að ná saman Starfsemi spítalans hefur farið vaxandi undan- farin misseri, sjúklingum hefur fjölgað um 4,5% miðað við sama tíma á síðasta ári og legudögum um rúmlega 1%. Skurðaðgerðum hefur fjölgað um 11% og fæðingum um 15%. Þá er einnig aukning í flestum tegundum rannsókna og ferliverk hafa aukist um 14%. Áhrifa gengisbreytinga og vaxandi verðbólgu gætir í auknum mæli í rekstrarkostnaði spítalans að því er fram kemur í greinargerð Vignis Sveins- sonar framkvæmdastjóra fjármála og rekstur. Hann segir að að óbreyttu munu þau áhrif vaxa enn frekar þegar líður á árið. Þá má ætla að eitt- hvert launaskrið verði sem fylgifiskur þenslu og aukinnar samkeppni um vinnuafl. Þess er því að vænta að taka verði rekstraráætlun spítalans til endurskoðunar ef endar eiga að ná saman um ára- mót. Áætluð velta sjúkrahússins á árinu er 3,5 millj- arðar króna. Starfsemi FSA eykst á flestum sviðum og 4,5% fjölgun sjúklinga ENGU er líkara en þessi hjólaskófla sé að hvíla lúin bein ef svo má að orði komast um þessa ágætu vinnuvélategund. Hvílir skófluna ofan á gömlum úrsérgengnum bíl niðri á gamla kaup- félagsplaninu á Svalbarðseyri. En það leið ekki að löngu þar til að bar tvo menn, sem fóru að bar- dúsa. Koma reipi fyrir og festa kirfilega. Svo var blessuð bifreiðin hífð upp og endaði ofan í rusla- gámi. Hjólaskófla að hvíla sig? Það virðist vera … Morgunblaðið/Margrét Þóra …en svo var böndum komið á bílinn og hann hífður á brott, ofan í ruslagám. Endaði ofan í ruslagámi Jarðvinna og lagnir | Tilboð Yls ehf. í jarð- og lagnavinnu í væntanlegu íbúðarhverfi á svo- kölluðu Suðursvæði á Egilsstöðum hefur verið samþykkt í skipulags- og byggingarnefnd Fljótsdalshéraðs. Kostnaðaráætlun nam 168 millljónum króna. Ylur átti lægra tilboðið af tveimur, eða rúm- lega 153 milljónir króna, en Bíla- og búvélasal- an bauð 214 milljónir.    Svefnrannsóknir | Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað hefur fengið að gjöf ný tæki til svefnrannsókna og eru þau gefin af Hollvina- samtökum FSN. Sigurður Rúnar Ragnarsson formaður samtakanna afhenti tækin og tók Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra við þeim fyrir hönd FSN. Var það fyrsta embættisverk hennar á Austurlandi frá því að hún tók við heilbrigðisráðuneytinu.    Styrkja íslenskukeppni | Íslenskan er okkar mál, íslenskukeppni tíundubekkinga á Austur- landi, hefur hlotið styrk að upphæð 500 þús- und krónur frá Styrktarsjóði Baugs Group. Fær Menningarmálanefnd Vopnafjarðar féð til umráða og mun standa að keppninni. Egilsstaðir | Í júníbyrjun barst Skipulags- stofnun frummatsskýrsla Fljótsdalshéraðs vegna mats á umhverfisáhrifum efnistöku við Eyvindará á Fljótsdalshéraði. Samkvæmt frummatsskýrslu er fyrirhugað námusvæði staðsett í u.þ.b. 10 km fjarlægð frá Egilsstöð- um. Heildarflatarmál fyrirhugaðrar efnistöku er 260.000 m2 og er gert ráð fyrir um 400.000 m³ efnistöku á næstu 30 árum. Efnisnám hefur farið fram á svæðinu í nokk- urn tíma en stefna Fljótsdalshéraðs er að loka öllum öðrum námum í sveitarfélaginu sem ekki hafa framkvæmdarleyfi. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að óska eftir eintökum af frummatsskýrslunni hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 í Reykja- vík. Einnig er hægt að nálgast frummatsskýrsl- una á heimasíðu Línuhönnunar verkfræðistofu: www.lh.is. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. júlí 2006 til Skipu- lagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Eyvindarárdalur Fyrirhuguð efnistaka er í dalnum þar sem farið er yfir til Mjóafjarðar, um 10 kílómetra frá Egilsstöðum. Efnistaka við Eyvindará Egilsstaðir | Bygging annars áfanga kennslu- húss Menntaskólans á Egilsstöðum gengur mjög vel og ekkert sem bendir til annars en að verktakinn skili af sér á tilsettum tíma sem er 1. ágúst nk. Verktaki er Tréiðjan einir ehf. í Fellabæ en undirverktakar eru nokkrir. Helgi Ómar Bragason, skólameistari, segir nýbygginguna vera um 1.100 fermetra og bæti hún aðstöðu nemenda, kennara og ann- ars starfsfólks. „Í nýju byggingunni verður stjórnunaraðstaða og vinnuaðstaða kennara en auk þess nokkrar kennslustofur,“ segir Helgi. „Ýmis starfsemi flyst úr alls konar kompum í heimavistarbyggingu og þar eykst pláss fyrir félagsaðstöðu nemenda. Bókasafn verður áfram í heimavistarbyggingunni.“    Viðbygging ME á lokaspretti AUSTURLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.