Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 19

Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 19 MINNSTAÐUR KLUKKUBERG 17 - HAFNARFIRÐI OPIÐ HÚS Í DAG KL. 18-20 Í einkasölu falleg 2ja herb. íbúð á 1. hæð (jarðhæð) í þessum vinsælu húsum. Sér- inngangur. Anddyri með skápum. Eldhús með fallegri sprautulakkaðri innréttingu. Stofa með suðvesturverönd og glæsilegu útsýni. Svefnh. með skápum. Baðh. m. kari og t.f. þvottav. Parket og flísar á gól- fum. Sérgeymsla við hlið íb. Verið er að mála húsið að utan á kostnað seljanda. LAUS FLJÓTLEGA. Ásett verð 15,9 millj. VERIÐ VELKOMIN. LANDIÐ Skógar | Stjórnarfundur í Símanum var nýverið haldinn í Skógum undir Eyjafjöllum þar sem ákveðið var að styðja við uppbyggingu á Sam- göngusafninu með því að gefa safninu tæki og muni úr sögu fjarskiptanna, sem ekki voru í eigu Fjarskiptasafns fyrirtækisins sem Síminn gaf ríkinu á síðasta ári. Jafnframt var ákveðið að staðfesta þriggja ára samstarfssamning við safnið sem felur í sér tveggja milljóna króna framlag á ári. Að loknum stjórnarfundi fór fram hátíðleg undirritun samstarfssamningsins með afhendingu gjafar og peningaframlags. Rannveig Rist, stjórnarmaður og formaður afmælisnefndar Símans, fagnaði uppbyggingu safnanna í Skógum og starfi Þórðar Tómasson- ar við þá uppbyggingu og kvað vel við hæfi á 100 ára afmælisári Símans að sögu fjarskiptatækni- nnar yrðu gerð góð skil í samgöngusafninu. Í lokin vitnaði hún í orð Hannesar Hafstein ráð- herra við opnun landsímans 29. september 1906: „Ritsímar og talsímar eru ekki komnir til að stofna frið á jörðu heldur ófrið, ekki næði, held- ur ónæði, ekki hóglífi og kyrrð, heldur erfiði og starfsemi, tíðari æðaslög, næmari taugar, djarf- ari hug. Þannig hefur reynst annars staðar og þannig mun vissulega einnig reynast hér.“ Drífa Hjartardóttir, alþingismaður og stjórn- armaður Byggðasafnsins í Skógum, þakkaði gjöfina og samstarfssamninginn og rakti upp- byggingu safnanna í Skógum sem taka á móti um 37.000 manns á ári, sem skipar safninu í fremstu röð safna á landinu. Þá flutti Þórður Tómasson safnvörður þakkarávarp með sinni þekktu áherslu á áframhaldandi uppbyggingar- starf um varðveislu sögu og minja. Að lokum tók framkvæmdastjóri safnsins, Sverrir Magnús- son, til máls og sagði frá uppbyggingu og starfi samgöngusafnsins og samstarfi við Þjóðminja- safn Íslands og greindi frá samstarfssamning- um við Vegagerðina, Íslandspóst og Rafmagns- veitur ríkisins. Þessi gjöf Símans hf. og styrkur væri safninu hvatning og stefnt væri að því að opna nýja sýningu í safninu á afmælisdegi Sím- ans í lok september á þessu ári. Hið eina sinnar tegundar Byggðasafnið í Skógum á sér rúmlega hálfrar aldar sögu, en það var formlega stofnað árið 1949. Frumkvöðull að stofnun safnsins er safn- stjórinn Þórður Tómasson og hefur hann haft veg og vanda af velferð safnsins allt frá upphafi. Hinn 20. júlí 2002 var opnað nýtt sýningarhús í Skógasafni, Samgöngusafnið í Skógum. Safnið er eina safn sinnar tegundar í landinu og hlut- verk þess er söfnun, varðveisla og sýning muna og minja um þróun samgangna á landsvísu. Þar birtist þróun samgangna og tækni á Íslandi á 19. og 20. öld. Síminn styður Samgöngusafnið í Skógum Þróun samgangna og tækni Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Símans, Rannveig Rist, Drífa Hjartardóttir, Þórður Tómasson og Sverrir Magnússon við afhendingu gjafarinnar. Gefur tæki og muni úr sögu fjarskiptanna Eyvindarstaðaheiði | „Þetta er eins og að vera í Paradís. Það er einstakt að vera í svona nánum tengslum við náttúruna og gefur lífinu gildi,“ seg- ir Sigþrúður Sigfúsdóttir, skálavörð- ur á Eyvindarstaðaheiði. Vinnu við stækkun og lagfæringum á gangna- mannaskálanum við Galtará er að ljúka. Foreldrar Sigþrúðar, Sigfús Guð- mundsson og Jóhanna Björnsdóttir, voru skálaverðir á Eyvind- arstaðaheiði í tvo áratugi. Sigþrúður var þeim til aðstoðar í sjö ár en tók við starfinu í vor. Hún sér um rekst- ur á þremur gangnamannaskálum fyrir Upprekstrarfélag Eyvind- arstaðaheiðar, sem Húnvetningar og Skagfirðingar standa saman að, en skálarnir eru notaðir við ferða- þjónustu á sumrin. Þetta eru skál- arnir við Ströngukvísl, Galtará og Bugðu. Undanfarin ár hefur Sig- þrúður mest verið í Ströngukvísl- arskálanum en er nú flutt í Galt- arárskálann. „Mér finnst ég nánast vera komin ofan í byggð,“ segir hún enda er mun meiri umferð við Galtará en Ströngukvísl. Töluverð umferð er um Eyvind- arstaðaheiði á sumrin og margir kjósa að gista í skálunum. Sigþrúður nefnir sérstaklega hestaferðirnar, þær séu stór þáttur í starfseminni. Þá þurfi, auk annars, að sjá til þess að hestarnir hafi hey og vatn. Svo gistir fjöldi annarra ferðamanna. „Þetta eru allra þjóða kvikindi,“ seg- ir Sigþrúður en lætur jafnframt vel af samskiptunum við gestina. Skálinn stækkaður Miklar framkvæmdir hafa verið við Galtarárskálann í vor. Lárus Jónsson hjá trésmiðjunni Kráki á Blönduósi og starfsmenn hans hafa byggt við skálann og unnið að lag- færingum á þeim eldri. Inngang- urinn verður í nýbyggingunni ásamt salernum og sturtum. Jóhanna segir að mesti munurinn verði að fá sturt- urnar og er viss um að þær verði vinsælar hjá slæptu og þreyttu hestafólki. Mikið var um að vera hjá iðn- aðarmönnunum undir lok síðustu viku því von var á fyrsta hestahópn- um um helgina. Sigþrúður taldi sig geta tekið vel á móti fólkinu ekki yrði allt tilbúið í húsinu. Sigþrúður er með fjórtán ára dóttur sína í útilegunni í sumar og frænku á svipuðum aldri. Dóttirin hefur verið með Sigþrúði öll árin sem hún hefur verið á fjöllum og segir að hún telji dagana þangað til lagt sé af stað. Sumarið er fljótt að líða í kyrrð náttúrunnar og í byrjun september fer Sigþrúður aftur heim til sín á Blönduós og tekur til við það á nýjan leik að koma Morgunblaðinu til áskrifenda enda er hún umboðs- maður blaðsins á Blönduósi. Sigþrúður Sigfúsdóttir, skálavörður á Eyvindarstaðaheiði, kann vel við útileguna og finnst sumarið líða fljótt „Eins og að vera í Paradís“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Góðir gestir Sigþrúður segir að allra þjóða kvikindi gisti skálana. Nóg að sýsla Starfsmenn frá Kráki vinna við stækkun Galtarárskálans og endurbætur á gamla skálanum. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.